Morgunblaðið - 17.09.1975, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1975 13
Kynorka og þokki eymar-
stórra karla með ótíkindum
BREZKUR sálfræðingur, dr.
Ivor Felstein, sem starfar í
Manchester hefur gjört
heyrinkunna þá skoðun sina að
eyrnastórir menn hafi alira
manna mesta kynorku og
þokka. Birti doktorinn niður-
stöður rannsóknar sínar f viku-
ritinu „Pu!se“.
Þar segir: „Þeir sem hafa út-
stæð eyru skyldu langt frá ör-
vænta. Clark Gable hafði út-
stæð eryu og sömuleiðis Bing
Crosby, popstjarnan Elton
John, leynilögreglumaðurinn
Kojak sem dáður er af sjón-
varpsáhorfendum i Bretlandi,
svo að nokkrir séu nefndir.“
Útstæð og áberandi eyru örva
hvatir og langanir kvenna til
viðkomandi karla, segir
Felstein og telur nánast sannað
að útstæð eyru og yfirmáta-
mikil karlmennska haldist
venjulega i hendur. Segir hann
það hryggilegt að svo mörgum
sem hafi stór eyru sé stritt á
barnsaldri og leiði það á
stundum til minnimáttakendar,
og alrangt sé af þeim sem þann-
ig eru skapaðir, að láta sér vaxa
sítt hár til að fela þetta kyn-
tákn.
Brezkir togaramenn
óánægðir með sein-
læti stjórnarinnar
Jóhanna Bogadóttir við eitt verka sinna.
Jóhanna sýnir á Neskaupstað
I BREZKA blaðinu The Times
birtist fyrir nokkru<stutt grein
um stöðuna f samskiptum Breta
og íslendinga varðandi fiskveiði-
lögsögumál og segir í fyrirsögn að
„góðvilji sé á íslandi i garð
brezkra togaramanna, ,þrátt fyrir
útfærsluna í 200 mílur". Eru
málavextir síðan raktir og verður
ekki annað séð af greininni en
höfundur hennar telji það út af
fyrir sig eðlilegt framhald á
málum að Islendingar færi út í
200 mílur. Minnt er á að sendi-
nefnd frá Bretlandi muni eiga
viðræður við íslendinga, en þar
verði höfuðáherzlan lögð á leyfi
brezkra togara til veiða innan 50
mílnanna. Þá er vikið að samningi
landanna sem gerður var í nóvem-
ber 1973 og látin í ljós ánægja
Kínverjar út
í sveit í læri
Hong Kong, 16. september. Reuter.
FRÉTTASTOFAN Nýja Kína seg-
ir að 240.000 miðskólanemendur
frá fylkinu Liaoning íNorðaustur
Kína hafi verið sendir út í sveit á
þessu ári til að „endurmenntast
af fátækum bændum".
með að hann hafi reynzt allvel í
framkvæmd. Þó hafi komið í ljós
nokkrir agnúar og megi rekja þá
að mestu leyti til seinlætis brezku
stjórnarinnar. Hafi það seinlæti
verið þyrnir í augum samtaka
brezkra togaramanna þessi tvö ár.
Þegar samkomulagið hafi verið
gert fyrir tveimur árum hafi táls-
ménn brezka fiskiðnaðarins lagt á
það áherzlu að hafnar yrðu fram-
haldsviðræður eins fljótt og unnt
væri til að ná samningum við Is-
lendinga sem giltu til lengri tíma.
Talsmaður samtakanna segir nú:
„Þegar ekkert gerðist, ítrekuðum
við beiðni okkar I nóvember á sl.
ári og við fórum að verða vægast
sagt kviðnir og áfjáðir, þegar ekk-
ert var farið að gerast á öndverðu
þessu ári.“ Siðan hafa málin orðið
æ viðkvæmari á síðustu mánuðum
og ástæðurnar eru auðsæjar.
