Morgunblaðið - 25.01.1976, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JANUAR 1976
43
Verk José
Martí í
Félags
stofnun-
stúdenta
VINÁTTUFÉLAG Islands og
Kúbu hefur opnað sýningu I
anddyri Féiagsstofnunar
stúdenta við Hringbraut. Ber sýn-
ingin yfirskriftina „Nærvera José
Martl I kúbönsku byltingunni".
Eru birtar tilvitnanir í verk
José Martís og sýndar myndir frá
kúbönsku byltingunni.
I tengslum við sýninguna eru til
sölu bækur, blöð og plaköt í bók-
sölu stúdenta.
Hugmyndin er að fara með sýn-
inguna á 2 til 3 staði úti á landi ef
fjárhagur leyfir.
Sýningin er opin alla virka daga
nema laugardaga kl. 9—18 og
mun hún standa yfir í 2 til 3
vikur.
1
[ S kál K .
eftir JÓN Þ . ÞÓR
AUSTUR í Jerevan, höfuðborg
Sovétlýðveldisins Armeníu, er
Skákþing Sovétríkjanna 1976
nú nýhafið. Þátttakendur eru
þessir, taldir eftir töfluröð: R.
Vaganjan, O. Romanischin, Ju.
Balashov, M. Dvoretsky, L.
Polugajevsky, D. Bronstein, T.
Petrosjan, B. Gulko, L. Alburt,
S. Furman, E. Geller, V.
Dorotsjevitch, A. Kovan, I.
Dorfman, M. Tal, A. Beljavsky.
Þetta er mikið lið og frítt og
mikið er þarna af ungum og
efnilegum meisturum. Yngsti
keppandinn er Beljavsky,
fæddur 1953, en aldursforseti
er Furman, fæddur 1920.
Þegar síðast fréttist var lokið
3 umferðum í mótinu, en erfitt
var að átta sig á stöðunni vegna
margra biðskáka.
Við skulum nú líta á tvær
skákir úr fyrstu tveimur um-
ferðunum. 1 hinni fyrri eigast
við þeir Vaganjan og Beljavsky.
Hinn fyrrnefndi nær öruggu
frumkvæði á drottningarvæng
strax í byrjun og myndar frf-
peð, sem reynist svörtum ofur-
efli.
Hvftt: R. Vaganjan
Svart: A. Beljavsky.
Kóngsindverskt tafl.
1. d4 — Rf6, 2. Rf3 — g6, 3. Bg5
— Bg7, 4. Rbd2 — d5, 5. c3 —
0—0, 6. e3 — Rbd7, 7. b4 —
He8, 8. Be2 — e5, 9. Rb3 — b6,
10. Bb5 — e4, 11. Bc6 — Hb8,
12. Rfd2 — Bb7, 13. Bxb7 —
Hxb7, 14. b5 — a6, 15. a4 —
Ha7, 16. 0—0 — De7, 17. De2 —
Hea8, 18. a5 — axb5, 19. Dxb5
— bxa5, 20. Hxa5 — Hxa5, 20.
Rxa5 — c5, 22. Rc6 — Df8, 23.
Rb3 — c4, 24. Rc5 — Rc5, 25.
dxc5 — h6, 26. Bh4 — g5, 27.
Bg3 — De8, 28. Bd6 — Bf8, 29.
Db7 — De8, 30. Re7 — Bxe7,
31. Dxe7 — De6, 32. Dxe6 —
fxe6, 33. Hbl — Re8, 34. Be5 —
Hc8, 35. Hb6 — Kf7, 36. c6 —
Kg6, 37. g4 — Rc7, 38. Hb7 —
Ra6??, 39. Hg7 mát.
1 síðari skákinni sjáum við
Mikhail Tal tefla „position".
Hvftt: M. Dvoretskv
Svart: M. Tal
Sikilevjarvörn
1. e4 — c5, 2. Rf3 — d6, 3. Bb5
— Rd7, 4. d4 — Rf6, 5. Rc3 —
cxd4, 6. Dxd4 — e5, 7. Dd3 —
h6, 8. Be.3 — Be7, 9. Rd2 —
0—0, 10. f3 — Dc7, 11. 0—0—0
— a6, 12. Bc4 — b5, 13. Bb3 —
Rc5, 14. Bxc5 — dxc5, 15. Rd5
— Rxd5, 16. Bxd5 — c4, 17. De2
— Hb8, 18. c3 — Bb7, 19. Kbl
— Hfd8, 20. Rfl — Bxd5, 21.
