Morgunblaðið - 22.10.1975, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. OKT0BER 1975
Alþjóðleg
ráðstefna sérfræðinga:
Hernaðarleg
viðhorf á N-Atlantshafi
DAGANA 24. til 26. október verð
ur haldin á Hótel Loftleiðum al '
þjóðleg ráðstefna sérfræðinga um
„hernaðarleg viðhorf á N-
Atlantshafi“. Það er norska utan-
ríkismálastofnunin og Inter-
national Institute for Strategie
Studies, sem standa að ráðstefn-
unni í samvinnu við kanadísku
utanríkismálastofnunina og
stjórnvísindastofnunina við há-
skólann f Árósum. Björn Bjarna-
son hefur verið milligöngumaður
á íslandi. I ráðstefnunni munu
taka þátt yfir 30 sérfræðingar frá
Kanada, Danmörku, íslandi, Nor-
egi, Bretlandi, Bandaríkjunum og
Vestur-Þýzkalandi. íslenzku þátt-
takendurnir verða Björn Bjarna-
son, dr. Ágúst Valfells, Már Elís-
Friðrik vann Biörn
þrjú jafntefli -
son, Benedikt Gröndal, Ólafur
Ragnar Grímsson, Hjálmar W.
Hannesson auk nokkurra áheyrn-
arfulltrúa.
Á ráðstefnunni verður gefið yf-
irlit yfir hernaðarstöðuna á N-
Atlantshafi, rætt um síðustu þró-
un í flotamálum, með sérstöku
tillit til sovézka og bandaríska
flotans og kafbátahernaðar. Einn-
ig verður fjallað um nýtingu auð-
linda, hafréttarmálefni og áhrif
þróunar á því sviði á hernaðar-
mál. Loks verður rætt um líkur á
eftirliti með vígbúnaði og tak-
mörkun hans á N-Atlantshafi.
ÖNNUR umferð svæðamótsins í
Reykjavík var tefld á Hótel Esju í
gærkvöldi. Úrslit urðu þessi:
Friðrik Ólafsson vann Björn Þor-
steinsson í 30 leikjum, Hartstone
vann van der Broeck, Parma og
Zwaig sömdu um jafntefli og
sömuleiðis þeir, Laine og Hamma
og Jansa og Timman. Skákir
þeirra Ribli og Poutiainen fór í
Einn á veiðum
fyrir innan línu
Landhelgisgæzluflugvélin SÝR
fann einn v-þýzkan togara á veið-
um fyrir innan 200 mílna fisk-
veiðimörkin i gær. Togarinn var
að veiðum 90 mílur vestur af
Reykjanesi, en varðskip stuggaði
togaranum út fyrir mörkin í gær-
kvöldi. Þá var annar v-þýzkur tog-
ari á siglingu NV af Breiðafirði og
virtist hann stefna f átt á Dhorn-
banka. Við suðurströndina voru
þrir togarar á siglingu austur með
landi.
bið og er sá fyrrnefndi með betri
stöðu og skák Ostermayers og
Liberzon fór einnig í bið, og er
staðan flókin.
Það er oft gaman að fljúgast á. Li«sm Þórieifuröi.
Aukasýning hjá
Kínverjunum
í dag kl. 5 verður aukasýning í
Laugardalshöll hjá kinversku
fjöilistamönnunum, en mjög
mikil aðsókn hefur verið að sýn-
ingum þeirra, sem hafa vakið
óskipta athygli.-Alls verða sýning-
arnar því 5 í LaugardalshöIIinni,
en síðasta sýningin er kl. 20 í
kvöld. Miðasalan verður opnuð i
Laugardalshöllinni kl. 3 f dag.
Viimuveitendasamband-
ið tilbúið til viðræðna
Vinnuveitendasamband tslands
hefur lýst sig reiðubúið til að
hefja nú þegar viðræður við
verkalýðshreyfinguna og rfkis-
stjórnina um ástand og horfur f
efnahags- og kjaramálum þjððar-
innar og leiðir til lausnar aðsteðj-
andi vanda. — t þessum efnum
má engan tfma missa, segir f
fréttatilkynningu, sem Morgun-
blaðinu barst frá Vinnuveitenda-
sambandinu I gær.
Ekki hægt að breyta verði
nema með lagabreytingu
— segja fulltrúar sjómanna og útgerðarmanna í yfirnefndinni
Töpuðu aleigunni
UNG HJÓN sem voru að flytjast
til Reykjavíkur norðan úr landi
urðu fyrir þvf óhappi mánudag-
inn 13. okt. að tapa peningaveski
með aleigu sinni i við Staðarskála
í Hrútafirði. Áttu þau ekki einu
sinni peninga til að auglýsa eftir
veskinu og f borginni eru þau
húsnæðislaus. t veskinu voru um
50 þús. kr. og ef einhver skyldi
finna veskið er hann vinsamlega
beðinn um að hafa samband við
ritstjórn Morgunblaðsins sem
fyrst, því mikið er í húfi fyrir
ungu hjónin og þótt ekki sé um
æsilega háa upphæð að ræða, var
hún aleiga þeirra.
