Morgunblaðið - 22.10.1975, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.10.1975, Blaðsíða 1
24 SÍÐUR 241. tbl. 62. árg. MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1975 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Franco fékk hiartaáfall Madríd, 21. október AP Reuter FRANCISCO Franco hinn 82 ára gamli einræðishcrra Spánar, fékk hjartaáfall f dag, en er nú á batavegi, að því er rfkisstjórnin f Madrid tilkynnti f kvöld, og bar um leið til baka ákafar sögu- sagnir um að Franco væri látinn. Eftir að fréttist um áfall ein- Franco — á batavegi eða alvar- lega veikur? Tyrkir nú tilbúnir í viörœður Ankara, 21. október. Reuter — AP. TYRKNESKA rfkisstjórnin skýrði frá þvf að hún mundi f næstu viku hefja viðræður við Bandaríkin um nýtt varnar- samkomulag og hugsanlega opnun bandarísku herstöðv- anna f landinu að nýju. Einnig gaf stjórnin f skyn að hún væri reiðubúin til að hefja viðræð- ur við Grikki um lausn Kýpur- deilunnar, en heimildir f Ank- ara drógu f kvöld í efa að mikl- ar tilslakanir væru á döfinni f þeim efnum af Tyrkja hálfu. Þessi afstaða stjórnarinnar kom fram í yfirlýsingu utan- ríkisráðherrans, Ishan Sabri Caglayangil, og sagði hann þar að ákvörðun bandarisku stjórnarinnar um afléttingu vopnasölubannsins á Tyrki að hluta hefði ráðið úrslitum um þetta mál. Talið er að viðræð- urnar muni beinast að nýjum reglum um starfsemi banda- rísku herstöðvanna, þar sem Tyrkir muni láta meir að sér kveða en áður og Bandaríkja- stjórn jafnvel láta af hendi greiðslu fyrir aðstöðuna. ræðisherrans f dag og heimsókn Carlos Arias Navarros forsætis- ráðherra að sjúkrabeði hans fengu fregnir um andlátið byr undir báða vængi, bæði á Spáni og erlendis og m.a. birti ABC- sjónvarpsstöðin bandarfska frétt um að embættismenn f Washing- ton hefðu fengið upplýsingur um lát hans, og Juan Carlos prins tæki við völdum. A Spáni rigndi spurningum yfir ritstjórnir blaða frá áhyggjusömum viðskiptajöfr- um og útlendingum búsettum á Spáni. Areiðanlegar heimildir hermdu að Franco og Arias Navarro hefðu rætt möguleikann á að Juan Carlos tæki við og heimildir meðal háttsettra dipló- mata sögðu f kvöld að veikindi Francos væru alvarlegs eðlis. Staðfesting stjórnvalda f kvöld er fyrsta opinbera staðfestingin á hjartveiki Francos. Talið er að áfallið í dag hafi stafað af ónógu blóðstreymi til hjartans. f kvöld var einnig skýrt frá því að Franco hefði tekið að nýju upp venju- bundin störf sfn að hluta en aðrar heimildir hermdu hins vegar að hann ætti eftir að verða lengi að ná sér. Simamynd AP Á fundi Maós — Henry Kissinger, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sem nú er í Kína, hitti í gær óvænt Maó Tse-tung, formann kínverska kommúnistaflokksins, og átti með honum alllangan fund. Ekkert var þó látið uppi um viðræðurnar. Tveir v-þýzkir þingmenn í samtali við Morgunblaðið: Tillögur V-Þjóðverja verða aðgengilegar fyrir íslendinga” Bonn, 21. október. Frá blaóamanni Mbl. Ingva Hrafni Jónssyni. 0 „VIÐ erum vissir um að þær tillögur sem v-þýzka sendinefnd- in mun leggja fram í viðræðunum við fslenzk stjórnvöld í Reykjavfk 28. október n.k. muni verða að- gengilegar fyrir Islendinga þvf að það er ásetningur okkar að Ieysa þessa deilu milli þessara tveggja vinaþjóða," sögðu þingmennirnir Horst Grunenberg og Karl Heinz Saxovsky formaður landbúnaðar og fiskimálanefndar v-þýzka þingsins í samtali við Morgun- blaðið f dag. Þótt erfitt sé að fullyrða, var mjög ákveðið að heyra á þingmönnunum að af- staða v-þýzkra yfirvalda hefði breytzt og að fullur skilningur væri á málstað Islendinga. Einnig sögðu þeir að Þjóðverjar skildu að Islendingar yrðu að leysa fisk- veiðimál sfn þannig að tryggt væri að grein 6 í samningi Is- lendinga og EBE tæki gildi. Aðspurðir hvers vegna orðið hefði svo skyndileg breyting á af- stöðu v-þýzkra stjórnvalda til málsins, sem hefði fyrst komið í ljós í viðræðum Hans Dietrich Genschers utanríkisráðherra og Einars Ágústsonar á allsherjar- þingi S.