Morgunblaðið - 11.02.1976, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 11.02.1976, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRUAR 1976 13 RAÐSTOFUN GENGISMUNAR í ÞÁGU SJÁVARÚTVEGSINS Sjávarútvegsráðherra svarar fyrirspurnum á Alþingi Matthías Bjarnason sjávarút- vegsráðherra svaraði í gær i sam- einuðu þingi fyrirspurnum frá Lúðvlk Jósepssvni (K) varðandi lán og styrki samkvæmt heimild- um í lögum nr. 106/1974 og nr. 55/1975, þ.e. um ráðstafanir í sjávarútvegi og ráðstöfun gengis- munar. Svar ráðherra fer að meg- inefni, en nokkuð stytt, hér á eft- ir: Svar sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn Lúðvíks Jósepsson- ar á þingskjali 54 um framkvæmd á lögum um ráðstafanir í sjávarút- vegi: 1. spurning. Samkvæmt a-lið 9. gr. laga nr 106/1974 á að verja 600 millj. kr. „til að greiða hluta gengistaps 'er- lendra skulda eigenda fiskiskipa" og samkvæmt b-lið 1. gr. laga nr. 55/1975 950 millj. kr. „til þess að létta stofnfjárkostnaðarbyrði eig- enda fiskiskipa, sem orðið hafa fyrir gengistapi vegna erlendra og gengistryggðra skulda." Ofangreindar gengisbætur hef- ur Fiskveiðasjóður reiknað út og mun annast greiðslur á þremur árum, en bæturnar hafa verið ákveðnar 6% ógreiddra og ógjald- fallinna höfuðstólseftirstöðva samkvæmt eldri lögunum og 5.8% samkvæmt nýrri lögunum. Til frekari upplýsinga vísa ég til reglugerða frá 14. október s.l. Samkvæmt umræddum grein- um er sjávarútvegsráðuneytinu heimilað að ráðstafa 400 millj. kr. í hvoru tilfelli, alls 800 millj. króna, til lánveitinga í sjávarút- vegi til 2—3 ára til að bæta lausa- fjárstöðu fyrirtækja þ.e. eigenda fiskiskipa og vinnslustöðva. Af þessum fjármunum hafa 320 millj. kr. verið lánaðar Fiskveiða- sjóði vegna „konverteringar," og 300 millj. kr. til Byggðasjóðs, sem ráðstafaði þeirri upphæð til fyrir- tækja og einstaklinga, alls 620 millj. kr. til að bæta lausafjár- stöðu aðila í sjávarútvegi. Þá var 70 m' .j. kr. ráðstafað með milli- göngu Seðlabankans til Lands- bankans og Útvegsbankans, sem þeir aftur ráðstöfuðu sem viðbót- ar rekstrarlánum til stóru skut- togaranna til þess að auðvelda þeim upphaf rekstrar að afloknu verkfalli. Lánin til Fiskveiðasjóðs og Byggðasjóðs eru til 2—3 ára, með 13% og 12% vöxtum, p.a. en lánin til stóru togaranna bera sömu vexti og aimenn rekstrarlán til skipa, eða 11% p.a. og eiga að endurgreiðast á 6 mánuðum. Rétt er að upplýsa að fyrr- greind „konvertering" (þ.e. lausaskuldum breytt í föst lán), sem var framkvæmd undir stjórn Seðlabankans Landsbankans og Lárus Jónsson (S) hefur lagt fram á Alþingi svohljóðandi til- lögu til þingsályktunar og greinargerð: Alþingi ályktar að fela ríkis- stjórninni að láta kanna sem fyrst hvort hagkvæmt sé að gera brú yfir Eyjafjarðará er tengi byggðina í Hrafnagils- og önguls- staðahreppi. Greinargerð. I Eyjafirði er eitt þéttbýlasta og besta landbúnaðarhérað á landinu. Byggð hefur vaxið þar á undangengnum árum og áratug- um gagnstætt því sem víða er í sveitum. Beggja vegna árinnar eru myndarlegar skólabyggingar, Hrafnagilsskóli f Hrafnagils- hreppi og húsmæðraskóli að Syðra-Laugalandi. Þar er einnig sundlaug en engin sundaðstaða er að Hrafnagili og þar skortir auk heldur heitt vatn til upphitunar. Þótt byggð hafi sem fyrr segir vaxið i Hrafnagils- og Önguls- staðahreppi, hefði framþróun þessara byggðarlaga vafalítið orðiðj miklu örari efl auðveldara væri f að komast milli f/1 hreppanna beint yfir Eyja- fjarðará. Það I hefur því verið