Morgunblaðið - 11.02.1976, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRUAR 1976
fólk í
fréttum
Það var sko eins gott fyrir Irinu Rodinu
og þær hinar að ég var fjarri góðu gamni f
Innsbruck; annars hefði verið óvfst hver
hefði stolið senunni frá hverjum. Eða
hvað sýnist ykkur?
Og svo gerum við ýmsar kúnstir saman skauta-
drottningarnar, ég og Eva Berger. Hún er bara
nokkuð góð.
Eins gott að
ég var hérna
+ Þýzka listskautaparið Werner Miiller og Eva Berger háfa
undanfarið ferðast um heiminn með þrjá simpansa sem þau hafa
þjálfað f listhlaupi á skautum og sem betur fer fyrir stjörnurnar f
Innsbpick eru þau um þessar mundir stödd í Kaupmannahöfn
og sýna listir sínar f Bröndby Hallen.
Simpansarnir eru f engu frábrugðnir öðrum listhlaupurum
hvað það snertir að þeir kunna vel að meta góðar undirtektir
áhorfenda. Þeir geisla af gleði, þegar fólkið sýnir nrifningu sfna
með hrópum eða lófataki, en þeir reyna e.t.v. síður en aðrir f
bransanum að leyna stolti sfnu, þegar vel tekst til.
Já, svona tökum við okkur út
frá áhorfendabekkjunum.
Við erum Oneitanlega svolftið
þreytt eftir vel heppnaða sýn-
ingu. Þá fær maður sér bara
fegurðarblund og er alhress á
eftir.
+ Ilse Reuter er 27 ára gömul,
frá Stuttgart í Vestur-
Þýzkalandi. Hún hefur atvinnu
af þvf að reynsluaka mótorhjól-
um, eina konan þar f landi sem
leggur stund á þá atvinnugrein.
Að hennar mati jafnast fátt á
við það að flengrfða þessum
stóru og aflmiklu folum. Hún
ætti að vita hvað hún syngur,
þvf að hún þeysist á þeim um
vegi og vegleysur svo nemur
tugum þúsunda kflómetra á ári.
Launin eru svo sem ekki ýkja
há, en hún kýs fremur reið-
mennskuna en að sitja vfir vél-
ritun eða einhverju álíka, af
því að ánægjan og tilbrevtingin
bæta það upp sem vantar á
kaupið.
+ LIBBY Howie hefur vakið óskipta sthygli uppboðssækjenda f
London. Hún er nefnilega fyrsta konan sem nokkru sinni hefur
gegnt starfi uppboðshaldara hjá Sotheby’s, uppboðsfyrirtækinu
fræga. Mvndin var tekin er Libby Howie þrevtti frumraun sfna.
Þá voru boðin upp listaverk frá 19. öld og einnig nútfmalistaverk.
Libby Howie nam viðGirton College f Cambridge og hefur unnið
hjá Sotheby’s f tvö ár.
BO BB & B'O
HÚN ÆTLAR, AÐ VERÐA „ , '
PE5SÍ pOKA BÓ/)
^UVAÐA
BOBB
C PAÐ ER EKKÍ VON AÐ ÞÚ 5ÍÁÍR
_ C HANA-----PÚ ERT EKKÍ UNDlR '
( AMRiFUM 86//
Jtr b-n-
í&MOMp
| JMM
21
Ferskur blœr—
fagurhljómur
Háteigskirkja 8. febr. 1976.
Kór Langholtskirkju.
Stjórnandi: Jón Stefánsson.
Efnisskrá: Lög eftir
G. Pitoni, N. Gombert,
H. Schutz, Þorkel Sigur-
björnsson og M. Tippett.
Kór Langholtskirkju efndi til
tónleika í Háteigskirkju á
sunnudagskvöldið var. Efnis-
skráin var fjölbreytt og
spönnuðu lögin tímabil frá 16.
öld til okkar daga. Kór Lang-
holtskirkju hefur á undanförn-
um árum ráðist í mun viðameiri
og vandmeðfarnari verkefni en
almennt gerist með kirkju-
kórum og náð eftirtektar-
verðum árangri. Stjórnandinn,
Jón Stefánsson, hefur unnið að
þjálfun kórsins af mikilli alúð
og vandvirkni, og er greinilega
vaxandi í sínu starfi. 1 kórnum
er mikið af ungu fólki sem gef-
ur hljóm kórsins ferskan og lif-
andi blæ. En hljómurinn býr
einnig yfir fyllingu og sveigjan-
leika. Samræmi er oftast gott
milli radda, en aðalsmerki kórs-
ins er e.t.v. fyrst og fremst létt-
leiki og snerpa, einkum er hinn
lausi og svifandi tónn fyrsta
sóprans aðlaðandi. Tónleikarn-
ir hófust á lögum eftir þá G.
