Morgunblaðið - 02.11.1975, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1975
AuðvelÉr batSmintonsigor
kenÉiga viir Færeyingum
SVO sem fyrirfram var búizt við
þurftu íslendingar ekki mikið
fyrir sigri f badmintonlandsleik
við Færeyinga að hafa. Allir leik-
irnir fimm unnust með tölu-
verðum yfirburðum, og vafalaust
hefðu tslendingarnir getað unnið
enn stærri sigur hefðu þeir lagt á
það mikla áherzlu. í flestum
leikjunum bar töluvert á kæru-
leysi hjá íslenzku leik-
mönnunum, sem gáfu stundum
heldur ódýra punkta lil Færeying-
anna. Vel má iíka vera að þetta
hafi stafað af þvf að íslendingarn-
ir séu ekki f nægjanlega góðri
æfingu, og mátti raunar sjá þess
fleiri merki f landsleikjum. Slfkt
er raunar eðlilegt. Keppnistfma-
bil badmintonmanna er rétt að
hefjast hér, og því ekki óeðlilegt
að menn séu nokkuð frá sfnu
bezta.
Sennilega eru Færeyingarnir
mjög svipaðir að styrkleika og
beztu A-flokks mennirnir hér-
lendis. Þeir virðast kunna tölu-
vert fyrir sér í íþróttinni, en það
sem þá vantar fyrst og fremst er
meiri lipurð og snerpa. Þannig er
óhætt að fullyrða að bezti leik-
maður Færeyinganna, Paul
Michelsen, gæti orðið mjög góður
badmintonleikmaður, væri hann
nokkru léttari en hann er.
Fyrsti leikur keppninnar var
milli Óskars Guðmundssonar og
Peturs Hansen, sem var yngstur
færeysku landsliðsmannanna.
Petur veitt óskari nokkra keppni
til að byrja með, og fór fyrri lotan
15—11, Óskari í vil. I seinni lot-
unni vann Óskar svo auðveldan
sigur, 15 — 6.
Friðleifur Stefánsson keppti
við Hans J. Steenberg og vann
15—5 og 15—4. Lék Friðleifur af
miklu öryggi og gerði margt
fallegt í leiknum. Andstæðingur
hans náði oft ágætum höggum, en
var hins vegar þungur og hafði
litla yfirferð á vellinum og not-
færði Friðleifur sér það.
Poul Michelsen kom á óvart
með því að veita Haraldi
Kornelíussyni töluverða keppni f
leikjum þeirra. Fyrri lotuna vann
Haraldur 15—6. eftir að Færey-
Ungverski lanésliðsþjálfarinn
leiðbeiníi á knattspyrnuskólanum
Ungverjinn Lajos Baroti hefur
undanfarið leiðbeint hinum 20
ötulu nemendum f knattspyrnu-
skóla KSl. Hefur þessi 61 árs
gamli knattspyrnuhugsuður gjör-
samlega heillað nemendur sína
og er við ræddum við nokkra
þeirra á föstudaginn áttu þeir
varla nógu sterk orð til að lýsa
hæfileikum og kunnáttu manns-
ins.
Lajos Baroti kom hingað á veg-
um Evrópuknattspyrnu sam-
bandsins og hélt utan á ný í gær-
morgun. Hann er núverandi
Jjjálfari landsliðs Ungverjalands
og sá sem þjálfaði ungverska
landsliðið á árunum frá 1957—66
og undir hans stjórn hefur ung-
verska liðið margan glæstan
sigurinn.
Við spjölluðum stuttlega við
Baroti á föstudaginn og spurðum
hann þá meðal annars hvern hann
teldi helztan mun á knattspyrnu f
Ungverjalandi og t.d. Englandi.
— 1 Englandi er hugsað um hörku
allan tímann, langspyrnur eru
vinsælar og þjálfun enskra
knattspyrnumanna er að mínum
dómi alltof stíf, svaraði Baroti. —
Hjá okkur er þetta meira létt og
leikandi, boltaæfingar og reynt að
gera knattspyrnuna listræna.
Baroti sagðist lítið hafa séð af
íslandi, hann hefði ekki komið
hingað sem ferðamaður, heldur
til að vinna. Hann hefði verið
kominn á fætur snemma á morgn-
ana til að undirbúa sig fyrir fyrir-
lestur kvöldsins. Hann hefði þó
kynnzt nokkrum Islendingum og
líkað svo vel við þá að hann
langaði að koma hingað til lands
næsta sumar og skoða sig um. —
Ég varð bæði hissa og ánægður
þegar ég heyrði af sigri Islend-
inga gegn A-Þjóðverjum í knatt-
spyrnu í sumar og ég vona að þið
vinnið fleiri slíka sigra í framtíð-
inni. Það er þó eitt sem íslenzkir
knattspyrnumenn mega ekki gera
— það er að vinna ungverska
landsliðið, sagði þessi geðslegi
yfirmaður knattspyrnumála í
Ungverjalandi áður en við kvödd-
um.
