Morgunblaðið - 27.09.1975, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 27. SEPTEMBER 1975
31
Aðalsteinn þjálfar Þór
Akureyrarfélögin í 2. deildinni
f handknattleik, KA og Þór hafa
bæði hafið æfingar fyrir átök
vetrarins. Til skamms tfma var
handknattleikur ekki mjög hátt
skrifaður á Akureyri, en nó er
svo komið að KA og Þór eru farin
að skipa sér f flokk sterkari hand-
knattleiksliða á landinu. Þess er
skemmst að minnast að Þór lék
eitt leiktfmabil f 1. deildinni, og f
fyrra háði KA harða baráttu við
Þrótt um sigur f 2. deildinni, en
laut f lægra haldi.
KA-menn hófu æfingar fyrir
fengi
20 unglingar
[u brons-
merki KKÍ
VIKUNA 21—28. ágúst s.l. var
starfræktur i fyrsta skipti körfu-
knattleiksskóli á Laugarvatni'á
vegum K.K.i. Námskeiðið var
haldið fyrir unglinga á aldrinum
13—15 ára og um leið var það
einnig námskeið fyrir starfandi
unglingaþjá Ifara.
Námskeið þetta sóttu um 20
unglingar víðsvegar að af land-
inu, en forstöðumenn námskeiðs-
ins voru þeir Guttormur Ólafsson
og Guðmundur Þorsteinsson.
f lok námskeiðsins áttu þátt-
takendur þess kost að spreyta sig
á knattþrautum K.K.Í. og luku
allir þátttakendurnir 1. stigi þ.e.
bronsmerkinu, og afhenti form.
K.K.Í. Einar Bollason þeim tækni-
merkin sem þeir höfðu til unnið f
lok námskeiðsins.
Námskeið þetta þótti takast
mjög vel, og er ekki að efa að það
á eftir að verða árviss viðburður f
starfi K.K.Í. á komandi árum.
Dómaranámskeið
DÓMARANEFND Kröfuknatt-
leikssambands íslands mun gang-
ast fyrir dómaranámskeiði dag-
jna 4. og 5. okt. n.k. og fer
námskeiðið fram f KR-heimilinu
kl. 14 báða dagana.
Aðalleiðbeinandi og prófdómari
verður Kristbjörn Albertsson al-
þjóðadómari — námskeiðsgjald
er kr. 550 fyrir þátttakanda.
Sunnudaginn 5. okt. kl. 10
fyrir hádegi verður upprifjunar-
og samræmingarnámskeið fyrir
starfandi dómara og þá dómara
sem hafa áhuga á að koma aftur
til starfa. Þetta námskeið verður
einnig f félagsheimili K.R.
um það bil hálfum öðrum mánuði,
og hefir Hörður Hilmarsson,
landsliðsmaður í knattspyrnu,
verið ráðinn þjálfari, en hann
hefir um nokkurra ára skeið leik-
ið með KA í handknattleiknum.
Allir sömu leikmenn verða með
KA og undanfarin ár, nema hvað
annar markvarðanna, Viðar Krist-
mundsson, verður að taka sér
hvíld frá handknattleiknum sakir
meiðsla. Um tíma stóð til að Hall-
dór Rafnsson, sem þjálfaði KA í
fyrra, dveldist á Dalvík í vetur, en
nú er ljóst að af því verður ekki,
heldur mun hann leika með KA.
Einn nýr leikmaður mun verða
með KA í vetur. Er það Sigurður
Sigurðsson, sem áður lék með
Völsungum í 2. deildinni, og vakti
þá athygli fyrir góð og föst skot.
Það sama er uppi á teningnum
hjá Þórsurum. Þar hefir annar
knattspyrnumaður, Aðalsteinn
Sigurgerisson tekið að sér þjálf-
un, en hann hefir um margra ára
skeiði leikið með IBA og Þór í
knattspyrnu og handknattleik.
Allir sömu leikmenn verða með
og í fyrra, en auk þeirra mun Sig-
Framlengja
vínbannið
STJÓRN UEFA ~ Evrópusam-
bands knattspyrnumanna —
ákvað á fundi sínum í Bern i
fyrradag að framlengja bann á
sölu áfengra drykkja á íþrótta-
völlum þegar Evrópubikarleikir í
knattspyrnu fara þar fram, og
einnig kom töluvert til umræðu á
hvaða hátt væri hægt að stemma
stigu við þeim drykkjuskap sem
víða tíðkast á áhorfendapöllum á
knattspyrnuleikjum.
tryggur Guðlaugs, sem lék með IR
í fyrra verða með Þór. Hann
stundar nú nám í Reykjavík, en
lýkur því um áramótin, og mun þá
koma norður. Annar leikmaður
með Þór, Benedikt Guðmundsson,
stundar einnig nám í Reykjavík,
en mun engu að siður leika með
Þór. Hyggst hann fá að stunda
æfingar með einhverju félaganna
fyrir sunnan.
