Morgunblaðið - 22.10.1975, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. OKTOBER 1975
7
r
“I
j Sovézki
I björninn
f nýju tölublaði „Stétta-
| barðttunnar" málgagni
kommúnistasamtakanna
I Marxista-Leninista, er
I fjallað I glöggri grein um
• viðhorfin ! öryggismðlum
’ á Norður Atlantshafi og er
I grein þessi undirskrifuð
• með stöfunum K.G. f
• grein þessari segir ma:
„Siðastliðið vor fóru fram
■ umfangsmestu flotaæf-
I ingar Sovétrikjanna til
! þessa á Norður-
■ Atlantshafi. Þessar flota-
' æfingar, sem gengu undir
I_________________________
nafninu OCEAN '75, mið-
uðust beinlínis við innrás
flotans í strandríki og
vöktu mikla reiði i Noregi
og víðar. Enginn vafi er á,
að þessar flotaæfingar
þjóna þeim tilgangi einum
að undirbúa árðsarstyrj-
öld, innrásir í lönd á N-
Atlantshafssvæðinu, eins
og t.d. Noreg og fsland.
OCEAN '75 flotaæfing
arnar eru liður i mögnun
vigbúnaðar og hervæð-
ingar Sovétrikjanna á
norðurslóðum, og sam-
hliða þeim hafa sósíal-
heimsvaldasinnarnir auk-
ið umsvif sin i öðrum
heimshlutum, fyrst og
fremst á Indlandshafi, i
Miðjarðarhafi og Barents-
hafi. Sovétmenn hafa t.d.
byggt stærstu flotastöð
heimsins á Kólaskaga,
þaðan sem gifurlegur
flotaafli heldur út á N-
Atlantshafið til „eftirlits-
siglinga", heræfinga og
njósna. Nýverið hófust
enn flotaæfingar við N-
Noreg og fara þær fram
innan við 2G0 sjómilur frá
ströndum landsins. Sovét
rikin hafa fylgt þeirri linu i
landhelgismálum að
viðurkenna ekki 200
milna fiskveiðilögsögu,
landhelgi eða neins konar
réttindi strandrikja."
Morgunblaðið tekur
undir hvert orð i þessari
lýsingu „Stéttabaráttunn-
ar", málgagns kommún-
istasamtakanna Marxista-
Leninista á ástandinu í
öryggismálum á Norður-
Atlantshafi, og þeirri
hættu, sem bæði Noregi
og islandi stafar af hinum
auknu umsvifum Sovét-
manna á þessu hafsvæði.
Óþolandi
framkoma
Visir fjallar i forystu-
grein i gær um kynningu
landhelgismálsins, og
segir: „Nú hefur það
gerzt, að einn af sendi-
herrum fslands hefur
gefið til kynna, að við
myndum skipta um
bandamenn, ef vestræn
riki sæju ekki til þess, að
200 sjómilna fiskveiðilög-
sagan verði virt. Yfirlýs-
ingar af þessu tagi eru að
sjálfsögðu óþolandi. Þó að
mikilvægt sé að kynna
málstað islands erlendis
er varhugavert að gera
það með aðferðum fyrrum
blaðafulltrúa rikisstjórn-
arinnar."
Jafnrétti
Alþýðublaðið fjallar í
forystugrein í gær um
jafnréttisbaráttu kvenna
og segir: „Það er eins á
íslandi og í ollum öðrum
löndum þar sem sagt er,
að konur njóti jafnréttis á
við karla, að það jafnrétti
er I orði en ekki á borði.
Það er engin tilviljun, að
hin svonefndu „kvenna-
störf" í atvinnulífinu eru
verst launuðu störfin. Það
er engin tilviljun, að I hópi
sveitarstjórnarmanna og
Alþingismanna eru aðeins
örfáar konur. Það er engin
tilviljun, að húsmóður-
störfin eru einu störfin,
sem samfélagið ekki
metur til verðs og þar af
leiðandi njóta húsmæður
engra þeirra félagslegra
réttinda, sem aðrar starf-
stéttir njóta. Þannig
mætti lengi telja, allt er
þetta af einum og sama
brunninum: samfélagið er
tregt til þess að viður-
kenna gildi þeirra starfa,
sem kvenfólk vinnur. Það
er tregt til þess að viður-
kenna hæfni þeirra til að
taka að sér störf á vett-
vöngum, þar sem karl-
menn hafa haslað sér völl
og það er tregt til þess að
veita þeim sömu réttindi
og karlmenn hafa."
