Morgunblaðið - 11.02.1976, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1976
*
Islenzkur
Suíi
ÞaS má með sanni segja að
íslendingar hafi átt fimm kepp-
endur i stórsvigskeppni Ólympiu-
leikanna að þessu sinni, það sem
Svíinn Guðmundur Soderin er af
islenzku foreldri, þótt hann keppi
fyrir Svia. Þegar blaðamaður
Morgunblaðsins ræddi við hann
eftir fyrri dag stórsvigskeppninn-
ar sagðist hann ekki vera sérlega
ánægður með árangur sinn. en
hann var þá 33. i röðinni. Guð-
mundur skipar nú alpagreina-
landslið Svia ásamt Ingemar
Stenmark. Jokobsson og Strand
Stig. Sagði Guðmundur að hann
hefði vart komið i erfiðari braut
en þessa, þar sem harður is hefði
verið I meiri hluta hennar. Hefði
brautin verið farin að versna
verulega þegar hann fór i hana,
og sagðist hann ekki geta skilið
hvernig þeir sem á eftir komu
náðu að fara hana. i keppninni i
gær hafði Guðmundur sæmilegt
rásnúmer. en ætlaði sér-um of.
missti hlið og datt siðan og var
þar með úr leik.
ÞÓ.
Afrek
Halldórs
athygUsvert
ÁRANGUR Halldórs Matthías-
sonar i 15 kilómetra göngunni
hefur vakið mikla athygli meðal
göngumanna i Innsbruck Þykir
árangur hans með ólikindum mið-
að við það að hann hefur aðeins
nokkurra mánaða æfingu að baki,
en flestir þeir sem hann sigraði i
göngunni hafa hins vegar æft
sleitulaust i allt að fjögur ár með
keppni á Ólympiuleikunum sem
markmið. Þannig hafa t.d. þeir
Magne Myrmo og Gerhard
Grimmer, heimsfrægir göngu-
menn, sem Halldór skaut ref fyrir
rass litið gert annað undanfarna
fjóra vetur en að æfa.
Áhorfendur
AÐSÓKN hefur verið mjög góð að
Ólympiuleikunum I Innsbruck og
þá sérstaklega um sfðustu helgi.
er fjöldi Þjóðverja og Svisslend-
inga lagði þangað leið sina auk
Austurrikismanna. sem vitanlega
eru fjölmennastir. Daglega munu
vera á Ólympiusvæðinu um 60
þúsund manns.
Siðan Franz Klammer sigraði i
brunkeppni leikanna hefur hann
verið þjóðhetja i Austurriki og
vart haft frið fyrir áhugasömum
fréttamönnum og fólki sem vill fá
eiginhandaráritanir Sömu sögu er
að segja af flestum keppendanna
og fara Islendingar ekki varhiuta
af þvi fremuren aðrir. Þeir vöktu
mikla athygli er þeir gengu inn á
leikvanginn i Álafoss-fötum
sinum, og er þeir voru að æfing-
um i Lizum á laugardagsmorgun-
inn kom til þeirra fjöldi fólks og
bað þá að rita nófn sin.
ÞÓ
Datt
SÆNSKI skiðastökkvarinn
Thomas Lundgren var fluttur á
sjúkrahús i fyrradag eftir að hann
hafði dottið á æfingu af Berisei
stokkpal'inum þar sem keppni i
stökki af 90 metra palli á
Olympiuleikunum mun fara fram.
Var Lundgren nokkuð skrámaður
og hafi fengið taugaáfall, en
hafði hins vegar sloppið við bein-
brot sem þótti með ólikindum,
eftir hina hrikalegu byltu er hann
hlaut.
Svisslendingar ærðnst af fögnnði
— er þeirra menn hlutu gull
og silfur í stórsvigs/ceppninni
Frá Þórleifi Ólafssyni í Innsbruck.
„Hemmi, Hemmi", heyrðist hrópað um allt Ólympiusvæðið eftir að Ijóst
var að Svisslendingurinn Heini Hemmi hefði hreppt gullverðlaun í stórsvigs
keppninni I Innsbruck sem lauk í gær. Svisslendingar gengu bókstaflega
berserksgang eftir keppnina og gáfu tilfinningum sfnum lausan tauminn. Og
það var ekki út af Hemmi einum sem Svisslendingar gloddust í gær, þar sem
silfrið féll einnig i þeirra hlut, þar sem Ernst Good hlaut næstbezta tfma f
keppninni. Ingemar Stenmark frá Svfbióð náði svo f bronsverðlaunin, en á
þvf áttu ekki margir von, þar sem hann var tveimur sekúndum á eftir fyrsta
manni að fyrri umferðinni lokinni. Gustavo Thoeni, sem var f fyrsta sæti eftir
fyrri umferðina, varð svo í fjórða sæti.
