Morgunblaðið - 27.09.1975, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 1975
20 þús. tunnur seldar:
„Þokkalega ánægð-
ir meðverðið”
SAMNINGANEFND Síldarút-
vegsncfndar undirritaði f gær fyr-
irframsamning um sölu á 20 þús.
tunnum af heilsaltaðri Suður-
landssíld framleiddri á yfirstand-
andi síldarvertíð. Kaupandi sfld-
arinnar er V/O Prodintor f
Moskvu. Sfldina á að afgreiða á
fyrsta ársfjórðungi 1976 og lág-
marksstærð síldarinnar miðast
við 900 stk. f tunnu.
í fréttatilkynningu sem Síldar-
útvegsnefnd sendi frá sér í gær,
segir ekkert um verð það, er sam-
ið var um. Ekki tókst Morgunblað-
inu að ná sambandi við Gunnar
Flóvenz framkvæmdastjóra Síld-
arútvegsnefndar f gær, en hann
var þá á leið til Svíþjóðar þar sem
samningaviðræður hefjast um
helgina. Björgvin Torfason, full-
trúi hjá Síldarútvegsnefnd, sagði
Samningar
um hitaveitu
á Arnarnesi
að hefjast
BORGARRÁÐ hefur falið
nefnd þeirri, sem áður sá um
samninga við Hafnarfjörð,
Garðahrepp og Kópavog fyrir
Hitaveitu Reykjavfkur að
hefja samningaviðræður. við
fbúa á Arnarnesi um yfirtöku
hitaveitu fbúanna, en þar er
starfrækt kyndistöð fyrir
íbúðarhverfið. Nefndin hefur
enn ekki hafið viðræður við
íbúana f hverfinu, en f henni
eiga sæti Albert Guðmunds-
son, Olafur B. Thors og
Kristján Benediktsson.
Söluaukn-
ing Morgun-
blaðsins
1 FRÉTT f dagblaðinu Vfsi í
gær er látið að þvf liggja, að
útgáfa hins nýja Dagblaðs hafi
m.a. haft neikvæð áhrif á sölu
Morgunblaðsins. Af þessu til-
efni þykir rétt að upplýsa, að
söluaukning Morgunblaðsins,
sem yfirleitt er mjög jöfn, hef-
ur verið meiri sfðustu vikur en
um nokkurt skeið áður.
Jafnframt er ástæða til að
ftreka, að Morgunblaðið er nú
sem fyrr reiðubúið til þátttöku
f eftirliti með upplagi dagblað-
anna og er þá átt við seld ein-
tök, en ekki aðeins prentað
upplag, og sýnist ekki sfzt
ástæða til slfks eftirlits f Ijósi
samkeppní þeirrar sem nú er á
sfðdegismarkaðnum.
hins vegar í gær að menn væru
þokkalega ánægðir með þetta
verð, en hinu væri ekki að neita,
að verkunarkostnaðurinn væri nú
orðinn mjög hár. Þessi samningur
hefði gífurlega mikið að segja,
þar sem þeir bátar er munu sjó-
salta síldina gætu nú nýtt alla þá
síld er þeir fengju. Björgvin
sagði, að mjög mikilvægt væri nú
að vanda verkun á sildinni vel,
því samningurinn í Moskvu, sem
gerður var í gær, markaði viss
þáttaskil. Islendingar væru nú
komnir á ný inn á hinn stóra
rússneska síldarmarkað og hann
mættum við ekki missa á ný.
Þessa ljósmynd tók Sv. Þorm. ljósmyndari Mbl. hjá hesthúsunum við
Elliðaárnar í gær, en þar voru þessar hæglátu rjúpur að spranga um f
sólglefsunum, komnar af f jöllum ofan f byggð.
Kvennafrí með úti-
fundi 24. október
50 félög standa að því
FULLTRÚAR frá u.þ.b. 50 félög-
um og samtökum i Reykjavík og
nágrenni stofnuðu þ. 11. sept. s.l.
samstarfsnefnd um framkvæmd
kvennafrís þ. 24. okt. n.k., á degi
Sameinuðu þjóðanna. Aðild að
nefndinni eiga stéttarfélög,
stjórnmálafélög, kvenfélög og
aðrir áhuga- og hagsmunahópar
kvenna.
Þ. 15. sept. var síðan stofnuð tíu
manna framkvæmdanefnd og 5
starfshópar, sem vinna að undir-
búningi.
Hóparnir eru opnir öllum, sem
taka vilja þátt í starfinu og má
tilkynna þátttöku f húsakynnum
Kvenréttindafélags Islands að
Hallveigarstöðum við Túngötu
(efstu hæð) kl. 2—4 og 9—10
síðdegis til 3. okt., sími 18156.
Kannanir hafa verið gerðar á
ýmsum vinnustöðum og hefur
niðurstaða þeirra verið, að
80—100% kvennanna styðja nú
þegar aðgerð þessa.
Verkalýðshreyfingin hefur
veitt málinu sterkan stuðning, t.d.
samþykkti stjórn Sóknar einróma
að styðja framkvæmdina fjár-
hagslega og von er á framlögum
frá fleiri félögum.
