Morgunblaðið - 22.10.1975, Síða 5
Hvað ætlar þú að gera 24 október?
Auðsætt virðist að þátttaka kvenna í kvennafrídeginum
ætli að vera útbreidd og almenn. Það er fagnaðarefni að
annars virðist naumast gæta en atvinnurekendur sýni
málinu skilning og velvild f verki. Þá er og sýnt að konur
ætli að fjölmenna á útifundinn á Lækjartorgi sem endar
kannski með að verða fjölmennasti fundur í manna-
minnum og færi undur vel á þvf.
Agata Agnarsdóttir, nemi f 4.
bekk Verzlunarskólans
Við ætluðum að taka okkur frí,
stelpurnar, en skólastjóri ákvað
þá að gefa frí. Auðvitað er fráleitt
að segja að okkur sé mismunað f
skólanum, en við eigum eftir að
fara út f atvinnulífið og mér
finnst þvi mikii nauðsyn að við
stöndum saman. Heima hjá mér
erum við aðeins tvær, ég og móðir
mfn, og hún ætlar að taka sér frí
frá sfnu starfi og við förum saman
á útifundinn. Töluvert margar
skólasystur mínar hafa talað um
að koma á fundinn, en það getur
verið að þær geri sér ekki allar
fulla grein fyrir þessu máli og
sumar eru meira að segja á móti
fríinu. Skólabræðurnir tala um
þetta i dálitlum hálfkæringi en í
eldri bekkjunum virðast þeir taka
þvf af meiri alv.öru. Margir segj-
ast þó efast um árangur þessa
kvennafrís og auðvitað veit ég að
við fáum ekki allt í einu jöfn laun
og karlmenn 25. október, en þetta
getur orðið til að leggja áherzlu á
kröfur okkar.
Elfn Pálmadóttir, blaða-
maður. Leggja niður störf, við
blaðamennsku og fundarsetur eða
annað stúss fyrir Reykjavíkur-
borg. 1 þetta sinn ætla ég ekki
einu sinni að predika þennan dag
í framhaldsskólum um ágæti Sam-
einuðu þjóðanna. Með því vil ég
einmitt sýna stuðning við mark-
mið Sameinuðu þjóðanna um
jafnan rétt öllu fólki heimsins tif
handa. Og þá sérstaklega við það
10 ára átak sem stofnunin er að
hefja á miðjum þróunaráratug til
að bæta hag kvenna um allan
heim. Ég vil sýna samstöðu með
öllum konum, sem finna að sér
þrengt vegna hefðbundinna við-
horfa samfélagsins, hver á sfnum
stað. Viðbrögðin sýna bezt að
kvennafríið á hljómgrunn hér á
landi meðal kvenna á öllum aldri,
kvenna úr öllum starfsstéttum, á
heimilunum og utan þeirra. 24.
október mun sjást hversu stór
þessi fylking er. Innan um allar
fréttir af illindum og óróa í
heiminum, held ég að það sæti
tíðindum að konur í einu landi
standi saman, hvar í flokki eða
stöðu sem þær eru.
Sigrfður Fríðriksdóttir, skrifst.st
f Héðni
Ég hef hugsað mér að fara í frí
og sækja útifundinn. Ég tek dótt-
ur mína unga með mér, þar sem
barnaheimilið er Iokað, svo að það
er sjálfgert. Mér fyndist ekki
óeðlilegt þótt dregið yrði af kaupi
okkar sem tökum okkur frí, því að
auðvitað er þetta f sjálfu sér verk-
fall. Mér finnst andinn vera sá að
það séu aðeins útivinnandi konur
sem eigi að taka sér frf, en hús-
mæður eigi að halda uppteknum
hætti við sín störf. Þessu er ég
ósammála, og mér finnst að hús-
móðurstörf hafi verið vanmetin
og kannski fyrst og fremst af
þeim sem þau störf vinna frekar
en að umhverfi þeirra geri það.
