Morgunblaðið - 16.01.1976, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 1976
Tottenham og Miídlesbro unnu
TOTTENHAM Hotspur og Middles-
brough unnu fyrri leiki sína við and-
stæðingana I undanúrslitum ensku
deildarbikarkeppninnar. Björninn er
þó ekki unninn hjá þessum liðum,
þar sem sigur þeirra var aðeins 1:0
og eftir er leikurinn á útivelli.
Middlesbrough lék við Manchester
City og sigraði sem fyrr segir 1:0 og
Tottenham lagði Newcastle af velli.
Þá hefur farið fram einn leikur I
þriðju umferð ensku bikar-
keppninnar og mættust þá Norwich
og Rochdale. Lauk leiknum með sigri
Norwich 2:1 og leikur liðið við Luton
Town á heimavelli I 4. umferð.
í þriðju deild léku nú í vikunni
Preston North End og Rotherham og
sigraði Preston 3:2 og Peterbrough
vann Colchester 3:1.
Keflavík
Drætti í happdrætti Handknatt-
leiksráðs Keflavíkur hefur verið
frestað til 22. janúar n.k.
Drætti frestað hjá HSÍ
DRÆTTI hefur verið frestað í bif-
reiðahappdrætti Handknattleikssam
bands íslands til 26. janúar n.k.
KA-bingó
í sjónvarpi
Enginn er annars bróSir i
leik, stendur einhvers staðar.
Það er þó ekki þar með sagt
að sífellt strið standi á milli
íþróttafélaganna, og sam-
vinna öll sé i lágmarki.
Nýjasta dæmið um góða samvinnu
íþróttafélaga er af Norðurlandi Þar
hefur KA á Akureyri hleypt af stokkun-
um bmgói, sem leikið verður í auglýs
ingatíma sjónvarps og er vinningurinn
Austin Mini bifreið, árgerð 1976
Mjög góð samvinna hefur tekizt á milli
KA og íþróttafélaganna í nágranna-
byggðunum, sem annast sölu bingó-
spjalda á sínum svæðum og hljóta
rífleg sölulaun í staðinn Þannig má
segja, að íþróttafélögin á Norðurlandi
standi að nokkru leyti saman um þetta
fjáröflunarfyrirtæki, og hafa margir á
orði að vel sé athugandi að halda
einhverju slíku samstarfi áfram
Nesklnbburinn
AÐALFUNDUR Nesklúbbsms, (Golf-
klúbbs Ness) verður haldinn laugar-
daginn 17 janúar n.k í Haga við
Hofsvallagötu og hefst kl 15 00 Auk
venjulegra aðalfundarstarfa verður rætt
um framkvæmdir og starfsemina í
sumar
Opið mót á Akranesi
Valsmenn vorn ekki í hættn í leikn-
nm við Fram og titillinn nálgast
— ÞETTA er ekki búið, sfður en
svo, sagði Hilmar Björnsson,
þjálfari Valsmanna, eftir sigur
manna hans vfir Fram 11. deildar
keppni fslandsmötsins í hand-
knattleik 1 fyrrakvöld, en sá sigur
færði Valsmenn enn nær settu
marki — fslandsmeistaratitlin-
um í handknattleik 1976. — Það
skapast sú hætta að leikmennirn-
ir verði of öruggir með sig, sagði
Hilmar, en slfkt getur leitt af sér
slæma skelli.
Eins og er þá er samt ekki útlit
fyrir að Valsmenn fái neina slíka
skelli. Þeir hafa á að skipa bezta
og jafnasta liðinu í deildinni, og
það mætti eitthvað meira en lítið.
koma til þess að titillinn yrði ekki
þeirra, þegar upp verður staðið.
Ætla mátti fyrir leikinn í fyrra-
kvöld að Framararnir yrðu helzta
hindrunin fyrir Valsmenn, ekki
sízt þegar Jón Karlsson, sem verið
hefur einn aðalmarkaskorari liðs-
ins í vetur, gat ekki leikið með,
þurfti að fara til útlanda vegna
vinnu sinnar. En Framarar
reyndust Valsmönnum ekki veru-
leg hindrun. Framan af var þó
leikurinn nokkuð í járnum —
Valsmenn sterkari, en Framarar
slepptu þeim þó aldrei langt fram
úr. Þannig var staðan t.d. 11—9
fyrir Val þegar 10 mínútur voru
liðnar af seinni hálfleikhum, og
var þá dæmt vítakast á Val. Pálmi
Pálmason tók vítakastið, en hann
hafði skorað úr sliku af miklu
öryggi skömmu áður. En nú gerði
Ölafur Benediktsson sér lítið fyr-
ir og varði. Upp úr þessu mis-
heppnaða vítakasti Pálma náðu
Valsmenn að skora og ná aftur
tveggja marka forystu, og eftir
það var Ieikurinn þeirra, — að-
eins spurning um hve stór sigur-
inn yrði.