Erfið byrjun HIB
hjáíslendingum eftir J0N K Þ0R
Eins og fram hefur komið í
fréttum varð að fresta 1. um-
ferð svæðamótsins í skák, þar
sem tveir keppendanna voru
ekki komnir til leiks í tæka tíð.
Þá var ákveðið að draga aftur
um töfluröð til þess að ferða-
mennirnir tveir tefldu saman f
1. umferð. Fyrsta umferðin
hófst svo kl. 17 á mánudag og
var mjög spennandi. Þegar var
auðséð, að mótið hefur vakið
mikinn áhuga, því að áhorf-
endasalurinn var fullur af
fólki. Sú skákin, sem mesta at-
hygli vakti, var skák þeirra
Friðriks Ólafssonar og júgó-
slavneska stórmeistarans
Bruno Parma.. Fer hún hér á
eftir með örstuttum athuga-
semdum.
Hvftt: Friðrik Ólafsson
Svart: B. Parma
Drottningarindversk vörn.
I. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. Rf3
— b6, 4. a3
(Leikur Petrosjans. Algeng-
ara er hér 4. g3 eða 4. a3).
4. — Bb7, 5. Rc3 — d5, 6. cxd5
— exd5, 7. Bg5 — Be7, 8. e3 —
0-0, 9. Hcl — Rbd?, 10. Bd3 —
c5,11. Bf5?!
(Upphafið að rangri áætlun.
Sjálfsagt var að hróka stutt).
II. — g6, 12. Bh3 (?)
(Friðrik virðist hafa ofmetið
stöðuna og heldur þvf áfram f
villunni. Hér var betra að leika
biskupnum afturtil d3).
12. — Ba6!, 13. Da4
(Hvítur tapar dýrmætum tíma,
en einhvernveginn varð hann
að koma kóngnum í skjól).
13. — cxd4, 14. Dxa6 — dxc3,
15. b4?
(Tapleikurinn. Hér var senni-
lega illskást að leika 15. bxc3,
þótt svartur standi betur að vígi
á eftir. Hins vegar gat hvítur
ekki leikið 15. Hxc3, t.d. 15. —
Rc5, 16. De2 — Rfe4, 17. Bxe7
— Rxc3 og vinnur skiptamun).
15. — Re4,
(Nú hefur svartur valdað frí-
peð yfir, auk þess sem hvítu
biskuparnir eru gagnslitlir).
16. Bh6 — He8, 17. 0-0 — Bd6,
18. Dd3 — Re5, 19. Rxe5 —
Bxe5, 20. g3 — Bh8! 21. f3 —
Rd2,
(Nú fær hvítur ekki varizt
miklu lengur).
22. Hf2 — Df6, 23. f4
(Ekki 23. Bg2 vegna 23. — g5).
23. — d4, 24. exd4 — Dxd4, 25.
Hxc3 — Re4! og hvltur gafst
‘upp. Hann fær ekki varizt stór-
felldu liðstapi.
Björn átti f höggi við danska
meistarann Svend Hamann og
beitti Nimzoindverskri vörn.
Skákin fylgdi hefðbundnum
leiðum framan af og virtist
Björn hafa náð að jafna taflið
eftir 15 leiki. 1 18. leik lék Dan-
inn Rg5 og hefur þá vafalaust
haft kóngssókn í huga. I fljótu
bragði fæ ég þó ekki betur séð
en að hér hafi verið um grófan
afleik að ræða. Björn gat svarað
með 18. — Rxd4! og eftir 19.
cxd4 — Hxc2, 20. Dxc2 — Bxg5,
21. Bxg5 Dxg5 fær svartur tvö
peð uppf skiptamuninn og
sterkt frumkvæði. En Björn
missti af strætisvagninum og
hlaut að gefast upp eftir harðar
sviptingar.