Eina sjö barna móður hitti ég
um daginn, sem sagði mér galvösk
að hún ætlaði að ganga út af
heimili sínu kl. 8 um morguninn
og ekki birtast fyrr en á miðnætti
aftur.
Ólöf Benediktsdóttir, kennari:
Ég ætla að taka mér frf frá
heimilísstörfum og kennslu 24.
október og hef hugsað mér að
sækja fundinn á Lækjartorgi. Ég
tel mjög mikilvægt að sem flestar
konur sjái sér fært að taka sér frí
þennan dag og sýni þannig
stuðning sinn við markmið S.Þ.
með kvennaárinu.
Linda Rós Michaelsdóttir,
kennari og háskólanemi
Ég hyggst hvorki fara að kenna
né hlýða á fyrirlestra uppi í há-
skóla heldur mun ég taka þátt f
fyrirhuguðum aðgerðum kvenna
þennan dag. Sjálf tel ég mig njóta
fulls jafnréttis á við karla f mínu
starfi, en tel það ófrávíkjanlega
skyldu mína að styðja þær sem
ekki hafa náð jafnstöðu og á
kvennafrísdaginn gefst tækifær-
ið.
Nfna Björk Árnadóttir, skáld
Ég mun að sjálfsögðu sinna
börnum mínum eins og vanalega.
Svo vill til að ég á ekki að starfa
utan heimilis þennan dag, en ég
fæst við kennslu tvisvar í viku og
ég hefði ekki mætt í þá vinnu
hefði kvennafríið borið upp á
slfkan dag. Svo ætla ég náttúrlega
að fara á útifundinn. Ég tel sjálf-
sagt að keppa að jafnrétti
kynjanna og er afar jákvæð gagn-
vart þeirri baráttu og finnst
ekkert álitamál að konur og
karlar fái sömu laun fyrir sömu
vinnu.
Þóra Stefánsdóttir, bankastarfsm.
Ég ætla að vera í fríi og fara á
fundinn. Sonur minn átta ára
hefur óskað eftir að fá að búa til
matinn þennan dag, en segist ætla
að geyma uppvaskið þar til dag-
inn eftir!
Mér sýnist vera mjög góð og
almenn þátttaka meðal kvenna í
bankamannastétt. Karlmenn ætla
flestir að mæta til vinnu og
nokkrir hafa talað um að taka
börnin með, en ég veit líka til
þess að einhverjir verða heima að
gæta bús og barna.
Stella Jóhannsdóttir, starfss. hjá
IBM
Ég legg niður vinnu og fer á
útifundinn og mun taka börn mín
tvö með mér þangað, þar sem ég
teldi mig vera sjálfri mér ósam-
kvæm ef ég léti aðra um að annast
þau þennan dag. Forstjóri IBM,
Otto Michelsen, hefúr tilkynnt
okkur kvenfólkinu, sem vinnum
hjá fyrirtækinu, að hann bjóði þvi
út að borða í tilefni dagsins og er
boðið að makar eða félagar megi
koma með. Hvort við notum
okkur þetta ágæta boð þennan
dag eða sfðar veit ég ekki, en vist
er um að við kunnum vel að meta
þetta.
7 tuetur
ÍLONDON
og enskur morgunverður!
Vegna fjölmargra fyrirspurna höfum viö ákveöiö aö
halda áfram aö bjóöa viöskiptavinum okkar hinar
vinsælu vikuferöir til London. Brottför alla laugardaga.
Flogiö meö Flugleiöum, gist á Hótel
Cumberland eöa Regent Palace, fyrsta
flokks enskur morgunveröur.
Verð frá kr. 38.000 *
ÚRVALS FERÐIR
VIÐ ALLRA HÆFI
if Flugvallarskattur (kr. 2.500.-)
ekki innifalinn í verðinu.
FERÐASKFUFSTOFAN .....■ ——^
URVAL mST
Eimskipafélagshúsinu smi 26900
líiiii
JIUlu.p. |
wVoiPnnh.
IIIII