Morgunblaðið - 17.09.1975, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1975
21
VELVAKAIMDI
VelvakandT svarar I slma 10-100
kl. 14—1 5, frá mánudegi til föstu-
idags
0 Prinsinn
og Húsvíkingarnir
Elfn Methúsalemsdóttir á
Bustarfelli skrifar Velvakanda
eftirfarandi bréf:
„Kæri Velvakandi.
Mig langar til að biöja þig fyrir
nokkrar línur, þótt seint sé, vegna
bréfs frá konu á Húsavík, sem þú
birtir 16. ágúst sl. Ekki gat kona
sú naftis síns og fannst mér það
hálfaumingjalegt, kannski hefur
hún skammazt sín fyrir „skrifið".
Konan rakti ferðasögu tveggja
fjölskyldna frá Húsavik til
Vopnafjarðar um verzlunarmanna
helgina, dásamaði verðurblíðuna,
fagurt útsýni af Bustarfellinu og
hversu álitlegt hefði verið að
tjalda undir hlíðum þess. Blessað
fólkið hafði víst notið kvöidsins,
næturinnar og morgunsins vel.
En æ. „Adam var ekki lengi í
Paradis. Prinsinn var að koma.“
Ég nenni ekki að rekja nákvæm-
lega frásögn Húsavíkurkonunnar,
en hún taldi, að þau hefðu fengið
ströng fyrirmæli frá landeiganda
Bustarfells um að hafa sig á burt.
Þau hefðu tekið upp dót sitt („þar
sem við erum löghlýðpir borgar-
ar“) og ekið út fyrir hlið
Bustarfellsbæjar og tjaldað þar.
0 Annað
sjðnarmið
Já, blessuð konan sagði sög-
una frá þeirra sjónarhóli, en þá er
að líta á söguna frá sjónarhóli
fjölskyldunnar á Bustarfelli.
Það virðist vera álit margra,
einkum kaupstaðarfólks, að það
land, sem ekki er afgirt, sé al-
menningseign, sé því öllum heim-
ilt að aka þar um, tjalda eða að-
hafast annað það, sem hverjum og
einum sýnist. Nú hagar svo til hér
á Bustarfelli, að mikið af landar-
eigninni er afgirt. Til þess að
komast hér héim þarf því að fara
um eitt hlið áður en komið er að
túnhliðinu, slðan ekið heim að
gamla bænum og íbúðarhúsinu.
Þar líkur hinum almenna vegi.
Vegurinn liggur að vísu lengra,
áfram gegnum túnið, gegnum hlið
og hér inn í dal, og sameinast þar
veiðimannavegi, sem liggur með-
fram Hofsá og landeigendur Bust-
arfells létu ryðja fyrir mörgum
árum, en leigutaki Hofsár hefur
síðan lengt og haldið við. Ekki er
neinn bær í byggð inni í dalnuin
hérna megin árinnar. Mun þvi
vegurinn hér innan við tún teljast
til einkavegar.
Hér inni í dalnum eru staðir
skammt frá Hofsá, sem eru vin-
sælir tjaldstaðir. Allir, sem kunna
— ÞÉR áttuð sök á slysinu,
þegar systir yðar dól Það voruð
nefnilega ÞÉR seni voruð drukk-
inn kvöldið þaðl
— Þér eruð vitskertur, maður!
Drukkinn, égl Nei, Ilt’N var full!
Ba>ði bíllin og hún angaði langar
leiðir. Það var luin sem ók á röng-
um vegarhelmingi. Ég sveigði
eins og ég gat til hliöar. Það lá
Ijóst fyrir þar sem bflarnir
dælduðust báðir hægra megin. Éf
hún hefði haldið sig á sfnum
kanti hefðu bílarnir rekizt á
vinstra megin.
— Já. eða ef þér hefðuð veriö á
VÐAR kanti!