Hxd5 — Hxd5, 22. exd5 — Hd8,
23. Re3 — Bg5, 24. Hdl — Dc5,
25. Rg4 — Hxd5, 26. Hxd5 —
I)xd5, 27. g3 — f6, 28. Kc2 —
h5, 29. Rf2 — Kf8, 30. Re4 —
Bh6, 31. g4 — h4, 32. h3 — Ke7,
33. b3 — g6, 34. bxe4 — bxc4,
35. Ddl — Dxdl, 36. Kxdl —
a5, 37. Ke2 — Ke6, 38. a4 —
Bf8, 39. g5 — f5, 40. Rd2 —
Kd5, 41. f4 — exf4 og hvftur
gaf.
— The Times
Framhald af bls. 1
þeim aflatakmörkunum, sem þeir
hafa sett.“
Sfðan segir: „Bretar verða að
horfast í augu við staðreyndir, því
að þeir hafa sjálfa sig að fíflum
með átökum við þjóð, sem hvorki
hefur landher, flugher eða flota,
og telur aðeins 216 þúsund
manns.“
SPENNAINNANLANDS
FÆR (JTRAS 1
ÞORSKASTRIÐINU
OG BITNAR A
BRETUM SEGIR
TRAWLING TIMES
Trawling Times tekur hins veg-
ar þá afstöðu að Bretar verði að
hafa einhvers konar tryggingu áð-
ur en flotinn sé kallaður af mið-
unum, en segir síðan: „Nú er aðal-
atriðið það hvort hægt er að ná
sanngjörnum samningum, sem vit
er f, eða hvort fiskiðnaðurinn
verður að horfaSt f augu við upp-
gjöf þar sem samúð og skilningur
ríkisstjórnarinnar virðist vera af
skornum skammti. Þar sem sjáv-
arútvegurinn er fjárhagslega
mjög aðþrengdur mundi hann
riða til falls ef gefizt yrði upp
fyrir Islendingum," segir Trawl-
ing Times.
Blaðið telur erfiðleika í íslenzk-
um stjórnmálum og óánægju al-
mennings ráða mestu um ástand,
sem það telur jaðra við móður-
sýki. Þessi spenna fái útrás f
þorskastríðinu og bitni þvf á Bret-
um, og sé ekki við því að búast að
Bretum, Atlantshafsbandalaginu
eða nokkrum öðrum veitist auð-
velt að losa íslenzku rfkisstjórn-
ina af önglinum, sem hun sitji nú
föst á.
Trawling Times heldur því
fram, að Islendingar hafi í frétta-
flutningi leitazt við að láta Breta
líta út sem árásaraðilann og i því
skyni hafi brezkum sjónvarps-
mönnum verið boðið um borð i
varðskipin, sem sfðan hafi sett á
svið átök við freigáturnar. Blaðið
ályktar þó, að „áróðursherferðin"
hafi ekki þjónað tilgangi sínum
sem skyldi.
— Danskur
rithöfundur
Framhald af bls. 2.
menningarlíf en áhrif frá
Kristjánsborg.
Dan Turell er einmitt sá, sem
getur manna bezt frætt okkur um
þetta, er hann ræðir um skáld
sinnar kynslóðar og tónlist sinnar
kynslóðar. Sjálfur hefur hann
sent frá sér fjölda bóka, þar sem
hann hefur gert ýmiss konar
tilraunir með tjáningarform,
merkingu orða, uppsetningu
osfrv. Verk hans hafa komið út
bæði hjá „neðanjarðar“-forIögum
og stórum og þekktum og virtum
útgefendum.
Bök hans „Vangede billeder",
sem er minningabók höfundar frá
uppvaxtarárum hans f Vangede,
hverfi nálægt Gentofte, hlaut
mjög góða dóma gagnrýnenda er
hún kom út siðastliðið haust, og
með þeirri bók hefur hann ótví-
rætt haslað sér öruggan völl sem
rithöfundur.
Dan Turell heldur væntanlega
erindi um nýja skáldakynslóðina f
Danmörku fimmtudaginn 29. jan.
kl. 17.15 og sunnudaginn 1. febr.
kl. 17.15 kynnir hann rokk/beat
tónlist með tóndæmum. Ennfrem-
ur kemur Dan Turell fram hjá
Rithöfundasambandi Islands mið-
vikudagskvöld 28. janúar n.k.
(Frá Norræna húsinu).
— Vona að . . .
Framhald af bls. 1
hvort vænta mætti truflana á
fiskimiðunum og sagðist hann
hafa ástæðu til að ætla að brezka
stjórnin hefði gefið ákveðin fyrir-
mæli til brezku togaranna og
vonaðist hann til að skipstjórarn-
ir mundu fara eftir þeim þannig
að ekki myndi draga til tfðinda á
miðunum. Forsætisráðherrann
kvaðst einnig vilja ítreka það, að
fslenzka rfkisstjórnin hefði sagt
að lögsögu yrði haldið uppi innan
fiskveiðimarkanna.
