Morgunblaðið - 11.02.1976, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRUAR 1976
KVENFÉLAGIÐ Seltjörn á Seltjarnarnesi hefur fært Valhúsaskóla tvo vefstóla
að gjöf og var formleg afhending stólanna f skólanum í gærmorgun að viðstöddum
nemendum skólans. Stólana afhenti Elfsabet Jónsdóttir, formaður Seltjarnar, en
Ölafur H. Óskarsson skólastjóri veitti þeim viðtöku. Stólarnir eru tveir og frekar
litlir, en vonast er til þess að vefnaður geti orðið að valgrein í skólanum er fram
liða stundir.
— Ljósm.: Kristinn Ólafsson.
Heimilishjálp veitt
585 heimilum 1974
HEIMILISHJALPIN í Reykjavlk
veitti á árinu 1974 585 heimilum
aðstoð, í 105.105 vinnustundir.
Þar störfuðu á árinu 7 stúlkur og
17 í tfmavinnu við heimilishjálp í
SÉRSTÖK neyðarþjónusta
Pósts og síma tók til starfa
á Sauðárkróki í fyrrinótt
og eykur hún mjög öryggið
í bruna- og sjúkravörnum
sveitanna í Skagafirði.
Afbragðs línuafli
Vestfjarðabáta
Isafirði 10. feb.
AFLI hefur haldizt góður hjá
línubátunum i þessum mánuði.
Hafa þeir komizt hæst í 11 lestir
en meðalaflinn er röskar 7 lestir í
róðri. Eru stærri línubátarnir
allir komnir með yfir 50 lestir í
mánuðinum.
Afli togaranna hefur aftur á
móti verið fremur tregur. Lönd-
uðu þeir allir i seinustu viku
40—55 lestum eftir 6 daga útivist.
— Fréttaritari.
viðlögum vegna veikinda eða for-
falla húsmóður um stundarsakir
og 72 stúlkur hjá heimilisþjón-
ustunni fyrir aldraða, þar af 29
heilsdagsstúlkur og 9 hálfan dag-
Þetta mál hefur lengi verið
á döfinni og hefur ekki
fengizt fjárveiting frá
Landssímanum til
þessarar þjónustu fyrr en
nú. Fyrir nokkrum vikum
lagði Eyjólfur Konráð
Jónsson alþingismaður
fyrirspurn fyrir ráðherra á
Alþingi um þetta mál og
nú hefur þessi þjónusta
sem sagt verið tekin upp.
Ólafur Stefánsson stövðarstjóri
Pósts og síma, sagði i viðtali við
Mbl. í gær, að í héraðinu væru
margar stöðvar sem sveitasímar
væru tengdir við. Þetta neyðar-
kerfi gefur bæjunum tækifæri til
þess að kalla upp stöðvar sínar
hvenær sólarhrings sem er og
gefur stöðin samband við Sauðár-
krók. Þetta hefur verið baráttu-
mál sýslunefndar Skagafjarðar í
alllangan tíma.
inn. Þetta kemur fram í skýrslu
Félagsmálastofnunar Reykjavfk-
ur fyrir árið 1974.
I skýrslunni kemur fram að
heimilum, sem fá slíka aðstoð
fjölgar jafnt og þétt, úr 285 á
árinu 1965 í 585 1974, en 1973
voru heimilin 509.
Heimilishjálpar til aldraðra
nutu 326 heimili á árinu 1974 og
var 226 heimilum veitt eftirgjöf á
gjaldi að fullu. Heimilishjálpar í
viðlögum nutu 259 heimili, þar af
var 41 heimili veitt eftirgjöf að
fullu af gjaldi.
Segir i skýrslunni, að markmið
allrar heimilishjálpar sé að koma
í veg fyrir upplausn og gera ein-
staklingum kleift að vera sem
lengst í heimahúsum. Vel skipu-
lögð heimilishjálp dragi úr álagi á
sjúkrahús og ýmsar stofnanir og
geti í mörgum tilfellum komið i
staðinn fyrir margfalt kostnaðar-
samari úrræði. Jafnframt sé
heimilishjálp þýðingarmikill
þáttur i öllu endurhæfingarstarfi.
Auk þess em hér er talið starf-
aði hjá Félagsmálastofnun hjúkr-
unarkona í hálfu starfi síðari
hluta árs 1974 og heimsótti aldr-
aða í heimahúsum, sem líkur voru
fyrir að þörfnuðust hjúkrunar-
heimilisvistar. Voru heimsóttir
þeir, sem stofnunin hafði vitn-
eskju um að þörfnuðust sérstakr-
ar aðstoðar og kannað heilsufar
þeirra, húsnæðisaðstaða, fjárhag-
ur og félagsleg aðstaða.
