Morgunblaðið - 11.02.1976, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 11.02.1976, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRUAR 1976 27 Sovézku hjónin báru af í ísdansi á skautum Semtanina vann sekúndubrota- stríðið við Takalo SOVÉZKA stúlkan Raisa Smetania vann I gær gifurlegt sekúndubrota striS við finnsku stúlkuna Helenu Takalo i 10 kilómetra göngu kvenna. Hlaut sovézka stúlkan 87/100 úr sekúndu betri tíma en finnska stúlkan, en slikt verður aS teljast með ólikindum litill munur á svo langri vegalengd. Finnska stúlkan hafði forystu i göngunni til að byrja með og var með 1,05 betri tima en sovézka stúlkan eftir að gengnir höfður verið 5 kilómetrar. Timi Takalo var þá 16:40.36 min., en Smetaninu 16:41,41 minúta. Tvær aðrar stúlkur gengu 5 kilómetrana á betri tima en 17 minútum, þær Balditsjeva frá Sovétrikjunum, sem hafði millitlmann 16:48,05 min., og austurþýzka stúlkan Veronika Schmidt. sem gekk á 1 6:57,62 min. Á seinni hluta leiðarinnar tóku stúlkurnar á öllu sinu og timinn var með ólikindum góður Reyndar var seinni hluti brautarinnar heldur auð- veldari viðfangs en fyrri hlutinn og færið batnaði er brautin tróðst. En að ganga 5 kilómetra á röskum 14 minút- um er afrek sem senmlega verður erfitt að leika eftir. Þess má geta að á Ólympíuleikunum i Sapporo vannst þessi ganga á röskum 34 minútum, eða 34:17,82 min en sá árangur hefði nuð aðeins nægt i 33. sætiðl! Auðvitað ber að taka það fram, að göngubraut og færi Finnska stúlkan Helena Takalo, hlaut silfur I gær, en gull i 5 km göngunni. Leikið í kvöld f kvöld fara fram I fþróttahúsinu i Hafnarfirði tveir leikir I 1. deild karla i handknattleik. Kl. 20.00 leika Grótta og Valur og kl. 21.15 leika Haukar og FH. Þá fara fram i Laugardalshöllinni þrir leikir I 1. deild kvenna. Ármann leikur við Fram kl. 20.00, KR- UBK leika kl. 21.00 og Vikingur og fBK kl. 22.00. Sá leikur sem vafalaust dregur til sín mesta athygli er viðureign Hauka og FH, en leikir þessara félaga hafa jafnan verið harðir og tvisýnir og má ætla að svo verði einnig i kvöld. Knattspyrnu- þjálfarar KNATTSPYRNUÞJÁLFARA- FÉLAG fslands heldur framhalds- aðalfund sinn á Hótel Esju i kvöld og hefst hann klukkan 20.30. Eru nýir meðlimir sérstaklega hvattir til að mæta. Fundarefni er venjuleg aðalfundarstörf. er aldrel eins og því ekki hægt að bera árangur nákvæmlega saman, en það var álit þeirra keppenda sem tóku þátt bæði I göngunni I Innsbruck og I Sapporo, að brautin i Innsbruck hefði alls ekki verið auðveldari en í Sapporo. Galina Kulakova, sovézka stúlkan, sem I fyrradag varð að skila verðlaun- um þeim, sem hún hafði hlotið I 5 kilómetra göngunni, sá til þess i gær að hún færi ekki frá Innsbruck án góðmálma Hún gekk á 30:38,16 minútum og hreppti þriðja sætið. — Ég vona sannarlega að ég fái að halda þessum verðlaunum, sagði Kulakova eftir keppnina i gær. — Ég tók að minnsta kosti hvorki hóstasaft né nef- dropa fyrir þessa göngu Finnska stúlkan Helena Takalo sem vann gullverðlaunin i 5 kílómetra göngunni á dögunum hefur komið mjög á óvart með getu