Morgunblaðið - 22.10.1975, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÖBER 1975
Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson.
Fréttastjóri Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson
Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, sími 10 100.
Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22 4 80.
Áskriftargjald 800,00 kr. á mánuði innanlands.
í lausasölu 40,00 kr. eintakið.
Aukin
verkefni
sveitarfélaga
Eitt eftirtektarverð-
asta nýmæli, sem fram
kemur í fjárlagafrumvarpi
ríkisstjórnarinnar, er sú
stefnumörkun, að hlut-
deild sveitarfélaga i opin-
berum umsvifum skuli
aukin með því að auka hlut
þeirra í tekjum af sölu-
skatti. Þessi stefnumörkun
kemur fram í athugasemd-
um við fjárlagafrumvarp-
ið, en þar er vakin athygli á
því, að sveitarfélög hafi
ekki notið 8% hlutdeildar í
sex söluskattsstigum, en að
þau hafi sótt það fast að fá
jafnan 8% hlut af öllum
söluskatti til Jöfnunar-
sjóðs. í athugasemdum við
fjárlagafrumvarpið er lýst
yfir, að ríkisstjórnin telji
rétt að stefna að þessari
tilfærslu tekna til sveitar-
félaganna, jafnframt því
sem verkefni þeirra verði
aukin. Jafnframt kemur
fram það sjónarmið ríkis-
stjórnarinnar, að áður en
fjárlagafrumvarpið verður
afgreitt verði gerðar ráð-
stafanir til þess að auka
starfssvið sveitarfélaga, og
tekjur þeirra. Ef sveitarfé-
lögin fá nú hlutdeild i þeim
söluskattsstigum, sem þau
ekki hafa fengið hlut af
hingað til, þýðir það
700—750 milljón króna
auknar tekjur fyrir þau á
ársgrundvelli og er þá aug-
ljóst, að þau geta tekið við
auknum verkefnum.
Á tímum vinstri
stjórnarinnar voru gerðar
ýmsar breytingar á verk-
efnaskiptingu ríkis og
sveitarfélaga, sem í raun
þýddi að ýmis verkefni,
sem sveitarfélög áður
höfðu haft með höndum,
voru færð yfir á hendur
ríkisins. Sú breyting, sem
þá var gerð, hefur gefizt
misjafnlega og í sumum til-
vikum mjög illa. Að feng-
inni reynslu er því sjálf-
sagt að gera hér breytingar
á og afhenda sveitarfé-
lögunum á ný ýmis verk-
efni enda er það einnig í
samræmi við þá stefnu að
draga úr miðstjórnarvald-
inu í okkar þjóðfélagi og
dreifa valdinu.
Tæpast leikur nokkur
vafi á því, að sveitarfélögin
eru á ýmsan hátt betur til
þess fallin að annast yfir-
stjórn á ýmsum starfssvið-
um, þar sem staðarleg
þekking skiptir talsverðu
máli og jafnframt er ljóst,
að oft er mun heppilegra
að yfirstjórn sé heima í
héraði en t.d. í Reykjavík
og á það við um fjölmörg
svið hinnar opinberu um-
sýslu. En mestu máli skipt-
ir þó, að sjálfsstjórn hinna
einstöku byggðarlaga
eykst, ábyrgð heimamanna
verður meiri og þörfin til
þess að sækja alla skapaða
hluti til Reykjavíkur verö-
ur minni með því að auka
hlutdeild sveitarfélaganna
í opinberri umsýslu.
Þess vegna er enginn
vafi á því, að rétt er stefnt
með þeirri yfirlýsingu í at-
hugasemdum fjárlaga-
frumvarps, sem að er vikið
hér að framan. Það er í
raun og veru ekkert vit í
því að draga allt vald í
hendur ríkisstofnana hér á
Reykjavíkursvæðinu. Til
þess liggja í raun engin rök
og það er meira í samræmi
við tíðarandann að færa
verkefnin, valdið og
ábyrgðina heim í hérað til
kjörinna fulltrúa fólksins
þar, fremur en að safna
þeim saman í hendur fjar-
lægra embættismanna í
höfuðborginni.
