Morgunblaðið - 17.09.1975, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1975
23
Kristín Bjarnadóttir
bókavörður - Minning
Fædd 4. júlí 1907
Dáin 10. september 1975
Þaö hefur stundum verið talið,
að skólaárin meðal glaðra bekkj-
arsystkina séu skemmtilegasti
tíminn í endurminningunni síðar
meir. I það minnsta hefur það
sannast á okkur bekkjarsystrun-
um sjö úr 3. bekk A, sem tókum
gagnfræðapróf frá Menntaskólan-
um í Reykjavik vórið 1923. Þessir
3 vetur i skólanum, við nám og
leik, urðu okkur ógleymanlegir.
Þar bundumst við traustum
vináttuböndum.
Þetta voru ár sigra og ósigra,
mikilla tilfinninga og öfga. Stund-
um fannst okkur, sem öll vanda-
mál heimsins hvíldu á okkar
herðum og hina stundiha vorum
við færar um að glíma við og leysa
allar ráðgátur lífsins.
Allar vorum við Reykvíkingar,
en forlögin höguðu því svo, að
þegar út í lífið kom dreifðumst
við víðsvegar um landið. Fjórar
okkar giftust læknum á Akureyri,
Eskifirði, í Vik i Mýrdal og i
Reykjavík. Ein gerðist lyfsali á
Akranesi og ein varð prestskona
uppi á Hvalfjarðarströnd. Sú
okkar, sem við kveðjum í dag,
varð listamannskona hér í
Reykjavik.
En aldrei gleymdum við
Menntaskólaárunum og sam-
bandið okkar á milli slitnaði ekki.
Á vissum tímamótum hittumst við
til þess að rifja upp gamlar minn-
ingar og verða skólastelpur á ný.
Fyrir fjórum árum kvöddum
við Döddu, þá fyrstu úr hópnum.
1 dag kveðjum við Stinu og
þökkum henni hluta að þvi að
skóladvölin varð okkur dýrmætur
fjársjóður, sem enginn getur
tekið frá okkur.
Við minnumst hennar miklu
mannkosta, fjölþættu hæfileika
og prúðmennsku. Hún var góði
andinn i hópnum.
Við sendum ástvinum hennar
okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur og biðjum guð að styrkja þá i
Bekkjarsystur.
Frú Kristín andaðist 10. sept. sl.
á Borgarspítala. Með henni er góð
og göfug kona gengin. Frú Kristín
var fædd 4. júlí 1907 i Reykjavík,
yngri dóttir dr. Bjarna Sæmunds-
sonar fiskifræðings og yfirkenn-
ara við Menntaskólann í Reykja-
vík og konu hans frú Steinunnar
Sveinsdóttur.
Svo vildi til, að móðir mín bjó
um tíma í húsinu við hliðina á
húsi dr. Bjarna, þegar við systkin-
in vorum ung, og hófst þá þegar
kunningsskapur við Stínu, eins og
hún var kölluð. Sá kunningsskap-
ur varð að vináttu, sem entist alla
tíð. Þá varð það til að styrkja
vináttuna ennfremur, að hún gift-
ist sveitunga mínum og leikbróð-
ur, Marteini Guðmundssyni,
myndhöggvara og listamanni frá
Merkinesi í Höfnum. Marteinn
var sannkallaður listamaður af
Guðs náð.
Kristín varð honum góð og dýr-
mæí kona. Þau eignuðust fjögur
börn, sem lifa, merkisfólk og lista-
fólk.
„En þegar fjólan fellur bláa
fallið það engin heyra má
en ilmur horfinn innir fyrst
urtabyggðin hvers
hefur misst.“
Þessi orð, langafa míns, áttu vel
við Kristínu. Hún var hógvær, lát-
laus en stóð að sama skapi vel
fyrir skyldum sfnum, sem ung
stúlka, kona og móðir. Allt
hennar dagfar mótaðist fyrst og
fremst af því, að hún hafði numið
námsgreinar hjartans. Þess vegna
var hún ilmjurt, ætfð föst á sinni
rót í jarðvegi dyggðanna, þótt
veður gætu komið. Líf hennar var
hin beina ævibraut bjartrar dótt-
ur merkra foreldra. Blessuð sé
minning hennar.
Jón Thorarensen.
