Morgunblaðið - 22.10.1975, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÖBER 1975
17
fclk í
fréttum
+ Þeir eru frægir þessir fjórir
kappar á myndinni. Frank
Sinatra er lengst til vinstri og
Bob Hope lengst til hægri. Þeir
geta greinilega ekki varizt
hlátri er þeir hlýda á tvfsöng
John Waynes og Bing Crosbys I
bandarfskum skemmtiþætti,
sem tekinn var upp fyrir
skömmu. Þátturinn ber heitið
„Aldarfjórðungur Bob Hopes
og gamanleikjanna". Ekki er
að efa að þáttur þessi hefur
vakið mikla athygli f Banda-
rfkjunum, þar sem fjórmenn-
ingarnir eru allir með eindæm-
um vinsælir leikarar, og þó
vfðar væri leitað . . .
+ Hrútasýning var haldin á
Meðalfelli laugardaginn 11.
okt. s.l. 46 hrútar voru sýndir
og hlutu 44 verðlaun. Fyrstu
verðlaun hlutu 19, önnur verð-
laun 21 og þriðju verðlaun 4.
Bezti hrúturinn var dæmdur
Baldur, 2ja vetra frá Neðra-
Hálsi, eigandi Gfsli Andrésson,
Neðra-Hálsi, og hlaut hann
farandskjöld, sem veittur er
fyrir bezta hrútinn.
Aðaldómari á sýningunni var
Sveinn Hallgrfmsson, sauðfjár-
ræktarráðunautur, en með
honum dæmdu Jóhann Jónas-
son forstj. f Sveinskoti og
Kristján Finnsson á Grjóteyri.
Kjósin er nú orðin eina sveit-
in f sýslunni, sem landbúnaður
er stundaður eingöngu og er
mikill áhugi á sauðfjárrækt
þar. Sex hrútar voru valdir á
héraðssýningu, sem halda á á
næstunni.
Að lokinni sýningunni talaði
Sveinn Hallgrfmsson, ráðu-
nautur, og gerði samanburð á
eldri sýningum og gat um fram-
farir, sem orðið hefðu og taldi
að betri ull væri á sauðfénu nú
en fyrir 10 árum en að færri
hrútar væru sýndir að þessu
sinni. Hann gat þess einnig að
breyting á kjötmatinu væri
væntanleg og að bændur yrðu
að búa sig undir það og breyta
fóðrun sláturlamba með hlið-
sjón af þvf. Þá taldi hann að
enn mætti bæta gæði ullar-
innar, jafnvel þó það yrði á
kostnað kjötþunga.
Gfsli Andrésson heldur hér f
hrút sinn Baldur, sem stóð
efstur á sýningunni. Á mynd-
inni má sjá skjöld þann, sem
veittur er sem viðurkenning
fyrir bezta hrútinn en skjöld
þennan gaf Pétur Sigurðsson,
fyrrum mjólkurfræðingur,
Fjárræktarfélagi Kjósar-
hrepps. Ljósm. Mbl. t.g.
BOBB& BO
C &ETUR-ÐU ALDREI LÆRT AD TAKA AF
H C STAD AlM ÞE5S AÐ SPA.UA
X M ÍT-^ DEKKÍN Sö//?; "
J
J
I M'
• Undirritaðir aðilar hafa ákveðið að efna til
samsætis í tilefni af sjötugs afmæli
Ragnars Guðleifssonar
mánudaginn 27. október n.k. Samsætið verður
í félagsheimilinu Stapa og hefst kl. 20.30.
Öllum vinum og velunnurum hans er boðin
þátttaka. Uppl. í síma 92-2085.
Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavikur
og nágrennis,
Bæjarstjórn Keflavíkur,
Kaupfélag Suðurnesja,
Sóknarnefnd Keflavíkur.
VÖRÐUR VÖRÐUR
Landsmálafélagið Vörður
heldur almennan félagsfund
miövikudaginn 22. október
kl. 20.30 í Átthagasal, Hótel Sögu
Dagskrá:
1 . Kjör uppstillingarnefndar
2. Ræðumaður: Gunnar Thor-
oddsen
Varðarfélagar eru hvattir til að
fjölmenna.
Átthagasalur — miövikudaginn
22. október — kl. 20.30
STJÓRNUNARFÉLAG ÍSLANDS
Vinnurannsóknir
og launakerfi.
Fyrir þá, sem vilja bæta afköst og auka hagræðungu.
Stjórnunarfélagið gengst fyrir nám-
skeiði um vinnurannsóknir og launa-
kerfi 27., 28. og 29. okt. n.k. í
Skipholti 37. Námskeiðið stendur
yfir kl. 15:00 — 18:45 alla dag-
ana.
Á námskeiðinu verður gerð grein
fyrir helstu atriðum við framkvæmd
þeirra. Ennfremur verður farið í ein-
kenni og uppbyggingu mismunandi
launakerfa, kosti þeirra og galla.
Námskeiðið er ætlað þeim, sem vilja
bæta framleiðsluaðferðir starfsemi
sinnar. Jafnframt er námskeiðið
heppilegt fyrir trúnaðarmenn á
vinnustöðum.
Leiðbeinandi er Ágúst Elíasson
tæknifræðingur.
Fjármálastjórn fyrirtækja
Hver er fjárhagsleg staða fyrirtækisins?
Stjórnunarfélagið gengst fyrir námskeiði í Fjármálum I. 3. —10.
nóvember n.k. að Skipholti 37. Námskeiðið stendur yfir frá kl. 15:00
til kl. 19:00 mánud. J3, nóv., þriðjud. 4. nóv., miðvikud. 5. nóv.,
föstud. 7. nóv. og mánud. 10. nóv.
Markmið þessa námskeiðs er að veita þjálfun i að meta afkomu og
fjárhagslega stöðu fyrirtækis og að auki að kynna gerð fjárhagsáætlana
(budgeting), þ.e.a.s. áætlana um rekstrarafkomu, um sjóðshreyfingar
og um þróun efnahags fyrirtækja.
Athyglinni verður beint fyrst og
fremst að ársreikningum (rekstrar-
og efnahagsreikningi) fyrirtækja og
kannað, hvert gagn megi af þeim
hafa og i hverju þeim sé áfátt. Eftir
upprifjun í bókhaldstækni verður
gerð grein fyrir tækni við rannsóknir
á ársreikningum og tækni við
samningu yfirlits um fjármagns-
streymi.
Þá kemur lýsing og gagnrýnið mat á hefðbundnum meginreglum sem
fylgt er við samningu ársreikninga og lýst tækni, sem beita má til að
leiðrétta það vegna áhrifa verðlagsbreytinga.
Nauðsynlegt er fyrir þátttakendur að hafa bókhalds-
þekkingu. Námskeiðið kemur að góðu haldi öllum,
sem fást við fjármál.
Leiðbeinandi verður
Árni Vilhjálmsson prófessor
Þátttaka tilkynnist í síma 82930.
Þekking er góð fjárfesting.