Þess er því að vænta, að
ríkisstjórnin fylgi fast
fram þeirri stefnuyfir-
lýsingu, sem að þessu leyti
birtist í fjárlagafrumvarp-
inu. Óhætt er að fullyrða,
að sú stefna nýtur almenns
stuðnings meðal fólks víðs
vegar um landið. Hún er
skynsamleg og rétt og
dregur úr hættunni á því
að æ meira vald safnist
saman í hendur Kerfis i
höfuðborginni sem fyrir
löngu hefur vaxið sjálfu
sér yfir höfuð.
Dagskráin LJÓÐ OG JASS í
Norræna húsinu á laugardag og
sunnudag var skemmtileg.
Samstilling var í góðu lagi, oft-
ast nær að minnsta kosti, sam-
æfing einnig Jöfnuður rfkti
milli listanna og í því fólst að
mínum dómi meginstyrkur dag-
skrárinnar; enginn yfirgnæfði
annan listgreinarnar mætt-
ust og runnu saman gagn-
stætt því sem maður kynni
að hafa ætlað: að Ijóðið
ætti að skipa fyrirrúmið,
jassinn yrði aðeins til áherslu-
auka. Þetta var samstæð-
ur hópur og þó svo að hver
einstakur fékk að njöta sín og
túlka á sinn persónulega hátt
framlag sitt, bæði skáld og tón-
listarmenn. öll eru skáldin
þjálfaðir upplesarar og hafa
komið fram oft og víða og lesið
eigin verk bæði á mannfundum
og í fjölmiðlum auk þess sem að
minnsta kosti eitt þeirra hefur
notið framsagnar- og leiklistar-
menntunar. Tónlistin var létt
og blæbrigðarík, mest bar á
taktföstum og fjörugum jassi
eins og fólk minnist hans frá
gömlu góðu jassárunum en líka
heyrðust stef og lagboðar af
öðru tagi og stundum örlaði
jafnvel fyrir melódískum lög-
um.
í blaðafréttum í vikunni sem
leið var — um leið og dagskrá
þessi var kynnt — minnt á
Werup-Sjöström hópinn sem
hingað kom fyrir nokkrum ár-
um. Flutningurinn nú Iíktist
ekki nema að lítlu leyti dagskrá
þess hóps. Jassinn, sem svíarnir
léku hér á sínum tfma, gerði
ekki meira en bera það nafn
með réttu, var bæði hvellur og
höstuglegur og bar líka sterkan
keim af poppi og var harla
ólíkur jassinum eins og hann
gekk og gerðist f sínum upp-
runalegu heimkynnum á fyrri
hluta aldarinnar. Hinir ís-
lensku jassleikarar nú, Árni
Scheving, Guðmundur Stein-
grímsson, Carl Möller og
Gunnar Ormslev, léku hins
vegar svo taktfast og þýtt að
gamlar danshetjur hefðu auð-
veldiega getað tekið sporið,
nema við og við þegar tilefni
útheimti annars konar blæ-
brigði tónanna. Til dæmis gaf
Gunnar Ormslev saxófóninum
nokkur vekjandi stuð meðan
Jóhann Hjálmarsson flutti ljóð
sitt, Union Carbide
Corporation. Það hefur birst í
Lesbók Morgunblaðsins. Ann-
ars las hann áður óbirt ljóð.
Fyrir skömmu fjallaði ég hér f
blaðinu um nýjungar í ljóðlist
Jóhanns og fjölyrði því ekki um
hana nú. Þorsteinn frá Hamri
las úr síðustu bók'sinni, Veðra-
hjálmi. Rödd Þorsteins er þung
og hljómfyllt og hæfir vel ljóð-
stíl hans og hvergi þykja mér
ljóð hans njóta sín betur en í
Iestri hans sjálfs. Þorsteinn
náði þarna prýðisgóðu sam-
ræmi við jassleikarana og þeir
við hann enda kann hann þá
list að flýta sér hægt í upplestri,
ekkert fálm! Nína Björk Árna-
Bókmenntlr
eftir ERLEND
JÓNSSON
dóttir las úr bókinni Börnin í
garðinum, einnig ný ljóð. Nfna
Björk hefur öðrum skáldkonum
oftar látið til sín heyra, enda
öruggur upplesari. Lestrarlag
hennar var lengi vel af þeim
skóla eða stefnu sem sumir
nefndu grátkonulestur (lesar-
inn svo raunamæddur eins og
hann væri með grátstafinn f
kverkunum og allt væri að far-
ast). Þetta var almennur kækur
hjá jafnöldrum Nfnu Bjarkar
af veikara kyninu — svona
kringum 1970 ef ég man rétt.
