Morgunblaðið - 22.10.1975, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. OKT0BER 1975
13
Norðmenn hefja viðræður um
200 mílna fiskveiðilögsögu
Einhliða aðgerðir ekki útilokaðar
Osló, Bergen, 21. október — NTB.
% JENS Evensen, hafréttarráð-
herra Noregs, sagði f kvöld á
norska þinginu að ríkisstjórnin
myndi nú hefja viðræður við hlut-
aðeigandi lönd um útfærslu
norsku fiskveiðilögsögunnar, þar
sem gengið verður út frá kröfu
um 200 mfina efnahagslögsögu.
Viðræðurnar munu ná til svæðis-
ins undan allri Noregsströnd
þannig að Norðursjór er þar með
talinn.Evensen sagði að samhliða
viðræðum um 200 mflna lögsögu
stefndi ríkisstjórnin að þvf að sett
yrðu ákveðin undirsvæði innan 50
mflna þar sem f gildi yrðu
strangari reglur um veiðar út-
lendinga fyrst í stað en á ytra
svæðinu að 200 mflum. í lögsögu
þessari sagði Evensen mun
Noregur hafa æðsta rétt til að
ákveða hver fær að veiða þar,
hvernig veiðarnar fara fram,
ásamt kvótafyrirmælum og öðr-
um takmörkunum.
0 „Þessi atriði verða byggð á
samningum við aðrar þjóðir,"
sagði ráðherrann. „I samræmi við
yfirlýsingu stjórnarinnar frá 26.
september f fyrra er stefnt að þvf
að finna lausn eftir samningaleið-
inni. Þetta þýðir samt ekki að
rfkisstjórnin útiloki möguleika á
einhliða aðgerðum. Ef við rekum
okkur á vegg vilja-eða skilnings-
leysis frá viðsemjendum okkar f
viðræðunum þá mun möguleiki á
einhliða útfærslu Noregs enn
standa opinn.“
Norska ríkisstjórnin mun fyrir
áramót gera ljósa grein fyrir af-
stöðu sinni til útfærslu norsku
fiskveiðilögsögunnar, að þvi er
Eivind Bolle sjávarútvegsráð-
herra segir í viðtali við blaðið
Dagen í dag. Bolle vill hins vegar
ekki svara af eða á um það hvort
stjórnin muni tilkynna um út-
færsluna sjálfa fyrir áramót.
Hann segir að þetta sé að veru-
legu leyti komið undir þvi hver
verði árangur af viðræðum Jens
Brezki sendiherrann í Washington:
r
Þjóðsaga að afkoma Islend-
inga byggist á fiskveiðum
Evensens hafréttarráðherra við
hlutaðeigandi lönd. En Bolle
kveðst ekki draga dul á það, að
rikisstjórnin sé undir miklum
þrýstingi og leggi áherzlu á skjót-
ar niðurstöður.
Þá hermdu góðar heimildir í
Osló f dag, að Jens Evensen
mundi í viðræðum við David
Ennals, .varautanríkisráðherra
Bretlands, sem hefjast á fimmtu-
dag, — sama dag og fslenzk við-
ræðunefnd ræðir við Roy
Hattersley aðstoðarutanríkisráð-
herra —, reyna að fá fram útvfkk-
un á þeim svæðum undan Norður-
Noregi sem friðuð hafa verið
fyrir togveiðum síðan í janúar.
Ennfremur munu Norðmenn
vilja að lýst verði friðuð ný svæði
á Haltenbanka undan Mið-Noregi
og annað svæði undan Norður-
Noregi, og lengingu þess tíma
sem bannið gildir ár hvert.
Eru þessar nýju kröfur m.a. til-
komnar vegna þrýstings frá sam-
tökum norskra fiskimanna. I við-
ræðum Evensens og Ennals munu
einnig verða rædd ýmis flókin
vandamál sem upp koma vegna
áforma Norðmanna um 200 mílna
Jens Evensen, hafréttarráðherra
Noregs.
efnahagslögsögu. Hinar nýju
kröfur varðandi togveiðisvæðin
verða lfka ræddar við önnur hlut-
aðeigandi lönd, — Sovétrlkin,
Vestur-Þýzkaland og önnur EBE-
lönd.