Þ. og síðar verið staðfest af utanríkisráðuneytinu i Bonn eftir að formlegar viðræður hefðu legið niðri um nær eins árs skeið sögðu þingmennirnir: „Þið ís- lendingar verðið að hafa i huga að taka togarans Arcturusar var ekki neinn vináttuvottur og hefur aldrei verið túlkaður sem slíkur. Einnig verður að hafa í huga að við V-Þjóðverjar töldum okkur hafa gengið frá samningi við ís- lendinga, sem síðan var skyndi- lega hafnað. Við gerum okkur hins vegar grein fyrir sérstöðu Islendinga á sviði fiskveiða. Engu að sfður getum við ekki fallist á að okkar hefðbundnu fiskimiðum verði algerlega lokað fyrir okkar fiskimönnum. Milli vináttuþjóða hlýtur alltaf að vera hægt að gera gagnkvæma samninga sem þjóna hagsmunum beggja. Við heimsóttum báðir ísland í sumar í júlí og áttum þá viðræður við islenzka aðila sem voru vinsamlegar og hreinskilnar, Harold Wilson, forsætisráðherra Bretlands: Veitum brezkum fiskiskip- um vernd ef nauðsyn krefur” „ , ,, an50 mflna frá strönd Islands Aðgangur að svæðum innan 50 milna grundvallaratriði vegna þess að þetta er grundvall- 0 aratriði fyrir fiskiðnað okkar.“ 0 Brezka rfkisstjórnin er stað- ráðin f að tryggja sanngjarnt sam- komulag við Islendinga f fisk- veiðideilu þjóðanna tveggja, að þvf er Reuter-fréttastofan hefur eftir Harold Wilson, forsætisráð- herra Bretlands f neðri málstofu brezka þingsins f gær. „En“, bætti Wilson við, „ekkert brezkt fiski- skip mun verða óverndað ef vernd reynist nauðsynleg." 0 Morgunblaðið bar þessi um- mæli undir blaðafulltrúa forsæt- isráðherrans f gærkvöldi. Hann sagði að hann hefði ekki fengið ummæli Wilsons orðrétt, cn sam- kvæmt þeim upplýsingum sem hann hefði, væri hér um að ræða skilyrt svar ráðherrans við skil- yrtri spurningu eins þingmanns- ins og i henni fælist engin hótun eða stefnubreyting frá hendi stjórnarinnar. I Reuter-skeytinu sagði að Wil- son hefði sagt að ráðherraviðræð- urnar við íslendinga hæfust á fimmtudag. „Við vitum hversu brýnt það er að ná samkomulagi vegna tímaþáttarins,“ sagði for- sætisráðherrann. „Það verður grundvallaratriði nýs samkomu- lags að brezkum skipum verði leyfður aðgangur að svæðinu inn- Talsmaður forsætisráðherrans sagði f samtalinu við Morgunblað- ið í gærkvöldi að hér hefði verið um að ræða örstutt orðaskipti sem spunnizt hefðu vegna spurningar frá Kevin McNamara, þingmanns frá Kingston South upon Hull, um væntanlegar viðræður við tslend- inga. Hefði ráðherrann lýst þeirri skoðun sinni að mikils væri vænzt af viðræðunum. en þegar að því kom að ræða þessi mál og gagnkvæman skilning á hagsmunum beggja voru íslendingar mjög harðir í horn að taka cg erfiðir I viðræðum. Það má hins vega segja að þær viðræð- ur hafi orðið til að vekja okkur af svefni um þessi mál og hjálpa okkur að skilja vandamálið. V-þýzk stjórnvöld hafa nú ákveðið að veita miklu fjármagni til rannsókna og leitar að nýjum fiskimiðum fyrir okkar skip. Við höfum engan áhuga á eða ásetn- ing um að stela fiski af ykkar miðum og viljum leggja okkar af mörkum til að tryggja verndun fiskstofnanna í hafinu. Aðspurðir hvort það hefði i raun og veru verið Arcturusarmálið, sem réð úrslitum um að öllum viðræðum var hætt og löndunar- bann sett á, sögðu þingmennirnir að það væri að visu rétt að fisk- veiðar væru ekki stór þáttur i þjóðarframleiðslu V-Þjóðverja, en hafa bæri í huga að fyrir hvern fiskimann væru fimm menn við störf I fiskiðnaðinum i landi. Þjóðverjar þyrftu hins vegar á miklum ferskfiski að halda til neyzlu og eitt vandamálið hefði verið að Islendingar hefðu neitað að gera nokkurn ákveðinn samn- ing um að selja Þjóðverjum fisk i stað þess fisks sem þeir myndu missa við að togarar þeirra fengju ekki að veiða á sínum hefð- bundnu miðum við Island. Um % af öllum ferskfiski á v-þýzka markaðnum hefðu komið frá Is- landsmiðum. Að þvi leyti til væru íslandsveiðarnar mjög mikil- vægar efnahagslega fyrir V- Þjóðverja. Þá spurði Mbl. þingmennina Framhald á bls. 11

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.