Morgunblaðið - 11.02.1976, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR II. FEBRUAR 1976
Dansk-íslenzka félagið
minnist 60 ára starfs
Erling Blöndal Bengtson heiðursgestur þess
Á þessum merku tímamótum
í sögu félagsins er það von mín
að félag okkar megi ætíð vera
ungt félag og athafnasamt þó
að árin færist nú óðum yfir það,
og það megi jafnan njóta
traustra félagsmanna.
Fyrsti formaður félagsins var
Jón Helgason þáverandi biskup
yfir Islandi. En á 60 ára starfs-
tímabili D.t.F. hafa þessir
menn verið formenn þess auk
hans: Kristinn Ármannsson
rektor MR, próf. Olafur Björns-
son, dr. Friðrik Einarsson yfir-
læknir, próf. Þórir Kr. Þórðar-
son, Birgir Þórhallsson for-
stjóri og síðan árið 1972 hefur
Torben verið formaður félags-
ins.
Það er von okkar, sagði for-
maðurinn, að félagsmenn fjöl-
menni til afmælishátíðarinnar.
Hátíðin er ekki einskorðuð við
þá og eru allir þeír sem áhuga
hafa á starfsemí félagsins og
eflingu dansk-íslenzkra sam-
skipta velkomnir.
Dagskrá afmælisins er i stór-
um dráttum á þessa leið, að er
formaður félagsins hefur sett
hátíðina, flytur sendiherra
Dana hér, Sven Áge Nielsen,
stutt ávarp, þá hefst einleikur
heiðursgestsins, Erlings
Blöndal Bengtson, með undir-
leik Árna Kristjánssonar pianó-
leikara. Að því loknu verður
setzt að kvöldsnarli. Borðræða
verður flutt við það tækifæri,
Sellósnillingurinn. — Hann
leikur þessi verk eftir: L.
Boccherini, L. van Beethoven,
Fini Henriques, C. M. von
Weber, Sigfús Einarsson og að
lokum verk eftir F. Schubert.
en hana flytur Björn Th.
Björnsson listfræðingur, höf-
undur bókarinnar ,,Á Islend-
ingaslóðum í Kaupmanna-
höfn". Afmælishátiðin hefst kl.
20.30 föstudaginn 20. febrúar.
Elzt þeirra félaga hér, sem
vinna að kynningu þjóðaí milli,
ætlar að minnast 60 ára starfs
síns innan skamms með sam-
sæti i Norræna húsinu. Þetta
félag er Dansk-íslenzka félagið,
sem var stofnað hér í Reykjavík
árið 1916 og hefur starfað æ
síðan. Á það að baki sér at-
Torben Friðriksson
formaður D.l.F.
hyglisverðan starfsferil. A af-
mælishátíðinní verður heiðurs-
gestur félagsins hinn heims-
kunni sellóleikari Erling
Blöndal Bengtson og kona
hans... Ætlar listamaðurinn að
koma fram á afmælishátíðinni
og spila með undirleik Árna
Kristjánssonar píanóleikara.
Um daginn átti blaðmaður
frá Mbl. dálítið samtal við for-
mann félagsins, Thorben Frið-
riksson forstjóra Innkaupa-
stofnunar Reykjavíkurborgar,
af þessu tilefni.
Það, sem var hvatinn að
stofnun félagsins, sagði Tor-
ben, var ábyggilega heims-
styrjaldarástandið, sem þá ríkti
og sambandsleysið milli land-
anna. 1 þá daga var t.d. danski
fáninn jafnframt fáni Islands.
Þeir sem að félaginu hafa stað-
ið og þar starfað hafa eftir
mætti reynt að halda uppi
merki stofnendanna og því
markmiði er félaginu var þá
sett: „Að auka þekkingu fólks
hér á Islandi á Danmörku —
landi og þjóð — og að auka í
Danmörku þekkingu manna á
Islandi." Dansk-fslenzka félagið
(D.t.F.) er langfjölmennasta
félagið hér i Reykjavik, sem
vinnur að gagnkvæmri kynn-
ingu þjóða i milli. I því eru nú
virkir félagsmenn um 900.
Þegar litið er yfir farinn veg
og starfið innan félagsins í
ramma þeim sem það setti sér
kemur i ljós að vel hefur verið
á málum haldið, þrátt fyrir mis-
jafnlega góðar aðstæður og
ýmis ytri skilyrði verið mjög
erfið.