David einblfndi á Timothv
— Ég endurtek. það voruð þér
sem voruð undir áhrifum áfengis
þetta kvöld. Þér ókuð á röngum
vegarhelmingi. Það var hún. en
ekki þér, sem reyndi fyrst að
sveigja til hliðar. Þegar Marietta
Shavv sá yður konia akandi á móti
sér. reyndi hún í flýti að beina
bflnum í þá einu átt sem var
mögulegt... inn á miðju vegarins,
en. . . vegna þess að þér gátuð
ekki hugsað skýrt sakir þcs
hvernig þér voruð á yður kominn.
gerðuð ekki neitt! Og þegar þér
loks áttuðuð yður var það of seint.
sæmilega mannasiði, biðja um
leyfi til að fara þangað.
Og þá er komið að verzlunar-
mannahelginni. Um þá helgi var
allmikil umferð hér. Við vissum,
að á föstudag voru menn frá
Húsavík að veiða í ánni. Þeir
höfðu tjaldað inni í dal. Síðan
komu fleiri, trúlega áhangendur
þeirra, sem fyrir voru, óku hér
eftir þörfum, rétt við forstofu-
dyrnar hjá okkur. Á laugardags-
kvöldið bættust enn tveir bilar
við og óku innúr og fór okkur nú
að þykja nóg um. Á sunnudag átti
Karl Bretaprins að koma. Tveir
óeinkennisklæddir lögreglumenn
úr Reykjavík voru hér við ána
meðan prinsinn dvaldist hér og
áttu að fylgjast með honum úr
fjarlægð. Á sunnudagsmorgun
óku þeir veiðimannaveginn langt
inn í dal að kanna aðstæður.
Komu þeir hér heim í bakaleið-
inni og vildu tala við Einar bónda,
en hann var ekki heima þegar
þeir komu. Þeir sögðu að mörg
tjöld væru inni í dal og spurðu
hvort þetta fólk hefði fengið leyfi
til að tjalda. Þvi var fljótsvarað.
Enginn hafði haft fyrir því að
stanza hér á hlaðinu, hafa tal af
heimafólki og biðja um tjaldleyfi.
Báðu þá lögreglumennirnir um að
fólk þetta væri beðið að flytja
tjöld sín því nóg væri af tjald-
stæðum annarsstaðar í sveitinni
og einnig báðu þeir um, að ekki
yrði leyft að tjalda inni i dal með-
an prinsinn dveldist hér.
0 Bannað að tjalda
Nú var ráðgast um hvernig
ætti að snúa sér i málinu. Gerð
voru tvö skilti. Á öðru stóð „Bann-
að að tjalda í landi Bustarfells.
Landeigandi.“ Það var fest á hlið-
ið út við afleggjarann hér heim. Á
hinu stóð „öll umferð bönnuð".
Það var sett á túnhliðið sem ligg-
ur suður af túninu. í millitiðinni
höfðu allir bílarnir sem innfrá
voru rennt út hjá, og þegar að var
gáð, voru aðeins tjöld Húsavikur-
fjölskyldnanna eftir, en fólkið
hafði trúlega brugðið sér eitthvað
til að skoða sig um. En þegar það
kom til baka ráku þau óhjá-
kvæmilega augun i skiltið á hlið-
inu með þessum „ströngu fyrir-
mælum landeiganda". Nijl lokst
var stanzað á Bustarfelli og mað-
ur nokkur bankaði upp á. ákki
kynnti hann sig og ekki bað hann
afsökunar að tjaldað hefði verið í
óleyfi, en bar sig illa yfir því að
þau þyrftu að taka upp tjöld sín
svona rétt fyrir kvöldið. Honum
var sagt sem satt var, að við hefð-
um verið beðin að leyfa ekki, að
tjaldað væri inn i dal, meðan
prinsinn væri hér og öll óþarfa
umferð væri bönnuð þangað.
