Morgunblaðið - 25.01.1976, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JANUAR 1976
5
■
■ ; *.
-
•:;•••, >v
.
I
S ■
I/ IXCII UUI I
A
y
ÍHgHj
iSÍiÍÍíSi@Éffl
'i$S$#*íí
i
. ;
,
"v; ■.■■.■• ■
■MR
ÍÍÍítilÉSl
"■ :.
. .;
...... 7
'•»> n.’l-
________—.— ,
v; :■■
SiSvVr«;
i s
■'. ■ v _ 'J
■‘
rr &&
UJJjé
. > >
■
-í*
fef«
íM'Sau
mmmé
.
* i
: .■-■-■;■
’5.
ISÍilÍlÉI
IÉÍ'i|Ss£íífft.
h-ý ;: F
h C'>::'" •• : mk
! ■ I
J •■ ' '
OL.TjjrVí'NvSU
.£í ni
rMí-'->.•■ '^s^aœíjfe
HLJÓMTÆKJADEILD
KARNABÆR
Laugavegi 66. 2. hæð, simi 28155
Bæjarstjórn
Seyðisfjarðar
vill fjölgun
gæzluskipa
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi fréttatilkynning frá
bæjarstjórn Seyðisfjarðar.
„Bæjarstjórn Seyðisfjarðar
mótmælir harðlega þeim lúalegu
aðgerðum er bresk herskip hafa
beitt nú síðustu daga i íslenzkri
landhelgi úti af Austfjörðum. Að-
gerðir sem þær að reyna að sigla
niður íslenzk varðskip sem sinna
lögmætum .skyldustörfum, hljóta
að flokkast undir hryðjuverk af
versta tagi. Bæjarstjórn lýsir yfir
fullum stuðningi við aðgerðir út-
gerðar og sjómanna á Suðurnesj-
um.
Bæjarstjórnin litur mjög alvar-
legum augum það ástand sem nú
ríkir á miðum Austfirðinga og tel-
ur að með óbreyttu ástandi verði
illmögulegt að stunda eðlilega
sjósókn frá Austfjörðum. Einnig
muni þetta bitna á loðnuveiði-
flotanum á komandi vertíð.
Vegna þessa ástands beinir
bæjarstjórnin því til ríkisstjórnar
og Alþingis að þegar verði fjölgað
skipum gæzlunnar með öllum til-
tækum ráðum.
Bæjarstjórn Seyðisfjarðar
krefst þess að nú þegar verði
stjórnmálasantbandi slitið við
Breta, herskip og dráttarbátar
hverfi burt úr íslenzkri landhelgi
að öðrum kosti verði herstöð At-
lantshafsbandalagsins á Kefla-
víkurflugvelli lokað.
Og ennfremur:
Bæjarstjórn Seyðisfjarðar lýsir
virðingu og aðdáun á því hug-
rekki sem starfsmenn landhelgis-
gæzlunnar hafa sýnt við skyldu-
störf sín og lýsir yfir fyllsta stuðn-
ingi við aðgerðir þeirra „á hafi
úti “.
r
Asgeir Guðmundsson iðnskólakennari:
Snjótittlingar í dauðagildrum
MIG LANGAR til að benda þeim
húsráðendum, er hafa reykháfa á
húsum sínum, en ekki kynditæki í
notkun, á að smáfuglar setjast
gjarnan á reykháfana og falla
stundum niður i þá og komast
ekki upp aftur. 'Sé sótlúgan ekki
opin bíður þeirra ömurlegur
dauðadagi, hungurdauði og bar-
átta fyrir frelsinu.
Eg vil benda fólki á þetta, ég
þekki engan, sem rólegur getur
setið inni í hlýrri stofu
með fjölskyldu sinni, ef hann
veit af smáfugli heyja dauða-
stríð, sem eflaust tekur
marga daga uns hann verður
hungurdauða að bráð, inni
i reykháfnum á húsi hans. Ég veit
þess dæmi að húseigandi bjargaði
fugli af því að hann heyrði tist
hans og gat opnað lúguna, fuglinn
var lifandi en tveir lágu i valnum.
Þetta á sérstaklega við um snjó-
tittlinga, þegar bjargarleysið
sverfur að, þá leita þeir á náðir
okkar mannanna í von um mat.
Ég vissi ekki um þetta fyrr en
einn bjargaðist á mínu heimili,
komst hann fram í þvottahús.
Kona mín varð hans vör og opnaði
glugga, flaug hann út, frelsinu
feginn blessaður litli fuglinn.
Nauðsynlegt er þegar tíð og
ástæður leyfa, að loka opi reyk-
háfsins aö ofan á varanlegan hátt
t.d. með járnplötu sem fest væri
efst í hann. Varanlegast væri að
steypa yfir reykháfinn. Þá mætti
ef til vill nota tréplötu sem félli
niður í opið með ánegldum okum
sem hindruðu aó platan dytti nið-
ur.
En þangað til að þetta kæmist í
framkvæmd mætti hafa opna sót-
lúguna og ef til vill rifu á glugga
svo fugl kæmist út. Ef ekki væri
hægt að hafa opinn glugga, þá
þyrfti að fylgjast með helzt dag-
lega, hvort nokkur kæmi.
Gott væri ef börn eru á heimili
að þau tækju að sér að fylgjast
með þessu og áreiðanlega myndi
margt barnshjartað slá örar af
gleði ef björgun tækist.
Góðir lesendur, þetta er góð-
verk og það byggir upp það góða í
okkur, sem víða er allt of Iítið
af í þessum heimi. Að endingu vil
ég hvetja fólk til að gefa smáfugl-
um fæðu á meðan jarðbörn eru,
en um leið og hlánar svo sést í
auða jörð Hverfa þeir frá húsum
okkar.
Matarafgangar, brauðmylsna
eða kökumylsna er vel þegin,
fuglakorn fæst i verzlunum og
þegar hungur sverfur að litlum
fugli þiggur hann flest ætilegt
sem hann ræður við. Gott er að
gefa á bílskúrsþök eða út um þak-
glugga eða staði þar sem kettir
komast ekki það nærri þeim að
þeir geti hremmt þá, en iitlu fugl-
arnir eru mjög varir um sig.
harman/kardon 430
Jwlo (xrwixw)