Morgunblaðið - 11.02.1976, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 11.02.1976, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRUAR 1976 Núgildandi Frumvaxpifl rcglur 1. Aflairygginííasjóður: % m.kr. % m.kr. a'i Almenn deild 22 500 7.7 401 b) Ahafnadeild 20 500 9.3 554 2. Trvggingasjóður fiskiskipa 27 013 19.8 1 182 .1. Kiskveiðasjóður Fiskimólasjóður a'í Til lánastarfsemi 21 477 8.4 497 4. b'' Til stvrkveilinga lil rannsókna. tilrauna og markafiseflingar Til sjávarrannsókna og framleiðslueftirlits 0.0 20 sjávarafurffa 2.3 53 1.0 02 r>. Til samtaka sjómanna og útvegsmanna . . o.s 18 0.2 13 r>. Til Oliusjóðs 53.6 3 190 Snmtals ton.n 2 271 100.0 5 905 — Olíusjóður lagður niður Framhald af bls. 28 urða, er ko*ni f stað núgildandi ákvæða. Frumvarp.s:'!'''*-''’ sem ná til framangreindra atriða, þýða, ef að lögum verða tæplega fjögra milljarða tilfærslu frá fjárráðstöf- um sjóðakerfis til fiskverðshækk- unar. Þessí umfang.srnikia breyting á sjóðakerfi sjávarútvegs er háð þvf, af hálfu st. órnvalda, að samn- ingar náist miili hagsmunaaðila í sjávarútvegi, sjómanna og útgerð- ar, um kjarasamninga og breyt- ingar á gildandi hlutaskiptaregl- um. Matthías Bjarnason sjávarút- vegsráðherra las upp i þingræðu i gær bréf frá hagsmunaaðilum, þess efnis, að þeir stefni að samn- ingum stn á milli á grundvelli framangreindra atriða. Sem fyrr segir er meginefni frumvarpanna að olíusjóðurinn verði lagður niður og hlutur tryggingarsjöðs fiskiskipa í út- flutningsgjaldi lækki um nálægt helming. Aflatryggingarsjóður starfar áfram með svipuðum tekj- um. Frétt þossari fvleir sgýring- tafla er sýnir ljóst þær breyt- ingai, sem vefða á sjóðakei finu, ef framangreind Ivö frumvörp verða að lögum og skiptingu 6% útflutningsgjaldsins. Er hún mið- uð við gengi og verðlag i október 1975. Ráðherra gat þess í framsögu að á Aflatryggingarsjóði hvíldi skuldabyrði, sem svaraði um helmingi ársveltu hans, og væri að hluta óleyst, með hvaða hætti snúizt yrði við þeim vanda. — Ingólfur Jónsson Framhald af bls. 10 ursslaðla. sem það hefur undír- búið að hiifðu saniráði við Náttúruverndarráð og Heil- brigðismálaráð Hafnarfjarðar, og eru þeir staðlar nú til umræðu við Heilbrigðiseftirlitið. Hin fyrir- huguðu þurrhreinsitæki eru fu 11 - komnasti búnaður, sem vö! er á yfirleitt til hreínsunar á útblæstri áliðjuvera. Er því engin ástæða til þess að ætla annað en að fyllsta samkomulag geti orðið við heil- brigðisyfirviild um uppsetningu og rekstur tækjanna. I samningum ríkisstjórnarinnar og Alusuisse um annan viðauka við aðalsamning þeirra frá 28. marz 1966, sem nú liggur fyrir Alþingi tíl staðfestingar, er kveðið á um heimíld handa ISAL til að stækka áliðjuverið i Straumsvik með lengingu á kerskála II, eða sem svarar að aukningu um 1/7 hluta 20 MW, 10.000 árstonn á núverandi afkastagetu. Er notkun þessarar heimildar háð þvi skilyrði af hálfu ISAL, að stækkunin geti talizt fjárhagslega verjandi á þeim tíma, það er til ársloka 1979. Fari svo að þessi heimild verði notuð er fyrirhugað að hafa umrædda viðliót kerskálans búna fullkomnum hreinsitækjum frá öndverðu, og staðfestir ISAL það hér með i samræmi við skilning aðilanna meðan á samningavið- ræðum stóð. Virðingarfyllst, Isienzka álfélagið h/f Halldór H. Jónsson. Ragnar