Evensen sagði í kvöld að eftir
viðræðurnar við Breta kæmi
sovézk sendinefnd undir forsæti
sjávarútvegsráðherrans til
Noregs til viðræðna 27.—31.
október. Rætt verður við Frakka
7. nóvember, Vestur-Þjóðverja 10.
og 11. nóvember, framkvæmda-
nefnd EBE 12.—13., Hollendinga
14. nóvember í Haag, Austur-
Þjóðverja 18.—19. í Rostock og
Pólverja 20.—21. i Varsjá. Stefnt
er að viðræðum við Norðurlönd
fyrir jól.
NÝLEGA birtist ýtarleg grein um
útfærslu fiskveiðilandhelgi Is-
lands í 200 mflur f Chicago
Tribune eftir Michael Kilian. Þar
er rakinn gangur landhelgismáls-
ins, sagt frá aðgerðum fslenzku
varðskipanna með um 100 manna
lið alls gegn herskipum Breta
með um 1700 manns, og birt um-
mæli ambassadors Breta f
Bandarfkjunum, talsmanns
sovézka sendiráðsins talsmanns
utanríkisráðuneytis Banda-
ríkjanna og formanns bandarfsku
sendinefndarinnar á Hafréttar-
ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna.
„Þegar á heildina er litið, þá
töpuðum við alls ekki siðasta
þorskastriði," sagði Sir Peter
Ramsbotham, ambassador Breta i
Bandaríkjunum. „Fiskimenn í
Bretlandi gerðu sig ánægða með
þá samninga, sem málinu lauk
með.“ Hann lagði áherzlu á, að
alla vega hefðu Bretar unnið sig-
ur frá réttlætissjónarmiði, þar
sem Alþjóðadómstóllinn í Haag
hefði úrskurðað, að íslendingar
gætu ekki fært lögsöguna út með
einhliða ákvörðun, þótt þeir
hefðu ekki sinnt þeim úrskurði.
Viðbrögð ambassadorsins við
þeim orðum dr. Kristjáns Eld-
járns í Chicago nýlega að fiski-
miðin væru forsenda fyrir af-
komu Islendinga, og ónafn-
greinds íslenzks talsmanns, sem
sagði: „Við yrðum þá öll að
flytjast til Ástralfu," voru ,að
þetta væri nokkurs konar þjóð-
saga. Hann sagðist búast við að
sagan endurtæki sig, — að likind-
um myndu samningar takast eftir
nokkurt þóf.
Sir Peter stakk upp á því að
Bandaríkjamenn hækkuðu opin-
beran fjárstyrk sinn til íslend-
inga fyrir aðstöðuna á Keflavíkur-
flugvelli og bættu þeim þannig
upp hugsanlegt tjón vegna minni
afla: „Þið hljótið að greiða stór-
fúlgur fyrir að fá að hafa varnar-
stöðina þarna,“ sagði hann.
Þegar leitað var umsagnar
bandariska utanríkisráðuneytis-
ins vegna þessara ummæla brezka
ambassadorsins fengust þær upp-
lýsingar að Bandaríkin hefðu
aldrei greitt neitt fyrir aðstöðuna
á Keflavíkurflugvelli og hefði
slfkt aldrei komið til mála. Ann
Picney, talsmaður ráðuneytisins
var að því spurð hvort Bandarfkin
hefðu einhver þau tengsl, sem
gætu flækt þá i fiskveiðideiluna.
Hún sagði: „Ja, við erum öll í
Atlantshafsbandalaginu.“
Þegar talsmaður sovézka sendi-
ráðsins í Bandaríkjunum var
spurður um viðbrögð Rússa við
útfærslu fiskveiðilögsögunnar við
ísland urðu viðbrögð hans svipuð
og annarra sovézkra talsmanna.
Hann virtist vera algjörlega óupp-
lýstur um málið og sagði ,,um leið
og hann hló óstyrkum hlátri“:
„Eg veit ekki hver framvinda
málsins verður. Það er í höndum
sérfræðinga."
Otho Eskin formaður banda-
risku sendinefndarinnar á Haf-
réttarráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna, kvaðst vonast til þess að
íslendingar og allar aðrar þjóðir
frestuðu aðgerðum í sambandi við
útfærslu fiskveiðilögsögu þar til
hægt væri að leiða málin til lykta
á friðsamlegan hátt á alþjóðavett-
vangi, „en því miður er ekki einu
sinni vfst, að málin þróist á þann
veg hér heima fyrir,“ sagði hann.