Kristín Bjarnadóttir bókavörð-
ur andaðist á Borgarspítalanum
10. þ.m. Er þar góð ög merk kona
gengin, sem vert er að minnast,
enda var hún heimilisvinur okkar
hjóna alla tfð og kona mfn og hún
vinkonur frá bernsku. Kristín var
dóttir hins ágæta vísindamanns
og kennara kr. Bjarna Sæmunds-
sonar og konu hans Steinunnar
Sveinsdóttur frá Búðum. Báðar
eru ættir þeirra hjóna merkar,
þótt ekki skuli þær raktar hér, en
fyrr og nú er þar margt manna og
kvehna að finna, sem skarað hafa
fram úr að gáfum og athafnasemi.
Kristín var borin og barnfædd
hér í Reykjavík 4. júlí 1907 og ólst
hér upp. Gekk hér í hinn almenna
menntaskóla er hún hafði aldur
til og lauk þar gagnfræðaprófi
árið 1923. Stundaði hún málanám
áfram, bæði enskunám hjá Önnu
systur sinni B.A., siðar konu
Einars prófasts í Reykholti og
þýskunám hjá Jóni Ófeigssyni og
var vel fær i þeim tungum báðum.
Lagði hún jafnframt stund á tón-
listarnám hjá Katrínu Viðar og
ýmsum kennurum hér f Reykja-
vik. Að þvi loknu dvaldi hún um
skeið í Kaupmannahöfn og stund-
aði þar nám f píanóleik hjá Har-
aldi Sigurðssyni og naut hand-
leiðslu hans. Að því námi loknu
fluttist hún aftur til Reykjavíkur
og hóf kennslu f píanóleik auk
þess sem hún ásamt systur sinni
Önnu, stóð fyrir húsi föður síns.
Veitti hún föður sinum aðstoð við
umfangsmikil vísinda- og útgáfu-
störf hans, einkum við prófarka-
lestur, er svo sem kunnugt er
samdi hann fjölda bóka um fiski-
fræði og náttúrufræðileg efni
ýmiskonar og lagði traustan
grundvöll að fræðilegum rann-
sóknum, sem gegnir furðu ef mið-
að er við þau vinnuskilyrði, sem
honum voru búin. Heiðursdoktor
var hann frá Kaupmannahafnar-
háskóla, sem ekki sæmir nema
afreksmenn slfkum titli. Leiddi
því að sjálfu sér að Kristfn var
margfróð í þessu efni, enda auk
þess prýðilega bókfróð, sem hún
naut í starfi sínu siðar sem bóka-
vörður við Borgarbókasafn
Reykjavfkur um langt skeið.
Árið 1935 giftist Kristín Mar-
teini Guðmundssyni myndskera
og höggmyndasmið, sem um skeið
rak einhvern fyrsta myndlista-
skóla hér í borg. Njóta verk hans
nú fullrar viðurkenningar, enda
var hann hugkvæmur og vand-
virkur listamaður, sem féll frá
um aldur fram, og var það mikill
mannskaði. Þeim hjónum var
fjögurra barna auðið, en þau eru:
Steinunn, sem nú er einhver
lærðasti keramiker hérlendis, gift
Sverri Haraldssyni listmálara,
Ásta gift Þórði Ilafliðasyni flug-
manni, Bjarni arkitekt kvæntur
Guðborgu Kristjánsdóttur Sveins-
sonar læknis, Þóra gift Einari
Gíslasyni rafvirkja.
Öll voru börnin ung að aldri er
Marteinn faðir þeirra féll frá og
mæddi þá uppeldi þeirra og forsjá
á frú Kristínu einni. Aflaði hún
þeim öllum góðrar menntunar.
Barnalán hennar var mikið og
naut hún því ávaxta verka sinna á
efri árum og gladdist yfir frama
barna sinna f hverri grein, enda
sýndu börnin henni mikla ræktar-
semi og umhyggju í veikindum
hennar er yfir lauk.
Frú Kristín var fríð kona, prúð
í framgöngu og hægversk, virt og
vel látin af nemendum og öllum
þeim er henni kynntust. Heimili
hennar og Marteins Guðmunds-,
sonar stóð listamönnum opið og
eimdi lengi eftir af því, þótt hann
félli frá. Bjarni Sæmundsson var
góður teiknari og málaði jafn-
framt fjölda dýramynda fyrir
náttúrugripasafnið. Má því segja
að Kristfn hafi verið borin til list-
ar, lagt sjálf stund á list og búið
við hana alla stund. *
Að lokum ber þess að geta að á
heimili Kristínar í Þingholts-
stræti 14 dvaldi Þóra Guðnadóttir
alla tíð, en hún hafði ráðist til dr.
Bjarna Sæmundssonar. Veitti
hún ómetanlega aðstoð við
uppeldi barnanna og gerði
Kristínu fært að sinna bókvarðar-
störfum auk annarra starfa utan
heimilis.