Stórsvigsbrautin f gærmorgun var geysilega erfið og sögðu reyndustu og
frægustu keppendurnir á leikunum að þetta væri erfiðasta braut sem þeir
hefðu komið f nú f vetur. Sézt það m.a. á því, að aðeins 54 keppendur luku
keppni af þeim rösklega 100, sem hófu hana.
Keppnin f gær var geysilega skemmtileg. Engelhard Pargaetzi fór brautina
fyrstur og náði samanlögðum tfma 3:28,76. Sfðan kom Greg Jones frá
Bandaríkjunum, en náði ekki eins góðum tfma. Þá komu þeir Wolfang
Juninger frá Vestur Þýzkalandi og Hans Hintersser frá Austurrfki og hvorug-
um þeirra tókst að slá Pargaetzi við.
Nú stóðu áhorfendur á öndinni, þvf tilkynnt var að Ingemar Stenmark frá
Svfþjóð væri f brautinni. Hann brást ekki vonum og fór brautina af miklum
hraða og öryggi Fannst sumum nóg um hraðann á stundum i þessari
stórhættulegu braut. Stenmark kom f mark á tfmanum 1:40,90 min. sem var
lang bezti tfminn sem náðist í gær og samanlagður tfmi hans var 3:27,41
mín.
Næstur á eftir Stenmark kom Hemmi. Þessi litli naggur, sem er aðeins
1,60 metrar á hæð, sýndi að margur er knár þótt hann sé smár og náði
tfmanum 1:41,56 mín. og var þar með kominn fram fyrir Stenmark og menn
héldu að röðin myndi ekki breytast nema ef Thoeni, sem var með bezta
tfmann frá fyrri deginum, myndi takast vel upp. En Thoeni var ekki jafn
snarpur og fyrri daginn og fékk tfmann 1:43,48 mín. og þvf 3:27,57 mín.
samanlagt, sem var þriðji bezti tfminn. Þrfr menn fóru brautina á eftir Thoeni.
Síðastur í fyrsta ráshópnum fór svo Svisslendingurinn Ernst Good, en hann
hafði næstbezta tfmann eftir fyrri daginn. Fór hann brautina geysilega vel og
kom f markið á 1:41,56 mfn., þannig að samanlagður tfmi hans var 3:27,17
mfn. Þar með áttu Svisslendingar orðið tvo fyrstu menn og Svfar þann þriðja.
ítalir sem allir höfðu gert sér vonir um að Thoeni myndi ná f gullið eftir hinn
góða árangur hans fyrri dag keppninnar urðu að bfta f súra eplið. Og það urðu
fleiri að gera. Gestgjafarnir, Austurrfkismenn, áttu engan mann fyrr en í 14.
sæti, en það var Hans Hintersser.
Efri mvndin sýnir hinn lágvaxna Svisslending Heini Hemmi nálgast
markið sem sigurvegari í stórsvigskeppninni en neðri myndin er af
ítalanum Gustavo Thoeni sem hafði forystu eftir fyrri dag stórsvigs-
ins. Hann fór hins vegar svo varlega f sakirnar f gær að hann hrapaði
niður f fjórða sætið. Sfmamynd AP
Sá sem einna mest kom á óvart í keppninni var Strand Stig frá Svfþjóð sem
hafnaði í 12. sæti, en hann hafði rásnúmer 35. Þykir þetta mikill sigur fyrir
landsliðsþjálfara Svfa, Ole Rollen.
Stórkostlegt efni
í afreksmann
— sagði sœnski
þjálfarinn
um Sigurð
Símamynd AP
Sovétmaðurinn Evgeni Kulikov sigrar i 500 metra skautahlaupi.
