Morgunblaðið - 11.02.1976, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1976
11
Sigrún Jónsdóttir
á Melstað nírœð
Frú Sigrún Jónsdóttir Melstað
varð níutíu ára í gær 10. febrúar.
Hún er fædd og hefur alið allan
aldur sinn í Eyjum.
A seinni áratugum síðustu
aldar var hart í ári til lands og
sjávar á íslandi. Víðast mikil fá-
tækt og hart barist til að halda
hungri frá dyrum. En það segir
sig sjálft að ýmislegt hefur vantað
kom á spítalann í Eyjum, missti
hún málið.
Nú liggur þessi níræða hetja
hversdagslífsins blind og ósjálf-
bjarga, á spítala í heimabyggð
sinni, Vestmannaeyjum.
Þessar línur eru skrifaðar í
þeim eina tilgangi, að þakka
minni kæru tengdamóður fyrir
kynnin og óska henni alls góðs í
tilefni afmælisins.
Oddrún Pálsdóttir.
þar sem ungbörn fengu ekki
mjólk. Sigrún sagði mér sjálf að
hún myndi vel eftir þegar hún
smakkaði mjólk í fyrsta skipti, þá
sennilega fjögurra til sex ára.
En fiskurinn hefur haldið líf-
inu f þjóðinni í þúsund ár.
Sjómenn í Vestmannaeyjum
hafa lengst af átt drjúgan þátt í
fiskveiðum á Islandi. En þegar á
land kom hjálpuðust allir að,
ungir sem gamlir við verkun og
nýtingu aflans.
Sigrún mun hafa verið langt
innan við fermingu þegar hún var
látin breiða fisk og bera á hand-
börum á reitina. Lffsbaráttan var
hörð og allt valt á að aflinn væri
nýttur fljótt og vel. Urðu konur
og börn þá að taka til hendinni.
Enginn spurði um hve marga
tíma vinnudagurinn væri, eða um
eftirvinnukaup. Allir unnu eins
og kraftarnir leyfðu.
Það kom eins og af sjálfu sér að
Sigrún giftist sjómanni þegar hún
hafði aldur til. Hann hét Sigurður
Hermannsson, ættaður af Austur-
landi, hraustur og áræðinn. Hann
var formaður í Eyjum, þar til
hann drukknaði. Það var í maí
árið 1920, þá frá konu og ungum
börnum.
Það er þungur harmur sjó-
mannsekkjunnar. Hjartað
brennur, en ekki dugir að leggja
árar i bát. Svona er lífið. Frá
Fljótsdal í Rangárvallasýslu
kemur ungur og bráðmyndar-
legur piltur til Eyja í atvinnuleit.
Ágúst Úlfarsson. Hann ræður Sig-
rún til sín. Það fer vel á með þeim
og þau giftast. Hann hjálpar
henni að ala upp börnin og þau
haldast í hendur í blfðu og stríðu
eftir það. Einn son eignuðust þau,
sem upp komst, Sigurð Þóri.
Hann drukknaði sviplega á sfð-
asta ári.
Ég get ekki annað en minnst á
þann hræðilega atburð þegar
náttúruhamfarirnar í Eyjum
lögðu hluta byggðarinnar í eyði.
Þá komu þau um nóttina, Sigrún
og Ágúst. Sonur þeirra hálfbar
hana inn úr dyrunum. Hún kom
þarna óhrædd og örugg með aleig-
una i handtöskunni, en hafði í
flýtinum týnt öðrum vettlingnum.
Það var því líkast að hún hefði
skroppið f heimsókn en ekki verið
að ganga út frá heimili sínu, sem
hún átti ekki afturkvæmt til.
Hjá okkur reyndu þau að gera
sér að góðu, það litla sem okkar
heimili hafði að bjóða. Allt þegið
hve lítið sem það var, með þökk-
um. Ekki hafði hún aðrar áhyggj-
ur en þær, að Agústi liði ekki
nógu vei.
Um haustið fékk hún snert af
slagi, og þó hún hresstist dálftið á
milli, fékk hún hvert áfallið af
öðru og ,i)ú,(s(fjla^tl) eftir að hún
2MÆ0
Til Sölu
2ja herb. ibúðir
við Arahóla, Bólstaðahlíð, Aspar-
fell, Miðvang í Hafnarfirði og
Kópavogsbraut tKópavogi.
3ja herb. íbúð
við Viðimel
4ra herb.
fokheld ibúð við Fifusel
Fokhelt raðhús
við Birkigrund
Makaskipti
á 5 herb. ibúð við Bauðagerði
ðsamt bilskúr i skiptum fyrir 3ja
herb. ibúð i Háaleitishverfi eða
nágrenni.
Fasteignasalan
Bankastræti 6
Hús og eignir
Sími28440.
kvöld- og helgarsími 72525
Hólar - Einbýlishús --Skipti
Einbýlishús í smíðum á einum fegursta útsýnis-
stað í Hólunum eingöngu í skiptum fyrir sér efri
hæð ca 1 40— 1 60 fm ásamt bílskúr.
Uppl. veitir
Fasteignasalan Norðurveri, Hátúni 4 a,
símar 21870 —20998.
FASTEIGNAVER h/f
Klapparstig 16,
simar 11411 og 12811.