Við hjónin vottum börnum og
öðrum aðstandendum Kristínar
samúð okkar og minnumst
hennar með söknuði.
Kristján Guðlaugsson.
Yfir heimilið í Þingholtsstræti
14 hefur dregið skugga míkilla
sorgar, húsmóðirin þar, frú
Kristíh Bjarnadóttir, er látin.
Sterkir ættareiginleikar komu
hér greinilega fram. Fáguð
hæverska og látleysi voru meðal
höfuðeinkenna þessarar hugljúfu
konu, glaðværð yljaði innanfrá af
göfgi hjartans og góðvildarhug
ekki síst til þeirra, sem minna
máttu sín í lífsbaráttunni.
Frá heimili Kristínar Bjarna-
dóttur eigum við, sem þar kom-
um, margar ljúfar minningar og
ylrfkur þokki mætti gestunum.
Húsmóðirin og börnin sérstak-
lega söngelsk svo stofurnar
hljómuðu af fagurri hljómlist og
söng á hátíðarstund, og gat manni
ekki dulist að hér réð ríkjum list-
ræn, dugleg, hyggin og elskuleg
húsmóðir. Hér er því stórt skarð
fyrir skildi og vanfyllt við fráfall
hennar.
Frú Kristín Bjarnadóttir fædd-
ist f Reykjavík 4. júlí 1907, dóttir
hins alkunna vísinda- og fræði-
manns dr. Bjarna Sæmundssonar
og konu hans Steinunnar Sveins-
dóttur frá Búðum. Þær systur,
Kristín og Anna, kona séra Einars
Guðnasonar prófasts frá Reyk-
holti, höfðu því ekki langt að
sækja gáfur og góða mannkosti.
Kristín gekk ung í Menntaskól-
ann f Reykjavík, tók þar gagn-
fræðapróf, hætti þá námi og fór
að gefa sig að þeim listhæfileika,
sem átti djúpar rætur í hjarta
hennar, músikinni.
Hún fór til Kaupmannahafnar
og stundaði nám í þessari list-
grein f tvö ár.
1935 giftist Kristín Marteini
Guðmundssyni, miklum lista- og
gáfumanni. Þau eignuðust 4
mannvænleg börn, einn son og 3
dætur. Marteinn lést um aldur
fram 1952, stóð Kristfn þá ein
uppi með 4 börn, það yngsta 6 ára
gamalt. Sýndi Kristin þá hvern
mann hún hafði að geyma. Hún
helgaði líf sitt bornunum og kapp-
kostaði að láta þau verða aðnjót-
andi sem bestrar menntunar.
Unnið var baki brotnu og kapp-
kostað að yfirvinna alla
erfiðleika.
A heimili dr. Bjarna sál.
Sæmundssonar og konu hans
hafði ung og glæsileg stúlka, Þóra
Guðnadóttir, unnið og séð að
miklu leyti um heimilið í mörg ár.
Þessi stúlka dvaldi áfram á heim-
ili ungu hjónanna, Marteins og
Kristínar, og var þeim til aðstoðar
við heimilishaldið og uppeldi
barnanna. Kom þetta sér sérstak-
lega vel fyrir Kristfnu eftir að
eiginmaðurinn var fallinn frá, því
það gerði henni mögulegt að
starfa utan heimilisins. Hún var
mjög bókhneigð og varð því henni
til láns að fá starf á Borgarbóka-
safni Reykjavfkurborgar, og fá
þar með tækifæri til að fylgjast
með þvf, sem markverðast gerðist
á bókmenntasviðinu.
Reyndist hún þar sem í öðru
ágætur liðsmaður og vann á bóka-
safninu meðan kraftarnir leyfðu,
vel látin og vel virt af sínum
samstarfsmönnum.
Frú Kristín var félagslynd og
vann mikið og þarft verk hvað
músiklff snerti f Oddfellow-
stúkunni Bergþóru.
I veikindum sínum sýndi hún
kjark og stillingu. Það er mikil
líknsemd hins trúa eljumanns að
finna fró og gleði í starfi hvers-
dagsins á meðan líf og heilsa
endist. Þótt dauðinn sé staðreynd,
sem enginn fær umflúið, vekur
koma hans ætíð sorg og söknuð.
Megi minningin um elskulega
móður og systur vera ykkur ljós í
húmi sorgarinnar og blessun guðs
fylgi ykkur öllum um ókomin ár.
Kr. Sveinsson.
Nokkrar greinar um hina látnu
komust ekki að vegna þrengsla og
bfða birtingar.
