Morgunblaðið - 25.01.1976, Qupperneq 44
allba'
____l_L
'0íC0)UfrlMítfoítfo TROpÍcaNA
í morgun?
morgun:
SUNNUDAGUR 25. JANUAR 1976
Boeing 727 í skoðun erlendis:
Kostnaður við skoð-
unina 34 milljónir
— segir formaður Flugvirkjafé-
lagsins og gagnrýnir ráðstöfunina
FLUGVIRKJAR hafa gagnrýnt þá ákvörðun Flugleiða h.f. að senda
utan til klössunar tvær þotur Flugfélags Isiands h.f., sem eru af
gerðinni Boeing 727, en áður hafa þessar þotur verið skoðaðar hér
innanlands af flugvirkjum félagsins. Ragnar Karlsson, formaður Flug-
virkjafélagsins, sagði f víðtali við Mbl. f gær, að gffurlegar óáænægju-
raddir væru á meðal flugvirkja með þessa ráðstöfun.
Ragnar sagði, að mikið hefði
verið búið að vinna að undirbún-
ingi þessara skoðana hér heima,
allir varahlutir hefðu verið komn-
ir, svo og öll tæki. Samið hafði
verið við starfsfólk um að fram-
kvæma skoðunina f Keflavík og
sagði Ragnar jafnframt, að ekkert
óvænt hefði gerst, sem hafa hefði
átt áhrif á þessa ákvörðun. Hann
kvað Flugleiðir bera því við, að
mikið annrfki væri meðal starfs-
fólksins.
Hvað annrfki snerti kvað Ragn-
ar vera átt við Friendship-
vélarnar, sem einnig ættu að fara
I skoðun. Þessar skoðanir eru ár-
legar og hafa til þessa verið fram-
kvæmdar hér á hverju ári. Kvað
Framhald á bls.43
10 þús. skjálft-
ar á 12 dögum
FJÖLDI jarðskjálfta á Kelduhverfissvæðinu og f Mývatnssveit sem
funduzt dagana 20. til 31. desember mun „vart hafa verið lægri en
5.000, en getur vel hafa verið 10.000“. Frá þessu er skýrt f „Skjálfta-
bréfi", sem Raunvfsindastofnun Háskólans og Veðurstofa tslands gefa
út sameiginlega og fjallar um helztu jarðskjálfta á Islandi f desember
1975.
I yfirliti yfir jarðskjálfta á land-
inu segir: „Eftir tiltölulega rólegt
haust og fyrri hluta vetrar er eins
og hrikt hafi í flestum saumum
fósturjarðarinnar f seinni hluta
desember. Lítil jarðskjálftahrina
varð í Borgarfirði á fremur
óvenjulegum stað, meiri háttar
hrinur urðu á Reykjanesskaga og
við Grfmsey. Rétt er að geta nokk-
urra skjálfta við Surtsey og undir
Mýrdalsjökli. Síðast en ekki sfzt
Snjóblásar-
inn hakkaði
bílinn í sig
Siglufirði 24. jan.
ÞAÐ bar til á Sigluf jarðarvegi
í gærkvöldi, að öflugur snjó-
blásari ók framan á nýjan
fólksbíl og hreinlega hakkaði
framhluta bílsins f sig þannig
að hann er stórskemmdur á
eftir. Ökumanninum tókst að
henda sér út úr bflnum og
slapp hann ómeiddur.
Atvik þetta gerðist í austan-
verðum Skriðunum. Blásari
þessi er nýkominn hingað
norður og var verið að reyna
hann þegar óhappið gerðist.
Fólksbíllinn er nýr Volvo og
hafði eigandinn verið að sækja
hann til Reykjavfkur. Þegar
hann mætti snjóblásaranum
var hann með full Ijós og
blikkaði þeim ákaft en stjórn-
andi snjóblásarans varð hans
ekki var. Þegar aðeins voru
nokkrir metrar á milli bflsins
og blásarans ákvað bílstjórinn
að henda sér út úr bílnum.
Komst hann upp á ruðninginn
og gat gert stjórnandanum við-
vart.
Snjóblásararnir eru stórvirk
og góð tæki en ég tel að nauð-
synlegt sé að tveir menn vinni
við þau, annar á útkikki til að
fyrirbyggja að svona gerist
aftur. m.j.
byrjaði mikil jarðskjálftahrina í
Þingeyjarsýslum hinn 20. desem-
ber og stendur hún enn.“
Mesti kippurinn á þessu tfma-
bili varð f jarðskjálftahrinu í
Þingeyjarsýslum hinn 25. desem-
ber klukkan 22.05 og mældist
hann 5,3 stig á Richterskvarða.
Voru upptök hans norður undir
Kópaskeri.
I „Skjálftabréf" rita Páll Ein-
arsson, Ragnar Stefánsson,
Eysteinn Tryggvason, Egill
Hauksson og Helgi Björnsson, en
hinn sfðastnefndi fjallar f bréfinu
sérstaklega um jökulhlaup og
jarðskjálfta f Mýrdalsjökli í nóv-
ember 1975.