S. Halldórsson." Með því sem hér hefur sagt verið, aútu háttvirtir alþingis- menn að vera sammála um, að mengunarmálum i Álverksmiðj- unni muni verða gerð góð skil, og að fullnægjandi skýringar eru gefnar á þeim drætti, sem orðið hefur á upjisetningu hreinsitækjé í verksmiðjunni. — Prescott Framhald af hls. 1 gangur fararinnar yrði sá að komast að raun um hvers vegna íslendingar hefðu neitað að ganga að tilboði Breta um að minnka árlega veiði sina við Island niður í 65.000 lestir eins og James Callag- han utanrikisráðherra gaf í skyn í siðustu viku. Hann kveðst ekki síður vilja kanna hugmyndir um að það sé fámennur hópur „harðlínu- manna“ sem standi í vegi fyrir samkomulagi. Hann kveðst ekki koma til Reykjavíkur til að semja við Islendinga þótt ferð hans sé kölluð „Öopinber friðarferð" en meðal þeirra áhrifamanna sem fengnir hafa verið til að ræða við hann eru nokkrir alþingismenn. Hingað til hefur Prescott ekki staðið framarlega i fiskveiði- deilunni þar sem hafnir brezkra togara eru ekki i kjördæmi hans, Hull East, þótt togaramenn séu i hópi kjósenda hans og hann segist hafa áhyggjur fyrir þeirra hönd. Prescott á sæti á Evrópuþing- inu í Strassborg og hefur oft talað um sjávarútvegsmál á þeim vett- vangi. Hann hefur oft verið á önd- verðum meiði við James Johnson, þingmann þess kjördæmis i Hull þar sem hafnir togaranna eru. Johnson er miklu vinstrisinnaðri og Prescott finnst hann alltof lin- ur formælandi i sjávarútvegs- málum, þótt Johnson sé fylgjandi hörðustu afstöðunni sem Bretar geta tekið í fiskveiðideilunni við Islendinga. Johnson hefur verið mjög mikill harðlínumaður i deilunni við íslendinga, en Prescott hefur verið miklu fúsari til að setja sig i spor Islendinga, segir fréttaritari Mbl. í Hull, Mike Smartt. Prescott sagði þegar hann skýrði frá Reykjavikurferð sini að dr. Joseph Luns, aðalfram- kvæmdastjóri NATO, kæmi til Reykjavíkur sama dag og hann til að miðla málum í deilunni. — Hugmyndir sáttanefndar Framhald af bls. 28 aðilum frá hvorum samnings- aðila. Mun nefndin taka fyrir þá valkosti, sem lífeyrissjóðanefnd ríkisstjórnarinnar lagði fram. Er fundur á morgun í þessari nefnd, svo og veikinda- og trygginga- daganefnd, allsherjarnefnd og fleiri nefndum. Björn Jónsson, forseti ASl, sagði að forysta ASl viðurkenndi þessar hugmyndir sáttanefndar- innar og sáttasemjara sem breytt- an grundvöll til þess að tala út frá, „en við höfum ýmislegt við þetta að athuga og teljum að þetta út af fyrir sig leysi ekki málið. En við vonum það að þessi tillaga þýði það að málin séu farin að hreyfast og snúi þá til réttari áttar,“sagði Björn Jónsson. Ölafur Jónsson, framkvæmda- stjóri VSl, vildi ekki segja skoðun sína á hugmyndum sáttanefndar i gærkveldi. Hann sagði að vinnu- veitendur hefðu enn ekki þingað neitt um málið og umræður um hugmyndir sáttanefndar hefðu enn ekki hafizt. — Fer Júlíana? Framhald af bls. 1 beðinn að bera vitni í yfirheyrsl- um f Tokyo vegna Lockheeds- málsins þar, fréttir herma að samkvæmt skýrslum Lockheed hafi embættismönnum f Mexfkó verið mútað, framkvæmdastjóri flugfélags f Hong Kong sagði af sér í dag og forsegi Kólombfu sagði að ásakanir um að yfirmenn í flugher landsins hefðu þegið mútur af fyrirtækinu vrðu ftar- lega rannsakaðar. Hollenzkir embættismenn sögðu f dag að