Enn eimir eftir af þessu hjá
Nínu Björk, en kannski ekki að
ófyrirsynju því mörg Ijóð
hennar eru dapurleg. Nfna
Björk er svo gott skáld að
maður hlýtur líka að voná að
hún eigi eftir að endurnýja
ljóðstíl sinn sem hefur hingað
til verið nokkuð eintóna.
Steinunn Sigurðardóttir las
úr Sífellum og Þar og þá og
iðaði öll af skáldskap, músík og
lífi; las með allri sinni persónu.
Ljóð Steinunnar eru ekki stór-
brotin, en notalega mannleg,
sum angurvær, önnur gáskafull
en öll vel ort. Og höfða til
mannlegra kennda fremur en
til fagurfræðilegrar tilfinn-
ingar. Sé tilgangurinn með
svona upplestri að koma hlust-
andanum í persónulegt sam-
band við skáldið tekst það sjald-
an betur en með Steinunni á
sviðinu. Þarna leikur hún með
áherslurnar, dándislegt sam-
bland af skáldkonu, dömu,
stelpu og krútti, og töfrar upp
úr sér sfna svifléttu skáldkonu-
drauma sem svífa manni fyrir
hugskotssjónum eins og marglit
og óskiljanleg fiðrildi f skrítn-
um skógi, koma og hverfa. Ef
til eru dularfull og óskil-
greinanleg en eigi að sfður
raunveruleg mörk milli skáld-
skapar og ekki-skáldskapar
stendur Steinunn örugglega
skáldskaparmegin við mörkin.
Ljóð hennar eru Ifka mátulega
mikill feluleikur til að vera
spennandi. Ég held að Stein-
unn geti orðið skáldkona
númer eitt ef henni sýnist að
þvílíkt streð sé á sig leggjandi.
Fyrir kom að nokkuð skorti á
raddstyrk þeirra, skáldkvenn-
anna, f þessum upplestri eða þá
að hljómlistarmennirnir hafa
látið návist þeirra hleypa í sig
of miklu kappi (ég hallast að
hinu síðartalda) því stöku sinn-
um gerðust hljóðfærin full-
kraftmikil í hlutfalli við hinar
kvenlegu raddir.
Þessi ágæta dagskrá tók rösk-
an klukkutíma. Að minni
hyggju hefði hún mátt vera
lftið eitt lengri og ekki hefði
heldur sakað þó skáldin, sem
fram komu, hefði verið tveim
eða þrem fleiri. Ljóðaupplestur
er ekki lengur nýjung — sem
betur fer — heldur orðinn allal-
gengur þáttur f menningarlíf-
inu og gæti með tímanum orðið
föst hefð ef áhugi á ljóðlistinni
helst jafnalmennur og hann
virðist vera nú og skáldin hafa
framvegis áhuga á að sýna sig
og sjá aðra.
Skáld og jassleikarar fyrir utan Norræna húsið.
Ljóð og jass
Kfnversku fjöllistamennirnir heimsóttu Kjarvalsstaði um helgina og skoðuðu sýninguna á verkum
Kjarvals, en sú sýning hefur verið opin ailt árið og hafa liðlega 30 þús. manns séð hana. Einnig skoðuðu
Kínverjarnir sýningu Ragnars Páis, sem var í Vestursalnum. Myndin er tekin af kfnverska hópnum fyrir
utan Kjarvalsstaði ásamt heimamönnum. Ljósmynd Mbi. Sv. Þorm.