Framkvæmdanefndin mun
leita eftir samvinnu við samtök
Hafnarfjörður:
Safnað fyrir
þroskaheft börn
LIONSKLÚBBUR Hafnarfjarðar
mun í dag, laugardag, selja perur
til ágóða fyrir byggingu heimilis
fyrir þroskaheft börn í Hafnar-
firði.
Félagar I klúbbnum munu
ganga í hús eftir hádegi og vonast
til að fágóðan stuðning bæjarbúa.
kvenna víðsvegar um land og hafa
einstaklingar og félög úti á landi
þegar sýnt áhuga á, að samstaða
náist um allt land.
Áætlað er, að útifundur verði
hámark dagskrárinnar í Reykja-
vík og opið hús verði á fleiri en
einum stað í borginni.
Framkvæmdanefnd um
kvennafrí:
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir,
Ásdís Guðmundsdóttir, Ásthildur
Ölafsdóttir, Björk Thomsen,
Elísabet Gunnarsdóttir, Erna
Ragnarsdóttir, Gerður Steinþórs-
dóttir, Margrét Einarsdóttir,
Stella Stefánsdóttir, Valborg
Bentsdóttir.
Dreifibréf verður sent út til
kvenna næstu daga, og er svo-
hljóðandi:
HVERS VEGNA KVENNAFRl?
Kvennaársráðstefnan, haldin
dagana 20. og 21. júni 1975, í
Reykjavík, skorar á konur að taka
sér frf frá störfum á degi Sam-
Framhald á bls. 18
Álsala glæðist á ný
EFTIRSPURN eftir áli hefur
nokkuð glæðzt með haustinu —
að þvf er Ragnar S. Halldórsson
forstjóri Islenzka álfélagsins h.f.,
tjáði Mbl. f gær. ISAL á nú um 25
til 30 þúsund tonn f birgðum og
er ekki búizt við þvf að mikið
gangi á þær, en vonir standa til að
hin aukna eftirspurn leiði til þess
að birgðir aukist ekki.
Ragnar S. Halldórsson sagði að
frá þvf í marzmánuði og fram í
september hefðu sáralitlar pant-
anir borizt aðrar en þær, sem Kín-
verjar gerðu og keyptu, um 10
þúsund tonn. Sfðan hafa borizt
pantanir f september og liggja nú
fyrir pantanir fyrir 16 þúsund
tonnum, sem samsvarar nokkurn
veginn framleiðslunni til ára-
móta. Þá hafa Kinverjar óskað
eftir um 6.500 tonnum til viðbótar
fyrrgreindu magni. Þessi nýja
pöntun verður afskipuð í nóvem-
ber.
Framleiðendur, sem nota ál
sem hráefni, virðast nú vera bún-
ir að nota þær birgðir, sem þeir
höfðu áður keypt. Þegar skortur
er á áli byrgja framleiðendurnir
sig upp til þess að geta haldið
áfram framleiðslu sinni. Þegar
þessar birgðir þrýtur, kemst að
nýju hreyfing á álmarkaðinn, sem
nú virðist hafa orðið.
Óvenjumargir Þjóðverj-
ar að ólöglegum veiðum
SlÐASTLIÐINN sólarhring var
talsvert að gera hjá Landhelgis-
Borgarráð samþykkti tvískipta
hækkun hitaveitugjalda, 32,25%
BORGARRÁÐ samþykkti f gær á
fundi sfnum hækkun á gjaldskrá
Hitaveitu Reykjavíkur, sem nem-
ur 32,25%, sem skipt er f tvo
hluta — þannig að gjaldskráin
hækkar þegar um 15%, en sfðan
aftur um 15% hinn 1. janúar.
Hækkunarbeiðni sú, er Hitaveit-
an hafði lagt fyrir borgarráð, nam
33%. Hækkunin var samþykkt í
borgarráði með þremur atkvæð-
um gegn einu, en einn borgar-
ráðsmanna sat hjá.
I tillögu, sem borgarráðsfulltrú-
ar Sjálfstæðisflokksins lögðu
fram, er lögð á það áherzla, að
nauðsynlegt sé að tryggja veitu-
stofnunum Hitaveitu, Rafmagns-
veitu og Vatnsveitu tekjustofna,
er tryggi fjárhag þeirra — að öðr-
um kosti hljóti að draga úr þeirri
þjónustu, sem stofnarirnar veita
borgarbúum og atvinnurekstri í
borginni. Með hækkun gjald-
skrárinnar væri verið að tryggja
notendum veitunnar áframhald-
andi örugga þjónustu og þar með
lægri hitunarkostnað en uiínt er
að fá með öðrum hitagjöfum.
Bendir borgarráð á með tillög-
unni, að samkvæmt gjaldskrá
Hitaveitunnar er hitunarkostnað-
ur þeirra, sem hennar njóta, nú
aðeins 25% af hitunarkostnaði
með olíu, en myndi verða eftir
hækkunina um 34%. Til þess að
draga úr áhrifum hækkunarinnar
ákvað borgarráð að skipta henni í
15 + 15% og tæki hin fyrri hækk-
un þegar gildi, en hin síðari 1.
janúar 1976. I tillögunni segir
jafnframt, að haldizt verðlag stöð-
ugt, muni frekari hækkun ekki
reynast nauðsynleg f fyrirsjáan-
legri framtið.