„Bæði öldungadeildin og fulltrúa-
deildin hafa samþykkt að færa
fiskveiðilögsöguna út í 200 mílur,
hvað svo sem Henry Kissinger
utanríkisráðherra eða aðrir hafa
um það að segja,“ sagði hann.
í greininni er sagt frá þvi, að
úlfúðar hafi ekki einasta orðið
vart við brezka sendiráðið í
Reykjavík, þar sem mótmælendur
báru spjöld með áletrunipni „God
save the Cod“, heldur haíi brezki
ræðismaðurinn í Chicago lagt
lykkju á leið sína til að þurfa ekki
að mæta fslenzka ræðismannin-
um, Paul Johnson, á götu.
Tvö tilræði við
Ford sama dagirm
Los Angeles 21. október. Reuter
TVEIR menn munu n.k. þriðju-
dag verða formlega ákærðir f Los
Angeles fyrir áform um að ráða
Ford Bandaríkjaforseta af dög-
um. Annar mannanna heitir Gary
Desure, 32 ára að aldri, en hann
hafði strokið af geðveikrahæli f
Montana þar sem hann dvaldi
eftir að hafa hótað Richard Nixon
Iffláti þegar hann var forseti.
Hinn maðurinn heitir Preston
Mayo, og er 24 ára að aldri. Til-
kynnt var um töku mannanna
tveggja f gærkvöldi. Áform þeirra
var að myrða Ford f Saeramento
5. september s.l„ — sama dag og
Lynette „Squeaky" Fromme, Iiðs-
kona Mansons-fjölskyldunnar,
var handtekin fyrir morðtilræði
við forsetann. Ætluðu tvfmenn-
ingarnir að sprengja dýnamft f
skolpræsi þar sem leið forsetans
lá og sfðan skjóta hann f öngþveit-
inu sem gripi um sig.
Lögregluyfirvöld sögðu f dag,
að upp hefði komizt um þessi
áform Desure og Mayo eftir að
þeir voru handteknir 26. ágúst s.l.
fyrir að stela litasjónvarpstæki úr
hótelherbergi einu. í baksæti
bifreiðar þeirra fannst þá skrif-
bók með yfirskriftinni: „Um bún-
að og áætlanir sem nauðsynleg
eru fyrir banatilræði'*. Lögreglan
sagði að engin tengsl væru á milli
Fromme og mannanna tveggja.
Það eina sem Desúre og Mayo
hafa viljað segja um ástæðurnar
fyrir morðáformunum er að for-
setinn styddi hina auðugu en þeir
sjálfir hina fátæku, og þeir teldu
illa farið með fátæka.
(fhicano CTnbune
T H K W O R L D'S ucuisb.bcb
: /// lci íond. Hritain
ni'ir ’~i' l'ish fifiht?
0*«»TEST NKWSPAPE
Frétt um útfærslu fiskveiðilögsögunnar
birtist á forsfðu Chicago Tribune og f
framhaldi á henni var grein um sama
efni f blaðinu.
Economist: Líkur á nýju
þorskastríði fyrir jól
t BREZKA tfmaritinu
Economist er getum leitt að
því, að þegar bráðabirgða-
samningar fslendinga og Breta
frá 1973 renni út 13. nóvember
næstkomandi hefjist nýtt
þorskastrfð.
„Islendingar lifa á fiski og
þetta er þeim mikið hitamál,"
segir í greininni. „Þar sem um
130 þúsund tonn af þorski og
ýsu á ári er að tefla og
andrúmsloftið i Hull, Grimsby
og Fleetwood er álíka og á
íslandi hvað þetta snertir, er
ekkert liklegra en að nýtt
þorskastríð verði skollið á fyrir
jól. Um leið heldur deila ís-
lendinga við Þjóðverja áfram,
en samningar þeirra á milli
tókust ekki árið 1973, vegna
þess að Islendingar vildu ekki
samþykkja að þýzk verksmiðju-
og frystiskip væru á íslands-
miðum. Áframhald deilunnar
við Þjóðverja hefur haft það í
för með sér, að Efnahagsbanda-
lagið hefur neitað að lækka
tolla á islenzkum fiski, auk þess
sem íslendingar hafa misst
markað fyrir fisk í Þýzkalandi.