sinni á þessum leikum. Fyrirfram var tæpast búizt við þvi að hún næði að blanda sér í baráttuna um efstu sætin, en hún hefur þegar sýnt að hún verður göngu- drottning þessara leika ásamt með Smetaninu, en báðar hafa þær hlotið gull og silfur i keppninni. Eftir er ein göngukeppni kvenna — 4x5 kilómetra boðganga, og ef marka má úrslit i þeim göngugreinum sem fram hafa farið ættu sovézku stúlkurnar að vera nokkuð öruggar um gullið, en baráttan um silfrið að standa milli Austur-Þýzkalands og Finnlands. Er þvi ekki ósennilegt að þær Smetanina og Takalo eigi eftir að hljóta fleiri verðlaun í keppntnni. Sfmamynd AP Sovézka stúlkan Smetanina vann sigur I 5 km göngu kvenna á Olympfuleikunum I gær, eftir mjög harða baráttu við finnsku stúlk- una Takalo. Smetanina varð önnur f 5 km göngunni á dögunum. Sigurður stóð fyrir sínu Hann varð 39., Tómas varð 47. en Haukur og Árni féllu báðir úr Frá Þórleifi Ólafssyni í Innsbruck islenzku keppendunum i stór- svigakeppninni vegnaði mjög mis- jafnlega i gær, eins og reyndar i fyrri umferðinni i fyrradag. Tveir féllu úr i seinni ferðinni, Akureyr- ingarnir Árni Óðinsson og Haukur Jóhannsson, en þeir Tómas Leifs- son og Sigurður Jónsson luku keppni Náðu þeir báðir góðum árangri, einkum þó Sigurður sem náði 39. sæti á timanum 3:56,22 mín. Þessi árangur Sigurðar vakti mjög mikla athygli, þar sem hann hafði upphaflega rásnúmer 78 og enginn af keppendunum sem höfðu svo há númer komust ná- lægt þvi eins framarlega og Sig- urður. Þeir sem hafa mjög há rás- númer i keppni sem þessari eiga oftast mjög litla möguleika, þar sem brautin er nánast orðin ónýt er þeir fara i hana. Tómas Leifsson kom svo i mark sem 47. maður á timanum 4:05.37 min. — Ég hef aldrei komizt i slika þrekraun áður, sagði Tómas i við- tali við Morgunblaðið að keppni lokinni i gær. — Ég var algjörlega búinn l miðri brautinni en klöngr- aðist þetta áfram einhvern veginn. Ég fór t.d. með krosslögð skiðin i gegnum tvö hlið — fæturnir neit- uðu að hlýða Sigurður Jónsson sagði i við- tali við Morgunblaðið, að hann væri tiltölulega ánægður með sina útkomu i leikunum. — Brautin i dag var miklu erfiðari en i gær, og ég fór vissulega að finna fyrir þreytu þegar markið tók að nálg- ast. Ég verð að viðurkenna að þetta er erfiðasta ferð sem ég hef nokkru sinni farið á skiðum, sagði Sigurður. Sem fyrr greinir féllu þeir Árni og Haukur úr. — Ég keyrði á stöng i brautinni og náði ekki beygjunni. sagði Haukur, og bætti þvi við að þetta hefði verið helber klaufaskapur hjá sér. Árni sagði hins vegar að hann hefði farið á það mikla ferð til þess að freista þess að bæta stöðu sina, að hann hefði einfaldlega ekki náð einni beygjunni ofarlega i brautinni. — Tvöfaldur Framhald af bls. 26 erfiðleikum. Leið ekki á löngu unz Storholt missti jafnvægið, datt og hætti keppni, en Chapin kom I markið á 40,09 sekúndum og nægði það aðeins i 10. sætið Eftir öll vonbrigðin í skíðagöngunni að undanförnu varð 500 metra skauta- hlaupið enn mikið áfall fyrir Norð- menn, sem höfðu huggað sig við það, að þótt ekki fengist gull I göngunni