Morgunblaðið - 22.10.1975, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. OKTOBER 1975
FERÐABÍLAR h.f.
Bilaleiga, sími 81260.
Fólksbílar — stationbílar —
sendibilar-hópferðabilar.
DATSUN _
7,5 I pr. 100 km
Bílaleigart Miöborg
Car Rental 1 oa qoI
Sendum 1-74-9^1
Skuldabréf
Tökum i umboðssölu:
Veðdeildárbréf
Fasteignatryggð bréf
Fljá okkur er miðstöð verðbréfa-
viðskiptanna.
Fyrirgreiðsluskrifstofan
Fasteigna-
og verðbréfasala
Austurstræti 14
simi 16223
Þorleifur Guðmundsson
Heima 12469.
GEYMSLU
HÓLF
GEYMSLUHOl h I
ÞREMUR STÆROUM
NY ÞJONUSTA VIO
VIDSKIPTAVINI í
NÝBYGGINGUNNI
BANKASTÆTI 7
Saiminntilumkinn
AKil.YSINIiASI.MINN KU:
22480
2H«rgunl>Iflt>i?>
Stjórn RKl deildar A-
Skaftafellssýslu, talið frá vinstri:
Ingibjörg Guðmundsdóttir, Egill
Jónasson, séra Gylfi Jónsson,
Ingóifur Arnarson og Sigrlður
Guðmundsdóttir.
Rauða kross deild
stofnuð á Höfn
STOFNFUNDUR Rauða kross
deildar Austur-Skaftafellssýslu
var haldinn á Höfn í Hornafirði
fyrir skömmu. Fundinn setti for-
maður undirbúningsnefndar,
séra Gylfi Jónsson, en hann var
einnig kosinn formaður deildar-
innar á fundinum.
Á fundinum hélt Eggert
Asgeirsson framkvstj. Rauða
kross íslands erindi um starf
Rauða krossins og hugsanleg
verkefni deilda og starfsaðferðir,
en starf deildanna fer að mestu
leyti eftir þörfum i héraði.
Þá hélt Skúli Johnsen, borgar-
læknir, erindi um heilsugæzlu-
stöðvar og þátttöku RKÍ í starfi
þeirra. Guðjón Pétersen, fulltrúi
Almannavarna, sagði frá því, að
stofnun almannavarnanefndar
Hafnar hefði farið fram og sagði
frá samstarfi Almannavarnaráðs
og RKl.
Á fundinum kom fram, að
menn voru sammála um, að einna
brýnast væri að Rauða kross
deildin tæki að sér sjúkraflutn-
ing, undirbúning að heilsugæzlu-
starfsemi og tæki höndum saman
við björgunarsveitina á Höfn að
hinum ýmsu verkefnum.
Útvarp Revkjavík
AHDMIKUDKGUR
MORGUNNINN
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugreinar dagbl.), 9.00
og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Björg Arnadóttir les
söguna „Bessl“ eftir Dorothy
Canfield f þýðingu Silju
Aðalsteinsdóttur (15).
Tilkynningar kl. 9.30. Þing-
fréttir kl. 9.45. Létt lög milii
atriða.
Kirkjutónlist kl. 10.25: Ein-
söngvarar og Borgarkórinn í
Bournemouth flytja „Missa
Choralis“ eftir Liszt. Stjórn-
andi: Norman Austin. Orgel-
ieikari: Geoffrey Tristam.
Morguntónieikar ki. 11.00:
Benny Goodman og strengja-
sveit Columblu-
hljómsveitarinnar leika
Klarfnettukonsert eftir
Aaron Copiand; höfundur
stjórnar / Suisse Romande
hijómsveitin leikur Sinfónfu
1 d-moll eftir César Franck;
Ernest Ansermet stjórnar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
SÍÐDEGIÐ
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miödegissagan: „A
fullri ferð“ eftir Oscar
Clausen
Þorsteinn Matthfasson les
(7).
15.00 Miðdegistónleikar
David Oistrach og Vladimir
Yampolski leika á fiðiu og
pfanó lög eftir Bartók
Szymanowski og Kodály.
