Morgunblaðið - 02.11.1975, Síða 48

Morgunblaðið - 02.11.1975, Síða 48
SILFUR- SKEIFAN BORDSMJÖRLÍKI SMJÖRLÍKIÐ SEM ALLIR ÞEKKJA SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1975 . Kartöfluuppskeran 50 þús. tunnur: ur fluttar inn — ÞAÐ HEFUR ekki kom- ið fyrir þann tíma, sem ég hef starfað hér, að flytja hafi þurft inn erlendar kartöflur vfir sjálfan upp- skerutímann fyrr en á þessu ári, sagði Jóhann Jónasson forstjóri Græn- metisverzlunar ríkisins í samtali við Morgunblaðið í gær. Jóhann Jónasson sagði, að heildaruppskera kartaflna á þessu hausti hefði numið um 50 þúsund tunnum og almennt væru gæðin frekar léleg. 1 fyrra var Framhald á bls. 31 , I Jigregluvarðst jóri: „Herða þarf viðurlög við glannaakstri” 54 slysaútköll í Kevkjavík í oklóber „OKTÓBKRMANUÐI'R er versti slysamánuður í umferð- inni frá því ég hóf afskipti af þessum málum,“ sagði Torfi Jónsson aðalvarðsljóri umverð- ardeildar rannsóknarlögregl- unnar við Mbl í gær. Torfi ætti að þekkja þessi mál manna bezt, því hann hefur starfað í lögreglunni í 35 ár. Að sögn Torfa fékk deild hans 54 slysaútköll í október, þar af reyndust mjög mörg slys- in vera alvarlegs eðlis. Sum höfðu dauða i för með sér og fjölmargir liggja stórslasaðir á sjúkrahúsum borgarinnar. Úr einu slysanna varð að flytja 10 manns á slysadeildina og 7 manns úr öðru. Þannig mætti telja áfram. Og úti á lands- byggðinni hafa orðið mörg hörmuleg slys í október. „Það er svo ótal margt sem þarf að bæta í umferðinni hjá okkur.'Þetta getur einfaldlega ekki gengið svona lengur. Þjóð- félagið hefur ekki efni á því að hundruð manna liggi meira og minna slasaðir á sjúkrahúsum á ári hverju þar af sumir sem aldrei ná sér aftur. Og tjón í umferðarslysum hefur verið reiknað út 2000 milljónir á ári. Menn þurfa að setjast niður og finna úrræði. Ég hef látið mér detta ýmislegt í hug, t.d. tel ég að þurfi að stórherða viðurlög við glannaakstri hvers konar og ógætilegum akstri. Það á hik- laust að svipta menn ökuskírt- Framhald á bls. 47. Ljósm. Mbl. Sv. 4>orm. 54. SLYSAÚTKALLIÐ — Þetta var 54. og sfðasta slysaútkallið sem umferðardeild rannsóknarlögregl- unnar fékk I október. Slysið varð á tfunda tímanum að kvöldi 31. október, þ.e. f fyrrakvöld. I þetta sinn urðu meiðsli á fólki minniháttar. Síldarkvótinn: Margir komnir yfir Einn kærður — Þetta mál er geymt en ekki gleymt, og þeir bátar sem farið hafa verulega yfir 215 tonna síldarkvót- ann, sem þeim var úthlut- Reykjavík: Stefnt að því að ljúka endur- skoðun aðalskipulags í vetur að, eru búnir að fyrirgera rétti sfnum til síldarveiða við ísland næsta haust, sagði Þórður Ásgeirsson, skrifstofustjóri sjávarút- vegsráðuneytisins, í sam- tali við Morgunblaðið í gær. Þórður sagði, að þegar væri vit- að um nokkra báta, sem komnir væru langt yfir 215 tonna aflatak- markið og sjávarútvegsráðuneyt- ið væri nú að hefja aðgerðir í þessum málum. Sem betur fer höguðu margir skipstjórar og út- gerðarmenn sér almennilega og hefðu hætt veiðum við 215 tonna markið. — Hrafn GK landaði um 170 tonnum af síld í Grindavik f gær. Áður en báturinn kom með þenn- an afla, var hann búinn að fá 180 tonn og átti því aðeins eftir 35 tonn af sínum kvóta. Síðan tekur skip- stjórinn 170 um borð i skipið og kemur með til lands, sem þýðir að báturinn er kominn 155 tonn fram yfir leyfilegt magn. Þetta er ákaflega gróft. Skipstjórinn verður kærður og málið látið fara dómstólaleiðina. Það er ákveðið að þeir, sem fara mikið fram yfir 215 tonna markið, megi búast við að það komi þeim í koll síðar, því það verða síldveiðar næsta haust. Dýrar kartöfi- Þoldi Kópavogskirkja ekki sprengingarnar? UNNIÐ er af kappi að cndurskoð- í un aðalskipulags Reykjavfkur um þessar mundir. Skipulagsnefnd borgarinnar hefur undanfarið