Það er mikill hugur í hand-
knattleiksmönnum á Akureyri
um þessar mundir, og ljóst að
Akureyrarliðin verða meðal
þeirra sterkari i 2. deildinni í
vetur, alla vega verða stigin ekki
auðsótt til Akureyrar í vetur
fremur en undanfarin ár.
Sigb. G.
Stefán Hallgrímsson — ðhagstæð skilyrði komu f veg fyrir met.
Stef áni tókst ekki
að bæta íslandsmetið
en sigraði tvisvar
Happdrætti
ÍBK
t TILEFNI af þátttöku sinni i
UEFA-keppninni f knattspyrnu
efndu Keflvfkingar til skyndi-
happdrættis og var dregið f þvf
23. þesáa mánaðar. Vinningur,
sem er ferð fyrir tvo með IBK til
Skotlands og Englands kom upp á
miða nr. 1123 og óskast vinning-
urinn sóttur til Hafsteins Guð-
mundssonar formanns tBK.
STEFÁN Hallgrfmsson tók f vik-
unni þátt í tveimur frjálsfþrótta-
mótum í Ósló og Kaupmanna-
höfn. Tókst Stefáni að sigra f báð-
um mótunum þrátt fyrir að við
erfiða andstæðinga væri að etja.
Stefáni tókst hins vegar ekki að
setja nýtt tslandsmet í 400 metra
grindahlaupi, en sá var einn
helzti tilgangur Stefáns með ferð-
inni. Háði það Stefáni talsvert á
báðum mótunum að aðstæður
voru erfiðar og hann hafði engan
aðstoðarmann með sér á mótun-
um.
Á mótinu f Kaupmannahöfn
fékk Stefán tímann 52.7 sek og
kom talsvert á undan Danmerkur-
meistaranum Lasse Ingemar f
markið. Stefán á bezt 51.8 og var
hann því tæpa sekúndu frá þvi að
bæta tíma sinn, en hafa ber í huga
að mjög erfitt var að ná góðu
hlaupi vegna roks. — Ég er
ánægður með þetta hlaup, sagði
Stefán í viðtali við Morgunblaðið
að seinna mótinu loknu. — Ég
ætlaði mér að vísu að setja nýtt
Islandsmet, en það var ekki nokk-
ur leið í þessu veðri. Flestir
keppendanna voru langt frá sfnu
bezta, jafnvel allt að tveimur
sekúndum, svo ég get verið
ánægður með minn hlut.
Stefán lét vel af aðstæðunum á
íþróttavellinum, sem keppt var á í
Kaupmannahöfn, en brautirnar
eru gerðar úr svokölluðu
„chevron“-efni. — Þó þessar
brautir hafi verið góðar, sagði
Stefán, þá verð ég að segja það, að
sé þurrt f Laugardalnum þá eru
brautirnar þar alls ekkert verri.
Þessar Chevron-brautir hafa það
hins vegar fram yfir að þær eru
náttúrulega alltaf eins.
Árni fótbrotnaði
ÞAÐ ÓHAPP varð í knattspyrnu-
leik milli Þórs og KA á Akureyri
nýlega, að einn leikmanna Þórs,
Árni Gunnarsson, fótbrotnaði eft-
ir samstuð við markvörð KA. Fyr-
ir um átta árum brotnaði leggur
Árna á sama stað, þannig að frem-
ur ólfklegt má teljast, að hann
hefji fþróttaiðkanir á næstunni,
ef af því verður þá nokkurn tfma.
Árni hefir um nokkurra ára skeið
verið ein styrkasta stoðin f
fþróttalffi Akureyringa, fyrst sem
knattspyrnumaður með IBA, og
sfðan Þór. Þá hefir Árni og verið
einn aðal maðurinn f handknatt-
leiksliði Þórs, þannig að áfallið er
ekki einasta mikið fyrir hann per-
sónulega, heldur og fyrir félag
hans.