MORGUNBLAÐIÐ leitaði f gær-
kvöldi til fulltrúa sjðmanna og
útgerðarmanna f yfirnefnd verð-
lagsráðs sjávarútvegsins, þeirra
Kristjáns Ragnarssonar, for-
manns L.Í.Ú. og Ingólfs Ingólfs-
sonar, formanns Vélstjórafélags
Islands, og bað þá að gera grein
fyrir afstöðu sinni gagnvart að-
gerðum skipstjórnarmanna og
sjómanna.
Kristján Ragnarsson sagði:
„Yfirnefndin hefur ákveðið verð
lögum samkvæmt og það er og
verður f gildi og við getum ekki
ákveðið annað verð, þar sem verð-
ið gildir til áramóta og ekki
breytt nema með lögum. Við höf-
um ekkert vald á þessu máli. Það
er búið að gefa út verð.“
Ingólfur Ingólfsson sagói: „Mér
bárust í hendur um kvöldmatinn
frá sjávarútvegsráðuneytinu til-
lögur þessara sjálskipuðu tals-
manna og við þessu er í sjálfu sér
ekkert að segja eða gera. Það hef-
ur enginn leyfi til að breyta verð-
inu, en tillögurnar hljóða m.a.
upp á breytt verð og breytta
flokkaskiptingu. Verðið sem er í
gildi, gildir til áramóta og það er
ekki hægt að taka það upp, nema
með breytingu á lögum.
Hins vegar verð ég að segja, að
maður getur ofur vel skilið
óánægju sjómanna með sinn hlut
þegar hvort tveggja gerist að
verðbólgan vex, aflinn minnkar
eða stendur í stað og það segir til
sín f tekjum þeirra.
Það er ekki einfalt að taka á
málinu og hversu víðtæk sam-
staða er um það hef ég ekki hug-
mynd um, reynslan ein verður að
skera úr um það. Annars skilst
mér, að sumir þessara manna
haldi því fram að við Kristján
Ragnarsson séurn óhæfir í yfir-
nefndina, ef svo væri, væri málið
mjög einfalt. Það er svo mikið til
af vitrum mönnum. Þetta er bara
allt mjög erfitt og til marks um
það má nefna að verðjöfnunar-
sjóður frystingarinnar er tómur,
en ríkisstjórnin hefur ákveðið að
hlaupa inn f til áramóta, hvaðan á
að taka það fé veit ég ekki. Hvað
svo tekur við veit ég ekki, og við
óbreytt önnur skilyrði virðist
erfitt að gera eitthvað sem
dugar.“
Útfærslunni vel tekið í sænskum blöðum
„ísland berst fyrir lífi sínu”
— segir Göteborgsposten
Frá Pétri J. Eiríkssyni, fréttaritara
Mbl. í Gautaborg.
ÚFÆRSLU Islenzku fiskveiði-
lögsögunnar hefur yfirleitt
verið vel tekið I Svíþjóð. Nokk-
uð hefur verið fjallað um hana
f blöðum þar á meðal f leiðara-
skrifum, sem hafa verið mjög
jákvæð. Göteborgsposten sagði
f sfðustu viku f leiðara, sem bar
yfirskriftina „fsland berst fyrir
Iffi sínu“: „Það gildir íslend-
inga einu hvort þeir hafi rétt til
að stugga erlendum fiski-
skipum á brott, því hér er um
iff og dauða fslands að tefla.
Það er ekki samkeppnin um
aflann, sem hér er afgerandi,
heidur sú óhugnanlega stað-
reynd, að fiskstofnanna bfður
útrýming, ef ekkert er að-
hafzt.“
Síðan segir blaðið, að vísinda-
menn hafi varað við því, að eins
geti farið fyrir þorskinum og
sfldinni 1967 og slfkt geti ekki
leitt til annars en efnahagslegs
hruns og að íslenzkt þjóðfélag
brotni niður. Greinin endar á
þessum orðum: „Maður verður
að sýna skilning — þegar al-
þjóðasamþykktum er stöðugt
skotið á frest — á því að íslend-
ingar taki málin í sínar eigin
hendur til verndar sjávarútvegi
sínum. Rányrkjan, sem næstum
hefur leitt til eyðingar miðanna
við ísland, sýnir, að fresturinn
er að renna út.“
Forystugrein Dagens Nyhet-
er hefst á þessum orðum: „Ein-
hliða aðgerðir, sem stríða gegn
alþjóða lagabókstaf eru for-
kastanlegar. Það er vel þess
virði, að halda sér við þá megin-
reglu. Samt er erfitt að amast
mikið við ákvörðun íslenzku
ríkisstjórnarinnar að færa fisk-
veiðilögsöguna út f 200 sjómíl-
ur. Hún gerist við aðstæður,
sem eru mildandi, a.m.k. á
tvennan hátt.“
Telur blaðið þær vera þann
drátt sem orðið hefur á þvf, að
niðurstaða náist í hafréttarmál-
um og þá hættu, sem þorsk-
stofninn við ísland er kominn í.