En með þessu datt líka að veru-
legu leyti botninn úr spili lið-
anna, sem verið hafði all sæmilegt
fram til þess. Þannig voru skoruð
15 mörk á síðasta stundarfjórð-
ungi leiksins og þar af 4 á siðustu
tveimur minútunum. Var stund-
um um að ræða hreina skotkeppni
milli liðanna, og í henni hofðu
Valsmenn betur.
Framan af var leikur þessi
nokkuð skemmtilegur, og varnir
beggja liðanna mjög ákveðnar og
góðar. Munurinn lá aðallega í
markvörzlunni sem var til muna
betri hjá Valsmönnum. Þá varð
það Fram nokkurt áfall að Pálmi
Pálmason meiddist og varð að
vera utan vallar um tima, en á
þeim leikkafla tókst Valsmönnum
að snúa stöðunni í fyrsta skipti i
leiknum sér í vil. Var lítil ógnun í
sóknarleik Framara meðan Pálma
naut ekki við, aðeins einn leik-
maður ógnaði verulega. Hannes
Leifsson, en Valsmennirnir
gengu mjög vel út í hann og gáfu
honum ekki færi á að hoppa upp
og skjóta. Eftir að Pálmi kom
inná aftur skánaði sóknarleikur-
inn hjá Fram verulega en samt
sem áður var aldrei veruleg ógn-
un i honum. Vantar liðið tilfinn-
anlega a.m.k. eina góða skyttu í
viðbót. Má vera að hana fái það i
Magnúsi Sigurðssyni, fyrrum Vík-
ingsleikmanni, sem lék þarna
sinn fyrsta leik með Framliðinu,
og var heldur óöruggur i leiknum.
Vörn Framliðsins er hins vegar
mjög kvik og sýndi af sér mikla
baráttu, allt til þess að Valsmenn
fóru að siga verulega fram úr, en
þá var áhuginn um leið minni, og
gefin betri færi.
Valsliðið er greinilega mjög
jafnt, og hlýtur það að vera gífur-
lega mikill kostur að hafa svo
jafna leikmenn að stöðugt er
hægt að skipta inná án þess að
liðið veikist til muna. Guðjón
Magnússon átti mjög góðan leik
með Valsliðinu að þessu sinni.
Ekki einungis að hann skoraði 5
falleg mörk, heldur og var hann
stöðugt ógnandi með hraða sínum
og krafti. Þá átti Stefán Gunnars-
son að venju góðan leik, en Stefán
er orðinn einn allra bezti varnar-
leikmaður sem við eigum, auk
þess sem hann hjálpar félögum
sínum gífurlega mikið í sóknar-
leiknum, með stöðugum „blokker-
ingurn" og þegar svo ber undir er
hann ófeiminn að skjóta á markið
sjálfur.
Sennilega verður erfitt að
hindra Valsmenn í að hljóta sig-
urinn i deildinni i ár, en eins og
Hilmar Björnsson sagði, þá eru
ýmis ljón á veginum. Það á leik
gegn Haukum i Hafnarfirði um
næstu helgi, og vinni Valsmenn
þar sigur verður örugglega erfitt
að hagga við þeim úr því.
— stjl.
1
Fvrir leik Fram og Vals 1 tslandsmóti kvenna 1 handknattleik á
miðvikudaginn voru tvær stúlkur 1 Fram heiðraðar. Elln Hjörleifsdótt-
ir t.v. fvrir 100 leiki 1 meistaraflokki og Oddný Sigsteinsdóttir fvrir
200 leiki f meistaraflokki. Milli þeirra er Ólafur Jónsson, formaðHr
handknattleiksdeildar Fram.
N K sunnudag 18 janúar fer fram i
hinu nýja iþróttahúsi á Akranesi opið
mót í badminton og verður þar keppt i
einliða leik, tviliðaleik karla og kvenna
og i tvenndarleik Keppni hefst kl
1 1 00 Þátttaka tilkynnist í sima 1288
á Akranesi eftir kl 19 00
Jóhann Ingi Gunnarsson sleppur framhjá Andrési Bridde og skorar eitt marka sinna i leiknum. Þeir sem fylgjast
með eru Þorbjörn Guðmundsson, Steindór Gunnarsson, Bjarni GuSmundsson, Arnar Guðlaugsson og Árni
Sveinsson.
Sigrún var óstöðvandi og
Valsstúlkurnar unnu sigur
VALSSTÚLKURNAR unnu afar
þýðingarmikinn sigur í leik sfn-
um við Fram f 1. deildar keppni
Islandsmótsins 1 handknattleik
kvenna 1 fvrrakvöld og var það
vel af sér vikið hjá þeim þegar
tekið er tillit til þess að sumar
stúlknanna komu fyrst heim úr
Danmerkuferð sinni þá um dag-
inn. Höfðu nokkrar haft viðdvöl í
Glasgow, en tafizt þar vegna
veðurs.