— 100 nemendur
í 60 rúmum
Framhald af bls. 10
hjálparkorni. Eitt af þvf sem íslenzku
kristniboðarnir kenna þeim er að
rækta og prófa nýjar tegundir
matjurta og hefur það borið góðan
ávöxt en ekki þýðir að leggja slika
þróun á borðið hjá fbúunum, heldur
er þetta gert framhjá þeim, en þó
beint fyrir framan nefið á þeim
Mismunandi korni og öðrum mat-
jurðum er komið í jörð á sama stað,
en skipt f reiti. Þegar svo kornið í
einum reitnum vex miklu meira en
korn í öðrum þá spyrja men hvort
þeir geti ekki fengið korn eins og er i
góða reitnum og þannig þróast
þetta, þeir verða sjálfir að leita eftir
þekkingunni.
Fólk þessa lands lifir á ákaflega
einhliða fæðu, bygggraut aðallega,
sem e yhrleitt soðinn einu sinni eða
tvisvar I viku og þeir sem vilja fá
hann gerjaðan sjóða bara einu
sinni í viku, Annars er það mikill
vandi að fá fólk til að gæta þess að
sjóða matinn og því er hann oft
miður hollur og beinlinis lífshættu-
legur. Næringaskortur er einnig
mikill, fólk treður ef til vill börn sín
út með bygggraut og skilur þvi ekki
hvers vegna það verður veikt eftir að
hafa fengið allan þennan mat, en
það skilur ekki spursmálið um nær-
mgu og næringarskort í hinum
ýmsu matvælum.
A kristniboðsstöðinni fslenzku i
Konsó er nýlokið við stóra kirkju-
byggingu Ein heimavist er þar fyrir
pilta og ein fyrir stúlkur, skólahúsin
eru tvö og verið er að byggja fleiri
heimavistir. Jónas Þórisson og Ingi-
björg kona hans og börn hafa verið
rúmlega tvö og hálft ár f Eþíópiu.
Þau voru i hálft ár i Irgalem við
málanám, en siðan fóru þau til
Konsó.
„Mitt starf," sagði Jónas, „er mest
við barnaskólann og bibliuskólann
fyrir utan ýmislegt sem til fellur. Ég
er skólastjóri barnaskólans og kenni
einnig I biblíuskólanum.
Nemendur barnaskólans eru nú
352 í 6 bekkjardeildum og þar af
eru aðeins um 50 stúlkur Það þykir
hér sóun á vinnuafli að vera að
mennta stúlkur, þær eiga heldur að
vinna, en þetta er þó að breytast
hægt og sígandi.
Krakkarnir f skólanum koma úr
öllum áttum hér i kring, oft úr les-
skólum sem við höfum viða úti i
Konsóhéraði og fólk kemur ákaflega
misjafnlega langt að. Sumir koma
heila dagleið og jafnvel meira, en
þeir sem eru styttra að komnir, fara
heim um helgar annað slagið Um
100 nemendur eru i heimavist í alls
60 rúmum þannig að mörg rúmin
eru tvisetin og stundum sofa þrir i
sama rúmi. Þeir nemendur sem búa
i heimavistunum verða alveg að sjá
um sig sjálfir bæði hvað snertir
matseld og annað, en þetta eru
krakkar á aldrinum 7—20 ára. Það
er furðulegt hvað þau ge.ta bjargað
sér, en það hjálpar að þau eru vön
því frá blautu barnsbeini. Því miður
getum við ekki tekið alla sem vilja I
skólann og heimavist, en við erum
hins vegar með lestrarkennslu og
annað starf á yfir 120 stöðum i
Konsó og á 70 stöðum erum við
með skóla. Þessir.skólar eru yfirleitt
kvöldskólar og hafa þeir gengið
mun beturen ríkisskólarnir.
Fyrsta manntal i Konsó var gert í
hungursneyðinni i fyrra og kom þá í
Ijós að ibúarnir eru um 100 þús
talsins, Öllu þessu fólki gáfu Íslend-
ingar mat I tvo mánuði og var þar
um að ræða geysilega mikilvægt
hjálparstarf og allir peningarnir frá
islandi fóru beint f mat til fólksins.
Af þeim 6 mánuðum sem hjálpar-
starfið var I gangi, var fæða algjör-
lega frá íslandi I tvo.
Um síðustu áramót varð aftur að
hefja hjálparstarf vegna þess að
regntiminn brást algjörlega s.l.
haust og er reiknað með 2500 tonn-
um af korni i dreifingu i ár. Þetta
hjálparstarf vegna hungursneyðar-
innar hefur sett mikinn svip á okkar
starf.
Mér líkar mjög vel hér, fólkið er
vinalegt og það er gott að komast í
samband við það og hér verðum við
( 5 ár ef Guð lofar.