Pitoni og N. Gombert þar sem
áðurgreind einkenni komu
glöggt í ljós, og sérstaka
ánægju vakti frammistaða kórs-
ins í lagi H. Schiitz, „Lobe den
Herren meine Seele”, þar sem
hann söng tvískiptur. Fjórir
lofsöngvar Þorkels Sigur-
Tónlist
eftir EGIL
FRIÐLEIFSSON
björnssonar nutu sin einnig vel
i meðferð kórsins, en „Lofsöng-
ur Maríu’’ var hér frumfluttur.
Þetta er áheyrileg tónsmíð en
gerir mjög óvægnar kröfur til
flytjenda, og mátti merkja að
kórinn átti i nokkrum erfiðleik-
um, bæði hvað viðkom tónhæð
og innkomur. Að lokum söng
kórinn 5 negrasálma í nokkuð
sérstæðri raddsetningu M.
Tippett. Kirkjan var þéttsetin
þakklátum áheyrendum og
sannarlega er ástæða til að óska
Kór Langholtskirkju og stjórn-
andanum Jóni Stefánssyni til
hamingju með velheppnaða
tónleika um leið og þau eru
hvött til að halda áfram á sömu
braut.
Skákmót
í miðri byltingu
SVÆÐAMÓT V-Asíu fór fram í
Teheran í íran dagana 15.—31.
júli síðastliðinn og urðu úrslit
sem hér segir: 1. Harandi
(íran) 9,5 v„ 2. Sharif (tran) 9
v., 3. —4. Aaron (Indl.) og
Konatly (Líbanon) 8 v„ 5. Ali
(Indl.) 6,5 v„ 6.—8. Farooqui
(Pakistan), Satar (Pakistan)
og Sursock (Líbanon) 6 v. o. sv.
frv. Þátttakendur voru alls 13
og voru þeir auk áðurtaldra frá
Sýrlandi, Jórdaníu og írak.
Mongólar áttu sókn að þessu
svæði, en sendu enga þátttak-
endur og varð þvi mótið veik-
ara en ella. Sigurvegarinn, Har-
andi, mun all vel þekktur í sinu
heimalandi, og eins og eftirfar-
andi skák sýnir virðist hann
vera liðtækur skákmaður.
Hvftt: Konatly (Líbanon)
Svart: Harandi
Nimzoindversk vörn
1. d4 — Rf6, 2 c4 — e6, 3. Rc3
— Bb4,4. e3 — 0-0, 5. Rf3 — d5,
6. Bd3 — Rc6, 7. 0-0 — a6, 8.
Dc2 — h6, 9. Re2
(Betra var 9. a3 eða 9. Bd2).
9. — dxc4, 10. Bxc4
(Nákvæmara var 10. Dxc4).
10. — Bd6, 11. Hfdl — De7, 12.
e4 — e5, 13. Rh4?
(Slæmur afleikur. Bezt var
13. dxe5!)
13. — Rg4!, 14. Rf3
( Ekki 14. Rg6 vegna Df6, 15.
Rxf8 — Dxf2).
14. — Rxd4, 15. Rexd4
(15. Rfxd4 var betra).
eftir JÓN Þ. ÞÓR
15. — exd4,16. h3
(Ekki 16. Hxd4? vegna Rxh2,
17. Rxh2 — Bxh2, 18. Kxh2 —
De5)
16. — Rxe5, 17. Rxd4 — Rxc4,
18. Dxc4 — Dxe4, 19. Dc3 —
De5, 20. Be3 — Dh2+, 2J. Kfl
— Bd7!
(Ekki 21. — Dhl, 22. Ke2 —
Dxg2, 23. Hgl — Dxh3, 24. Re6
og vinnur).
22. Ke2 — Hae8, 23. Rf3 — Df4,
24. Hd4
(Þvingað vegna hótunarinn-
ar 24. — Bb5, 25. Kel — Bb4).
24. — Df6, 25. Kfl — Bc6, 26.
Hg4 — Dxc3, 27. bxc3 — f5!
(Nú á hviti hrókurinn
skyndilega engan góðan reit).
28. Hh4 — f4, 29. Bd4 — Bxf3,
30. gxf3 — c5 og hvitur gafst
upp.
Stuðzt hefur verið við athuga-
semdir J. Sajtar í Schach Echo.
EFÞAÐERFRÉTT- 9) NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í ' MORGUNBLAÐINU
j j J 1