fjallað um einstaka þætti endur- skoðunarinnar. Innan hennar hefur verið rætt um þá valkosti sem fyrir hendi eru og reynt að gera sér grein fyrir þvf sem nefndin sem slfk kemur til með að mæla með að því er Ólafur B. | Thors, forseti horgarstjórnar og formaður skipulagsnefndar tjáði Morgunblaðinu í gær. Gert hefur verið reiknilíkan eða umferðarspá samkvæmt þeim forsendum sem gefnar hafa verið um það sem gera þurfi í borginni fyrir umferðina til að hún gangi sem greiðilegast árið 1995 en skipulagstíminn miðast við það ár. Að sögn Ölafs er búið að kynna þessi atriði á formlegum fundi i borgarstjórn og kvað Ölaf- ur skipulagsnefnd vinna nú að því kerfisbundið að afgreiða ein- staka þætti máisins, en síðan yrði gangurinn sá að endurskoðun skipulagsins kæmi í heild sinni fyrir borgarráð og þaðan væntan- lega fyrir borgarstjórn. Ölafur kvaðst vonast til að skipulags- Framhald á bls. 47. FYRIR nokkru urðu menn varir við að sprungur voru komnar í veggi Kópavogskirkju á nokkrum stöðum, en enn er ekki fyllilega vitað um ástæðuna fyrir spungu- myndunum. Guðmundur Guð- jónsson, meðhjálpari kirkjunnar, sagði þegar Morgunblaðið hafði samband við hann f gær, að grun- semdir væru um, að sprungurnar stöfuðu af öllum sprengingunum á undanförnum árum f Kópavogs- gjánni. Kópavogskirkja stendur að vfsu nokkuð langt frá gjánni, en hæst á berginu og þegar sprengt er leitar krafturinn ávallt upp f hæsta punktinn. Guðmundur sagði, að sér- fræðingar teldu þó að fjarlægðin væri of mikil til þess, að spreng- ingarnar gætu hafa skemmt kirkj- una, en engin úttekt hefði enn farið fram á þessu máli. Óðinn kemur í lok nóvember EINS OG skýrt hefur verið frá, er varðskipið Óðinn nú í gagngerð- um breytingum í Danmörku. Upp- runalega átti verkinu að vera lok- ið um þessi mánaðamót, en því hefur seinkað nokkuð. Landhelg- isgæzlan hefur nú fengið staðfest að skipið verði tilbúið þann 21. nóvember n.k. og ætti því að koma heim í lok mánaðarins. Því fór sernfór Landhelgisgœzlumenn við löggœzlu á álagabletti ROSKIÐ fólk og langminnugt í Siglufirði krossaði sig og bað guð að hjálpa starfsmönnum Landhelgisgæzlunnar, þegar fréttist að þrír þeirra hefðu legið í tjaldi úti í Þórðarhöfða og snætt þar villt jarðarber meðan þeir voru að mæla út siglfirskan bát er þeir höfðu grunaðan um landhelgisbrot. Ástæðan fyrir þessum ótta gamla fólksins er einfaldlega sú, að þessi staður á Þórðar- höfða þar sem jarðarber vaxa villt hefur frá fornu fari verið talinn álagablettur. Þess er jafnvel getið I Þjóðsögum Jóns Árnasonar og allt fram á þennan dag hefur verið uppi fólk sem aldrei beið þess bætur að hafa neytt villtu jarðarberj- anna í Þórðarhöfða, að þvl er fréttaritari Morgunblaðsins í Siglufirði tjáði okkur. Að fengnum þessum upp- lýsingum höfðum við óðar sam- band við Hálfdán Henrýsson, einn þremenninganna, og spurðum hvernig heilsan væri. Hann reyndist þá vera við hestaheilsu eftir allt saman, og kvaðst ekki vita til að neinum þeirra þriggja hefði orðið meint af dvölinni í Þórðarhöfða. „Jú, jú, við vissum vel að þarna væri álagablettur," sagði hann, „því að bóndinn á þessum slóðum hafði sagt okkur af þvi áður en við lögðumst þar út. Hins vegar minntist hann ekkert á að vara- samt væri fyrir okkur að neyta berjanna, enda borðuðum við þau af beztu lyst. Trúi ég heldur ekki öðru en hann hefði látið okkur vita, ef berin væru illkynjuð, því að þetta er nú einu sinni fréttaritari Morgun- blaðsins og hinn áreiðanlegasti maður I hvívetna. Hafi bölvun álagablettsins komið fram á okkur, þá held ég að hún hljóti að hafa verið í því fólgin að gummbáturinn okkar bilaði þegar mest reið á og að við misstum af landhelgis- brjótnum," sagði Hálfdán.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.