þá hlyti það að koma í skautakeppninni, og þá mjög sennilega i 500 metra hlaupinu. En i fyrradag veiktist bezti skautahlaupari Norðmanna á þessari vegalengd, Per Björang, illa af inflúensu og var úr leik Inn I liðið kom i hans stað Arnulf Sunde frá Lilleström. Stóð Sunde sig bezt allra Norðmannanna í hlaupinu og varð í sjötta sæti. Kay Stenshjemmet sem til þessa hefur verið annar bezti hlaupari Norðmanna á þessari vegalengd varð að gera sér 21. sætið I keppninni að góðu, hljóp á 40,94 sek. og sem fyrr greinir varð Egil Storholt fyrir þvl óhappi að detta og verða úr leik. Ludmila Pakhomova og Alexander Gorshkov sigurvegarar f fsdansi. SOVÉZKU hjónin Ludmila Pak- homova og Alexander Gorshkov sigruðu I hinum svonefnda isdansi á Ólympluleikunum I Innsbruck, en þarna er um að ræða nýja keppnis- grein, töluvert frábrugðna paralist- hlaupi á skautum. fþrótt þessi á nú mjög auknum vinsældum að fagna vlða um heim, og er álitið að áður en langt um llður muni hún verða mun vinsælli en paralisthlaupið sem er iðkað af tiltölulega fáum. Eftir keppnina sögðu þau hjónin að það hefði verið draumur lifs þeirra að hljóta Ólymplugull, og verðlaunin að þessu sinni hefðu verið þeim miklu dýrmætari en heimsmeistara- gullið er þau hlutu T fyrsta sinn er efnt var til heimsmeistarmóts I Is- dansi 1970. Pakhomova sagði, að hún hefði búizt við að vera tauga- óstyrk fyrir siðasta keppnisdaginn, en þegar þau hefðu verið komin út á Isinn hefði hún gleymt öllu öðru en dansinum. og þess vegna hefði hún getaS dansað alla nóttina. Isdans Ludmila Pakhomova og Alexander Groskhov Sovétr 209.92 Irina Moiseeva og Andrei Minekov Sovétr. 204,88 Colleen O'Connor og Jim Millns. Bandar. 202.64 Natalia Linichuk og Gennadi Karponosov Sovétr. 199,10 Krisztina Regoczy og Andras Sallay Ungverjl. 195,92 Matilde Ciccia og Lamberto Cesarani ítallu 191.46 Hilary Grren og Glen Watts Bretl. 191,40 10 km ganga kvenna FYRSTAR I 10 kllómetra göngu kvenna á Ólympluleikunum I Innsbruck I gær urðu eftirtaldar konur: Raisa Smetanina. Sovétr. 30:13.41 Helena Takalo. Fínnl. 30:14,28 Galina Kulakova. Sovétr. 30:38,16 Naca Balditsjeva. Sovétr. 30:52,58 Eva Olsson, Svlþjóð 31:08.72 Sinaida Amosova, Sovétr. 31:11.23 Barbara Petzold. A-Þýzkal. 31:12,08 500 metra skautahlaup Fyrstu menn I 500 metra skautahlaupi á Ólyrr pfuleikunum 1 Innsbruck I gær urðu eftirtaldir: Evegenij Kulikov, Sovétr. 39,17 Valerij Muratov, Sovétr. 39.25 Daniel Immerfall, Bandar. 39.54 Mats Wallberg, Svíþjóð 39.56 Peter Muller, Bandar. 39,57 Arnulf Sunde, Noregi 39,78 Jan Oazen, Hollandi 39,78 Andrej Malikov. Sovétr. 39,85 Oloph Granath, Svlþjóð 39,93 James Chapin, Bandar. 40.09 Stórsvig karla Helztu úrslit 1 stórsvigi karla urðu þessi: Heini Hemmi Sviss 3:26,97 Ernst Good Sviss 3:27,17 ingemar Stenmark Svlþj. 3:27,41 Gustavo Thoeni ftallu 3:27,67 Phillip Mahre Bandar. 3:28,20 Egelhard Pargaetzi Sviss 3:28,76 Radici Fausto ftallu 3:30,09 Franco Bieler ftaijfu 3 30.24 Greg Jones Bandar. 3:31,77 Albert Buger V-Þýzkal. 3:22.68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.