Félagar í Rikishljómsveit-
inni f Rúmenfu leika Oktett í
C-dúr op. 7 fyrir strengja-
hljóðfæri eftir Enesco.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veóurfregnir).
16.25 Popphorn
17.00 Lagið mitt
Anne-Marie Markan sér um
óskalagaþátt fyrir börn yngri
en tólf ára.
17.30 Smásaga: „Sakramenti"
eftir Þóri Bergsson
Jóhanna Hjaltalín leikkona
les.
17.50 Tónleikar. Tilkynning-
ar,
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
SKJANUM
MIÐVIKUDAGUK
22. október
18.00 Mynd án orða
Fylgst með tvelmur litlum,
japönskum stúlkum í skói-
anum og að leik.
18.20 Höfuðpaurinn
Bandarfsk teiknimynd.
Þýðandi Stefán Jökulsson.
18.45 Kaplaskjól
Breskur myndaflokkur
byggður á sögum eftir
Monicu Dickens.
Afmælisveisia i Kaplaskjðli
Þýðandi Jóhanna
Jóhannsdóttir.
Hlé v
20.00 Fréttir og veður
20.30 Dagskrá og auglýsingar
20.40 Nýjasta tækni og
vísindi
Of hár blóðþrýstingur
Samræming björgunarað-
gerða á sjó
Hættulegt ryk
Umsjónarmaður Sigurður
H. Richter.
21.05 Farþeginn
Breskt sakamálaleikrit.
2. þáttur
Aðalhlutverk Peter Bark-
worth og Paul Grist.
Þýðandi Jón Thor
Haraldsson.
21.50 Huglækningar
Endursýndur þáttur úr
myndaflokknum Sjötta
skiiningarvitið
Fjailað um lækningar
Einars Jónssonar bónda á
Einarsstöðum ÍReykJadal.
Rætt er við hann, og Hrafn-
kel Helgason, yfírlækni, og
fyrrverandi sjúkling þcirra
beggja, Baldur Sigurðsson
bónda í Reykjahifð. Einnig
tekur séra Sigurður Haukur
Guðjónsson þátt I umræðun-
um.
Umsjónarmenn Jökuil
Jakobsson og Rúnar
Gunnarsson.
Þessi þáttur var frumfluttur
3. ágúst 1975.
22.40 Dagskrárlok.
' KVÖLDIÐ____________________
19.35 Á kvöldmálum
Gfsli Helgason og Hjalti Jón
Sveinsson sjá um þáttinn.
20.00 Einleikur 1 útvarpssal:
Rögnvaldur Sigurjónsson
leikur á pfanó Sónötu
pathetique op. 13 eftir
Beethoven.
20.20 Sumarvaka
a. Elzti rithöfundur
Rangæinga
Helgi Hannesson flytur
erindi sitt; fyrri hluti.
b. Unnið hörðum höndum
Guðrún Guðlaugsdóttir taiar
við Ólaf Gunnarsson bónda á
Baugsstöðum.
c. Tvær sumarferðir á hest-
um
Baldur Pálmason les frásögn
Þorsteins Björnssonar frá
Miklabæ af ferðum úr
Blönduhlfð norður 1 öxnadal
og fram 1 Goðdali.
d. Kórsöngur
Karlakór Akureyrar syngur
undir stjórn Áskels Jóns-
sonar.
Guðmundur Jóhannsson leik-
ur á pfanó.
21.35 Utvarpssagan:
„Fóstbræður“ eftir Gunnar
Gunnarsson
Þorsteinn Ö. Stephensen
leikari les (4)
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir
Kvöldsagan: „Kjarval" eftir
Thor Vilhjálmsson.
Höfundur les (5).
22.35 Skákfréttir
22.40 Orð og tónlist
Elfnborg Stefánsdóttir og
Gérard Chinotti kynna
franskan vfsnasöng.
23.25 Fréttir í stuttu máli.
Dagskrárlok.
Um þessar mundir i * '
morgunstund barnanna
kl. 8.45 mjög góð barna-
saga og verður 15. lestur
í dag. Sagan heitir Bessí
og fjallar um litla telpu,
sem alin er upp í mjög
verndaðri tilveru hjá
frænku sinni.