Ljóst sé að ýmsir togararnir verði
teknir í brotajárn og þá sé að
skera úr um hvaða togara eigi að
taka. Skip sem sæki á djúpmið
séu byggð í þeim sérstaka tilgangi
enda þótt tilraunir hafi verið
gerðar á siðustu árum með að
smíða togara sem geti gegnt marg-
þættari tilgangi. Stærstu
togararnir eigi bezt með að
stunda veiðar á Islandsmiðum og
aðrir annars staðar.
A LAUGARDAGINN (20. sept)
opnar Jóhanna Bogadóttir list-
málari sýningu I Egilsbúð á Nes-
kaupstað og sýnir hún þar 30
graflkmyndir sem allar eru til
sölu.
Jóhanna stundaði myndlistar-
BJARNI Jónsson opnar mál-
verkasýningu að Hliðarbæ I
Glæsibæjarhreppi við Akureyri á
fimmtudag og verður sýningin þá
opin frá kl. 8—10. A föstudag
verður sýningin opin frá kl. 6—10
og á laugardag og sunnudag frá
nám í Frakklandi. Hún hefur
haldið nokkrar einkasýningar og
tekið þátt í sarpsýningum hér
heima og erlendis.
Sýningin verður opin kl. 3—10
e.h. dagana20.—22. sept.
kl. 2—10 e.h. og lýkur þá.
Málverk eftir Bjarna voru fyrst
á samsýningu Félags ísl. mynd-
listarmanna 1952, en síðan hefur
hann tekið þátt I mörgum sýning-
um og haldið sjálfstæðar sýn-
ingar.
Enga undan-
sláttarsamninga
segir FFSÍ
FUNDUR stjórnar Farmanna-
og fiskimannasambands ís-
lands haldinn föstudaginn 12.
sept. 1975, samþykkti eftirfar-
andi:
Þar sem hafnar eru við-
ræður við Breta og fyrirhug-
aðar eru viðræður við Þjóð-
verja o.fl. þjóðir um veiðirétt-
indi -rnnan hinna nýju 200
mflna fiskveiðimarka vill
sambandsstjórn ítreka fyrri
ályktanir I landhelgismálinu.
Jafnframt skorar sambands-
stjórn á alla fslendinga og
alveg sérstaklega á samtök sjó-
manna og útgerðarmanna að
standa einhuga gegn öllum
undansláttar og nauðungar-
samningum við erlendar
þjóðir.
(Fréttatilkynning).
Bridge í Breið-
fírðingaíélagmu
AÐALFUNDUR bridgedeildar
Breiðfirðingafélagsins var
haldinn 11. sept. s.l. I stjórn
fyrir næsta starfsár voru
kjörin Þorsteinn Laufdal for-
maður, Böðvar Guðmundsson
gjaldkeri, Gissur Gissurason
ritari, meðstjórnendur Halldór
Jóhannesson og Jóhanna
Guðmundsdóttir.
Starfssemin hefst með 5
kvölda tvímenningskeppni
sem byrjar fimmtudaginn 18.
þ.m. kl. 20. Spilað verður í
Hreyfilshúsinu við Grensás-
veg. Þátttöku þarf að tilkynna
fyrir hádegi á miðvikudag I
sima 21865 eða 72188. Nýir
félagar velkomnir.
Sportbátaeigend-
ur stofna félag
FIMMTUDAGINN 18. þ.m. kl.
19.30 er boðað til stofnfundar
félags sportbátaeigenda I
Reykjavfk og nágrenni.
Fundurinn verður I húsi Slysa-
varnafélags lslands á Granda-
garði. Allir sem eiga hags-
muna að gæta og áhuga hafa á
bættri aðstöðu sportbáta á
höfuðborgarsvæðinu eru
hvattir til þess að koma á
fundinn.
Stofnun félags sportbátaeig-
enda er búin að eiga sér nokk-
urn aðdraganda. Fyrir rúmum
mánuði komu saman til.
fundar allmargir sportbátaeig-
endur I Reykjavík og ræddu
hagsmuna- og öryggismál.