Ney ðarþ j ónustukerf i
í notkun í Skagafirði
133 karlar og 17 konur sóttu
gistiskýli fyrir áfengissjúka
I nýútkominni ársskýrslu Félagsmálastofnunar Reykja-
víkur borgar yfir árið 1974 kemur m.a. fram, að það ár
gistu 10,6 gestir á nóttu að meðaltali í gistiskýlinu fyrir
heimilislausa áfengissjúklinga f Þingholtsstræti 25, en
yfir árið gistu þar 133 einstaklingar að meðaltali 29,2
gistinætur. Samtals voru nýttar 3882 gistinætur. Hefur
gestum fjölgað stöðugt síðan gistiskýlið tók til starfa f
október 1969, Skýlið er rekið 365 nætur á ári og er opið
frá 19.30 til 10 á morgnana. En nú nýlega var einnig
opnuð dagstofa, sem þessir menn geta dvalið í á daginn.
A árinu 1974 voru gestir gisti- 11 komið á sjúkrahús 26 á hæli, 36
skýlisins aðstoðaðir á ýmsan hátt, útveguð vinna og 20 útvegað
húsnæði. Segir í skýrslunni að
rætt hafi verið um möguleika á að
stofna lítið heimili fyrir áfengis-
sjúklinga, sem taldir eru i aftur-
bata eftir dvöl á hæli eða sjúkra-
húsi og verið óskað eftir framlagi
til stofnunar slíks.
Gistiheimili fyrir konur var
opnað 23. des. 1973 og var 1974
þvi fyrsta heila árið, sem þessi
starfsemi var rekin. A heimilinu
gistu 17 konur samtals 2.315
nætur eða að meðaltali 6,4 konur
á hverri nóttu.
Sneri til baka með
brezkan sjómann
BREZKA aðstoðarskipið Hausa kom inn til Norðfjarðar í gærmorgun
klukkan 08 með veikan hrezkan togarasjómann. Togarasjómaðurinn
hafði lærbrotnað árið 1969 og hafði verið negldur á sjúkrahúsi í
London. Er skip hans fékk á sig sjó á föstudag, fékk togarasjómaður-
inn hnikk á fótinn, þannig að meiðslin tóku sig upp og leið honum illa.
Bað Hausa um leyfi til þess að fara inn til Seyðisf jarðar, en skipið kom
eins og áður sagði til Neskaupstaðar i gærmorgun.
Læknir var um borð i Hausa,
sem lá úti á firðinum á Norðfirði.
Ræddi skipslæknirinn við yfir-
lækninn á Fjórðungssjúkra-
húsinu á Neskaupstað, Daníel
Danielsson, oftar en einu sinni og
voru læknarnir sammála að ekki
væri um hættutilfelli að ræða og
spurning aðeins, hvað bezt væri
fyrir manninn, að flytja hann i
land á Neskaupstað eða flytja
hann utan til Bretlands, en slíkt
hefði tekið fjóra sólarhringa. Var
það niðurstaða læknanna að ekki
skipti öllu máli, hve fljótt maður-
inn kæmist á sjúkrahús og fór
skipið um hádegisbil frá Norð-
firði.
Dómsmálaráðuneytið gaf
heimild til þess að maðurinn yrði
fluttur í land á Norðfirði með því
skilyrði að íslenzkir læknar
önnuðust hann eingöngu. Sam-
kvæmt upplýsingum Þórðar
Einarssonar í utanríkisráðuneyt-
inu, sem ræddi við yfirlækninn á
Neskaupstað kvað hann mjög
hugsanlegt að naglinn í lærlegg
mannsins hefði við hnikkinri, sem
hann fékk á fótinn, getað farið úr
Ljósm. Leif Bryde.
SKEMMDIRNAR á varð
skipinu Tý eftir ásiglingu
brezku freigátunnar Juno
á föstudaginn.
Nýjar klukkur í
Isafjarðarkirkju
Isafirði, 10. feb.
A SUNNUDAGINN voru vigðar
tvær nýjar kirkjuklukkur f Isa-
fjarðarkirkju. Fyrir var f kirkj-
unni ein gömul klukka, 70 kfló á
þyngd, frá árinu 1782. Hin
klukkan sem fyrir var f kirkjunni
var send út til Þýzkalands fyrir
seinna strfð til viðgerðar þar sem
sprunga var komin 1 hana, en hún
mun hafa glatast f hildarleik
styrjaldarinnar. Hefur þvf aðeins
verið ein klukka á undanförnum
árum.