Sú staðreynd að íslendingar
hafa nú sett fram nýjar kröfur
þrátt fyrir þetta sýnir ein-
drægni þeirra i þessu máli,“
segir að lokum i greininni i
Economist.
Sextugur í dag:
JónÞ.Árnason
framkvœmdastjóri
I dag er sextugur einn af þekktustu
forystumönnum íslenzkrar saltsíldar-
framleiðslu, Jón Þ Árnason, fram-
kvæmdastjóri frá Raufarhöfn.
Jón er fæddur á Ásmundarstöðum á
Melrakkasléttu, sonur hjónanna Árna
Stefáns Jónssonar, bónda þar, og
konu hans Þórhildar Guðnadóttur frá
Hóli á Sléttu.
Að loknu námi í Héraðsskólanum á
Laugarvatni réðst Jón sem símstöðvar-
stjóri á Raufarhöfn og gegndi því starfi
til ársins 1951 Kaupfélagsstjóri á
Raufarhöfn var hann frá 1950 til
1962
Árið 1951 hófu Raufarhafnar-
hreppur og Kaupfélag Norður-
Þingeyinga rekstur síldarsöltunar-
stöðvar á Raufarhöfn og var
Jón Þ Árnason ráðinn tramkvæmda-
stjóri hennar Fimm árum seinna var
hlutafélagið Borgir stofnað Byggði
það nýja söltunarstöð á Raufarhöfn
Félagið hóf einnig síldarsöhun á
Seyðisfirði árið 1960 og byggði
þar einnig nýja söltunarstöð 1962
Var Jón Þ Árnason fram-
kvæmdastjóri beggja stöðvanna og
hluthafi í félaginu Árið 1962
byggði Jón, ásamt Gunnari heitn-
um Halldórssym, söltunarstöð á
Vopnafirði og veitti Jón henni einnig
forstöðu. Allar þrjár stöðvarnar voru
starfræktar þar til síldin hvarf frá norð-
ur- og austurmiðum 1969 Borgir h.f.
hófu þá rekstur söltunarstöðvar í Þor-
lákshöfn í félagi við Meitilinn h.f og er
Jón framkvæmdatjóri þeirrar stöðvar
Eins og sjá má af framansögðu voru
annir Jóns á síldarárunum ærið miklar,
enda maðurinn afkastamikill og ósér-
hlífinn. Vinnudagurinn var oft langur
og strangur og oft ferðazt á milli
söltunarstöðvanna á nóttunni
Árið 1969 var Jón Þ Árnason kjör-
inn formaður Félags síldarsaltenda á
Norður- og Austurlandi og hefir gegnt
því starfi síðan Hann var skipaður i
Sildarútvegsnefnd árið 1968 sam-
kvæmt tilnefningu Félags sildarsalt-
enda á Norður- og Austurlandi og hefir
átt sæti í nefndinni síðan sem fulltrúi
félags síns Hefir hann unnið að þeim
störfum af mikilli alúð og emstökum
dugnaði Hann hefir tekið þátt i fjölda
samningagerða um sölu á saltaðri sild.
bæði hér heima og erlendis, og ætið
reynst hinn traustasti samningamaður.
enda glöggur og góðum gáfum
gæddur
Auk formannsstarfsins i Félayi
síldarsaltenda á Norður- og Austur-
landi og stjórnarnefndarstarfsins 1
Sildarútvegsnefnd, hefir Jón tekið
virkan þátt í ýmsum öðrum félags-
störfum i þágu saltsildarframleiðsl-
unnar Hann hefir um árabil átt sæti i
Verðlagsráði sjávarútvegsins og
undanfarin ár verið fulltrúi félags sins á
Fiskiþingi
Öllum þessum störfum hefir Jón
sinnt af lífi og sál, enda er maðurinn
atkvæðamikill og fylginn sér ems og
sagt var um ýmsa garpa fyrri tima
Jón Þ Árnason er kvæntur Borghildi
Guðmundsdóttur frá Harðbak á Sléttu
og eiga þau fimm börn. þrjár dætur og
tvo syni Heimili þeirra, bæði fyrir
norðan og hér syðra, hefir ætið verið
rómað fyrir gestrisni og höfðmgsskap
Á þessum tímamótum sendi ég þeim
hjónum og fjölskyldu þeirra beztu
heillaóskir
Gunnar Flóvenz.