Afmælis- og
minningar-
greinar
ATHYGLI skal vakin á þvf, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig verð-
ur grein, sem birtast á f mið-
vikudagsblaði, að berast í sfð-
asta Iagi fyrir hádegi á mánu-
dag og hliðstætt með greinar
aðra daga. Greinar mega ekki
vera í sendibréfsformi eða
bundnu máli. Þær þurfa að
vera vélritaðar og ineð góðu
línubili.
— Síldarverð
Framhald af bls. 24
Sæmundssyni hefðu orðið varir
við þó nokkra síld, en síldin væri
mjög dreifð, en gæti þétt sig
hvenær sem væri.
„Við erum þegar búnir að taka
nokkrar prufur af síldinni og það
athyglisverða er, að við höfum
aðeins fengið stórsíld. En við
erum nú að kanna hvar smásíldin
heldur sig,“ sagði Jakob.
Hann sagði, að síldin héldi sig á
nokkuð stóru svæði, 10 mílur
austur af Ingólfshöfða, við
Hrollaugseyjar og útaf Hálsum.
Lengra úti i Breiðamerkurdýp'inu
hefðu þeir eingöngu fundið kol-
munna og það margar stórar
torfur. Þetta væri kolmunni, sem
væri nú l'/í árs og um 15 sm
langur. Miðað við það verð, sem
bræðslurnar gætu boðið nú, væri
ósennilegt að það borgaði sig fyrir
skipin að veiða hann. Kolmunni
hefði fundizt á þessum slóðum f
fyrra, en meira virtist um hann
nú, en þó þyrfti svo ekki að vera.
— F-vísitalan
Framhald af bls. 24
kringum rauða strikið svokallaða,
en það er nú 488 eða 489 stig.
Upphaflega var gert ráð fyrir þvi
að rauða strikið svokallaða væri
við 477 stig, en f samkomulagi
ASl og ríkisstjórnarinnar var
samþykkt að hækkanir af völdum
áfengis og tóbaks, svo og af
völdum hækkunar á launalið
bóndans, yrðu ekki reiknaðar
með. Þessar hækkanir nema 11 til
12 stigum f visitölunni, sem
hækkar hið raunverulega rauða
strik sem þvi nemur.
— Ein bezta...
Framhald af bls. 2
í ágúst voru gerðir út 163 (162)
bátar til bolfisksveiða frá Vest-
fjörðum. Stunduðu 126 (126)
veiðar með handfæri, 16 (18)
réru með línu, 11 (7) með dragnót
og 10 (11) með botnvörpu.
Mestan afla í mánuðinum hafði
skuttogarinn Guðbjörg frá ísa-
firði, sem landaði 485 lestum í 4
veiðiferðum.
— 2000 manns
Framhald af bls. 3
son hafði þjálfað og átti að sýna
og Skúmur frá Hellulandi sem
Reynir átti að sýna, en þessir
hestar voru miður sfn eftir
hina löngu ferð frá tslandi til
Austurríkis, og voru þess vegna
dregnir út úr keppninni.
Auk þeirra úrslita sem getið
var f gær, liggur fyrir að Hrafn
frá Álfsnesi hlaut viður-
kenningu sem bezti stóðhestur
mótsins, knapi Aðalsteinn
Aðalsteinsson. Bezta hryssa
mótsins var dæmd Dunja frá
Semriach, knapi var Wolfang
Hiekmann. Hindrunarstökk
vann Thor frá Miðdal, knapi
Heinrich Jud frá Sviss.
jrmrnii iiTri niiiin<í-wwiiii '>»miiii'ni n ww m>i——n|i
íþróttafréttir
eru á
blaðsíðu 10
+
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug víð andlát og jarðarför,
ODDS HALLBJÖRNSSONAR
Akranesi.
Börn og aðrir vandamenn.
t
Innilegustu þakkir til allra er sýndu okkur samúð og vináttu við andlát
og jarðarför
HÓLMFRÍÐAR JÓHANNESDÓTTUR,
Stóra-Gerði, Óslandshlfð.
Þórey Jóhannsdóttir, Þórður Eyjólfsson,
Gréta Gunnarsdóttir, Sævar Guðmundsson,
og ömmuböm.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför,
STEFÁNS GUÐMUNDSSONAR
Hofteigi 36,
Sérstakar þakkir til hjúkrunarfólks og lækna deild lll-B Landspítalanum,
fyrir frábæra umönnun og alúð í veikindum hans.
Kristin S. Kvaran,
Ragna Stefánsdóttir,
Unnur Guðmundsdóttir.
Ragnhildur Þórarinsdóttir.