Kaus fundurinn undirbún-
ingsnefnd til að vinna að
félagsstofnun. Nefndin hefur
starfað sfðan og I sfðustu viku
kynnti hún störf sfn á fundi
þeirra sömu manna, er fyrst
komu saman f sfðasta mánuði
og var ákveðið að efna til
stofnfundarins hið fyrsta.
(Fréttatilkynning)
Vitni vantar
MÁNUDAGINN 15. septem-
ber, á tímabilinu 13,50 til
14,20, var ekið á bifreiðina Ö-
2319, sem er grænn Fiat 125,
þar sem bifreiðin stóð á stæði
við Sjómannaskólann. Vinstri
framhurð er mikið dælduð.
Tjónvaldurinn fór af vettvangi
og eru þeir, sem einhverjar
upplýsingar geta gefið um
þessa ákeyrslu, beðnir að hafa
samband við rannsóknarlög-
regluna.
Ekið á bíl
LAUGARDAGINN 13. septem-
ber milli klukkan 15 og 17, var
ekið á bifreiðina R 29392, sem
er Citroén DS super, þar sem
bifreiðin stóð við Bugðulæk
17. Vinstra frambretti og hurð
skemmdust og eru þeir, sem
upplýsingar geta gefið, beðnir
að hafa samband við rann-
sóknarlögregluna.
Sveinn Benediktsson:
Skyndileg verðhækkun á
vörumarkaðnum í Chicago
VÖRUMARKAÐURINN I Chicago
er aðaimarkaSur á soyabaunum,
hveiti, mais, kornvörum og hvers-
konar mat- og fóðurvörum úr
dýra- og jurtaríkinu, þar á meðal á
jurtafeiti, jurtaolium, lýsi og fisk-
mjöli.
Á þessum markaði verða tíðum
miklar sveiflur, sem mótast af
framboði og eftirspurn og gætir
þar oft áhrifa frá „spekula
sjónum".
Áhrifa frá hinum mikla markaði
gætir um allan heim. Þar hafði
verð á lýsi og fiskmjöli farið hrið-
lækkandi frá því í byrjun ágúst-
mánaðar s.l. í kjölfarið varð
lækkun á þessum vörum víðs-
vegar um heim, allt fram til 11.
þ.m. Þá gjörbreyttust markaðs-
horfur skyndilega af ýmsum
ástæðum, svo mikil hækkun varð
á vörumarkaðnum á mörgum mat-
og fóðurvörum s.l. föstudag hinn
12. september 1975. Jafnaðist þá
að mestu verðfallið á lýsi og fisk-
mjöli, sem varað hafði rúman
mánuð.
Eftir þessa hækkun varð verð á
heimsmörkuðum þó ekki nema
liðlega helmingur af þvi verði, sem
það hafði verið fyrir ári á lýsi,
jurtafeiti og jurtaolíum.
Helstu ástæðurnar fyrir þessari
snöggu sveiflu eru raktar til eftir-
farandi breytinga, sem allar urðu
um sama leyti:
1. Verkalýðssamböndin i Banda-
ríkjunum samþykktu að skipa um
borð hindrunarlaust kornvörum,
sem seldar höfðu verið þaðan til
Sovjetrikjanna
2. Sovjetríkin hafa samþykkt
að semja við Bandarikin um
framtiðarviðskipti. Skilmálar leiða
i Ijós, að Rússar halda þvi ekki
lengur fram, að þeir séu sjálfum
sér nógir um kornvöruframleiðslu
og þurfi þvi ekki á innflutningi á
kornvörum að halda nema endrum
og eins.
Þeir hafa orðið við þeirri kröfu
Bandarikjamanna að viðurkenna
að þeir þurfi að flytja þessar vörur
inn i stærri stil en verið hefur að
meðaltali á ári í s.l. 5 ár. (Á árinu
1973 var talið, að Rússar hefðu
flutt inn allt að 30 milljónum
tonna af mat- og fóðurvörum frá
Bandaríkjunum, er nægði til að
fæða allt að 130—140 milljónir
manna i heilt ár). j hve rikum mæli
þetta á við um sojabaunir, er enn
nokkuð á huldu.