I mikið áhugamál fbúa á þessu svæði að Eyjafjaðrará yrði brúuð og byggðarlög þessi tengd saman þar sem byggðin er þéttust. Þetta mundi stytta þá leið sem fara þarf milli hreppanna, um nálægt því 30 km en nú þarf að fara brýrnar niður við Akureyri til þess að komast milli þessara byggðarlaga, sem kunnugt er. Þannig er ástatt nú að hús- mæðraskólinn á Laugalandi hefur ekki verið starfræktur um sinn vegna nemendaskorts. Aftur á móti skortir skólarými að Hrafna- gili. Þar skortir einnig sund- aðstöðu sem er til að Laugalandi eins og áður segir. Þessi dæmi sýna ótvírætt að unnt væri að hagnýta skólamannvirki og íþróttaaðstöðu i þessum byggðar- lögum miklu betur en ella ef Hitaveita á Akureyri: Brú yfir Eyjafjarðará Eyjafjarðará yrði bruuð. önnur félagsleg og menningarleg sam- skipti fólksins yrðu augljóslega meiri og margvislegur efna- hagslegur ávinningur yrði við slíka samgöngubót. Nú hefur tvennt gerst, sem ger- ir það að verkum að sú könnun er tímabær og nauðsynleg sem þessi tillaga fjallar um. Fundist hefur heitt vatn að Syðra-Laugalandi og fullvfst má telja að hitaveita verður lögð þaðan til Akureyrar. Þá munu einnig auknar líkur á að þjóðvegurinn frá Akureyri austur fyrir Eyjafjörð liggi um svonefnd- ar Leirur, og við það lengist enn sú leið sem íbúar Hrafnagils- hrepps og Öngulsstaðahrepps þurfa að fara til samskipta. Lengi var jafnvel í ráði að þjóðvegurinn frá Akureyri færðist sunnar i Eyjafjörð en hann er nú. Augljós lega hefði slik ákvörðun minnkað nauðsynina á brúargerð við Hrafnagil eða þar um slóðir. Fyrir dyrum stendur að ákveða þá leið, sem leggja á hitaveitu yfir Eyjafjarðará. Ef áin yrði brúuð á móts við Laugaland kæmi vafa- lftið mjög til greina að taka lögnina þannig yfir ána og leysa hitaveituvandamál Hrafnagils- skóla. Kristneshælis og byggðar- innar í Hrafnagilshreppi í leiðinni. Nú þegar ákvörðun nálgast um hvar vegurinn skuli liggja frá Akureyri yfir Eyjafjörð og enn fremur að taka ákvörðun um þá leið sem hitaveita á að leggjast yfir fjörðinn frá Lauga- landi er augljóst að kanna þarf félagslega og efnahagslega hag- kvæmni þess að brúa Eyjafjörð milli þéttustu byggðarinnar I Öngulsstaða- og Hrafnagils- hreppi. Á alla framangreinda þætti þarf að líta f samhengi. Þessi könnun þarf ekki að taka nema örstuttan tfma vegna þess m.a. að þegar liggja fyrir hjá Vegagerð rikisins athuganir á vega- og brúarstæði á þessum slóðum og lauslegar kostnaðar- áætlanir. Athuganir á hagkvæmni nýtingar skólahúsnæðis og iþróttamannvirkja o.s.frv. eru ekki heldur það flókin verkefni að ekki sé unnt að ljúka þeim af á stuttum tíma. Matthías Bjarnason sj á varút vegsráðherra. Útvegsbankans, nam samtals 2.432 millj. kr. og var veitt um 300 einstaklingum og félögum, auk þeirra 300 millj. kr., sem lánaðar voru Byggðasjóði í sama tilgangi, eins og áður segir. Samkvæmt lögum nr. 106/1974 b-lið 9. gr. var ráðstafað 250 millj. króna, sem óafturkræfu framlagi til bátaflotans vegna rekstrarerf- iðleika á árinu 1974 til 15. septem- ber, og samkvæmt c-lið sömu greinar 230 millj. króna til skut- togara til að bæta rekstrarafkomu þeirra. Með auglýsingum og tilkynn- ingum var i október 1974 tilkynnt um fyrirhugaða „konverteringu" lána í sjávarútvegi og þá um leið kallað eftir reikningum fyrirtækj- anna fyrir árið 1973 og bráða- birgðauppgjöri fyrir árið 1974. Lög nr. 106 um ráðstöfun geng- ishagnaðar o.fl., voru samþykkt 19. desember 1974. Daginn eftir sendi sjávarútvegsráðuneytið út tilkynningu til útgerðaraðila um ráðstöfun gengishagnaðar til að bæta rekstrarafkomu bátaflotans, og þá um leið tilkynnt að þeir einir kæmu til greina við úthlut- un, sem sendu reikninga vegna „konverteringarinnar“ og út- haldsskýrsiur til Aflatryggingar- sjóðs. Síðan ítrekaði L.l.