Ungverski landsliðsþjálfarinn f knattspyrnu,
sem leiðbeint hefur fslenzkum þjálfurum að
undanförnu.
ingurinn hafði verið yfir til að
byrja með, en í seinni lotunni
hafði Færeyingurinn yfir, síðast
9—8, en þá tók Haraldur á sig
rögg og vann síðan 15—9, enda
úthald Michelsen greinilega þrot-
ið. Hafði Haraldur látið hann
hlaupa töluvert í Ieiknum.
I tvfliðaleiknum kepptu fyrst
ungu mennirnir Sigfús Ægir
Árnason og Ottó Guðjónsson við
Þá Eigil Lyngsöe og Svend
Stensborg. Höfðu Islendingarnir
leikinn f hendi sér og unnu 15—8
og 15—11.
Poul Michelsen og Petur
Hansen stríddu hins vegar
Haraldi og Steinari mikið í fyrri
lotu í tvíliðaleik þeirra en úrslit
hennar urðu 15—12 fyrir Harald
og Steinar. 1 seinni lotunni kom
hins vegar styrkleikamunurinn
veí fram, en hana unnu Haraldur
og Steinar 15—5.
Urslit landsleiksins urðu því
5—0 fyrir íslendinga.
Að keppni lokinni afhenti
Lyggjas Joensen, formaður
Iþróttasambands Færeyja, Óskari
Guðmundssyni, fyrirliða íslenzka
liðsins, fagran verðlaunagrip sem
keppt var um en gripur þessi var
gefinn af Föroya Fiskasölu í Þórs-
höfn, og er hann farandgripur.
Bandarfski blökkumaðurinn f Playboys-liðinu, Canon, horfir á landa
sinn f Armannsliðinu, Rogers, skjóta að körfunni f leiknum á fimmtu-
dagskvöldið. Rogers hitti ekki og Canon náði frákastinu, eins og svo oft
f leiknum.
Hittni irmenninga í lágmarki
og Playboys vann stórsignr $8-63
„ÉG HEF séð marga „gaura“, sem
spila á 2. hæð, en þessi svarti
playboy er einn bezti miðherji
sem éghef komizt í tæri við. Hann
var uppi á 3. hæð nærallan leik-
inn, og það var.mesta furða hvað
Jimmy tóksttað standa f honum.“
— Það var Guðsteinn Ingimars-
son bakvörður Ármanns sem hef-
ur orðið að leik Ármanns og Play-
boys loknum, og er að tala um
Ronnie Canon miðherja Play-
boys.
Já, hann reyndist Ármenning-
unum erfiður 1 Ieiknum í fyrra-
kvöld sá svarti í Playboys-liðinu.
Ekki nóg með að hann skoraði
sjálfur 33 stig, heldur átti hann
sennilega annað eins af fráköst-
um. Jimmy Rogers sem settur var
honum til höfuðs „náði langtím-
um saman ekki upp til hans“, en
tókst þó oft að halda honum frá
körfunni. Jimmy er miklu lág-
vaxnari en Canon, enda framherji
fyrst og fremst, ekki miðherji.
Það var byrjunin í siðari hálf-
leik sem fyrst og fremst olli þessu
mikla tapi Ármanns. Þá lék Ár-
mannsliðið í langan tíma mjög
slakan körfubolta, vörnin opnað-
ist illa og hittnin var á núlli.
Fyrstu mfn. leiksins hafði
Ármann yfirleitt forustu í
leiknum, en Finnarnir kom-
ust hægt og bítandi framúr og
höfðu yfir 43:33 í halfleik.
Ekki meiri munur, en það, að
maður hélt að ef hittnin sem var
afar slök hjá Ármanni lagaðist í
sfðari hálfleik þá væri e.t.v. mögu-
leiki á sigri. Að vísu var vörn
Finnanna, maður á mann, mjög
góð, en samt sem áður tókst oft að
spila upp á góð skotfæri sem þó
ekki nýttust — Finnarnirskoruðu
síðan 14:4 á fyrstu 6 mín. síðari
hálfleiksins og staðan var 57:36,
en það sem eftir var tókst Ár-
manni að halda í við þá þrátt fyrir
mörg slæm mistök bæði f vörn og
sókn, og lokatölur urðu 88 stig
Playboys gegn 65 stigum Ár-
manns.
