Morgunblaðið - 17.09.1975, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1975
(ELTIC ÞURFTI EKKI AB SVNA HIKIB
TIL Al VINNA VAL 2-01IAI1FUM LEIK
Jóhannes Eðvaldsson var fyrirliði Skotanna,
en misnotaði vítaspymu gegn gömlu félögunum
ÞAÐ var enginn glæsibragur yfir leikmönnum Celtic er þeir
unnu Valsmenn 2:0 i Evrópukeppni bikarmeistara á
Laugardalsvellinum í gærkvöldi. Skozku leikmennirnir
þurftu heldur ekki a8 sýna neina snilli til að sigra í þessum
leik. Valsmennirnir voru mun lakari i leiknum og áttu í
rauninni aldrei möguleika á að halda jafntefli eins og þeir
hafa gert í öðrum Evrópuleikjum sínum á Laugardalsvell-
inum. Að þessu sinni einblindu Valsmennirnir heldur ekki á
varnarleikinn, þeir leyfðu sér að sækja og sköpuðu sér oft
sæmileg tækifæri, en til að betri árangur hefði náðst i
þessum leik hefði baráttan þurft að vera meiri. Jóhannes
Eðvaldsson var fyrirliði Celtic að þessu sinni gegn sínum
gömlu félögum og tók hann einnig vitaspyrnu i leiknum, en
þrátt fyrir tvö tækifæri tókst honum ekki að skora.
Það er sénnilegt að Skotarnir hafi
ekki kært sig um að vinna með
miklum mun ! þessum leik. Það
hefði gert siðari leik líðanna, sem
fram fer I Glasgow i byrjun október,
mun minna spennandi fyrir
áhorfendur og það hefði þýtt að
færri hefðu komið á völlinn og
minni peningar í Celtic-kassann.
Mark, sem Skotarnir skoruðu á 6.
minútu leiksins, virtist deyfa til
muna leikmenn Vals og sömuleiðis
áhorfendur, sem létu ekki hevra
verulega í sér fyrr en í siðari hálf-
leiknum.
Valsmenn áttu gott marktækifæri
strax á fyrstu mínútu leiksins og þá
komust þeir hvað næst þvi að skora
i leiknum Fyrst fékk Valsliðið horn-
spyrnu sem gaf af sér þrjú skot í
varnarminn Celtic og loks var
dæmd óbein aukaspyrna rétt fyrir
utan markteiginn, en upp úr henni
náðu Skotarnir knettinum og sneru
vörn i sókn
Einu mistök Sigurðar
Sigurður Dagsson átti góðan leik i
marki Vals i leiknum í gærkvöldi, en
á 6. minútu urðu honum á mistök,
sem gáfu Celtic fyrsta markið i
leiknum Kenny Dalglish, hinn
skemmtilegi skozki landsliðsmaður,
átti skot að Valsmarkinu Sigurður
varði skotið, en missti knöttinn frá
sér út til Wilsons, sem þakkaði pent
fyrir sig með þvi að renna knettinum
i netiðframhjá Sigurði
Dalglish var aftur á ferðinni á 16.
minútu leiksins og sýndi þá hæfi-
leika sina á skemmtilegan hátt.
Hann prjónaði sig á laglegan hátt í
gegnum vörn Vals og renndi siðan
knettinum til Wilson sem stóð á
auðum sjó fyrir miðju markinu.