Hún hefur ekki tækifæri til
að gera neitt hvorki illt né gott.
En síóan koma til veikindi, sem
breyta tilveru hennar. Hún er
send í sveit, þar sem hún fer að
taka þátt í lífinu. Hún á fjarska
bágt fyrst, en brátt finnst henni
allt miklu betra og skemmti-
legra. T.d. hafði námið verið
alveg dautt fyrir henni, bara
eitthvað sem varð að gera, en
Gunnvör Braga hefur umsjón
með barna- og unglingaefni í
útvarpinu
nú fer hún að sjá að maður
notar reikning til einhvers
o.s.frv. A stuttum tíma þroskast
hún ótrúlega. Og er saga
hennar mjög skemmtilega sögð.
Höfundur bókarinnar er
bandarísk skáldkona Dorothy
Canfield, sem skrifaði þessa
bók um 1918.
Barnasögur hennar eru
taldar meðal sigildra bóka, en
sagan um Bessí á fullt erindi til
barna enn í dag.
Upplýsingarnar fengum við
hjá Gunnvöru Braga, sem hefur
umsjón með vali barna- og ungl-
ingaefnis í útvarpinu. Hún tjáði
okkur að bæði þýðandi bó£ar-
innar, Silja Aðalsteinsdóttir, og
lesarinn, Björg Árnadóttir,
væru i Englandi. Silja er þar
við nám, en Björg býr þar með
manni sínum. E.t.v. kannast
fólk við hana úr Oklahoma í
Þjóðleikhúsinu, þar sem hún
lék áður en hún fór utan. En nú
starfar hún eitthvað með til-
raunaleikhúsi í Bretlandi, eða
með leikhópi, sem færir upp
þætti og fer með í sjúkrahús,
skóla og fleiri staði. Er Björg
var hér heima í suraar, kvaðst
Gunnvör Braga hafa fengíð
hana til að lesa þessa sögu. Og
það gerir hún mjög áheyrilega
og vel. Sagan er löng og er ekki
nærri Iokið.
Kl. 17.00 er meira af góðu
barnaefni. Það er óskalaga-
þátturinn fyrir börn yngri en
12 ára, sem nýtur mikilla vin-
sælda. Berglind Bjarnadóttir
hefur verið með þennan þátt
frá upphafi, en hann hefur nú
verið á dagskrá f hálft annað ár.
En Anne-Marie Markan, sem er
með þáttinn í dag, hefur nú
annan hvern þátt. Þátturinn er
einu sinni í viku og skiptast
þær á um hann. Berglind er við
nám f tónlistarskóla Kópavogs
og í Menntaskólanum f Hafnar-
firði, og Anne-Marie Markan
er einnig við tónlistarnám.
Mikið af óskum um lög berst
frá börnunum, svo að stundum
hefst ekki undan.
Höfuðpaurinn er á dagskrá að venju kl. 18.20 í sjðn
varpinu.
Annar þáttur f nýju saka-
málaieikriti er á dagskrá sjón-
varpsins I kvöld kl. 21.05. Leik-
ritið heitir Farþeginn og er
nokkuð nýtt af nálinni. Höf-
undurinn er ailþekktur og
nefnist Francis Durbridge.
Annan aðalleikarann, Peter
Bankworth, þekkjum við úr
fyrri sjónvarpsleikritum. Hann
var m.a. f Mannaveiðum, eöa
Manhunt, og Valdatafli eða
Powergame. Hinn aðalleik-
arinn er Paul Grist.
Fyrsti þátturinn var nokkuð
spennandi en ekki þó foægt að
sjá af honum hvernig þetta
sakamálaieikrit ætlar að
reynast. Enn sem komið er
hefur ekkert annað gerzt en að
ung stúlka þiggur far hjá
manni 1 glæsilegri bifreið.
Hann er auðugur kaupsýslu-
maður. Billinn veróur bensfn-
laus og hann verður aó ganga
til næstu bensfnstöðvar.