ef rannsóknar- nefndin sem nú hefur verið skip- uð kæmist að þeirri niðurstöðu að Bernharð prins hefði þegið mútur mundi Júlíana drottning senni- lega leggja niður völd og Beatrix krónprinsessa taka við. Þeir kváð- ust efast um að nefndin kæmist til botns i málinu og sögðu að hver sem niðurstaðan yrði mundi konungsfjölskyldan aldrei þvo af sér þann blett sem hefði fallið á hana. Nefndin er skipuð einum dóm- ara, dr. Andreas Donner, og tveimur fjármálasérfræðingum, dr. Marius Holtrop og Henri Pesc- har. Ekki er vitað hvort nefndin mun beinlínis yfirheyra Bern- harð prins en búizt er við að hún reyni að yfirheyra yfirmenn Lockheeds í Bandaríkjunum og Fred Meuser, fyrrverandi sölu- stjóra Lockheeds í Evrópu. Meuser er sagður hafa verið náinn vinur prinsins og var um tíma búsettur í Bandaríkjunum en býr nú í Sviss. Margir Hollend- ingar vona að hafi prinsinn þegið mútur hafi hann látið fé renna til margskonar góðgerðarstarfsemi sem hann hefur hjálpað. Samkvæmt hollenzkum lögum verður þjóðhöfðingi landsins að leggja niður völd ef það er sam- þykkt i báðum þingdeildum. Ef mútur verða sannaðar er talið víst að vinstrisinnar krefjist þess að Júliana drottning leggi niður völd. Verði prinsinn sýknaður mun rannsóknin einnig valda al- varlegum deilum. — Ráðstöfun Framhald af bls. 13 Fiskveiðasjóðs í samvinnu við Samábyrgð Islands á fiskiskipum og sjávarútvegsráðuneytið. Af- staða til umræddra tillagna hefur verið tekin og auglýst eftir um- sóknum. Þess skal getið að allar reglur og ákvarðanir um ráðstöfun gengishagnaðar voru lagðar fyrir rikisstjórnina i hverju tilfelli og ennfremur höfð samvinna við for- menn sjávarútvegsnefnda beggja deiida alþingis. — EBE Framhald af bls. 1 Þá er ráðgert að utanríkisráð- herrarnir eigi viðræðufund svo fljótt sem auðið er, og eru horfur á að hann verði haldinn 1. eða 2. marz. Talið er vist, að niðurstaða ráðherranna verði sú að 200 mílna reglan sé óhjákvæmileg og enda þótt sum bandalagsríkin telji hana í andstöðu við hags- muni sína verði aðildarrikin að standa saman um þá stefnu. Á ráðherrafundinum á mánu- daginn var virtist helzta vanda- málið vera sameiginleg fiskveiði- stefna aðildarríkjanna níu en slík stefna mundi hafa í för með sér að þau yrðu að skipta með sér aflanum innan 200 mílna og á friðunarsvæðum þar sem nauð- synlegt er að takmarka veiðar. Tillögur um samskipti við riki utan bandalagsins hvað fisk- veiðar snertir komu ekki fram á fundinum en eru vætanlegar síðar. Likur benda ekki til þess að aðildarríki Efnahagsbandalagsins samræmi stefnu sína i fiskveiði- málum að öllu leyti á næstunni. Trúlegra þykir að I ýmsum atriðum muni ríkin gefa sér ráðrúm til að láta þessi mál þróast enn um sinn. I atkvæðagreiðslum á hafréttarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna greiða aðildarríkin at- kvæði hvert fyrir sig, en talið er að reynt verði að skapa með þeim samstöðu við lokaatkvæða- greiðslu á ráðstefnunni. — 44brezkir Framhald af bls. 28 ina um friðun svæðisins útaf Langanesi. Þeim var því full- kunnugt um þessa friðun enda þótt hún hafi ekki verið til- kynnt þeim formlega af utan- ríkisráðuneytinu, þar sem þeir eiga engan rétt á veiðum innan 200 milnanna. Sjávarútvegs- ráðuneytið lét hins vegar utan- ríkisráðuneytið hafa gögn um friðunina og