Morgunblaðið - 03.01.1976, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JANUAR 1976
Forskot Celtic
er nn aðeins 1 stíg
FORSKOT Ccltic f skozku úrvals-
dcildarkcppninni í knattspyrnu
minnkaði á nýjársdag er liðið
tapaði fvrir Glasgow Rangers á
Ibrox-Park, leikvelli Rangers, en
þar fvlgdust um 60 þúsund manns
með viðureign þessara risa f
skozku knattspvrnunni. Var þetta
í þriðja sinn sem Celtic og
Rangers leika saman á þessu
keppnistímabili og hefur
Rangers unnið alla leikina.
I.eikurinn á nýársdag var
nokkuð jafn, en Rangers þó öllu
betri aðilinn og átti fleiri hættu-
leg tækifæri. Eina mark leiksins
kom á 30. mínútu er Derek John-
stone skoraði með skalla eftir að
Peter Latchford, markvörður
Celtic-liðsins, hafði hikað í út-
hlaupi og misst þannig af send-
ingu sem hann átti að ráða auð-
veldlega við. Eftir markið lagði
Rangers svo áherzlu á að taka
ekki áhættu í sóknaraðgerðum
sínum, en vörn liðsins stóðst hins
vegar með mikilli prýði tilraunir
Celticliðsins til þess að jafna.
Jóhannes Eðvaldsson var í sér-
stakri gæzlu í þessum leik, og
fékk þvi ekki tækifæri til þess að
sýna hvað í honum býr.
Keppnin í úrvalsdeildinni
i Skotlandi er gífurlega tvísýn og
hörð. Skilur aðeins 1 stig fjögur
efstu liðin eftir umferðina á
nýársdag, en auk leiks Rangers
og Celtic sigraði Aberdeen
Dundee á útivelli 3—1. Hibernian
vann Hearts 3—0 og St.
Johnstone og Dundee Utd. gerðu
jafntefli 1 —1.
Staðan í deildinni nú að loknum
19 umferðum er sem hér segir:
Celtic 19 11 3 5 37:22 25
Rangers 19 10 4 5 30:18 24
Motherwell 19 9 6 4 35:26 24
Hibernian 19 9 6 4 31:23 24
Hearts 19 7 7 5 22:23 21
Aberdeen 19 7 5 7 27:26 19
Dundee 19 6 5 8 29:36 17
Ayr Utd. Dundee 19 6 4 9 24:33 16
United St. 19 4 6 9 21:27 14
Johnstone 19 2 2 15 20:42 6
Heimsmet
SOVÉZKI lyftingamaðurinn
David Rigert setti nýlega heims-
met í jafnhöttun i þungavigtar-
flokki, lyfti 219,98 kg„ og bætti
þar með eidra heimsmetið um
2,26 kg.
UOMA
6
Sfmon ólafsson — tekzt honum
að fylla skarð Jimmy Rogers 1
Armannsliðinu.
Von um skemmtilega
en lítil um íslenzkan
LANDSLEIKIR Islands og Sovét-
rfkjanna verða tvfmælalaust
fþróttaviðburður þessarar helgar.
Verður mikill fengur að fá Sovét-
mennina í heimsókn nú, þar sem
þeir eiga um þessar mundir á að
skipa sennilega bezta handknatt-
leikslandsliði heims, og sagt er að
það leiki gffurlega fjölbreyttan
og fallegan handknattleik. Hins
vegar verður að viðurkenna fyrir-
fram að möguleikar á fslenzkum
sigri í leikjunum f dag og á morg-
un eru litlir en vert er þó f leið-
inni að minna á, að íslenzka hand-
knattleikslandsliðið hefur oft
IR og Armann leika í dag
Símofi Ólafsson teikur nú með Ármennmgum
TVEIR leikir verða í 1. deildar
keppni íslandsmótsins í körfu-
knattleik í dag og fara þeir báðir
fram í íþróttahúsinu á Seltjarnar-
nesi. Fyrri leikurinn er milli ÍR
og Armanns en seinni leikurinn
rnilli Vals og Fram. Viðureign ÍR
og Armanns, sem hefst kl. 14.00,
verður án alls vafa gífurlega
spennandi og tvísýn. Ár-
menningar eru nú eina liðið sem
til þessa hafa ekki tapað leik í
Islandsmótinu, en verða nú að
leika án hins ágæta leikmanns
síns, Jimmy Rogers, sem dæmdur
var í keppnisbann eftir leik Ar-
manns og KR á dögunum. Hins
vegar leikur Símon Ólafsson nú
með Ármannsliðinu en Símon
sem dvelur við nám í Banda-
ríkjunum í vetur er í mjög góðri
æfingu þannig að ætla má að
hann fylli að mestu skarðið sem
Rogers skilur eftir sig.
