Morgunblaðið - 17.09.1975, Síða 12
\ 2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1975
Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen.
Styrmir Gunnarsson.
Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn GuSmundsson.
Fréttastjóri Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, slmi 10 100.
Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22 4 80.
Áskriftargjald 800,00 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 40,00 kr. eintakið.
Batamerki sýnileg
Ringulreið
□ Öpera f 3 þáttum og 21 atriði með prolog og epilog
□ Höfundar: Flosi Ólafsson og Magnús Ingimarsson
Í| Leikmynd: Björn Bjarnason □ Dans: Elín Edda
rnadóttir. □ Óperan er tileinkuð Dönjk Krupsku
(hver svo sem það er).
Kæri Flosi.
Þaö átti fyrir mér að liggja að
skrifa um þig dóm eða öllu
heldur um list þína. Ég skal
reyna að vera skammorður, en
verk þitt er þess eðlis að því
verður ekki lýst með orðum
eins og nafn þess bendir raunar
til. Ef til vill verður þeim
áhrifum sem ég varð fyrir bezt
lýst með því að bera þau saman
við þau sem ég varð fyrir á
miður þokkuðum en bráð-
skemmtilegum stað í Bremer-
haven endur fyrir löngu þegar
ég kom þangað ungur og enn
óspilltur ásamt íslenzkum
sjóurum. Þetta er ekkert last.
„I óperunni Ringulreið gefst
oss kostur á sjá hin ýmsu
klassísku tjáningarform leik-
hússins eins og þau koma höf-
undum fyrir sjónir,“ segir i
leikskrá. Mér virðist höfundum
takast býsna vel það sem þeir
ætla sér, og svo mikið er víst að
frumsýningargestir sýndust
skemmta sér hið bezta.
Persónulega hefði ég kosið enn
meiri galsa og ýkjur en einkum
þó meiri léttleika, oft var gróf-
leikinn of áberandi, of gratís.
Verkið hefði að ósekju mátt
vera pínulítið avant-garde.
Raunar segir i leikskrá og
svipuð ummæli hef ég séð höfð
eftir höfundi á prenti — að
Ringulreið sé „dæmigert aftúr-
stefnuverk — , arriera-garde
eins og þau gerast bezt og mark-
verðust“. Það er ánægjulegt
þegar höfundar auðvelda gagn-
rýnendum nafngiftir á þeim
listastefnum sem þeir
aðhyllast. En eitthvað sló þetta
frönskulega orð mig, og sannast
sagna finn ég það hvorki í
okkar ágæta Boots né heldur i
Larousse í þessari merkingu,
en skal leita betur.
Það sem mér þótti eftir-
tektarverðast, eins og svo oft
áður á leiksýningum hér var
jafn leikur. Leikendur skiluðu
allir hlutverkum sínum með
prýði. Og enda þótt þau eigi öll
skilið að þeirra sé getið hér, þá
held ég að ekki sé á neinn
hallað, þó Árna Tryggvasonar
sé minnzt sérstaklega. Hann
sýnir enn einu sinni hver leik-
ari hann er, hvort sem hann
þegir eða syngur og allt þar á
milli. Oft minnir hann mig á
Buster Keaton meðan hann var
og hét. Sigríður var bráð-
skemmtileg I veigamiklu hlut-
verki Magöalínu, sömuleiðis
þau skötuhjú Randver Þorláks-
son og Ingunn Jensdóttir. Guð-
rún Stephensen skilaði sínu
verki af þeirri festu og öryggi
sem henni eru lagin. Nætur-
drottningarnar, Elín Edda
Árnadóttir og Björg Jónsdóttir,
voru gæddar þeim kynþokka
sem við átti og vel það.
Þá er ekki annað eftir en að
þakka þeim Magnúsi Ingimars-
syni, Birni Björnssyni og Elínu
Eddu Árnadóttur fyrir þeirra
framlag, að ógleymdri Sigríði
Þorvaldsdóttur, er aðstoðaði
höfunda við leikstjórn.
Emil H. Eyjólfsson.
Efnahagsbatinn hjá iðn-
væddum þjóðum Evr-
ópu og Norður-Ameríku,
sem spáð var að segja
myndi til sín á líðandi ári,
hefur látið á sér standa.
Efnahagsvandinn hefur
víða aukizt, verðbólguhjól-
ið hert á sér og atvinnu-
leysið farið vaxandi.
Skömmu eftir að núver-
andi ríkisstjórn settist að
völdum var gripið til marg-
háttaðra efnahagsráðstaf-
ana, sem höfðu þann meg-
intilgang að tryggja rekstr-
argrundvöll atvinnuveg-
anna, atvinnuöryggi al-
mennings, hagstæðari
vöruskiptajöfnuð þjóðar-
búsins og hamla gegn jafn-
örum verðbólguvexti og
var á sl. ári eða yfir 52%.