Því verður ekki á móti mælt, að
lið Finnanna var mun sterkara en
maður hafði átt von á. En jafnvel
það afsakar ekki svo stórt tap
Ármanns sem raun bar vitni. Þeg-
ar Ármann virtist vera að ná tök-
um á leiknum í f.h. var bvrjað að
skipta aðalmönnunum út af, og
sátu 3 af 5 úr byrjunarliðinu fyrir
utan. — „Já við náðum þarna
Stefnumót Skagamanna viö bezta lið
Evrópu áMetavellinum á miðvikudag
ÞAU eru mörg hrósyrðin sem
leikmenn Dynamo Kiev hafa
fengið að undanförnu. Þeir
hafa unnið hvern sigurinn öðr-
um sætari og eftir að liðið lagði
að velli sjálfa Evrópumeistar-
ana Bayern Miinchen þykir
ekki lengur leika neinn vafi á
því hvaða lið sé bezt f Evrópu.
Það er Dynamo Kiev, sem
einnig er kallað landslið Sovét-
rfkjanna, því lítið breytt hefur
félagsliðið leikið sem sovézka
landsliðið.
Það er heldur ekki að ástæðu-
lausu að liðið hefur náð góðum
árangri. 1 fyrra fyrirskipaði
„sovézka kerfið“ svo fyrir að
allir beztu leikmenn þjóðarinn-
ar skyldu mætast f einu félagi,
nefnilega Dynamo Kiev og úr
liðinu átti að gera stjörnulið f
knattspyrnu og skyldi þá ekki
skipta máli hvaða mælikvarði
yrði notaður.
Á miðvikudaginn mætir
þetta lið Islandsmeisturunum
frá Akranesi f seinni leik lið-
anna f Evrópukeppni meistara
og þetta stefnumót, sem marg-
ur íslenzkur knattspyrnu-
maðurinn hefur beðið eftir
með eftirvæntingu fer fram á
gamla Melavellinum f Reykja-
vfk. Sjálfsagt eru möguleikar
Akurnesinga á sigri f leiknum
smásæir, en eigi að sfður ætla
þfir að láta um sig muna og
berjast frá fyrstu mfnútu til
hinnar sfðustu. Þeir hafa æft
vel Skagamennirnir að undan-
förnu og þjálfari þeirra, Eng-
lendingurinn George Kirby,
Iofaði því á fundi með frétta-
mönnum á föstudaginn að
Akurnesingar myndu ekki
Framhald á bls. 47.
ágætum kafla,“ sagði Ingvar Sig-
urbjörnsson þjálfari Ármanns,
„en þó var það svo að hin mikla
geta Finnanna umfram það sem
við höfðum gert okkur f hugar-
Iund braut okkur niður. Jú, ég
viðurkenni það að okkur virðist
vanta þrek. 6 beztu leikmennirnir
hafa hreinlega ekki þrek til að
leika heilan leik án hvíldar.“
Jimmy Rogers stóð í ströngu f
leiknum eins og áður kom fram.
Hann sagði eftir leikinn að Finn-
arnir væru með mjög gott lið sem
hefði verðskuldað sigur. „Það er
ekkert til að skammast sfn fyrir
að tapa með þessum mun. Þetta
lið hefur geysilega hittni, en
þetta var ekki okkar dagur, og við
eigum eftir að sýna meira gegn
þeim. Og sjáðu svo atstöðumun-
inn. Finnska rfkið borgar allar
ferðir og uppihald fyrir Playboys,
en okkar leikmenn hafa lagt dag
við nótt að undanförnu við að
safna auglýsingum f leikskrá og
fleira. Þetta er ekkcrt sambæri-
legt. En ég er ekki að afsaka tapið
með þessu, betra liðið vann, og
þessi Canon er hrikalega góður og
illstöðvandi.“
. Yfir höfuð var Rogers bezti
maður Ármanns í leiknum, þótt
hann ætti slaka kafla af og til. Jón
Sigurðsson brást nú, hann skoraði
t.d. ekki stig f s.h. og misnotaði
auðveldustu færi. Guðsteinn kom
þokkalega frá leiknum, Birgir átti
góða kafla, en dalaði svo á milli
eins og flestir hinna. — En yfir
höfuð slakur leikur hjá Ármanni,
liðið getur mun meira en það
sýndi í þessum leik.
Canon var stighæstur í Play-
boys-liðinu með 33 stig, Kalevi
(nr. 8) skoraði 19 stig. Jimmy
Rogers var stighæstur Ármenn-
inga með 24 stig, mörg skoruð á
mjög fallegan hátt, Birgir Birgirs
kom þar næstur með 11 stig, Jón
Sigurðsson 10 stig, öll skoruð í
fyrri hálfleik. Dómarar voru frá
Skotlandi og Belgiu og dæmdu
auðveldan leik vel. Áhorfendur
voru um 1200 talsins.
gk.