Þess ber að geta að langmesti
kippurinn í þessum hrinum í
Þingeyjarsýslum varð 13. janúar
og mældist 6.3 stig. Upptök hans
voru f Axarfirðinum, skammt frá
Kópaskeri, sem frægt er orðið, en
þar urðu' miklar skemmdir á
mannvirkjum.
Bræla á loðnu-
miðunum
BRÆLA hefur verið á loðnumið-
unum og hafa flest skipin legið f
vari. Gfsli Arni kom þó inn til
Vopnafjarðar I gærmorgun og
landaði einhverjum slatta af
loðnu, um 50 iestum. Veður fór
batnandi á miðunum og f gær
voru þar fá skip, m.a. Guðmundur
RE.
Allmörg loðnuskip höfðu legið
inni á Seyðisfirði, en vegna þess
að veður fór skánandi, voru þau
að tínast út í gær. Arni Friðriks-
son, rannsóknaskipið, lá i gær og
hafði legið í hálfan annan sólar-
hring í vari við Hólmanes á
Reyðarfirði. Hjálmar Vilhjálms-
son, leiðangursstjóri, bjóst við
því, er Mbl. ræddi við hann í gæi,
að skipið færi hvað úr hverju að
halda út á miðin. Þegar síðast
fréttist var loðnan, þar sem hún
var komin syðst, á móts við Glett-
inganes.
Ljósmynd Mbl. Fríðþjófur.
Slappað af yfir kaffisopa og meðlæti í Miðbænum.
Bátaflotinn mann-
aður óven ju fljótt
Vertíðarsvipur að færast yfir — rysjótt tíð til sóknar
VIÐ höfðum samband við nokkrar verstöðvar f gær og inntum frétta af
byrjun vetrarvertfðar. Það hefur gengið övenju vel að manna bátaflot-
ann og mun betur en undanfarin ár, en tfð hefur verið rysjótt að
undanförnu og afli þvf mjög misjafn. Einstaka hafa þó aflað vel og alls
staðar er vertfð að komast f fullan gang, yfirleitt helmingur bátaflot-
ans og liðlega það byrjaður veiðar. Fer hér á eftir spjall við menn frá
Vestmannaeyjum, Þorlákshöfn, Grindavfk og Höfn f Hornafirði.
„Það verða gerðir út liðlega 60
bátar frá Vestmannaeyjum f
vetur," sagði Gísli Sigurðsson hjá
Otvegsbændafélagi Vestmanna-
eyja, „og það hefur gengið þolan-
lega að ráða mannskap á flotann.
Þó vantar einn og einn á nokkra
báta, en það er nú ekki óalgengt f
upphafi vetrarvertfðar. Milli 20
og 30 bátar eru byrjaðir hér á
netum og trolli og 9 loðnubátar
eru ýmist að hefja veiðar eða eru
byrjaðir. Afli netabáta og troll-
báta hefur verið fremur slakur
það sem af er enda einmuna slæm
tíð.“
LÖGREGLAN fékk f gærmorgun
tilkynningu um að maður lægi
meðvitundarlaus f húsi einu í
Vesturbænum. Maðurinn, sem er
á sjötugsaldri, var fluttur á Borg-
arspítalann og var hann ekki
Sigurður Jónsson hafnarstjóri í
Þorlákshöfn kvað hafa gengið
ágætlega að manna flotann þar en
um 25 bátar verða gerðir út frá
Þorlákshöfn f vetur og þar af eru
20 heimabátar. Hinir eru frá nær-
liggjandi stöðum. Sigurður kvað
einn bát byrjaðan á lfnu en aðra á
netum. Lfnubáturinn er lftill
bátur og eru á honum fjórir
menn. Þeir hafa róið með 15 bjóð
og hafa hreinlega mokað upp
ýsunni, oft um 5 tonn f róðri.
Netabátarnir hafa verið austur
í Kanti og þeir hafa fengið allt
upp í 30 tonn af ufsa og meðalafl-
kominn til meðvitundar þegar
Morgunblaðið hafði sfðast fregnir
f gær. Maðurinn mun hafa lent f
átökum við annan mann f um-
ræddu húsi f fyrrinótt. Mál þetta
er f rannsókn.
inn hefur verið 10—15 tonn.
Sigurður kvað vertíðarsvipinn
óðum færast yfir höfn og byggð.
Danfel Haraldsson vigtarmaður
f Grindavfk tjáði Mbl. að það
hefði gengið vel að manna flotann
þar og væru allir komnir með
mannskap. „Það hefur gengið
betur en undanfarin ár að manna
bátana," sagði Danfel, en 45 bátar
verða gerðir út frá Grindavfk í
vetur og væntanlega verða
aðkomubátarnir þar um 15.
„Bátarnir eru byrjaðir á lfnu og
__________Framhald á bls.43
Rólegt á
miðunum
RÓLEGT var á miðunum fyrir
Norðausturlandi f gær, en þá voru
33 brezkir togarar að veiðum
norður af Rifstanga. Annar hópur
var nokkru sunnar.
Með togurunum 33 var
Miranda, Othello, Lloydsman og
Euroman, en með hópnum, sem
var sunnar, mun Statesman hafa
haldið sig. Tvö varðskip voru á
miðunum, Ægir og Óðinn.
Meðvitundarlaus eftir átök