Morgunblaðið - 11.02.1976, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRUAR 1976
7
Orðsóði
f umræðum um land-
helgisdeiluna viS Breta á
Alþingi hefur komið fram
málefnalegur ágreiningur
um nokkra þætti hugsan-
legra viSbragða stjórn-
valda okkar. Þetta er I
sjálfu sér ekki óeðlilegt,
ef við gætum þess að
standa saman sem einn
maður á úrslitastundum
og halda ágreiningi innan
marka málefnalegra um-
ræðna. Þá skiptir það og
höfuðmáli að markmið
okkar, fiskvernd og upp-
bygging fiskstofnanna,
týnist ekki I þrætugirni
um málsmeðferð.
Málflutningur stjórnar-
andstöðu hefur, með einni
undantekningu. Iltt farið
út fyrir þessi sjálfsögðu
mörk. Hins vegar hefur
orðfæri eins þingmanns,
Stefáns Jónssonar, verið
með þeim eindæmum, að
fordæmi finnast ekki,
nema þá I fyrri ræðum
þessa sama þingmanns.
Hann segir blákalt að
samningarnir við V-
Þjóðverja hafi verið
„svikasamningar" sem
„þvingaðir hafi verið með
fláræði" upp á þjóðina af
„eiðsvörnum vinum óvina
okkar". Hann gefur I skyn
að það hafi verið samspil
Islenzkra og brezka stjóm-
valda að kalla brezka flot-
ann út fyrir landhelgis-
mörkin, til að koma I veg
fyrir stjórnmálaslit. sem
og að herskipaíhlutun
skyldi hafin á ný. Hann
llkir viðræðum Islenzkra
stjórnvalda við „viðræður
aumingjanna".
Orðsóði er Ijót nafngift.
Enginn þingmaður hefur
þó komizt nær þvl að
gangast undir hana en
þessi stóryrti þingmaður.
Á sllkum málflutningi
hljóta allir, hver sem af-
staða þeirra til málsins er
að öðru leyti, að hafa
skömm og viðurstyggð.
Þrír megin-
punktar
Lúðvíks
Gagnrýni Lúðvlks
Jósepssonar, flokksbróð-
ur Stefáns, var með allt
öðrum hætti. Hann setti
fram þrjá meginpunkta,
sem hann taldi
óhjákvæmileg viðbrögð I
núverandi stöðu málsins:
1) Tafarlaus stjórnmálaslit
við Breta, 2) úrsögn úr
Nato og lokun varnar-
stöðvarinnar á Miðnes-
heiði, og 3) að bæta
nokkrum togurum I
gæzluflota okkar sem og
að byggja. kaupa eða
leigja hraðskreitt skip.
gangmeira en freigátur
Bretanna, sem duga
myndi til tslenzks sigurs á
miðunum.
Slit á stjórnmálasam-
bandi er aðgerð, sem
menn eru ekki á eitt sáttir
um. Hitt eru menn
ótvlrætt sammála um, að
þau ein út af fyrir sig,
stöðva hvorki veiðisókn
né smáfiskadráp Breta,
eins og utanrlkisráðherra
benti réttilega á.
Það. sem skiptir megin-
máli fyrir aðgerðir okkar,
hverjar sem þær verða,
eru þær afleiðingar sem
þær kunna að hafa, til
gagns eða ógagns fyrir
málstað okkar og mark-
mið I fiskverndarmálum.
Þessar afleiðingar þurfum
við að sjá og meta fyrir,
með rökhyggju og yfirveg-
un.
Ljóst er. að aðildin að
Nato er eitt sterkasta
vopn okkar I fiskveiðideil-
unni við Breta.
Kommúnistar vilja að
sjálfsögðu notfæra sér
deiluna til að koma okkur
úr Nato og loka varnar-
stöðinni.
Efling land-
helgisgæzl-
unnar
Efling landhelgisgæzl-
unnar er atriði. sem allir
eru sammála um. Það að
bæta togurum I land-
helgisgæzluna kann að
þjóna einhverjum tilgangi
en notagildi þeirra eru þó
takmörk sett. Sjálfsagt er
að kanna leigu eða kaup á
hraðskreiðu gæzluskipi.
En dettur einhverjum I
hug, að brezki flotinn hafi
ekki yfir að ráða skipa-
kosti. sem kæmi til skjal-
anna ef við kæmum með
nýja tegund af hrað-
skreiðu skipi á miðin?
Bygging nýs varðskips
tæki alltof langan tlma.
Meginatriði þessa máls er
þó það, að sé herskipum
beitt, eins raun er á, get-
um við ekki vænzt þess að
við getum unnið sigur I
landhelgisdeilunni I krafti
afls eða valdbeitingar á
miðunum. Sjálfsagt er að
beita gæzlunni eins og
skynsamlegir möguleikar
frekast leyfa. En rangt
væri að meta ekki
vlgstöðu okkar af raunsæi
fremur en óskhyggju. Og
öryggi starfsmanna land-
helgisgæzlunnar, sem
vinna þjóð sinni mikið
gagn við erfið skilyrði,
þarf að tryggja eftir þvl
sem kostur er. Samhliða
virkri starfsemi efldrar
landhelgisgæzlu þarf þvl
að hyggja að öllum öðrum
ráðum til að ná þeim
árangri, að landhelgisdeil
unni lykti okkur I hag.
Þannig hefur rlkisstjórnin
haldið á málum af festu
en raunsæi, og reynslan
mun sýna, vonandi fyrr en
slðar. að rétt hefur verið
að málum staðið.
Kaupmenn — Kaupfélög
Höfum á lager úrvals amerískar gular hálf-
baunir fyrir sprengidaginn.
0. Johnson og Kaaber h.f.
Hef opnað
Tannlækningastofu
í Garðabæ
Viðtalstímar eftir samkomulagi alla virka daga.
Ómar Konráðsson, tannlæknir,
Sunnuflöt 41,
simi 42646
IÐJA,
félag
verksmiðjufólks
Félagsfundur verður haldinn fimmtudaginn 1 2.
febrúar 1976 kl. 8.30. e.h. í Lindabæ.
Dagskrá:
Viðhorfin í samningamálum
félagsmál.
Sýnið félagsskýrteini við innganginn. Stjórn Iðju
f Camembert í ábæti með t.d. peru eða vínberjum
gerir vel heppnaða máltíð fullkomna.
Athugið að flestir vilja ostinn fullþroskaðan,
en sumum þykir það hins vegar of mikið af því góða.
Þroska Camemberts má stjórna rneð réttri geymslu.
Lesið leiðbeinii^arnar á umbúðunum.
ostur er veizlukostur
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SELJA?
Þl AUGLYSIR l'M ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLYSIR I MORGUNBLAÐINU
Barnaúlpur verð kr. 2.900. —.
Herraúlpur verð kr. 3.900. —.
Stórlækkað verð á lítið
gölluðum barna-
og drengjaúlpum