Borgarráðsfulltrúi Alþýðu-
bandslagsins Sigurjón Pétursson
greiddi atkvæði gegn hækkunar-
tillögunni, þar sem hann taldi
hana of háa og benti á, að gjald-
skrá Hitaveitunnar hefði hækkað
um 130% á einu ári. Kristján
Benediktsson, borgarráðsfulltrúi
Framhald á bls. 18
gæzlunni við að stugga við vestur-
þýzkum togurum, sem voru að
veiðum innan 50 mflna fiskveiði-
lögsögunnar. Alls voru 14 Þjóð-
verjar að veiðum við landið, þar
af 9 að ólöglegum veiðum innan
fiskveiðimarkanna. Varðskip
ráku þá á haf út.
Samkvæmt upplýsingum Gunn-
ars Ölafssonar hjá Landhelgis-
gæzlunni voru sex togaranna fyr-
ir innan við Suðausturströndina
og einn rétt utan markanna. Varð-
skipið stuggaði við þeim og elti 90
mílur út fyrir Hvalbak. Þá voru
þrír togarar að ólöglegum veiðum
við Vesturlandið og voru þeir
sömuleiðis reknir út.
Gunnar Ólafsson sagði að eng-
inn togaranna hafi verið mikið
fyrir innan 50 mflur, en hlutfall
þeirra sem voru fyrir innan af
togurunum, sem voru að veiðum
við landið, var óvenju hátt. Togar-
arnir voru farnir af miðunum hér
við landið í gærdag.
Þorlákshöfn:
Heldur léleg
aflabrögð
Þorlákshöfn, 26. september
AFLABRÖGÐ hér hafa verið
heldur léleg, þótt sumir bát-
anna hafi fengið sæmilegan
afla. Gerðir eru út 5 bátar héð-
an á spærling og hafa þeir afl-
að sæmilega.
Samanburður á afla 1974 og
1975: Bolfiskaflinn 1975 er
16.034 tonn, humar er 117
tonn, loðna 16276 tonn,
spærlingur 1.429 tonn.
Til samanburðar var aflinn
1974 fyrir sambærilegt tíma-
bil: Bolfiskafli 19.708 tonn,
humar 101 tonn, loðna 19.742
tonn og spærlingur 4.133 tonn.
Þá veiddust i fyrra 22 tonn af
síld.
— Ragnheiður.
Skrifstofu-
stjóri forsœtis-
ráðunegtisins
FORSETI Islands skipaði hinn
16. september síðastliðinn
Björn Bjarnason skrifstofu-
stjóra í forsætisráðuneytinu,
en Björn var áður deildarstjóri
i ráðuneytinu.
Harður árekstur
HARÐUR árekstur varð í
fyrrakvöld um klukkan 22 á
gatnamótum Suðurlandsbraut-
ar og Hallarmúla. Leigubifreið
kom niður Hallarmúla, en
Volkswagenbifreið ók eftir
SUðurlandsbraut og skullu
þær saman með þeim afleið-
ingum, að ökuraaður og tvær
stúlkur í Volkswagen-
bifreiðinni slösuðust og voru
flutt í slysadeild. Eftir
rannsókn þar var fólkinu leyft
að fara heim.
Leigubifreiðarstjórinn ber í
yfirheyrslum hjá rannsóknar-
lögreglu, að hann hafi ekki séð
Volkswagenbifreiðina og telur
að hún hafi verið ljóslaus.
Hinn ökumaðurinn telur sig
hafa verið með ljós, en lögregl-
an mun þó hafa aðgang að ein-
hverjum sjónarvottum. Málið
er i rannsókn, en bílarnir
skemmdust báðir talsvert.
Vetrarlegt
í Siglufirði
Siglufirði, 26. september.
HÉR ER i fyrsta skipti á þessu
hausti vetrarlegt yfir að líta,
— alhvit jörð. Afli línubáta er
heldur í tregara lagi núna.
Skipstjórar bátanna hafa
kvartað yfir þvi, að brezkir
togarar þrengi að þeim um
þessar mundir. Um veiðar-
færatjón af völdum togaranna
nú hef ég ekki heyrt getið.
mj.
Mgvetningar
fresta göngum
Björk Mývatnssveit 26.9.
HÉR hefur verið noröanátt
sfðustu daga. Aðfararnótt
þriðjudags setti níður allmik-
inn bleytusnjó. Sfðan hefur
gengið á með dimmum éljum.
Sumsstaðar er færð farin að
spillast á vegum. Öðrum göng-
um, sem áttu að hef jast á mið-
vikudag, hefur verið frestað,
og ekki ráðið hvenær farið
verður. Búast má við, ef
snjókoman helzt áfram, að
erfitt geti reynzt að ná fé úr
afréttinni.
Kristján.