Honum tókst þó ekki að nýta sér
færið og nú náði Sigurður að hirða
knöttinn frá honum áður en hann fór
! netíð
I rauninni var ekki mikið um tæki-
færi í fyrri hálfleiknum og1 þær voru
mun fleiri mínúturnar sem ekkert
var að gerast á vellinum en þær sem
yljuðu áhorfendum eða fengu blaða-
menn til að lyfta pennum sínum
Heldur hressari Valsmenn
í upphafi siðari hálfleiksins hresst-
ust Valsmenn talsvert og áttu þá að
minnsta kosti tvö marktækifæri, sem
með heppni hefðu getað kostað
Celtic mörk Til að mynda átti
Hermann skalla að skozka markinu á
4 minútu og Ingi Björn náði að
trufla Latchford á 16 mínútu þann-
ig að knötturinn datt niður i
markteiginn rétt við marklinuna
Margir fætur þustu að knettinum,
en skozkir höfðu vinninginn og
hættunni var bægt frá. Hermann átti
aftur skalla á 18. minútu hálfleiks-
ins, en hafði ekki árangur
Upp úr þessu fóru Valsmennirnir
að slaka á aftur og áhorfendur sem
höfðu látið talsvert í sér heyra það
sem af var hálfleiknum þögnuðu nú
Tveir gamlir félagar í baráttu um knöttinn, Hermann Gunnarsson og
Jóhannes Eðvaldsson, annar fyrrverandi atvinnumaður, hinn nýbyrjaður
sem slikur.
Wilson skorar fyrsta mark leiksins. Sigurður á fjórum fótum á marklínunni, Dýri reynir að bjarga á línu en án
árangurs og Vilhjálmur getur ekkert gert. (Ijósm. Friðþjófur.)
nær alveg MacDonald skoraði svo
annað mark Skotanna á 20. mínútu
hálfleiksins.
Kom það eftir slæm mistök í Vals-
vörninni eftir hornspyrnu, knöttur-
inn fór á milli varnarmanna Vals og
beint í höfuð MacDonalds, sem
skallaði knöttinn af krafti I net
Valsara
Jóhannesar-þáttur
Jóhannes Eðvaldsson lék ein-
kennilegt hlutverk ( þessum leik.
Hann var þarna að leika með heims-
frægu atvinnumannaliði, skozku,
gegn sinum gömlu félögum fyrir
islenzka áhorfendur á vel kunnum
velli. Jóhannes stóð sig hvorki vel
né illa i þessum leik og var um
miðjan hóp leikmanna Celtic hvað
getu snerti. Hann ætlaði sér ef til vill
einum of mikið i leiknum og hafði
alls ekki árangur sem erfiði
Þessi islenzki atvinnumaður í
Skotlandi var fyrirliði Celtic í leikn-
um og hefur án efa fengið þann
heiður vegna þess að hann lék á
„heimavelli" Auk þess var Jó-
hannes svo látinn taka vitaspyrnu á
25 minútu seinni hálfleiksins, en
hefði sennilega feginn hafa viljað
vera laus við þann heiður eftir að
Markaskorarinn MacDonald og
Atli Eðvaldsson i villtum dansi.
honum hafði mistekizt tvisvar sinn-
um.
Vitaspyrnan var dæmd á Vilhjálm
Kjartansson, sem brá Wilson innan
vitateigs. Fyrra skot Jóhannesar úr
vitaspyrnunni fór hátt yfir, en
Sigurður hafði hreyft sig áður en
spyrnan var tekin og Jóhannes fékk
aðra tilraun. Nú hitti Jóhannes
markið, en Sigurður gerði sér lítið
fyrir og varði, enda var skotið ekki
utarlega þó það væri sæmilega fast.
Þeir ungu beztir
Beztir Valsmannanna i þessum
leik voru ungu mennirnir Magnús
Bergs og Guðmundur Þorbjörnsson
— i fyrri hálfleiknum. Þá átti Albert
Guðmundsson góðar sendingar eftir
að hann kom inn. Vilhjálmur
Kjartansson stóð fyrir sinu og sömu-
leiðis Bergsveinn Alfonsson i seinni
hálfleiknum. Þá má ekki gleyma
Sigurði Dagssyni, sem alltaf stendur
fyrir sinu — og rúmlega það —
þegar mikið liggur við. Annars
verður það að segjast um Valsliðið
að maður átti von á meiru frá því, en
Framhald á bls. 12.