Annars er maður ekki að hafa
áhyggjuraf miklum plönum hér, því
hér er hyggilegast að láta hverjum
degi nægja sin þjáning og gleði "
„Hvað er erfiðast í skólastarfinu?"
„Það er erfiðast að fá skólanem-
endurna til að fylgja stundatöflu og
koma í skólann, þvi oft þurfa þeir að
vinna á ökrunum. Hér er við ýmis
vandamál að etja og feikilegan hita
og vatnsskort er við að búa, en
björtu hliðarnar eru svo margar að
maður man ekki eftir hinum. Það er
svo margt sem sannar að vegna
kristniboðsstarfsins stendur Konsó
mun betur að vígi en nálægari héruð
og í Konsó eru ekki aðrir hvitir menn
en islendingarnir og Elsa, hjúkrunar-
kona frá Færeyjum. Það ánægjulega
er lika að samband er mjög gott
milli fólksins og kristniboðsins."
Það er ótrúlega mikið starf sem
hefur verið unnið i islenzku kristni-
boðsstöðinni ! Konsó og auk þess
hefur Jóhannes Ólafsson læknir
byggt upp heilsugæzlu og starf
sjúkrahúsa í mörgum héruðum.
Felix Ólafsson var fyrsti islenzki
kristniboðinn í Konsó og var hann
þar í fjögur ár, þá var Benedikt
Jasonarson i 5 ár, Gisli Arnkelsson í
10 ár og Skúli Svavarsson kom
1 973 og Jónas hálfu ári síðar
Starf kristniboðanna er vanda-
samt á margan hátt og viðkvæmt,
þvi að er margt brothætt þegar kem-
ur að þvi að hreyfa við ýmsum
siðum og háttum.
Til dæmis ætluðu Skúli og Jónas
að taka fyrir það að rlkir menn
fengju hjálparkorn, en það reyndist
örðugt. Af einum rikum landeigenda
var keypt korn fyrir hundruð þús-
unda króna og þegar kom til úthlut-
unar þessa sama konrs vildi
landeigandinn fá sín fjögur kiló
eins og aðrir Skúli neitaði, en
skömmu seinna var hann kallaður
fyrir héraðsréttinn og tilkynnt
að hann hefði verið að boða
fólki að ef það kæmi ekki í kristnu
söfnuðina myndu koma fljúgandi
drekar með aðra dreka innan i sér
og myndu þeir steypa sér yfir það
fólk sem ekki væri kristið og drepa
það. Sagan var runnin frá rótum
landeigandans, sem selt hafði tugi
tonna af korni enn ekki fengið fjögur
kilóin eins og þeir sem voru að deyja
úr hungri.
Nú vissi Skúli að hann var að tala
við menntaða menn I héraðsréttin-
um og um leið og hann sló I borðið
spurði hann þá hvað þeir meintu að
vera að taka mark á slikum þvætt-
ingi. Umsvifalaust var honum stung-
ið i steininn fyrir að sýna réttinum
óvirðingu og þar sat hann inni dag-
langt en þegar honum var sleppt út
varð hann að lofa að slá ekki framar
i borð rikisins
Hjá sumum þjóðflokkum er sið-
fræðin lik stift haldin Ungur piltur,
sonur kristinna heimamanna, stal'
nokkrum tugum dollara frá kristni-
boða, en foreldrar hans komust af
því Honum var refsað að sið síns
ættbálks Hendur hans voru brennd-
ar og í 6 mánuði varð hann að vera
á sjúkrahúsi kristniboðsins.
Þannig væri lengi hægt að halda
áfram að telja upp atvik sem erfitt er
fyrir vestrænt fólk að gera sér í
hugarlund, þvi þarna ægir saman
siðum steinaldar, siðum grimmdar
og fáfræði og virðingarleysi fyrir
mannslifinu, en hins vegar er hið
erfiða starf kristniboðsins eins og
sólargeisli i svartasta myrkviði.
Sumir menningarpostular spyrja
hvers vegna sé verið að skipta sér af
þessu fólki, telja að allt sé svo gott
og eðlilegt hjá þvi. en vist er að slíkir
menn tala ekki af reynslu, þeir
byggja á ímyndun en ekki raunsæi
og þó er Imyndunin aðeins i
eina átt og ekki þá hve óhugna-
legt lif þessa fólks er og
hefur verið i aldir og árþúsund
Það hefur búið eins og dýr,
okað af grimmd og fáfræði,
en hið fjölþætta starf kristniboðsins
unnið af lítillæ ; g seiglu þó, er að
opna fyrir þvi nýjan heim, þar sem
grimmd og fáfræði vikja fyrir nýjum
möguleikum, betra mannlifi.