Sænski landliðsþjálfarinn í alpa-
greinum, Ole Rollen, sagði i við-
tali við Morgunblaðið i gær, að
Sigurður Jónsson frá Isafirði væri
einhvert mesta efni i afreksmann i
alpagreinum sem hann hefði séð i
Evrópu s.l. tvö til þrjú ár. — Ef ég
fengi að hafa hann í minni umsjá
tvö til þrjú næstu ár gæti ég skap-
að úr honum nýjan Ingemar Sten-
mark, og vel það. sagði Rollen
Sigurður er aðeins 16 ára og
sennilega yngsti keppandinn i alpa-
greinum á Ólympiuleikunum —
Hann verður frábær ef hann fær að
æfa eins og með þarf og taka þátt i
mótum á næstu árum, t.d heims-
bikarkeppninni, sagði Rollen.
En auðvitað kostar slikt peninga
og aftur peninga og þvl miður er
ósennilegt að islenzka skíðasam-
Sigurður Jónsson.
bandið se þess megnugt að halda
úti einum manni, hvað þá fleirum. I
keppnisferðalögum I heilan vetur,
og þvi miður er litil von að okkar
menn komist i þá aðstöðu sem flest-
ir keppendur stórþjóðanna hafa, en
þeir eru ýmist gerðir út af viðkom-
andi stjórnvöldum eða þá stórfyrir-
tækjum Meðan þessir piltar fá ekki
betri aðstöðu en þeir hafa haft er
ekki mikil von til að þeir komist
langt —- þeir fá til að mynda þannig
rásnúmer á stórmótum að þeir
keppa raunverulega i allt annarri
braut en þeir beztu
Þ.Ó.
Tvöfaldur sovézknr signr í 300 m skautahlaupinn
SOVÉTMENN unnu tvöfaldan sigur !
500 metra skautahiaupi karla á
Ólympíuleikunum ! Innsbruck ! gær.
Sigurvegari varð Evegenij Kulikov
sem hljóp á 39,1 7 sek og er sá tlmi
nýtt Ólympiumet Gamla Ólympiu-
metið var i eigu Vestur Þjóðverjans
Erhards Keller og var það 39,44
sek., sett á Ólympiuleikunum I
Sapporo 1972.
Þegar í öðrum riðli hlaupsins í gær
náðist frábær árangur, en þá hljóp
Bandaríkjamaðurinn Peter Muller á
39,57 sek Hann hafði þó ekki
forystuna lengi, þar sem Kulikov hljóp
í næsta riðli ásamt Vestur-
Þjóðverjanum Horst Freese. Strax i
startinu datt Þjóðverjinn og var úr leik
en Sovétmaðurinn skundaði áfram og
hafði mjög gott rennsli Var þegar séð
að hann myndi ná mjög góðum tima
og i markið kom hann á 39,17 sek
Þar sem aðstæður voru ekki alltof
góðar I Innsbruck mátti það vera aug-
Ijóst að þennan tíma yrði erfitt að
bæta
Það var svo ekki fyrr en i 10. riðlin-
um sem Kulikov var ógnað. Þar hlupu
saman Sovétmaðurinn Valerij Muratov
og Bandarlkjamaðurinn Daniel Immer-
fall. Margir höfðu spáð Muratov sigri
eða verðlaunasæti á leikum þessum,
en Immerfall var hins vegar óþekktur
skautahlaupari. Öllum á óvart háðu
þessir hlauparar grimmilegt einvlgi og
var séð um mitt hlaup þeírra að þeir
myndu ekki verða langt frá árangri
Kulikovs, ef svo héldi sem horfði. Á
siðustu 100 metrunum varð Banda-
rikjamaðurinn að gefa nokkuð eftir, en
Sovétmaðurinn kom i markið á 39 25
sek og nægði sá árangur til silfurverð-
launa á mótinu Immerfall fékk tímann
39,54 sek og hreppti bronsverðlaun-
in, þótt litlu munaði reyndar að
Svíanum Mats Wallberg tækist að
krækja i þau, en hann hljóp á 39,56
sekúndum og varð fjórði
Þrátt fyrir að nokkrir menn hefðu
hlotið svo góðan tima voru úrslit
hlaupsins ekki ráðin fyrr en i næst
siðasta riðlinum en þar hlupu saman
Bandarikjamaðurinn James Chapin og
Norðmaðurmn Jan Egil Storholt, báðir
mjög góðir skautahlauparar og einkum
þó Bandarikjamaðurinn, sem hljóp á
38,9 sek. á móti I Davos skömmu fyrir
Ólympiuleikana
En þegar þeir félagar Chapin og
Storholt foru i brautina var hún tekin
að versna til muna og áttu þeir báðir i
Framhald á bls. 27