Hraunbær
falleg einstaklingsibúð á 1. hæð.
Um 45 fm. Öll sameign fullgrá-
gengin úti og inni.
Safamýri
mjög falleg 3ja herb. ibúð um
100 fm á 3. hæð. Verðbandlaus.
Afhending eftir samkomulagi.
Laufvangur, Hafn.
Glæsileg 2ja herb. ibúð á 1.
hæð um 70 fm. Þvottaherbergi i
ibúðinni. Öll sameign fullfrá-
gengin úti og inni.
Sörlaskjól
4ra herb. íbúð á 1. hæð i þribýl-
ishúsi. Nýleg eldhúsinnrétting.
Skipti á minni ibúð koma til
greina.
Dúfnahólar
3ja herb. ibúð á 3. hæð. Að
mestu fullfrágengin. Suðursvalir.
Nýbýlavegur
glæsileg 3ja herb. íbúð á efri
hæð i 2ja hæða húsi .íbúðin er
ný og að mestu fullbúin. Bilskúr.
Langabrekka
3ja herb. neðri hæð (sérhæð) i
tvibýlishúsi. Bilskúr.
íbúðir óskast
Okkur vantar flestar stærðir
ibúða og húsa til sölumeðferðar.
Skoðum eignirnar samdægurs.
Kópavogur
Til sölu glæsileg 5 herb. efri íbúðarhæð við
Hraunbraut í Kópavogi. Palesander innrétting-
ar, ný teppi á gólfum, mikið og fagurt útsýni.
Laus fljótlega.
Hrafnkell Ásgeirsson hrl.
Austurgötu 4,
Hafnarfirði, sími 50318.
Einbýlishús í Vesturbæ
Til sölu er tveggja hæða hús í vesturbæ 1 14
ferm. að grúnnfleti ásamt tveggja herb. íbúð í
kjallara. Stór ræktaður garður og bílskúr.
Þeir sem áhuga hafa á vinsamlegast sendið
tilboð á afgreiðslu Mbl. fyrir 15. febrúar merkt
Einbýlishús 3912.
Háteigsvegur
Til sölu ca 1 50 fm sérhæð efri hæð og ris á
bezta stað í bænum, ásamt ca. 30 fm bílskúr.
Hæðin skiptist í rúmgott hol, 2—3 svefn-
herbergi, samliggjandi stofur, góðar suður-
svalir, eldhús með nýlegri innréttingu, búr og
bað, sem þarfnast lagfæringar. í risi eru 2
herbergi geymslur þvottaherbergi ofl.
Fasteignamiðstöðin,
Hafnarstræti 11,
sími 20424 og 14120.
3ja herb. við Vesturberg
Höfum í einkasölu 3ja herb. íbúð á 3. hæð í
háhýsi við Vesturberg um 80 fm. Ibúðin er með
góðri bráðabirgða eldhúsinnréttingu en að öðru
leiti að mestu frágengin.
Verð 5,6—5,7 millj. Utb. 3,7—3,8 millj. sem má
skiptast eitthvað. Mjög sanngjarnt verð og útborgun.
Samningar og fasteignir,
Austurstræti 10a, 5. hæð.
5/777/ 24850, og 21980,
Heimasími 3 72 72.
Raðhús
Stórt og glæsilegt raðhús í Kópavogi. Alls um
300 fm. Fallegt útsýni. Húsið skiptist þannig.
neðri hæð: stórt þvottaherbergi með innrétting-
um og geymsla, gestasnyrting, skrifstofa
hobbýherbergi, og tvöfaldur bílskúr.
Efri hæð. eldhús,
borðstofa, stofa, með
arni, 3 rúmgóð svefn-
herbergi Mjög stórt og
vandað baðherbergi
með innréttingu. Mikið
skáparými.
Fasteignir til sölu
Fallegt einbýlishús í Vesturbæ Kópavogs,
ásamt bílgeymslu og frágengin lóð, sem er ca
1 20 fm að stærð.
Glæsiieg 3ja herb. íbúð við Ásbraut í Kópa-
vogi, lóð frágengin.
★ Glæsileg 3ja herb. íbúð um 95 fm, ásamt
bílgeymslu í Engjaseli, Reykjavík.
Sigurður Helgason lögfr.,
Þinghólsbraut 53, sími 42390.
4ra herb. glæsileg
íbúð í Hafnarfirði
4ra herb. íbúð á 4. hæð (efstu) í nýrri blokk við
Hjallabraut í norðurbænum í Hafnarfirði. Um
124 fm. Stórar suðursvalir og mjög fallegt
útsýni. Hitaveita. Inn af eldhúsi er sérþvottahús
og búr, ásamt sérgeymslu í kjallara.
íbúðin er öll fullfrágengin með vönduðum
innréttingum. Sameign er öll frágengin. Teppa-
lagðir stigagangar. Malbikuð bílastæði. íbúðin
er laus nú þegar. Verð 8,5—8,7 milljónir.
Útborgun 5,5 — 5,7 milljónir. Áhvílandi hús-
næðismálalán kr. 1 milljón.
Samningar og fasteignir,
Austurstræti 10 A, 5 hæð,
sími 24850, heimasími 37272.