Ú. við sína meðlimi að senda umbeðin gögn og einnig trúnaðarmenn Fiskifé- lags Islands beðnir að ýta á eftir umræddum skýrslum og reikning- um. Að höfðu samráði við Lands- samband isl. útvegsmanna og framkvæmdastjóra Aflatrygg- ingasjóðs var ákveðið að úthlutun fjársins skv. b-lið færi fram i þrem þáttum: 1. Eftir úthaldsdögum skipanna (mannúthaldsdögum) til allra skipa 20. br. lestir að stærð og stærri, en undanskilið var út- hald á loðnuveiðum, síldveið- um, rækjuveiðum, hörpudiska- veiðum og handfæraveiðum. Samkvæmt þessari reglu var úthlutað 89,6 millj. króna, til 450 skipa. 2. Eftir aflabrögðum bátanna á umræddu tímabili. Við ákvörð- un bóta var byggt á framan- greindum reikningum og út- haldsskýrslum og auk þess út- reikningum á því hvað afla- verðmæti báta með hinum ýmsu veiðarfærum og áhafna- fjölda þyrfti að vera til þess að viðkomandi skip aflaði fyrir kauptryggingu. Þannig var fengin ákveðin við- miðun við útreikning á bótum til allra báta, án tillits til stærðar. Síðan voru bætur frá Aflatrygginga-sjóði dregnar frá útreiknaðri bótaupphæð. Samkvæmt þessum lið voru greiddar 132,1 millj. króna til 252 báta. 3. Samkvæmt þessum lið voru greiddar bætur vegna sér- stakra óhappa, vélbilana og fl., og annarra óbættra tjóna, sem bátar urðu fyrir á úthalds- tímanum. Aðal reglan var sú, að bæta hluta af kauptrygg- ingu áhafnar á meðan viðkom- andi bátur var frá veiðum. Samkvæmt þessari reglu voru greiddar 25.8 millj. kr. til 58 skipa. Alls var þannig greitt skv. b-lið 9. gr. laganna 247.5 millj. króna til 644 báta og skiptast greiðslur þannig eftir kjör- dæmum: Suðurland 48.729 Reykjanes 54.036 Reykjavfk 11.337 Vesturland 28.449 Vestfirðir 48.452 Norðurland vest 7.026 Norðurland eyst 33.398 Austurland 16.080 Samkvæmt c-lið 9. gr. laganna var úthlutað til skuttogara, eft- ir úthaldsdagafjölda, 230 millj. króna, sem skiptust þannig Til stóru skuttogaranna 58.8 millj. króna Til minni skuttogaranna 171.2 millj. króna. Aflatryggingasjóður annað- ist greiðslur á umræddum bót- um, en umsjón með öllum út- reikningum höfðu fram- kvæmdastjóri Aflatrygginga- sjóðs og aðstoðarmaður sjávar- útvegsráðherra. Skrár um greiðslur til báta og togara eru fyrir hendi hjá Aflatrygginga- sjóði og sjávarútvegsráðuneyt- inu. 2. spurning Samkvæmt uppgjöri hinn 5. des. voru innstæður á gengismuna- reikninunum alls 266.8 millj. króna, en óráðstafað er sam- kvæmt umræddum lögum alls 369.5 millj. kr., þannig að enn vantar 102.7 millj. króna upp i það, sem ráðstafað var með lögun- um. 3. spurning Fiskveiðasjóði Islands var falið fyrir all löngu síðan, að gera til- lögur um ráðstöfun 50 millj. kr. samkvæmt d-lið laganna frá 1975, en samkvæmt þeim lið átti að verja nefndri upphæð „til að bæta eigendum fiskiskipa það tjón sem þeir verða fyrir, er skip þeirra eru dæmd ónýt, enda sé tjónið ekki bætt með öðrum hætti.