Hinar nýju kirkjuklukkur eru
125 kg og 205 kg að þyngd. Eru
klukkurnar samtengdar og slætti
stjórnað með rafmagni. Sóknar-
presturinn, sr. Sigurður
Kristjánsson, vígði klukkurnar en
formaður sóknarnefndar, Öli J.
Sigmundsson, gerði grein fyrir
kaupunum og framkvæmdum við
uppsetningu. Einnig söng kirkju-
kór Isafjarðarkirkju, undir stjórn
Ragnars H. Ragnar en sr. Gunnar
Björnsson og Ölafur Kristjánsson
iéku á celló og pianó. —
Fréttaritari.
lagi og gætu fylgt þvi óþægindi og
jafnvel hiti. Daniel Daníelsson
skoðaði ekki sjúklinginn en eins
og áður sagði varð að samkomu-
lagi milli skipslæknisins og yfir-
læknisins að maðurinn þyrfti
ekki að komast á sjúkrahús í
grænum hvelli.
Brezka sendiráðið hafði siðan,
eftir að Hausa fór frá Norðfirði,
samband við ráðuneytin og
spurði, hvort svo harðneskjuleg
viðbrögð yrðu við beiðni Breta
um að mega flytja manninn af
skipinu og til Bretlands um Egils-
staði og Reykjavik, þar sem hann
þyldi illa sjógang. Var þá aftur
bent á að honum væri heimilt að
fara á sjúkrahús.
I gærkveldi sótti Hausa aftur
um að fá að koma inn til Nes-
kaupstaðar með sjúkan mann.
Var skipinu veitt það leyfi, en
ekki var ljóst, hvort um sama
sjúkling var að ræða og í gær-
morgun eða einhvern annan.
Ölteiti hjá Kísil-
iðjumönnum
Björk Mývatnssveit 9. feb.
ARSHÁTlÐ starfsmannafélags
Kísiliðjunnar var haldin í Hótel
Reynihlíð 6. þm. og hófst hún með
borðhaldi kl. 20.30. Á annað
hundrað manns sóttu þessa hátíð.
Á borðum voru óteljandi kaldir
réttir, stórkostlega myndarlegt.
Formaður félagsins og foringi,
Snæbjörn Pétursson, setti hátið-
ina og stjórnaði henni af miklum
myndugleik. Meðan á boróhaldi
stóð voru ýmis skemmtiatriði af
léttara taginu. Einnig söng Karla-
kórinn Hrellir. Einar Njálsson frá
Húsavik, stjórnarmaður Kísiliðj-
unnar, kvaddi sér hljóðs. Kvað
hann Magnús Jónsson banka-
stjóra, formann stjórnarinnar,
hafa hringt til sín og beðið sig að
mæta i sinn stað á hátiðinni og
færa félaginu bestu kveðjur sínar
og árnaðaróskir. Jafnframt því
sem félagið þakkar kveðjur og
óskir Magnúsar færir það honum
hugheilar þakkir fyrir. Að loknu
borðhaldi og andlegri næringu
var dansað af miklu fjöri fram
eftir nóttu.
Það er mál manna sem þesst
hátið sátu að hún hafi tekizt með
afbrigðum vel. Á laugardagskvöld
voru skemmtiatriði endurtekin
fyrir börn og fleiri gesti. Fram-
leiðsla var stöðvuð hjá Kísiliðj-
unni i einn sólarhring vegna árs-
hátiðarinnar.
— Kristján.
Árshátíð í
Kópavogi
ARSHATÍÐ sjálfstæðisfélaganna
í Kópavogi, og 25 ára afmæli
sjálfstæðisfélags Kópavogs, verð-
ur haldin f félagsheimili Kópa-
vogs laugardaginn 21. febrúar kl.
20.
Fyrir 25 árum, var sjálfstæðis-
félag Kópavogs stofnað, fyrsti for-
maður var Jón Sumarliðason og
aðrir I stjórn voru Einar Vítalin,
María Vilhjálmsdóttir, Guðrún
Erlendsson og Gestur Gunnlaugs-
son. Núverandi stjórn er, formað-
ur Þór Erling Jónsson og aðrir í
stjórn eru Hilmar Björgvinsson,
Skúli Sighvatsson, Erling Hanns-
son, Guðrún Berndsen og Krist-
inn Skæringsson.
Starfsemi félagsins hefur verið
góð síðastliðið ár. Miðar á árshátíð
og 25 ára afmæli félagsins fást hjá
formönnum félaganna og kostar
miðinn 2500 kr. upp. í símum
42478—42454.