Morgunblaðið - 02.11.1975, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÖVEMBER 1975
39
Lárus Jónsson alþingismaður:
HÉR fer í eftir ræSa sú, sem
Lðrus Jónsson, þingmaður
Norðausturlands, flutti við
fjárlagaumræðu á Alþingi
fyrir skemmstu.
FJÁRLÖG ÞREFÖLDUÐUST
I VINSTRI STJÓRN
Hæstvirtur þingmaður Geir
Gunnarsson, sem hér var að Ijúka
máli slnu, virðist vera mjög ólukku-
legur yfir þvl fjárlagafrumvarpi, sem
hæstvirt rlkisstjórn hefur lagt fyrir
Alþingi Þessi hæstvirtur þingmaður
var formaður fjárveitinganefndar Al-
þingis, þegar flokksbræður hans
voru I rlkisstjórn og hann ætti að
vita betur hvað 1 raun felst I þessu
frumvarpi en fram kom I hans ræðu,
en fjárlög þrefölduðust I hans tlð
sem formanns fjárveitinganefndar.
j fyrsta sinn um langan aldur
hefur ríkisstjórn tekið þá ákvörðun
að leita samþykkis Alþingis um að
afnema sjálfvirka löggjöf og reglur i
þvl skyni að færa niður rlkisútgjöld
um tæplega 5 þús. millj kr. frá þvl,
sem verið hefði með óbreyttum lög-
um og lækka þannig heildarskatt-
álögur á almenning um sömu upp-
hæð, tæplega 5 þús. millj Þá felst I
frumvarpi ákvörðun rlkisstjórnarinn-
ar um niðurfellingu 12% vörugjalds
og lækkun tolla, sem aflétta mun að
auki 5000 millj. kr. álögum af al-
menningi á næsta ári, þótt skylt sé
að geta þess, að á móti þeirri upp-
hæð kemur nokkur lækkun á niður-
greiðslu landbúnaðarafurða, sem
mun muna heimilin um
1400—1450 millj. kr. á næstu
árum. Við þær geigvænlegu að-
stæður, sem nú ríkja I efnahagsmál-
um þjóðarinnar er með þessu frum-
varpi stefnt að þvi að koma i veg
fyrir óviðráðanlega sjálfvirka út-
þenslu ríkiskerfisins, stefnt er að
stórfelldri niðurfærslu álaga á al-
menning, auknu viðnámi gegn verð-
bólgu og meira jafnvægi I rlkisbú-
skapnum. Þetta er óumflýjanleg
nauðsyn eins og nú er ástatt I
þjóðarbúskapnum Það gefur auga
leið, að sltk stórfelld niðurfærsla
rlkisútgjalda mun kosta ýmsar fórn-
ir. Dylgjur m.a. frá hæstvirtum þing-
manni Ragnari Arnalds um, að með
þessum tillögum sé ráðizt sérstak-
lega að öldruðum og öryrkjum vlsa
ég til föðurhúsanna. Þetta mál kem-
ur auðvitað slðar til kasta Alþingis
og væri smekklegra af hæstvirta
þingmanni að sjá fyrst tillögur I
þeim efnum, áður en hann fer að
dylgja með sllkt.
Á hinn bóginn efast ég ekki um,
að mikið fjármagn rennur úr
tryggingum til ýmissa, sem ekki
þurfa á þvl að halda, og hægt er að
nýta fjármagnið mun betur fyrir þá,
sem þess þurfa, þrátt fyrir þá niður-
færslu, sem stefnt er að I fjárlaga-
frumvarpinu Annars er það mikið
hól fyrir hæstvirtan fjármálaráðherra
og rlkisstjórnina, hvernig fjárlaga-
frumvarpið fer I taugarnar á hæst-
virtum stjórnarandstæðingum
BYGGÐAMÁL
Hæstvirtur þingmaður Karvel
Pálmason fór mikinn, þegar hann
talaði hér um byggðamál. Þessi
hæstvirtur þingmaður gleymdi að
geta þess, að sú rlkisstjórn, sem
hann og hans flokkur báru ábyrgð á,
varði úr rlkissjóði til Byggðasjóðs
153 millj. kr á fjárlögum 1974
þrátt fyrir það góðæri, sem þá rlkti.
Lárus Jónsson alþingismaSur.
þegar þau fjárlög voru afgreidd Nú
er ætlunin að verja til Byggðasjóðs
1 123 millj kr þrátt fyrir núverandi
þrengingar. Honum láðist að rifja
upp, hvernig viðskilnaður þessarar
rlkisstjórnar hans var I raforkumál-
um landsbyggðarinnar og að sú
rikisstjórn tók úr höndum sveitarfé-
laga margvlsleg verkefni og þrengdi
kost þeirra til tekjuöflunar undir
forystu Hannibals Valdimarssonar,
guðföður þessa hæstvirta þing-
manns hér á Alþingi. Nú var stefnt
að þvl að fá sveitarfélögunum meiri
tekjustofna og verkefni. Hitt er svo
annað mál, að I þessari þröngu
stöðu, sem þjóðabúið er nú I efna-
hagsmálum, þá verða margar nauð-
synlegar framkvæmdir úti um land
að bíða betri tlma. Það skal játað I
fullri hreinskilni, að slikt er óum-
flýjanlegt við núverandi aðstæður,
og það held ég, að fólk muni hafa
fullan skilning á miklu frerYiur en nú
sé unnt að gera allt fyrir alla eins og
hæstvirtur þingmaður virtist vera
láta
KJARAMÁL
Margir stjórnarandstæðingar hafa
rætt hér um kjaramálin og hæstvirt-
ur þingmaður Ragnar Arnalds sér-
staklega með talnablekkingum I þvi
efni. Við málflutning hans og fleiri
er einkum tvennt að athuga. í fyrsta
lagi fóru febrúarkjarasamningarnir
1974, sem flestir miða kaupmáttar-
rýrnunina við, langt fr'am úr getu
atvinnuveganna og þjóðarbúsins,
jafnvel við þau ótrúlega hagstæðu
viðskiptakjör, sem menn miðuðu þá
við Launþegar öðluðust því aldrei
þennan kaupmátt I raun, sem þó er
miðað við Hann var alla tlð falskur.