“ Tillögur um úthlutun fjárins eru fyrir nokkru tilbúnar, en þær voru samdar af stárfsmönnum Framhald á bls. 12 Þmgsályktun um hey- verkun ar aðfer ðir Steinþór Gestsson (S) flytur eftirfarandi tillögu til þings- ályktunar um rannsóknir og áætlanagerð um heyverkunar- aðferðir: Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að hún hlutist til um að Rannsóknastofnun land- búnaðarins efni á næsta sumri til frekari rannsókna á hey- verkunaraðferðum með það fyrir augum að finna með hverjum hætti verði staðið svo að heyskap að hann verði áfallalaus og fóðurgildi upp- skerunnar verði vel tryggt. Með hliðsjón af niðurstöðum rannsókna skal gera áætlun um skipulegar framkvæmdir við bættan húsa- kost og tækja- búnað, sem þætti þurfa að I hrinda fram til I þess að ná besta | árangri og hag- kvæmni við heyskap og konar fóðuröflun. Aætlun þessa skal leggja fyrir næsta reglulegt Alþingi eða svo fljótt sem verða má. GREINARGERÐ. Sumarið 1975 hefur orðið bændum um sunnan- og vestan- vert landið þungt i skauti og öllum almenningi minnistætt. Túnin spruttu seint, svo að ekki varð hafinn sláttur fyrr en um miðjan júli og sums staðar hvers síðar. Þurrkar urðu nánast engir, aðeins stakir dagar bjart- ir, enda afleiðingarnar eftir því: hrakin hey og illa hirt i hlöðum og svo léleg að fóður- gildi að til eindæma verður tal- ið. Sá skaði bænda er ómældur að hafa með ærnum áburðar- kostnaði stofnað til vetrar- forðans sem síðan reynist ónot- hæfur án þess að hafa kraft- fóður í ríkum mæli til fóður- bætis. Það hefur sannast á þessu makalausa óþurrkasumri, að enn eru bændur háðari tíðar- farinu við heyskapinn en menn ætluðu og fjárhagsleg skakka- föll af þeim sökum stórum alvarlegri nú, þegar miklu er kostað til um áburð og hey- vinnutæki, eins og viðast er gert um breiðar byggðir. Tækniþróun í landbúnaði er hröð og um margt fullkomin. En sú spurning verður áleitin eftir áföll eins og þau gerðust víða um land i sumar, hvort ekki vanti enn herslumun að því er varðar samræmda að- stöðu, svo að tiltækur tækni- búnaður njóti sín svo sem skyldi. Þá má einnig gera því skóna að súgþurrkun gæti ráðið úrslitum i þessu efni ef flutningsgeta dreifikerfis raf- orkunnar reisti ekki nokkrar skorður við notkun hagstæðari véla við heyþurrkun. Á vegum Rannsóknastofn- unar landbúnaðarins hefur nokkuð verið unnið að athugun- um og samanburði á ýmsum heyverkunaraðferðum. Það er skoðun flm. að þær þurfi nú að efla stórlega og bera sarnan árangur af venjulegri súg- þurrkun, votheysgerð, hrað- þurrkun og ýmsum afbirgðum þessara aðferða og meta nota- gildi þeirra með hliðsjón af að- stöðu til þess að hagnýta þær í óþurrkatið og við breytilegan húsakost. Þegar fyrir liggur skýrsla um þær rannsóknir, sem tillaga þessi gerir ráð fyrir að efnt verði til, þá vænti ég að með nokkru öryggi megi benda á liklegustu úrræði til tryggingar áfallalausri heyverkun. Þá má vænta árangurs af sameigin- legri áætlanagerð þeirra manna, sem standa fyrir rann- sóknum, bútæknimanna, sér- fræðinga á sviði búfjarræktar og bygginga svo og forsvars- manna bændanna sjálfra, sem þessi vandamál brenna heitast á, — áætlanagerð um úrbætur, hvort tveggja í senn fram- kvæmdahraða og gerð fram- kvæmdanna. Málefni af þessu tagi verða ekki leyst i einu vetfangi né heldur afgreidd i eitt skipti fyrir öll. Það er ljóst að aðgerða er þörf. Tillaga þessi er hugsuð og flutt sem ábending til lærðra sem leikra um vandamál sem verður að leysa. Hún er og flutt vegna reynslu frá síðasta sumri, sem sýnir að full þörf er á að herða róðurinn í hag- ræðingu atvinnuvegarins svo að hann fái með öruggari hætti gegnt hlutverki sínu með þjóð- inni og veitt þeim, er við hann starfa stöðugri afkomu þótt á móti blási. Nánar verður fjallað um efni tillögunnar í framsögu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.