En sigur Valsstúlknanna hékk á
bláþræði í þessum leik. Allan
fyrri hálfleikinn hafði Fram
forystu, mesta þrjú mörk, er stað-
an var 6—3. Fljótlega í seinni
hálfleik tókst Sigrúnu
Guðmundsdóttur að jafna leikinn
fyrir Val á tölunni 6—6 og hafði
hún þá skorað öll mörk Vals-
stúlknanna. Eftir það var mikil
barátta í leiknum og þegar aðeins
5 mínútur voru til leiksloka var
staðan jöfn, 10—10. Sigurmark
leiksins skoraði svo Sigrún úr
vítakasti þegar um ein minúta var
til leiksloka. Fengu Fram-
stúlkurnar því tækifæri til þess
að jafna, en Valsstúlkurnar vöru
harðar i horn að taka í vörninni
og tókst að bjarga marki sínu.
Leikur þessi var ekki tiltakan-
lega vel leikinn. Framliðið sýndi
þó allgóða spretti, sérstaklega í
fyrri hálfleik, — ógnað var sæmi-
lega að vörninni og þannig tókst
tvívegis að opna hornið vel fyrir
Guðrúnu Sverrisdóttur sem fór
inn og skoraði örugglega. I seinni
hálfleiknum lifnaði svo loks yfir
Valsliðinu og það varð sjálfu sér
líkt. Þó hafa Valsstúlkurnar
sennilega oft leikið betur.
Hjá Val var Sigrún Guðmunds-
dóttir yfirburðamanneskja. Hún
var ekki tekin úr umferð í þessum
leik, eins og oftast áður í leikjum
Vals í íslandsmótinu, og virtist
frelsinu fegin. Urðu Fram-
stúlkurnar að ganga vel fram á
móti henni ef ekki átti illa að
fara, og við það opnaðist vörn
■þeirra um of. Hjá Val átti einnig
Ragnheiður og Elín ágætan leik.
Oddný Sigsteinsdóttir, hættu-
legasta skytta Framliðsins og
aðaldriffjöðrin í spili liðsins, var
tekin úr umferð langtímunum
saman i þessum leik og þar með
skorti Fram tilfinnanlega stúlku
sem gat skotið af færi. Var oft
ekki nægjanleg ógnun í spilinu.
Helga Magnúsdóttir og Guðrún
Sverrisdóttir áttu einna beztan
leik, svo og Jóhanna Halldórsdótt-
ir sem er mikill dugnaðarforkur í
vörninni, og voru það ófá skot frá
Valsstúlkunum sem hún varði.
Mörk Vals: Sigrún Guðmunds-
dóttir 7, Elín Kristinsdóttir 1,
Harpa Guðmundsdóttir 1, Björg
Guðmundsdóttir 1, Ragnheiður
JBIöndal 1.
Mörk Fram: Helga Magnúsdótt-
ir 4, Guðrún Sverrisdóttir 3,
Guðríður Guðjónsdóttir 2, Kristin
Orradóttir 1. __ stji.
ElnKunnagjðfln
LIO ARMANNS:
Ragnar Gunnarsson 2
Friðrik Jóhannsson 2
Stefán Hafstein 2
Björn Jóhannesson 2
Hörður Ilarðarson 3
JensJensson 2
Jón Ástvaldsson 2
Hörður Kristinsson 2
Pétur Ingólfsson 3
LIÐGRÖTTU:
Guðmundur Ingimundarsor. 2
Björn Magnússon 1
Björn Pétursson 1
Magnús Margeirsson 1
Árni Indriðason 4
Halldór Kristjánsson 2
Hörður M. Krist jánsson 2
Georg Magnússon 2
Axel Friðriksson 2
Magnús Sigurðsson 2
DÖMARAR:
Karl Jóhannsson og
Hannes Þ. Sigurðsson 3
LIOFRAM:
Guðjón Erlendsson 1
Andrés Bridde 1
Árni Sverrisson 2
Gústaf Björnsson 1
Sigurbergur Sigsteinsson 2
Pétur Jóhannesson 2
Arnar Guðlaugsson 2
Guðmundur Þorbjörnsson 1
Pálmi Pálmason 4
llannes Leifsson 1
Jón Sigurðsson 1
LIÐ VALS:
Ólafur Benediktsson 2
Gunnsteinn Skúlason 2
Jóhann Ingi Gunnarsson 2
Bjarni Guðmundsson 2
Guðjón Magnússon 3
Steindór Gunnarsson 2
Stefán Gunnarsson 3
Jón P. Jónsson 2
Þorbjörn Guðmundsson 2
Gunnar Björnsson 1
Jóhannes Stefánsson 2
DÓMARAR:
Björn Krisljánsson og
Óli Olsen 3