35 sólarlandaferðir
Vinningar i happdrætti Blaksambands íslands eru 35 sólarlandaferðir. I>ú
getur unnið 5 ferðir á aðeins einn miða, vegna þess að dregið verður 4
sinnum, 5. janúar, 15. janúar, 15. febrúar og 15. marz n.k. Miðana þarf
ekki að endurnýja.
iR-ingunum bætist svo mjög
góður Iiðsauki þar sem eru þeir
Þorsteinn Hallgrímsson og Agnar
Friðriksson sem munu Ieika með
liðinu að nýju, og eins kann svo að
fara að hinn sterki og skemmti-
legi leikmaður Birgir Jakobsson
verði með ÍR-ingunum í þessum
leik.
Takist Armenningum að sigra í
leiknum í dag, verður ekki annað
sagt en að staða þeirra í Islands-
mótinu sé orðin mjög góð, en ÍR-
ingar verða hins vegar að vinna
leikinn, ætli þeir sér að verða með
í toppbaráttunni.
Seinni leikurinn milli Vals og
Fram ætti einnig að geta orðið
nokkuð tvísýnn, þar sem þessi Iið
eru nokkuð áþekk að styrkleika.
Framararnir standa heldur betur
en Valsmenn, hafa unnið einn
leik til þessa, en Valsmennirnir
eru hins vegar enn án stiga
staðið sig hvað bezt, þegar við
minnstu hefur verið búizt af þvf.
Leikurinn í dag hefst kl. 15.00
en leikurinn á morgun kl. 20.30.
Islenzka landsliðið fyrir leikinn í
dag var valið fyrir áramótin, og
eins og Morgunblaðið hefur skýrt
frá verður það þannig skipað:
Markverðir:
Ólafur Benediktsson, Val
Guðjón Erlendsson, Fram.
Aðrir leikmenn:
Ólafur H. Jónsson, Dankersen,
fyrirliði
Stefán Gunnarsson, Val
Jón Karlsson, Val
Sigurbergur Sigsteinsson, Fram
Páll Björgvinsson, Víkingi
Arni Indriðason, Gróttu
Ingimar Haraldsson, Haukum
Ólafur Einarsson, Donzdorf
Bjarni Jónsson, Þrótti
Hörður Sigmarsson, Haukum.
Ætla má svo að þeir landsliðs-
nefndarmenn Viðar Símonarson
og Agúst Ögmundsson geri nokkr-
ar breytingar á liðinu I seinni
leiknum, og hefur Viðar t.d. sagt i
viðtali við Mbl. að nýjum mark-
verði verði þá gefið tækifæri. Er
líklegt að Jens Einarsson úr IR
verði þá fyrir valinu en hann átti
ágætan Ieik með pressuliðinu
gegn Júgóslövum á dögunum.
Gunnar Einarsson, Haukum, ætti
einnig að koma nokkuð til greina.
Þá er ekki ótrúlegt að Jón Hjalta-
lín Magnússon verði valinn til
þess leiks en hann reyndist kröft-
ugur í leik pressuliðsins við Júgó-
slavana á dögunum, jafnvel þótt
hann gengi þá ekki heill til skóg-
leiki
sigur
Það kemur til með að veikja
íslenzka landsliðið verulega að
þessu sinni, að Björgvin Björg-
vinsson leikur ekki með því en
hann gat ekki fengið leyfi úr
vinnu sinni austur á Egilsstöðum.
Björgvin átti ágæta leiki með
landsliðinu gegn Júgóslövunum
fyrir jólin og þá sérstaklega í síð-
asta leiknum með pressuliðinu,
þar sem hann reyndist Júgóslöv-
unum óstöðvandi, og sögðu þeir
eftir þann leik að Björgvin væri
annar tveggja íslenzku landsliðs-
mannanna sem myndu styrkja
hvaða landslið í heiminum sem
væri.
Vonandi er að íslenzkir áhorf-
endur veiti landsliðinu góðan
stuðning i leikjunum við Sovét-
menn um helgina. Varla mun af
veita.
Aftur sigraði Toni
AUSTURRÍSKI unglingurinn Toni
Innauer vann sinn annan sigur I
stórmóti I sklðastökki á fáum dögum
er hann sigraði I keppni sem fram fór
I Garmisch-Partenkirg I Vestur-
Þýzkalandi um áramótin. Hlaut Inn-
auer þar 231.3 stig fyrir 95 metra og
89 metra stökk og sigraði meðal
annarra hinn þekkta sklðastökkvara
Karl Schnabl. sem varð I öðru sæti,
stökk 91,5 metra og 92 metra og
hlaut 229.66 stig. Þriðji varð svo
Jochen Danneberg frá A-Þýzkalandi
sem einnig er þekktur sklðastökkv-
ari. Eftir glæsilega frammistöðu að
undanförnu eru margir teknir að spá
Innauer sigri I stökki af háum palli á
OL I Innsbruch.
Ótafur H. Jónsson — lcikreyndasti fslenzki landsliðsmaðurinn og fyrirliði landsliðsins. Vonandi tekzt
honum og hans mönnum að standa I sovézku snillingunum.
Island — Sovétríkin: