Morgunblaðið - 27.09.1975, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 1975
13
Verður hægt að bólusetja gegn
æðasjúkdómum í framtíðinni?
Spjallað við bandaríska hjartasér-
fraeðinginn dr. Abel Robertson jr.
UNDANFARNA daga hefur
dvalist hér á landi bandarískur
hjartasérfræðingur, dr. Abel L.
Robertson jr. frá meinafræðideild
Case Western Reserve læknahá-
skólans I Cleveland, Ohio. Hélt
hann m.a. fjölsóttan fyrirlestur sl.
mánudag í Landspítalanum, þar
sem hann fjallaði um hugmyndir
um myndun æðakölkunar og
skýrði frá nýjum aðferðum í
rannsókn þess sjúkdóms. Einnig
kynnti hann sér starfsemi Hjarta-
verndar og hitti íslenzka hjarta-
sérfræðinga að máli.
Dr. Robertson hefur lengi
unnið að rannsóknum á æðasjúk-
dómum, einkum á erfðafræðilegri
hlið þeirra og spjallaði hann stutt-
lega við blaðamann Mbl. um það
starf. Dr. Robertson sagði að
rannsóknirnar beindust nú
streitu gætu flýtt fyrir æða-
skemmdum. Nú væri verið að
kanna yngri aldursflokkana með
það fyrir augum að finna hvenær
þyrfti að hefja fyrirbyggjandi
aðgerðir.
Robertson var að því spurður
hve langt þessar rannsóknir væru
komnar og hvort von væri til þess
að i framtíðinni yrðu menn hrein-
lega bólusettir gegn æða-
skemmdum eins og t.d. berkium
og lömunarveiki.
Hann svaraði því tíl að ekki
mætti gefa fólki of miklar vonir i
því efni, en það væri vissulega
það markmið, sem sérfræðingar
stefndu að. Hann benti á að hér á
landi væru ákjósanlegar aðstæður
til rannsókna, sem gætu gefið
mikilvægar niðurstöður. Þótt
vitað væri um mörg utanað-
komandi áhrif, sem stuðluðu að
æðaskemmdum væri enn margt,
sem mönnum væri hulin ráðgáta,
einkum i sambandi við arfgengi
sjúkdómsins. Þannig hafa komið i
ljós við ræktun efnaskipta-
truflanir í æðafrumum, sem
sýnast heilbrigðar við venjulegar
rannsóknir. Robertson, sem er
frumkvöðull að þvi að rækta æða-
frumur utan líkamans sagði að
það væri von sín að í framtiðinni
yrði hægt að finna upp próf, til að
ganga úr skugga um ástand
æðanna á sama hátt og blóð-
sykursmælingar eru notaðar til að
greina sykursýki. Að lokum sagði
dr. Robertson að hin geigvænlega
háa tala dauðsfalla . af völdum
hjartasjúkdóma í heiminum
þrýsti mjög á lækna að stórauka
og hraða rannsóknum á þessum
mikla skaðvaldi.
einkum að þvi að reyna að komast
að þvi hve fljótt yrði vart við
skemmdir á æðum I mannslíkam-
anum og slðan að kanna til þraut-
ar hvort unnt væri að búa til
meðal, sem hægt væri að gefa I
þeim tilgangi að stöðva skemmd-
irnar eða draga úr þeim eins og
hægt væri. Mikilvægur þáttur I
þessum rannsóknum væri að
reyna að ganga úr skugga um
hvort æðaskemmdir væru arf-
gengur sjúkdómur. Þessar rann-
sóknir eru framkvæmdar á
börnum foreldra með æðasjúk-
dóma og eru börnin tekin til rann-
sóknar til að reyna að komast að
þvl hvort um aukna tíðni sé að
ræða og hve snemma verður vart
við fyrstu skemmdir. T.d. hefur
orðið vart við æðaskemmdir I
hvítvoðungum. Á fyrstu árum
valda þessar skemmdir þó yfir-
leitt ekki einkennum. Dr. Robert-
son sagði að læknar beindu nú æ
meira athygli sinni að rann-
sóknum á yngri aldursflokkunum
sérstaklega með tilliti til fyrir-
byggjandi aðgerða. Niðurstöður
sérfræðinga benda til að fyrstu
skemmdirnar geti gert vart við
sig mjög snemma I lífi einstakl-
ingsins þó svo að þær valdi yfir-
leitt ekki sjúkdómseinkennum
fyrr en komið er fram yfir miðjan
aldur. Æðaskemmdir virka á
margan hátt eins og snjóbolti, því
að þegar þær eru einu sinni
komnar af stað halda þær áfram
að ágerast unz þær geta valdið
alvarlegum sjúkdómi eða dauða
hjá einstaklingnum. Það sem
læknar stefna að er að geta tafið
svo fyrir þessum skemmdum að
nægi til að lengja llfsvonina til
muna.
Hann sagði, að það væri viður-
kennd staðreynd, að sígarettu-
reykingar, hár blóðþrýstingur og
mikil neyzla dýrafitu flýttu fyrir
æðaskemmdum. Læknar gerðu
sér hins vegar grein fyrir því að
vonlaust væri I nútfmaþjóðfélagi
að fá allan þorra fólks til að
breyta svo lífsháttum sínum að
þessi áhættuatriði hyrfu og því
stefndu þeir að því að finna leiðir,
sem gætu á einhvern hátt vegið á
móti þeim.
Dr. Robertson sagði að sér
fyndist mikið til koma um starf-
semi Hjartaverndar á Islandi.
Aðstæður til hóprannsókna hér á
landi væru áreiðanlega einstakar
vegna þess hve hreinræktuð þjóð-
in væri og hefði lítið orðið fyrir
utanaðkomandi áhrifum. Mjög
auðvelt væri þvi að fylgjast með
hverjum einstaklingi, sem kæmi
til skoðunar í stöðvar Hjarta-
verndar nánast það sem eftir væri
ævinnar, en slíkt væri yfirleitt
ómögulegt með öðrum þjóðum.
Hann sagði að annað mikilvægt
rannsóknarsvið væri áhrif streitu
á æðaskemmdir. Sagðist hann
hafa gert rannsóknir I samvinnu
við ástralska sérfræðinga sem
hefðu leitt I ljós, að efni, sem
losna úr kirtlum líkamans I sam-
bandi við andlega eða líkamlega
Komdu
og kíktu á
VOLVO 76
BÍLASÝNING VOLVO 76 27-28. sept
OPIÐ LAUGARDAG KL.14-19 OG SUNNUDAG KL.10-19
argus
Suðurlandsbraut 16 • Sími 35200
Dr. Robertson heimsðtti m.a. Hjartavernd og sést hér ásamt Jóhanni
Hreiðari Jóhannssyni lækní og Nikulási Sigfússyni yfirlækni.