Geir Hallgrimsson og föruneyti
hans komu til Chequers um kl.
12.30 að staðartfma, þar sem Wil-
son tók á móti honum ásamt Call-
aghan, Peart, Bishop aðstoðar-
sjávarútvegsráðherra, ráðuneytis-
stjóra sjávarútvegsráðuneytisins
og persónulegum aðstoðarmönn-
um sinum. Skiptust forsætisráð-
herrarnir á kveðjum og spjölluðu
stuttlega um daginn og veginn
áður en gengið var inn.
Fundur forsætisráðherranna er
haldinn á 2. hæð sveitasetursins f
herbergi sem kallast Grand Parl-
or, og er innréttað í Elísabetarstíl,
en húsið sjálft er byggt í Tudor-
stfl.
VIÐRÆÐURNAR VEKJA
MIKLA ATHYGLI.
Ekki var i dag, er þetta var
skrifað, vitað hve lengi fundur
forsætisráðherranna myndi
standa í dag en á morgun sunnu-
dag, verða viðræður fiskifræð-
inga og embættismanna, en síðan
er gert ráð fyrir að forsætisráð-
herrarnir haldi viðræðum áfram
á mánudag og þá væntanlega f
Downingstreet 10, forsætisráð-
herrabústaðnum f London.
Milt og fagurt Veður er nú í
London. Viðræður forsætisráð-
herranna vekja greinilega mikla
athygli hér í Bretlandi og mikið
um þær fjallað í blöðum, útvarpi
og sjónvarpi, sem glöggt mátti
greina á þeim mikla fjölda frétta-
manna, sem tóku á móti Geir Hall-
grímssyni við komuna hingað f
morgun.
Eins og fyrr hefur verið skýrt
frá eru í för með forsætisráðherr-
anum alþingismennirnir Þórar-
inn Þórarinsson og Guðmundur
H. Garðarsson, Hans G. Andersen,
hafréttarfræðingur, fiskifræðing-
arnir Jón Jónsson, Sigfús
Schopka og Jakob Jakobsson, Ein-
ar Ingvarsson aðstoðarmaður
sjávarútvegsráðherra og Björn
Bjarnason, skrifstofustjóri for-
sætisráðuneytisins. Auk þeirra
taka þeir Nfels P. Sigurðsson
sendiherra og Helgi Ágústsson
sendiráðsritari þátt í viðræðun-
um.
★ REUTER
I fréttaskeyti frá Reutersfrétta-
stofunni eftir Mohsin Ali um
komu forsætisráðherra er sagt, að
Geir Hallgrímsson hafi lagt á það
áherzlu f samtali sínu við frétta-
menn á flugvellinum, að grund-
vallarrökin fyrir takmörkunum á
veiðum Breta við tsland væru
byggð á verndunarsjóðarmiðum,
fiskstofnarnir á Islandsmiðum
væru nálægt hruni og tslendingar
sjálfir fhuguðu nú að leggja þriðj-
ungi fiskiskipaflota síns til að
gefa fiskstofnunum tfma til að
vaxa á ný, að þvf er fréttamaður
Reuters hefur eftir forsætisráð-
herra.
— Kostnaður
Framhald af bls.44
Ragnar ekkert óvenjulegt vera
við þessar skoðanir, en hins vegar
sagði hann að hér væri um þátta-
skil að ræða í stefnu félagsins,
Flugfélagið hefði aldrei leitað
áður til útlanda með slíkt sem
þetta, en hins vegar kvað hann
Loftleiðir ávallt hafa leitað út
fyrir landsteinana með slfkar
skoðanir. „Okkur finnst þarna
verða breyting á, þegar búið er að
sameina félögin," sagði Ragnar,
„enda eru yfirmenn viðhalds-
deildanna Loftleiðamenn og hafa
þeir ekki gert garðinn frægan
með viðhaldi hér heima."
Ragnar sagði að flugvirkjar
hefðu boðað til félagsfundar á
mánudag og þar myndi þetta mál
rætt. Hann kvað menn hafa unnið
við alls konar aðstæður, jafnvel i
10 til 15 stiga frosti að viðgerðum
á flugvélum og kvað þetta verð-
launin, sem þeir hlytu frá félag-
inu, þar sem f Reykjavík yrði öll
vinna að fara fram utan dyra.
Annað mál væri hins vegar um
Keflavíkurflugvöll. Þar væri unnt
að vinna þetta inni.
Ragnar kvað þessar skoðanir á
þotunum báðum kosta um 34
milljónir króna og kvað hann hér
vera verið að flytja gjaldeyri
beint út úr landinu f stað þess að
láta vinna skoðanirnar hér heima.