Síðan segir blaðið, að enda þótt
ástæða sé tii að taka upp hanzk-
ann fyrir Islendinga, þá séu
fleiri hliðar á málinu. Almenn
útvfkkun fiskveiðilögsögu geti
verið vernd gegn fiskveiðistór-
veldunum, Bandaríkjunum,
Sovétrfkjunum og Japan, en
hún komi illa niður á minni
fiskveiðiþjóðum og ríkjum, sem
ekki liggja að sjó. Ríki, sem
eiga stóra fiskveiðilögsögu,
verða því að vera opin fyrir
samningum við önnur rfki um
veiðiheimildir.
Orkan lokkar
„En þegar til lengdar lætur,“
heldur Dagens Nyheter áfram,
„verða tslendingar að finna
aðrar Ieiðir en sjávarútveg.
Framtíðarlausn á efnahags-
vanda tslendinga, ef einhver er
til, er e.t.v. ekki 200 mflna efna-
hagslögsaga, heldur hinar
miklu orkulindir landsins. Með
hækkandi verði á orku, sem
stöðugt verður erfiðara að ná f
gæti tsland þrátt fyrir land-
fræðilega legu sína orðið
Iokkandi fyrir orkufrekan iðn-
að“.
Forystugrein Sydsvenska
dagbladet er mjög f svipuðum
dúr og segir þar, að sé haft í
huga, hve ísland sé háð fisk-
veiðum, sé ekki annað hægt en
að sýna skilning á útfærslunni.
Auk þess sé hugtakið ofveiði
ekki lengur orðið tómt. Blaðið
segir síðan, að einhliða aðgerðir
séu kannski ekki beztu að-
ferðirnar og ef þróun mála
verði sú, að 200 mílna fiskveiði-
lögsaga verði almenn regla geti
mikil vandræði skapazt í
sænskum sjávarútvegi.
„En tsland er sértilfelli,“ er
niðurstaða greinarinnar, „og
ekki er hægt annað en að fallast
á ákvörðun tslendinga, en það
er svo vafasamt, að ákvörðunin
hafi verið sú rétta, ef önnur
strandrfki koma á eftir.“
t fréttatilkynningu sem Morg-
unblaðinu barst í gær frá Vinnu-
veitendasambandinu segir m.a.:
„Alvarlega horfir nú í efna-
hagsmálum tslendinga. Þjóðin
heldur áfram að lifa um efni
fram, gjaldeyrissjóðirnir eru
þrotnir og erlendar skuldir hlað-
ast upp. Skýrt hefur verið frá
uggvænlegu ástandi fiskistofna
umhverfis landið, jafnframt þvf
sem áfram þrengir að markaðs-
möguleikum og markaðsverði fs-
lenzkra útflutningsvara, m.a.
vegna aukinna ríkisstyrkja til
samkeppnisaðila í sjávarútvegi á
erlendum mörkuðum. Verðbólgan
geysist áfram, kaupmáttur rýrn-
ar, rekstrargrundvöllur atvinnu-
veganna er að bresta og vaxandi
hætta á stöðvun atvinnugreina og
atvinnuleysi,
A þessu ári hefur tvisvar sinn-
um verið gengið til heildarsamn-
inga milli aðila vinnumarkaðar-
ins, f bæði skiptin til skamms
tíma í þeirri von, að ástandið í
efnahagsmálum og greiðslugeta
atvinnufyrirtækja breyttist til
batnaðar. Sú von hefur brugðist.
Nú hefur miðstjórn Alþýðusam-
bands íslands beint þvf til allra
sambandsfélaga sinna, að þau
segi upp gildandi kjarasamning-
um sínum fyrir 1. desember n.k.
þannig að þeir renni úr gildi á
áramótum. Samningaumleitanir
eru því skammt undan. Forysta
ASÍ hefur bent á, að nauðsynlegt
sé að takast á við orsakir vandans
í efnhags- og kjaramálum en
hætta að glfma við afleiðingarnar
einar saman. Varað hefur verið
við afleiðingum meiri háttar
kauphækkana, þ.e. sívaxandi
verðbólgu, gengisfellingum og at-
vinnuleysi og sagt að hóflegar
kauphækkanir með vfðtækum
hliðarráðstöfunum mundu skila
raunhæfari árangri. I samþykkt
miðstjórnar ASl 18. september
s.l. sagði, að stefnt skuli að því, að
fullreynt verði á áramótum, hvort
samningar geti tekizt án verk-
fallsátaka. Þjóðin stendur nú á
tímamótum. Ef ekki tekst skyn-
samlega til um skipan efnahags-
Framhald á bls. 11
Vorboði
styður
kvennafrí
Á FUNDI Sjálfstæðiskvennafé-
Iagsins Vorboða, sem haldinn var
20. október 1975 kom fram stuðn-
ingur við væntanlegan frídag
kvenna á degi SÞ 24. okt. n.k.
Hvetur fundurinn konur til
þess að mæta vel á útifundinum
og standa vel saman um markmið
SÞ með kvennaárinu.