Þetta viðurkenndi fyrrverandi rlkis-
stjórn, sem formaður Alþýðubanda-
lagsins studdi með því að taka kaup-
greiðsluvlsitöluna úr sambandi með
lögum og leggja fram friimvarp um
vlðtækar efnahagsráðstJ._nir I mai,
aðeins tveimur mánuðum eftir kjara-
samningana.
í öðru lagi hafa viðskiptakjör þjóð-
arinnar versnað svo mjög slðan
þessir kjarasamningar voru gerðir,
að slikt hefur ekki gerzt á jafn-
skömmum tlma frá þvl að þjóðin
hlaut sjálfstæði Þessi viðskipta-
kjararýrnun hefur svo glfurleg
áhrif á kjör allrar þjóðarinnar, hvers
og eins þjóðfélagsþegns. Varlega
áætlað hefði þjóðin haft 10 þús.
millj, kr meira til skipta á þessu ári,
eða tæplega 50 þús. kr. á hvert
mannsbarn, ef við byggðum enn
hliðstætt hlutfall á innflutningsverð-
lagi og verði útflutnings okkar og
við gerðum I ársbyrjun 1 974 Slikur
talnaleikur hæstvirts þingmanns
Ragnars Arnalds og fleiri, sem bygg-
ir bæði á óraunhæfum og fölskum
kaupmætti frá þvl I febrúar 1974,
og ekki tekur með I reikninginn að
neinu marki þá óviðráðanlegu kjara-
skerðingu, sem þjóðin öll hefur orð-
ið fyrir vegna þessarar stórfelldu
viðskiptakjararýrnunar, er út I hött
og að engu hafandi
VIOSKIPTA KJARA-
ÁFÖLL
Mikið alvöruástand er nú I efna-
hagsmálum þjóðarinnar, sem ógnar
sjálfu fjárhagslegu sjálfstæði henn-
ar. Yfir okkur hafa skollið á fyrra ári
og yfirstandandi ári mestu og
sneggstu utanaðkpmandi efnahags-
erfiðleikar frá þvl að þjóðin öðlaðist
sjálfstæði Þessi viðskiptakjaraáföll,
þ.e.a.s. stórhækkað verð á innflutt-
um nauðsynjum okkar I erlendri
mynt en lækkun á útflutningsafurð-
um okkar, komu I kjölfar mikillar
eyðslu umfram getu á mestu góðær-
um I sögu þjóðarinnar. Við lifðum
um efni fram I góðærinu og höfum
fram til þessa neitað aðlaga okkur
nægilega að hinum snöggu um-
skiptum til hins verra nú á örðug-
leikaárunum. Viðskiptahalli okkar
við útlönd var glfurlegur og er enn
þá of mikill. Við eigum engan gjald-
eyrisvarasjóð upp á að hlaupa, eins
og við áttum 1971, og óhóflegar
lántökur erlendis til þess að leysa
vandann i utanrikisviðskiptum okkar
eru útilokaðar enda augljóslega
gálgafrestur, þótt fáanlegar væru
Þrátt fyrir þessa geigvænlegu utan-
aðkomandi erfiðleika, sem við er að
etja, hefur margt áunnizt I stjórn
Framhald á bls. 13
Ekki tími til kröfugerðar,
hvorki innan þings né utan
ATLAS
snjódekk
Hagstæftl verð!
560 — 13 með
600 — 13 með
650 — 13 með
560 — 15 með
hvltum hring
hvftum hring
hvltum hring
hvltum hring
8.885 kr full negld
8.027 kr full negld
8.538 kr full negld
8.860 kr full negld
E 78 — 14 svört
F 78 — 14 svört
G 78 — 14 svört
G 78 — 15 svört
8.262 kr ónegld
8.759 kr ónegld
9.180 kr ónegld
9.358 kr ónegld
9.800 kr negld
10.297 kr negld
10.718 kr negld
10.896 kr negld
C 78 — 14 með hvltum hring
E 78 — 14 með hvltum hring
F 78 — 14 með hvltum hring
8.5I6 kr ónegld
8.893 kr ónegld
9.599 kr ónegld
10.055 kr negld
10.430 kr negld
11.1 37 kr negld
750— 16 6 strigal. Jeppadekk 16.498 kr
Opið:
mánud. — fimmtudag.
föstudaga 8—22
laugardaga
8—17
VÉLADEILD SAMBANDSINS
-----r
HJOLBARDAR
HÖFÐATÚNI 8 SÍMAR16740 OG 38900
SOLEX-BLÓNDUNGAR
SOLEX blöndungar
á hagstæðu verði íýmsar gerðir
eftirtalinna bifreiðategunda:
Mercedes Benz Fiat Singer
Citroen Moskvich Vauxhall
Daf Opel Volvo.
Ford Taunus Peugeot Austin
Ford Cortina Renault Gipsy
Ford Zephyr Skoda Volkswagen
Ford Anglia Simca
HEKLA HF.
Laugavegi 170—172 — Sími 21240