Væru þau því beðin að flytja
tjöldin. Nú, tjöldin fluttu þau út
fyrir hlið Bustarfellsbæjar, eins
og konan komst að orði, óg taldi
hún, að þangað mundi ' ekki
hrammur brezka heimsveldisins
hafa náð. Það var nú það bezta, að
þau fóru ekki lengra en út í Teigs-
land og tjölduðu þar, örskammt
frá veiðihúsinu þar sem Karl
prins dvaldist. Vonandi hafa bæði
þau og prinsinn sofið vel um
nóttina.
Húsavikurkonunni þótti vist
fyrirferð á prinsinum. Við urðum
nú ekki mikið vör við þá fyrirferð
og ég veit ekki annað en hann
hafi verið hér i fullu leyfi, en
Húsavíkurfjölskyldurnar slepptu
að biðja um tjaldleyfi, bæði hér
og i Teigi, svo að blessuð konan
hefði bara átt að sleppa því að
skrifa þetta klögubréf. En, ef þau
hefðu beðið-um leyfi, hefðu þau
getað verið i friði á sínu tjald-
stæði meðan á dvöl þeirra stóð
hér í Vopnafirði.
Bustarfelli 8. september,
Elfn Methúsalemsdóttir."
HOGNI HREKKVISI
— Honum lfkar ekki þátturinn þinn
félk f
fréttufn
if Vitlaus bolti — 1 hita leiksins fer ýmislegt úr skorðum hjá
fþróttamönnum. Tennisleikarinn Guillermo Vilas frá Argentfnu
varð fyrir þvf óhappi á opna bandarfska tennismótinu á dögunum,
að slá og hlaupa niður lfnuvörðinn, þegar hann ætlaði að slá
boltann. Ekki fylgir sögunni hvernig Ifnuverðinum reiddi af, né
hvernig hann og dómarinn dæmdu þetta högg.
if Brezka lögreglan hefur lýst
eftir 21 árs gamalli stúlku,
Margaret MacKearney sem er
sökuð um að hafa verið sendi-
boði Irska lýðveldishersins
(IRA) og flutt sprengiefni og
peninga til hryðjuverkamanna
lýðveldishersins f Englandi.
Scotland Yard kallar hana
„hættulegustu og virkustu kon
una“ sem stundar hryðjuverka-
starfsemi á Bretlandseyjum.
Ljósmyndir af ungfrú
MacKearhey hafa verið birtar f
sjónvarpi og skorað hefur verið
á alla sem kunna að vita hvar
hún er niðurkominn að til-
kynna það á næstu lögreglu-
stöð. Ungfrú MacKearney er
fædd f Moy f County Tyrone,
einu helzta vfgi IRA á Norður-
Irlandi. Faðir hennar var kjöt-
kaupmaður og afi hennar
barðist með IRA á árunum eft-
ir 1920. Þrfr bræður hennar
veittu henni tilsögn í skæru-
hernaði.
Sean, yngsti bróðir hennar,
beið bana þegar hann var að
búa til sprengju skammt frá
Moy f fyrra. Bróðir hennar
Tommy, sem er eldri en hún,
hefur verið látinn laus úr
fangelsi þar sem hann sat f
haldi vegna hryðjuverkastarf-
semi f Irska lýðveldinu en nú
hefur verið lýst eftir honum
vegna morðs á Norður-lrlandi.
Þriðji bróðirinn, Patrick, af-
plánar sjö ára dóm fyrir að
sprengja upp kjötverksmiðju.
Margaret stundaði nám f
kaþólskum kvennaskóla og sfð-
an f tækniskóla þar til hún var
17 ára og var um tíma þjónustu-
stúlka á dansstað f Moy. Hún er
eftirlýst á Norður-Irlandi,
ákærð fyrir að hafa átt þátt f
morði á hermanni fyrir 18
mánuðum.
e3P SlGeA V/ÖGA £ VLVt9AU