Um heillavænleg áhrif
félagsins í samskiptum þjóð-
anna mætti segja langa sögu.
Þar má t.d. minna á hlut þess að
þvi að búa í haginn fyrir lausn
handritamálsins.
Nefna mætti í þvi sambandi
heimboð til fjölda danskra
frammámanna á sviði lista, bók-
mennta og stjórnmála, sem
komið hafa hingað á vegum
D.t.F. Heimsóknir þessa fólks
hingað og kynni af mönnum og
málefnum hér urðu þung á
metunum við hina stórkostlegu
lausn handritamálsins.
Það má sjá i gömlum fundar-
gerðum að í D.t.F. hefur verið
rætt um Islandshús í Kaup-
mannahöfn hér endur fyrir
löngu, þó það mál fengi ekki
farsæla lausn fyrr en með til-
komu Jóns Sigurðssonar-
hússins, er það var fært Alþingi
að gjöf. Félagið stuðlaði að hóp-
ferðum Islendinga til Dan-
merkur um skeið, þó nú hafi í
biii a.m.k. verið horfið frá þvi.
Þá hefur D.I.F. haft samband
við menntaskólana og verð-
launað þá sem skarað hafa fram
úr i dönsku á stúdentsprófi.
Arlega hefur verið efnt til
alls konar samkomuhalds, í
Norræna húsinu á siðari árum,
eftir að það kom til sögunnar.
Hafa þessi skemmtikvöld verið
mjög fjölbreytt. Þá má ekki
gleyma kvikmyndavikunni,
sem félagið efndi til fyrir
nokkrum árum hér í Reykjavik
með sýningu danskra kvik-
mynda og hlaut góða dóma. —
Já, þannig mætti áfram telja.
En það er vandasamt fyrir
þessi félög að starfa nú á tím-
um, m.a. vegna gjörbreyttra
„lifnaðarhátta fólks" a.m.k. hér
í Reykjavík, eftir að sjónvarpið
kom til sögunnar sem fri-
stundaiðkun svo margra. —
Það er með öllu óvist hvernig
farið hefði ef Norræna húsið
hefði ekki komið til sögunnar.
Það er sá bakhjarl sem verið
hefur ómetanlegur fyrir félagið
sagði Torfben. Vil ég nota tæki-
færið og flytja stjórn hússins og
forstjóra þess, Maj-Britt Imn-
ander, einlægar þakkir Dansk-
fslenzka félagsins fyrir einstak-
lega gott samstarf. Hún er nú
að láta af störfum. Er það von
mín og annarra þeirra, sem
þurfa að starfa með forstöðu-
manni Norræna hússins, að
andi hennar megi áfram svifa
yfir vötunum.
Svenska dagbladet:
Árekstrar á miðun-
um sífellt alvarlegri
NVLEGA festi Almannavarnanefnd Vfkurumdæmis kaup á beltum, sem ætluð eru til notkunar undir
jeppa og sjúkrabifreið með drifi á öllum hjólum. Það voru sýslusjóður, hreppsfélög f umdæminu og
Björgunarsveitin Vfkverji, sem lögðu til fjármagn til þessara kaupa. Með nálæg svæði I vondum
veðrum og er þetta mikið öryggistæki fyrir byggðarlagið.
8.1. sunnudag var forystugrein í
Svenska dagbladet um land-
helgismálið. Þar sagði m.a.:
„EINS OG kunnugt er mun haf-
réttarráðstefna Sameinuðu
þjóðanna að öllum likindum sam-
þykkja 200 sjómilna efnahagslög-
sögu strandríkja seinna á þessu
ári. Ef ekki næst árangur á
ráðstefnunni er fjöldi þjóða
reiðubúinn að færa einhliða út
fiskveiðilögsöguna í 200 sjómflur
þar á meðal Noregur, og Bretar
munu örugglega skipa sér í þann
flokk. Með þetta í huga er það
auðvitað furðulegt að Bretland og
lsland skuli ekki geta gert með
sér bráðabirgðasamkomulag
þangað til niðurstaða ráðstefn-
unnar liggur fyrir. Deilan hefur
marga viðamikla þætti. Hún er
stórpólitfsk: Island kann að
endurskoða þátttöku sfna I NATO.