Kvað hann þetta algjöran óþarfa,
þar sem ekkert mælti f móti þvf
að skoðanirnar færu fram hér
heima. Nefndi hann sem dæmi að
skömmu eftir brunann á Reykja-
víkurflugvelli í fyrra hefði slfk
skoðun sem Jtessi verið fram-
kvæmd hér heima og stóðst hún
fyllilega áætlun. Þá benti Ragnar
jafnframt á, að Flugleiðum væri
heimilt að nota flugvélstjóra í
einn mánuð á jörðu niðri við slíka
skoðun. Það væru menn, sem
hvort eð er væru á kaupi hjá
félaginu, svo að sú tilhliðrun ætti
aðeins að vera hagkvæmnisatriði
fyrir félagið. Væri þar um að
ræða 10 menn f 30 daga.
Jóhannes Einarsson, yfirmaður
viðhaldsdeilar Flugleiða, vfsaði í
gær á Örn Johnson, forstjóra, sem
gæti gefið skýringar á þessari
ákvörðun Flugleiða h.f., en
Morgunblaðinu tókst ekki að ná í
örn.
— Bátaflotinn
Framhald af bls.44
netum,“ sagði Daníel, „sex á línu
og 14 á netum. Þetta er svona að
komast í gang. Aflinn hefur þó
verið lélegur, 3—4 tonn á Ifnuna
og sama í róðri á netum. Geirfugl-
inn kom þó með 19 tonn tveggja
nátta úr einum róðrinum og 34
tonn úr öðrum í fyrrinótt, allt
ufsi. Þá var Þorsteinn Gíslason
með 15l/4 tonn í gær. Það eru
svona blettir sem þeir hitta á og
ég hef heyrt að Geirfuglinn hafi
fengið þetta mest allt í tvær tross-
ur í sfðasta róðri.
Annars er það í rauninni aðeins
sfðustu daga sem hefur gefið hér
og vertfðarsvipurinn er að færast
yfir staðinn.“
Garðar Sigjónsson hafnarstjóri
á Höfn í Hornafirði kvað flesta
Hornafjarðarbáta vera komna
með mannskap, þrír væru byrjað-
ir á línu, 4 á trolli og 1 á netum
auk 6 sem væru að búa sig á net,
en alls kvað hann 14 báta gerða út
frá Hornafirði í vetur.
„Tfðin hefur verið ákaflega erf-
ið,“ hélt Garðar áfram, „en bát-
arnir hafa verið með svona 6—7
tonn á lfnu sfðustu daga og sama í
trollið, en einn kom þó með 30
tonn í troll eftir þrjá daga, þetta
er svona að komast í fullan gang.“
— Járnfrúin
Framhald af bls. 1
Þessi ummæli frú Thatchers
vöktu mikla reiði sovézkra yfir-
valda og gekk sovézki sendi-
herrann í London á fund
utanríkisráðherra og mótmælti
þessum ummælum og einnig
mótmælti sendiráðið við tals-
mann fhaldsflokksins í utan-
rfkismálum, Reginald Maudl-
ing. Gavrilov segir í grein sinni,
að brezkir íhaldsmenn séu að
reyna að snúa við þróun
alþjóðamála og hverfa aftur til
hinna ömurlegu tfma kalda
stríðsins og brezk hægri blöð
endurspegli skoðanir andstæð-
inga „Detente“ og klappi fyrir
Thatcher.
SERSTAKT TILBOÐ
Blaupunkt
SJONVORP
sem ættu að kosta kr. 92.650.
seljast gegn staðgreiðslu á
KR. 85.000.
Afborgunarskilmálar:
Verð kr. 89.500.—
Útborgun kr. 30.000
Eftirstöðvar til 8 mánaða
SJÓNVÖRP
Sérstök langdrægni
Tóngæði sérstök
°g svo ofangreint
tilboð
/
unnai Stffizá’ibbm k.f.
REYKJAVÍK — AKUREYRI
Akranes: Verzlunin Bjarg
Borgarnes: Verzlunin Stjarnan
BúSardalur: Einar Stefánsson
PatreksfjörSur: Baldvin Kristjinsson
Blldudalur: Verzlun Jóns Bjarnasonar
Bolungarvlk: Jón Fr. Einarsson
SauSárkrókur: Kaupfélag SkagfirSinga
SiglufjörSur: Gestur Fanndal
Húsavlk: Bókav. Þór. Stefánssonar
HornafjörSur: Verzlunin Kristall
Vestmannaeyjar: Verzlunin Stafnes
Selfoss: G. Á. BöSvarsson
Keflavlk: Verzlunin Stapafell.
AUK EFTIR-
TALINNA
UMBOÐS
MANNA