Hvftt: S. Hamann
Svart: Björn Þorsteinsson
Nimzoindversk vörn
1. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. Rc3
— Bb4, 4. e3 — c5, 5. Bd3 — d5,
6. Rf3 — 0-0, 7. 0-0 — dxc4, 8.
Bxc4 — Rc6, 9. Bd3 — cxd4, 10.
cxd4 — Be7, 11. a3 — b6, 12.
Bc2 — Bb7, 13. Bg5 — g6, 14.
Hel — Rd5, 15. Bh6 — Rxc3,
16. bxc3 — He8,17. Dd2 — Hc8,
18. Rg5 — Dc7, 19. He3 —
Hed8, 20. Bdl — Ra5, 21. Bh3
— Dc6, 22. f4 — Bf6, 23. Df2 —
Hxd4, 24. Rxh7 — Bh8, 25. Bg5
— f5? (f6), 26. cxd4 — Bxd4,
26. Rf6+ — Bxf6, 27. Bxf6
gefið.
Fyrstur til þess að vinna skák
í mótinu var hollenzki stór-
meistarinn Jan Timman. Hann
átti í höggi við Þjóðverjann dr.
Ostermeyer, sem missté sig illi-
lega í byrjuninni og varð að
gefast upp eftir 17 Ieiki.
Skák þeirra Hartston og
Laine (Guerensey) var leikur
kattarins að músinni. Hartston
gat í rólegheitum byggt upp yf-
irburðastöðu, sfðan skipti hann
upp í endatafl, vann peð og þar
með skákina.
Viðureign þeirra Poutiainen
og van den Broeck var hörð og
skemmtileg Finninn hóf
skemmtilegar sóknaraðgerðir á
kóngsvæng, sem lauk með því
að kóngur andstæðingsins
hraktist yfir til a8, þar sem
hann lauk ævi sinni.
Loks er að geta skákar þeirra
Arne Zwaig og V. Jansa. Fram-
an af var baráttan þung, þar
sem Norðmaðurinn hafði þó
lengst af undirtökin. Upp kom
endatafl, þar sem Zwaig átti
fjarlægt frfpeð, er hann virtist
þó eiga í nokkrum erfiðleikum
með að nýta sér. Báðir voru
komnir f tímahrak og þegar
Zwaig gleypti við peði með
þeim afleiðingum að hrókur
hans lokaðist inni virtist sem
Jansa ætti a.m.k. að halda jafn-
tefli. í tímahrakinu sást honum
hins vegar yfir einfalt manns-
tap og varð að gefast upp.
Skák þeirra Murray og Liber-
zon var frestað og Ribli sat hjá.
Parma.
r
Ný sending
Morgunsloppar vélúr og frotte —
Frotteskór — Handklæði — Kjólabelti —
Blússur — Sið pils — Sokkar —
Skartgripir — Skartgripakassar —
Herðasjöl og treflar — Lady-Marlene brjóstahöld
og mágabelti.
Til sölu
Tilboð óskast í húseignina Bárugötu 1 1 ásamt
eignarlóð og stórum bílskúr. Húsið er 2 hæðir,
kjallari ásamt fundarsal í risi. Uppl. í síma
15653.
Skrifleg tilboð sendist til hússtjórnar Bárugötu
1 1.
2ja herb. — Vesturberg
Höfum í einkasölu mjög vandaða 2ja herb. íbúð
á 3. hæð við Vesturberg um 60 fm. 10 m
langar svalir. íbúðin er með harðviðarinnrétt-
ingum. Flísalagðir baðveggir. Teppalögð og
teppalagðir stigagangar. Lóð frágengin með
malbikuðum bílastæðum. Losun samkomulag.
Verð 4,5, útborgun 3,5 milljónir.
Samningar og fasteignir,
Austurstræti 10 a, 5. hæð,
sími 24850 heimasími 3 72 72.
Hinn
margumtaiaði
og vinsæli
vekur
athygli á . .
Það koma ávallt nýjar
vörur í hverrí viku á
markaöinn
Ótrúlegt
vöruúrval
á frábærlega
verði
Látlö ekki
happ
úr hendi
sleppa
ATHUGIÐ!
Markaðurinn
stendur aöeins
stuttan tíma