það sendi þau áfram til Belga og Vestur- Þjóðverja sem veiða hér sam- kvæmt samningum innan 200 milna markanna,“ sagði ráð- herrann að lokum. Eitt brezkt aðstoðarskip bættist i hópinn í gær, Royster- er, dráttarbátur brezka hers- ins. Fyrir voru 3 freigátur, 2 dráttarbátar, 2 eftirlitsskip og eitt birgðaskip. — Niðurskurður Framhald af bls. 28 ur væri aðeins 21,1% af kyndingarkostnaði þeirra, sem kyntu með olíu. Þessi kostnaður var 25,3% fyrir siðustu olíuhækk- un. Jóhannes Zoéga sagði að synj- un yfirvalda í hækkunarbeiðnum Hitaveitunnar þýddu fyrir fyr- tækið lækkun tekna að upphæð 415 milljónir króna auk lækkunar i tekjum af heimæðargjöldum, en óskað var sömu prósentutöku- hækkunar á þá taxta. Hitaveita Reykjavikur hefur verið rekin með halla undanfarin tvö ár. Gengistöp Hitaveitunnar hafa verið talsverð, en séu þau reiknuð með er nettóhalli fyrirtækisins undanfarin tvö ár um 350 milljón- ir króna. Til þessa hefur þessi halli verið bókfærður sem auknar skuldir Hitaveitunnar eða minni eignir. Það getur ekki til eilífðar og þarf því meiri hækkun á gjald- skrám en annars væri þörf. Hækkunarþörfin nú er þess vegna miklum mun meiri en ef gengið hefði verið að óskum hita- veitunnar og fylgt hefði verið skynsamlegri verðlagningu undanfarin ár — sagði Jóhannes Zoega. Jóhannes Zoega hitaveitustjóri sagði að jafnframt gæti svo farið — ef gjaldskrá fengist ekki hækk- uð — að Borgarsjóður Reykjavík- ur og þar með hinn almenni skatt- greiðandi í Reykjavík yrði að borga hallann með sfnum útsvör- um á svipaðan hátt og gert er hjá Strætisvögnum Reykjavíkur. Getur þá dæmið verið komið þannig að Reykvíkingar væru beinlfnis að greiða fyrir kyndingarkostnað íbúa í nágrannasveitaríélögunum. „Auðvitað er engin vitglóra f því að halda þessu áfram á þennan hátt. Vonast ég til, að einhver vitglóra renni upp fyrir forráða- mönnum þjóðarinnar og þess vegna komist þetta í lag á venju- legan hátt, en þó með þvf að á næstu árum — og á þvf er enginn efi — verður gjaldskráin að vera hærri heldur en hún hefði þurft að vera annars. Borgarstjóri sendi iðnaðarráðu- neyti hækkunarbeiðni í ágúst- byrjun, tillögu hitaveitustjóra, um 33% hækkun á gjaldskrám. Formleg beiðni um 15+15% fór ekki fyrr en í september. Ef nú er gert ráð fyrir hækkun um næstu mánaðamót og aðeins miðað við þetta ár þyrfti hækkunin að vera 42% í staðinn fyrir 32. Er þá aðeins miðað við þetta ár og yrði það of mikil hækkun miðað við lengri tíma. „Utlitið er mjög ljótt,“ sagði Jóhannes. „Það er nú þegar orðið ljóst að það verður ekki haldið áfram framkvæmdum f nágranna- sveitarfélögunum fram yfir það sem þegar er umsamið við verk- taka. Aðeins verður lokið við af- ganga af verksamningum og ef svona heldur áfram nær ástandið ekki aðeins til nágrannasveitar- félaganna heldur til Reykjavfkur- borgar einnig." Þær framkvæmdir sem ekki verður unnt að ráðast í eru af- gangar í nágrannasveitarfélögun- um, þriðjungur af Hafnarfirði og þriðjungur af Garðabæ. Kópavog- ur er að mestu búinn og sfðan eru það dreifikerfi í ný hverfi í Reykjavík, sem áætluð eru á árinu, m.a. hluti af nýrri æð í Vesturbæ vegna nýrra hverfa á Eiðsgranda og eins til styrkingar kerfinu f Vesturbæ, sem þörf hefur verið á. Hitt er að mestu í Breiðholti, eitthvað er áætlað í nýjum Miðbæ, eitthvað