Jóhannes spáir 6-
Valsmenn hvergi
ÞETTA var ekki nógu gott liS til
þess að skemma „statistikina"
hjá okkur, sagSi Hermann
Gunnarsson, hinn leikreyndi leik-
maður Valsliðsins eftir leikinn i
gærkvöldi, og átti þá við að þetta
er I fyrsta skipti sem Valur tapar
leik á heimavelli I Evrópubikar
keppni. Yfirleitt voru menn sam-
mála um að Celtic-liðið hefði
valdið miklum vonbrigðum. en
leikmenn Vals voru þó á þvi að
betra væri að biða með að kveða
upp dóma yfir þvi unz leikurinn
ytra væri búinn. Var talað um
þann leik i léttum dúr, og þegar
Sigurður Dagsson var að þvi
spurður hvort hann héldi að sá
leikur yrði burst svaraði hann að
auðvitað myndu Valsmenn bursta
Celtic, og Hermann Gunnarsson
skaut þvi inn i að það væri lág-
mark að hann skoraði þrennu i
þeim leik
— Ég er ekkert alltof hress yfir
þessum leik, sagði Hörður
Hilmarsson — Við fengum á
okkur tvö mjög ódýr mörk, annað
vegna klaufaskapar og hitt vegna
þess að illa var dekkað upp, og var
slæmt að eiga þar hlut að máli.
Celtic liðið var ekki nálægt þvi
eins sterkt og ég átti von á, jafn-
vel þótt Joe Gilroy, þjálfari okkar,
væri búinn að segja okkur að það
sterkasta við Celtic um þessar
mundir væri nafnið — þeir væru
ekkert sérstakir. Auðvitað verða
þeir erfiðir á útivelli, en ég á alls
ekki von á þvi að þeir vinni okkur
með miklum mun þar. Ég tel
þennan leik hafa verið nokkuð
jafnan, og allt fram til þess að þeir
skoruðu seinna mark sitt áttum
við góða möguleika i leiknum. Ég
er nokkurn veginn viss um að ef
Valur hefði átt einn af sinum betri
leikjum i kvöld, þá hefðum við i
það minnsta náð jafntefli við þá,
ef ekki unnið.
Tvöföld ánægja
— Það er alltaf gaman að verja
vitaspyrnu, sagði Sigurður Dags-
son markvörður, — og ég neita
þvi ekki að ánægjan var næstum
tvöföld að þessu sinni. Ég ákvað
að reyna að trufla Búbba með þvi
að hreyfa mig í markinu. — Tók
áhættuna að dómarinn sæi það.
Þegar Búbbi tók svo spyrnuna aft-
ur var skot hans gifurlega fast og
nokkuð utarlega. Ég flokka það
þvi undir heppni að ég skyldi
verja. Það var mér líka mikil sára-
bót eftir að hafa fengið rakið
klaufamark á mig ,f leiknum.
Annars hafði ég ekkert sérstak-
lega mikið að gera, þeir fengu
ekki mörg hættuleg færi og
-0 úti en
smeykir
reyndu litið langskot. Ég átti von á
Celtic-liðinu betra, en vafalaust
verður það erfitt á heimavelli
sínum, þar sem það hefur
stuðning fjölmargra áhorfenda, og
góðan völl.
Setti mig úr sambandi
— Þessi leikur er enginn mæli-
kvarði á getu Celtic-liðsins. Þið
ættuð bara að sjá það leika á
almennilegum velli. Völlur liðsins
er sem parket miðað við þessi
ósköp, sagði Jóhannes Eðvalds-
son, fyrirliði Celtic eftir leikinn i
gær, og var greinilega heidur
óhress yfir frammistöðu sinni og
sinna manna.
— Við höfðum ekki einu sinni
skó sem hentuðu i slikt moldar-
flag, sagði hann. Við vinnum
seinni leikinn stórt, — ég spái
6—0.
Um vítaspyrnuna sagði
Jóhannes.
— Sigurður Dagsson setti mig
algjörlega úr sambandi með þess-
um hlaupum sinum i markinu er
ég spyrnti i fyrra skiptið. Þegar ég
svo endurtók spyrnuna hugsaði ég
fyrst og fremst um að skjóta nógu
helv. . . fast, og það kom mér
virkilega á óvart að Sigurður
skyldi ná skotinu.