3. Áætlanir opinberra aðila i
Bandarikjunum um uppskeru á
sojabaunum og mais eru langt
undir áætlunum einstakra aðila,
sem gefnar voru út fyrr i vikunni
sem leið og því langtum lægri en
almennt hafði verið búist við.
4) Spáð hafði verið frosti 12.
september og næstu daga á
gróðursvæðum Soyabauna og
mais I Bandarikjunum norðan-
verðum og á gróursvæðum linoliu-
kjarna og smjörkálskjarna i
Kanada og Bandarikjunum.
Þetta samanlagt hafði gagngjör
áhrif á álit manna á markaðshorf-
um og gætti þeirra áhrifa á
markaðnum í heild.
Lækkunin sem numið hafði á
rúmum mánuði á lýsi og mjöli og
fleiri vörum allt að 20%, snerist
hinn 12. september i nærri sam-
svarandi hækkun.
(Aðalheimild Oil World 1 2. sept.
1975. Lauslega þýtt.)
i grein sem ég ritaði i Dreifibréf
Félags isl. fiskmjölsframleiðenda
hinn 6. sept. s.l. i hefti nr. 9 1975
og prentuð var í Morgunblaðinu
fimmtudaginn 11. september s.l.,
lét ég svo ummælt I niðurlagi
greinarinnar:
„Þrátt fyrir verulega lækkun á
heimsmörkuðum á fiskmjöli og
lýsi siðustu vikur, er það álit
margra, sem bezt mættu vita, að
fiskmjöl og lýsi muni heldur
hækka en lækka i verði næstu
mánuði. Óvissa er þó mikil i þess-
um efnum, vegna oliukreppunnar,
verðbólgu og almennrar óvissu í
öllum viðskiptum þjóða á milli.
Að sjálfsögðu mun það valda
miklum örðugleikum á komandi
loðnuvertið, að verðjöfnunar-
sjóður loðnuafurða er nú tómur. Á
síðustu vertið var allri innstæðu i
sjóðnum, á fjórða hundrað milljón
um króna, varið til þess að halda
uppi loðnuverðinu. Blasir þvi við
að finna verður nýjar leiðir i sama
skyni.
Vegna sivaxandi reksturs-
kostnaðar og verðbólgu og miklu
lægra verðs á lýsi og fiskmjöli en i
fyrra og með verðjöfnunarsjóðinn
þrotinn, verður hinn mikli vandi
loðnuveiðanna og loðnuvinnsl-
unnar torleystur.
Til þess þarf miklu almennari
skilning á efnahagsmálum en nú
virðist vera hjá þjóðinni, þegar úr
öllum áttum koma kröfur um meiri
óarðbærar framkvæmdir, hærra
kaup, einkum hinna hæst launuðu
og um meiri eyðstu.
Nauðsyn er á þvi að tryggja,
eftir þvi sem unnt er, rekstur
framleiðslufyrirtækja, sem bera
uppi þjóðarbúskapinn, en það
tekst ekki með þvi að hlaða æ
meiri byrðum á fyrirtækin, sem
flest eru þegar að sligast undir
miklum taprekstri. Það er þjóðar-
nauðsyn, að skilningur á þessum
sannindum skapist fyrr en i
ótlma."
Loðnuveiðarnar 1975 hófust
um miðjan janúar og liklegt að
unnt verði að hefi.a þær um svipað
leyti á árinu 1976. En til þess þarf
skilning og velvilja margra aðila,
sökum þess að þessi atvinnugrein
stendur nú mjög höllum fæti, svo
sem greint hefur verið frá hér að
framan.
Sveinn Benediktsson.
Bjarni Jónsson heldur sýningu