Hún er einnig herfræðileg.
Bandarlska herstöðin I Keflavík
er miðstöð eftirlits með sfvaxandi
flotastyrk Sovétríkjanna með
aðalstöðvar I Múrmansk."
Síðan segir að íslenzka ríkis-
stjórnin hafi ákveðið að slita ekki
stjórnmálasambandi við Breta og
að slikt skref muni ekki stuðla að
því að leysa deiluna, nema síður
væri. Hingað til hafi tvö þorska-
stríð verið háð án blóðsúthellinga,
en ekki sé öruggt að svo geti orðið
í þetta sinn, ef tilfinningahitinn
haldi áfram að aukast. Þá segir að
árekstrarnir á miðunum verði
sifellt alvarlegri og hættan á
raunverulegum hernaðar-
aðgerðum fari vaxandi. Þá segir
að bæði sé sorglegt og torskiljan-
legt að ríkisstjórnir landanna
standi andspænis slíkri ógnun, —
geti ekki orðið ásáttar um
hrágafeu-góalausA.-,
Dagens Nyheter sagði í frétt s.l.
laugardag: „Atlantshagsbanda-
lagið óttast mjög að Island muni
segja sig úr samtökunum vegna
fiskveiðideilunnar við Breta.
Samningurinn milli Banda-
ríkjanna og tslands um not
Atlantshafsbandalagsins af her-
stöðinni í Keflavík rennur út
1979, en Island getur hvenær sem
er skipað Bandaríkjamönnum að
yfirgefa stöðina. Innan NATO
hugsa menn með óhugnaði til
úrsagnar Islands úr bandalaginu
og skirskota til þess að vinstri öfl
landsins séu svo sterk, að Rússum
kynni jafnvel að vera boðin yfir-
ráð herstöðvarinnar. „Eins og
málum er nú háttað, hefur bánda-
ríski flugherinn ómetanlega
aðstöðu í Keflavík til að fylgjast
með ferðum sovézka íshafs-
flotans, þar eð sovézku herskipin
verða að sigla milli Islands og
Færeyja til að komast út á
Atlantshafið."
Eldborg GK afla-
hæsta loðnuskipið
VITAÐ var um 66 loðnuskip sem
höfðu fengið einhvern afla s.l.
laugardagskvöld. Aflinn I sfðustu
viku var 32,301 lest og heildarafl-
inn var orðinn 87,136 lestir á
laugardagskvöld. A sama tfma f
fyrra var heildaraflinn rúmar 93
þúsund lestir. Þá höfðu 97 skip
fengið einhvern afla. Mestan afla
hgfði EldborgGK fengiðsl. laugar-
dagskvöld, 3580 lestir, skipstjóri
Gunnar Hermannsson. Loðnu
hafði verið landað á 12 stöðum og
hafði mestu verið landað á Seyðis-
firði, 22,125 lestum.
Hér fer á eftir skýrsla yfir þá
báta sem fengið hafa 1000 lestir
og meira. Samantektin er gerð af
Fiskifélagi tslands:
•'***' •r'ak' «r*- tr,
Eldborg GK
Glsli Arni RE
Pétur Jónsson RE
Guómundur RE
Börkur NK
örn KE
Siguróur RE
Gullberg VE
Asberg RE
Hrafn GK
Loftur Baldvinsson EA
Arni Sigurdur AK
Helga GuAmundsdóttir BA
Hðkon ÞH
Þorsteinn RE
óskar Magnússon AK
Súlan EA
Grindvfkingur GK
Rauósey AK
Reykjaborg RE
Jón Finnsson GK
Huginn VE
Harpa RE
Albert GK
3580 Helga II RE
3286 Fífill GK
3149 Asgeir RE
3011 Magnús NK
2925 Sæbjorg VE
2538 NSIIfari ÞH
2479 Keflvfkingur KE
2367 Svanur RE
2360 Skfrnir AK
2107 óskar Halldórsson RE
2105 HilmirSl!
2094 tsleifur VE
2081 Hrafn Sveinbjarnarson GK
2066
2055
2051
1990
1957
1908
1824
1822
1717
1691
1681
1615
1427
1360
1312
1276
1207
1205
1186
1130
1070
1052
1043
1023