Þessar ráðstafanir, sem
m.a. kostuðu nokkra lífs-
kjaraskerðingu, hafa borið
sýnilegan árangur, þó að
hægar hafi miðað í rétta
átt en vonir þeirra bjart-
sýnu stóðu til.
-.Áþreifanlegasti árangur
efnahagsráðstafana ríkis-
stjórnarinnar hefur komið
fram í nægri atvinnu, hvar-
vetna á landinu, öfugt við
það sem gerðist með ná-
grannaþjóðum, þar sem at-
vinnuleysið er víðtækt og
vaxandi þjóðarböl. Boðað-
ar efnahagsráðstafanir
brezku jafnaðarmanna-
stjórnarinnar, sem m.a.
lýsa sér í kaupbindingu til
að tryggja samkeppnisað-
stöðu þarlendra atvinnu-
vega, tala sinu máli í þessu
efni. Danska jafnaðar-
mannstjórnin boðar ýmsar
ráðstafanir, til að auka
einkaneyzlu þ.e. eftirspurn
eftir dönskum framleiðslu-
vörum, samhliða stórfelld-
um samdrætti í samneyzlu,
þ.e. útgjöldum ríkis og
sveitarfélaga.
Þróun utanríkisverzlun-
ar okkar er mun hagstæð-
ari það sem af er þessu ári
en á sama tíma í fyrra.
Hagadeild Seðlabanka ís-
lands hefur reiknað út
vöruskiptajöfnuð landsins
á föstu gengi. Þar kemur
m.a. fram, að vöruskipta-
jöfnuðurinn var óhagstæð-
ur á fyrstu 7 mánuðum árs
1973 um 2.090 m.kr., en á
sama tíma 1974 um 14.378
m.kr. Aukning hins óhag-
stæða viðskiptajafnaðar
milli áranna 1973 og 1974
nam því 12.288 m.kr. Sam-
bærileg aukning milli ár-
anna 1974 og 1975 nam
hinsvegar verulega lægri
upphæð eða 840 m.kr. Þeg-
ar þessar tölur eru bornar
saman verður og að hafa í
huga, að á umræddu tíma-
bili 1975 rýrnaði heildar-
verðmæti útflutnings um
12% frá fyrra ári, en á
árinu 1974 varð hinsvegar
20,3% verðmætaaukning.
Rýrnum á heildargjald-
eyrisstöðu þjóðarinnar á
fyrstu 7 mánuðum árs 1974
varð 7.023 m.kr., en sama
tíma 1975 4.308 m.kr.
Greiðslujafnaðarspá fyrir
árið 1975 gerir ráð fyrir
því, að gjaldeyrirstaðan
versni um 2.500 m.kr. í
heild á yfirstandandi ári,
þann veg að gjaldeyrisstað-
an ætti að batna á síðustu
mánuðum ársins um 1.000
— 1.500 m. kr.
Erfitt er að spá um
verðbólguvöxt, það sem
eftir er ársins, en á
þeim vettvangi hefur
skemmst miðað í viðleitni
ríkisstjórnarinnar, þ.e.
í fyrirbyggjandi að-
ferðum gegn verðbólgu-
vextinum. Líkur benda til
að verðbólguvöxtur á árinu
í heild verði á milli 40 og
A5%, en hann var yfir 52%
á sl. ári. Niðurskurður rík-
isfjárlaga um2000m. kr. og
stjórnarákvörðun, þess
efnis að útgjaldaauki
vegna síðustu kjarasamn-
inga og gengislækkunar
komi ekki fram í hærri rík-
isframlögum, utan launa-
hækkunum ríkisstarfs-
manna, hafði jákvæð áhrif
í þessu efni. Hlutfall ríkis-
útgjalds í þjóðartekjum
ársins lækkar og bersýni-
lega, í fyrsta skipti um
langt árabil. Hér hefði þó
betur mátt gera, þótt sam-
staða næðist ekki um meira
aðhald í ríkiskerfinu, enda
leiddu samningar við laun-
þegasamtökin til aukinna
útgjalda, bæði í láglauna-
bótum og niðurgreiðslum á
helztu nauðsynjum al-
mennings, samhliða því
sem veruleg tekjuskattsí-
vilnun skerti tekjur ríkis-
sjóðs.
Greinileg batamerki eru
sýnileg, sem fagna ber, þó
að skemmra hafi miðað en
vonir stóðu til. Hinsvegar
má það ekki gleymast, að
veður öll eru válynd í efna-
hagsmálum okkar, og að-
gæzlu er þörf, ef þjóðar-
skútan á ekki að steyta á
skeri efnahagsvandans,
með ófyrirsjáanlegum af-
leiðingum í samdrætti í at-
vinnurekstri og hliðstæðu
atvinnuleysi og nágranna-
þjóðir búa nú við.
— Gíslunum . . .
