Morgunblaðið - 11.02.1976, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 11.02.1976, Blaðsíða 5
 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1976 Nemendamót Verzlunar- skólans NEMENDAMÓT Verzlunarskóla tslands verður haldið ( kvöld ( Austurbæjarbfói og Sigtúni. Verður þar margt til skemmtun- ar, m.a. verða sýndir tveir ein- þáttungar eftir Odd Björnsson. Skemmtiatriði mótsins verða sýnd almenningi á laugardaginn klukkan 14 i Austurbæjarbfói. Miðasala er við innganginn. Leikstjóri einþáttunganna er Sigrún Björnsdóttir leikkona. Verzlunarskólakórinn kemur fram og syngur lög eftir Simon og Garfunkel undir stjórn Rúnars Vilbergssonar og er þetta frum- raun hans sem stjórnanda. Sýndir verða dansar frá árunum í kring- um 1940 og Sigrún Magnúsdóttir syngur frumsamin lög og leikur undir á gitar. Margt fleira verður á dagskránni. Verzlunarskóla- nemendur koma fram í öllum atriðunum og þeir hafa unnið alla undirbúningsvinnu sem er geysi- mikil. Myndin er úr einu atriði i ein- þáttungum Odds Björnssonar. Stjórn Bandalags kvenna f Reykjavfk. Fremri röð, talið frá vinstri: Halldóra Eggertsdóttir, Unnur Agústsdóttir og Margrét Þórðardóttir. Aftari röð: Guðrún S. Jónsdóttir, Sigþrúður Guðjónsdóttir og Sigrfður Ingimarsdóttir. Bandalag kvenna í Reykjavlk þakkar varðskipsmönnum Nokkrir urðu ríkari: Dregið í happdrætti w Háskóla Islands INNLENT AÐALFUNDUR Bandalags kvenna f Reykjavfk var haldinn að Hótel Sögu 8. og 9. febrúar. Stjórnina skipa: Unnur Agústs- dóttir formaður, Halldóra Eggertsdóttir varaformaður og ritari og Margrét Þórðardóttir féhirðir. Varastjórn skipa: Sigrfð- ur Ingimarsdóttir, Sigþrúður Guðjónsdóttir og Guðrún S. Jóns- dóttir. Endurskoðendur: Þórunn Þriðjudaginn 10. febrúar var dregið í 2. flokki Happdrættis Háskóla tslands. Dregnir voru 8.640 vinningar að fjárhæð 110,070,000 krónur. Hæsti vinningurinn, nfu milljón króna vinningar, komu á númer 57811. Trompmiðinn og þrír heilmiðar af þessu númeri voru seldir í umboði Arn- dísar Þorvaldsdóttur að Vesturgötu 10. H-miðinn var svo seldur í umboði Reynis Eyjólfssonar f Hafnarfirði. Þann miða átti maður, sem spilar á röð af miðum og fær því einnig báða aukavinning- ana. 500,000 krónur komu á númer 26235. Voru allir miðarnir af þessu númeri seldir i AÐALUM- BOÐINU i Tjarnargötu 4. Einn viðskiptavinur happdrættisins átti bæði trompmiðann og fernur Sýning um franska kvikmyndalist UM sfðustu helgi var opnuð f franska bókasafninu á Laufásvegi 12 sýningin „Byrjun franskrar kvikmyndalistar" og verður hún opin f hálfan mánuð kl. 17.00 til kl.'19.30. I sýningarsalnum er Ijósmyndir úr kvikmyndum frá þvi á fyrstu árunum í franskri kvikmyndalist og eru skýringartextar á frönsku og íslenzku. Má.þar rekja þróun kvikmyndanna. I öðrum sýningar- sal eru stöðugt sýndar fjórar kvik- myndir, sem eru sögulega merki- legar, þ.e. „Fyrirrennarar kvik- myndlistarinnar'1, „Uppfinningar Lumiere-bræðranna", sem sýnir fyrstu upptökuvélina og byrjun á fréttakvikmyndun, „George Melies“og „Judex" eftir Franju. Al'GLÝSINGASÍMIXN ER: 22480 JS«r0unbIabib af þessu númeri og fær því vinninginn nífaldan eða fjórar og hálfa milljón króna. 200,000 krónur komu á númer 8848. Trompmiðinn ásamt H- miðanum voru seldir í AÐALUM- BOÐINU í Tjarnargötu 4. Hinir þrír miðarnir voru seldir í um- boðunum á AKUREYRI, DALVIK og BÍLDUDAL. 50.000 krónur: 2754 — 5415 — 5792 — 8277 — 9524 — 10325 — 12645 — 13153 — 14453 — 15077 — 17065 — 17446 — 22451 — 31892 — 33095 — 35936 — 38125 — 39002 — 39181 — 42254 — 51600 — 56243 — 57810 — 57812. Frfi fundi Bandalags kvenna. Valdimarsdóttir og Lóa Kristjáns- dóttir. I Bandalagi kvenna í Reykjavík eru 29 aðildarfélög með á 12. þúsund félagsmönnum. Þingið starfaði í tvo daga. Guðjón Petersen forstjóri Al- mannavarna ríkisins flutti erindi á þinginu um almannavarnir Reykjavikurborgar. Margar nefndir innan bandalagsins skiluðu ályktunum, sem siðar verða sendar til birtingar. I lok fundarins var eftirfarandi yfirlýsing samþykkt samróma: „Aðalfundur Bandalags kvenna í Reykjavik vitir harðlega það of- beldi, sem brezki flotinn hefur frammi í íslenzkri landhelgi þar sem hann ekki vilar fyrir sér að ráðast gegn varðskipum okkar við skyldustörf sín, sem fyrst og fremst eru þau að vernda lífs- hagsmuni þjóðarinnar, það er fiskimiðin og friðuðu svæðin, auk þjónustu og björgunarstarfa. Fundurinn vottar skipherrum og öðrum varðskipsmönnum þakk- læti sitt og aðdáun fyrir hugrekki og árvekni í starfi." Hvenær hentar þér að fara í bankann þinn? Er hann opinn þá? Allan daginn er einhver afgreiósla Verzlunarbankans opin, frá klukkan 9 ■ 30 aó morgni til klukkan 7 00aÓ kvöldi. KL. 9 10 -11 12 13 14 15 16 17 18 19 AÐALBANKINN BANKASTRÆTI 5 SÍMI 27200 UTIBUIÐ LAUGAVEG1172 SÍMI 2 01 20 AFGREIÐSLAN UMFEROARMIÐSTÖÐ SÍMI 2 25 85 BREIÐHOLTSUTIBÚ ARNARBAKKA 2 SÍMI 74600 Veldu þér banka sem er opinn þegar þér hentar. VéRZLUNflRBfiNKINN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.