í iðnaðar- hverfinu fyrir ofan Artúnshöfða og minni háttar annars staðar. Til þess að þetta sé hægt þarf að halda áfram virkjunum á Reykj- um og tekur sú framkvæmd um helming þess fjár, sem áætluð er í framkvæmdir á þessu ári, um 400 milljónir. Ef engin hækkun fæst fram, verður ekki einu sinni hægt að ráðast f það, en það verður þó látið ganga fyrir, þvf að annars verður vatnsskortur næsta vetur. Að lokum sagði Jóhannes Zoéga: „Ætli þetta mál sé ekki eins og það, er bensfnsalinn sagði um árið, þegar maðurinn spurði, hvernig það væri, það hefði engin hækkun orðið á bensínverðinu í nokkra mánuði. Þetta var á vinstri stjórnar árunum og bensfn hafði hækkað á tveggja mánaða fresti. Þá var landhelgismálið i hámarki eins og nú. Bensinsalinn svaraði viðskiptavininum, er hann spurði: „Nei, landhelgis- málið hefur algjöran forgang.““ — Angóla Framhald af bls. 1 hreyfingarinnar SWAPO til landamæra Suðvestur-Afríku samkvæmt heimildum i Jó- hannesarborg. Til þess að ná undir sig Bengu- ela-járnbrautinni, sem kopar er fluttur um til sjávar frá Zambíu og Zaire, verður MPLA að taka bæina Silva Porto og Luso. Silva Porto er hernaðarmiðstöð Unita en stjórnarsetur hreyfingarinnar, Huambo féll f gær. Tanjug segir að fall Silva Porto og Luso sé aðeins „spurning um klukkustundir", þar sem talið sé að suður-afrískir hermenn hafi hörfað frá bæjunum. Fréttastofan hefur eftir áreiðanlegum heimild- um í Luanda að Suður- Afríkumenn hafi dregið saman 4—5,000 manna lið sitt á linu frá Mocamamdes um Sa Da Bandeira til Serpa Pinto. Jafnframt tilkynnti Idi Amin forseti í dag að Ugandastjórn hefði viðurkennt MPLA sem rik- isstjórn Angola. Þar með hafa 26 af 46 aðildarlöndum Einingar- samtaka Afríku (OAU) viður- kennt stjórnina í Luanda. Tuttugu aðildarlönd vilja myndun þjóðeiningarstjórnar en talið er að afstaða Amins geti haft þau áhrif að nokkur þeirra ákveði að styðja MPLA. Um 50 óanægðir brezkir mála- liðar komu til London frá Angola í dag og Harold Wilson forsætis- ráðherra lýsti yfir því á þingi að Iítill vafi virtist leika á þvf að nokkrir félagar þeirra hefðu ver- ið myrtir fyrir að neita að berjast. Wilson tilkynnti að hann mundi fyrirskipa opinbera rannsókn á ráðningu málaliða f Bretlandi. Hann kallaði ráðningarstjórana smáglæpamenn og sagði að þeir væru á sakaskrá. — Enn ósáttir Framhald af bls. 28 „Fulltrúar Farmanna- og fiski- mannasambands íslands telja fyrri kostinn heppilegri. Full- trúi Alþýðusambands Vest- fjarða telur báðar leiðir geta komið til greina, en bendir á að olíufrádráttarleiðin sé liklega einfaldari i framkvæmd. Aðrír fulltrúar sjómanna hallast fremur að sfðari leiðinni, þótt hún kunni að reynast nokkuð flókin í framkvæmd, m.a. vegna sérstakra ákvæða fyrir svart- oliuskip. Fulltrúar útvegs- manna taka ekki beina afstöðu til kostanna tveggja, en telja báða geta komið til greina við gerð kjarasamninga í fram- haldi af lagabreytingum um sjóðina." Leiðrétting: Schmidt vill ekki miðla málum 1 forsiðufrétt Mbl. í gær féll niður orðið ekki, þar sem sagt var frá viðræðum Schmidt og Wilsons og stóð f fréttinni og Schmidt vildi verða miliigöngumaður í land- helgisdeilunni en eins og fram kom í frétt um þetta mál tók hann það fram, að hann vildi það ekki.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.