Framhald af bls. 1
Egyptalandsforseti rifti ekki sam-
komulaginu, sem Egyptar og
ísraelar gerðu á dögunum. Eftir
miklar samningaviðræður féllust
skæruliðarnir á að fljúga með
gislana til Alsír og komu þangað
sem fyrr segir í morgun. Skv.
heimildum í Kaíró mun það hafa
verið fyrir tilstilli sérstaks full-
trúa Yassers Arafats leiðtoga
Palestinuaraba, að skæruliðarnir
féllu frá hótijnum sínum. Skæru-
liðarnir munu hafa starfað upp á
eigin spýtur.
— Samkomulag
Framhald af bls. 1
með þann árangur, sem náðist, og
segja að S.Þ. hafi öðlazt nýtt líf.
Aldrei áður hafi svo margar
þjóðir setið við samningaborð af
jafnmikilli einlægni og nú og sýni
það sig bezt i þvi að niðurstöðurn-
ar komu mörgum mjög á óvart.
Fulltrúar 137 þjóða voru við
setningu allsherjarþingsins I dag,
en fyrir því liggja alls 122 mál.
FuIltrúariS-Afríku mættu ekki til
fundar, en þeim var vikið burt á
siðasta þingi og munu þeir hafa
óttazt að hið sama endurtæki sig
ef fulltrúarnir mættu. Almennar
umræður á þinginu hefjast nk.
mánudag.
— Portúgal
Framhald af bls. 1
demókratar, en sú krafa var ekki
lögð fram fyrr en Soares var
farinn.
Soares kom heim síðdegis í dag
og hélt þá þegar til fundar við
Azevedo. Hann sagði við frétta-
menn við komuna, að Willy
Brandt, formaður v-þýzka
jafnaðarmannaflokksins, hefði
tjáð sér að nú væri kominn grund-
völlur fyrir efnahagsaðstoð V-
Evrópuríkja við Portúgal. Sagði
Soares, að Brandt hefði tjáð
Cunhal, leiðtoga kommúnista, hið
sama. Soares sagði fréttamönnum
einnig, að jafnaðarmenn hefðu
hafnað tilboði um að skipa
hreinan meirihluta i stjórninni.
Annar helzti þröskuldurinn I
stjórnarmyndunartilraununum
mun vera krafa jafnaðarmanna
um hreinsun kommúnista í opin-
berum fjölmiðlum og að fulltrúar
allra flokka fái Itök í stjórnum
þeírra, en kommúnistar hafa
hingað til verið svo til allsráðandi
á því sviði. Hafa þeir m.a. sótt fast
að fá I sínar hendur embætti upp-
lýsingamálaráðherra.
— Noregur
Framhald af bls. 1
hann vann mest á í síðustu kosn-
ingum vegna andstöðu við EBE-
aðild. Stjórnmálasérfræðingar
segja að ef nú hefði verið um
þingkosningar að ræða hefði
Verkamannaflokkurinn misst
meirihluta í stórþinginu, en þeir
hafa nú í stjórnarsamstarfi með
vinstri sósialistum 1 sætis meiri-
hluta. Arsþing Verkamanna-
flokksins verður haldið 25.
september nk. og velta menn nú
fyrir sér hvort Trygve Bratteli
muni láta af embætti forsætisráð-
herra, þar sem Ijóst er að borgara-
flokkarnir hefðu fengið meiri-
hluta í þingkosningum, 80 á móti
69 fyrir Verkamannaflokkinn og
vinstri sósialista, sem hefðu tapað
10 sætum, en Verkamanna-
flokkurinn aðeins bætt við 7.
— íþróttir
Framhald af bls. 10
það verður þó engan veginn sagt
um frammistöðu liðsins að það sé
lélegt að tapa fyrir Celtic 0:2.
Þrír menn báru nokkuð af i liði
Celtic. Þeir Bobby McGrain bakvörð-
ur, Roddy Wilson, sem sýndi margt
skemmtilegt, og sömuleiðis Kenny
Dalglish, sem þó var mjög vel gætt.
Að þessu sinni lék Bobby Lennox,
sem venjulega er fyrirliði Celtic, ekki
með vegna leikbanns, aðrar af
..stjörnum" Celtic voru með
Dómari í þessum leik var irinn
Wright og var hann ekki meðal
þeirra beztu I þessum helgur litla
Evrópuleik. —áij.
Þrír nýir
prófessorar
FORSETI Islands hefur nýlega
skipað þrjá nýja prófessora, tvo
við Háskóla Islands og einn við
Kennaraháskóla Islands.
Dr. Óttar P. Halldórsson verk-
fræðingur hefur verið skipaður
prófessor í byggingaverkfræði við
verkfræði- og raunvisindadeild
Háskóla íslands frá og með 1.
ágúst 1975 að telja.
Dr. Sigríður Valgeirsdóttir hef-
ur verið skipuð prófessor í upp-
eldisfræði við Kennaraháskóla Is-
lands frá og með 1. ágúst að telja.
Hjalti Þórarinsson yfirlæknir
hefur verið skipaður prófessor í
handlæknisfræði við læknadeild
Háskóla Islands frá 1. júli 1975 að
telja.