Morgunblaðið - 12.03.1976, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR
55. tbl. 63. árg. FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1976 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
32 byltingar-
menn í Nígeríu
líflátnir í gær
London 11. marz — Reuter.
HERSTJÖRNIN í Nígeríu fyrir-
skipaði í dag að 32 hermenn sem
fundnir hefðu verið sekir um að-
ildað hinni misheppnuðu bvlting-
artilraun í siðasta mánuði yrðu
þegar i stað teknir af Iffi af af-
tökusveit, að þvf er útvarp lands-
ins sagði. Einn maður til viðbót-
ar hlaut Iffstíðarfangelsi en engin
nöfn voru gefin upp. 12S manns,
þ.á m. nokkrir borgarar hafa ver-
ið handteknir eftir byltingartil-
raunina sem rfkisleiðtoginn
Murtala Muhammed beið bana f
en 40 hefur verið sleppt aftur, að
Albert Speer:
Ætlaði að
myrða Hitler
á gasi
Heidelberg, 11. marz.
NTB.
ALBERT Speer, sem var
vopnamálaráðherra stjórnar
Adolfs Hitlers sfðustu ár
heimsstvrjaldarinnar, sagði f
viðtali i dag að hann hefði
reynt að drepa Hitler í febrúar
1945. Speer sagði að þá hefðu
sveitir bandamanna verið að
nálgast Berlfn og hann hefði
ekki fyrr sett sig upp á móti
skipunum Hitlers á neinn hátt.
En í febrúar 1945 þegar sýnt
var að strfðið var að tapast hafi
Hiller Speer
hann litið svo á að hann yrði að
gera eitthvað, þar sem staða
hans hafi þá verið önnur og
erfiðari en r júlí 1944, þegar
nokkrir liðsforingjar reyndu
að myrða Hitler.
— Eg leit svo á að ég yrði að
verja hendur mfnar, fjöl-
skyldu mfna og þýzku þjóðina.
Hitler hafði hvað eftir annað
látið f það skfna að þýzka þjóð-
in ætti ekki rétt til að lifa af
styrjöldina ef Þjóðverjar töp-
uðu strfðinu, sagði Speer f
blaðaviðtali vegna útkomu
endurminninga hans.
Speer ætlaði að leiða eitur-
gas inn f rikiskanslarabygg-
inguna, en Hitler gaf fyrir-
mæli um að verðir gættu sér-
staklega vel að öllu loftræsti-
kerfi og fundu þeir þá gaslek-
ann, svo að ekki varð neitt úr.
Murtala Muhammed — hans hef-
ur verið hefnt.
sögn útvarpsins. Ekki er vitað
hvort foringi byltingarmanna,
B.S. Dimka ofursti er meðal
þeirra sem teknir voru af lffi.
Yfirmaður Líbanonhers á Beirutsvæðinu:
Herlög — Afsagnar ríkis-
stjórnar og forseta krafizt
Beirút, Tel Aviv, 11. marz.
Reut er—A P—NTB.
YFIRMAÐUR Líbanonhers á
Beirutsvæðinu, Abdel-Aziz al-
Ahdab hershöfðingi, lýsti því yfir
f sjónvarpsávarpi f kvöld að hann
hefði tekið völd sem „bráða-
birgðalandstjóri hersins", herlög
væru í gildi, útgöngubann væri f
Beirut um óákveðinn tíma, og
skoraði jafnframt á Rashid
Karami forsætisráðherra og rfkis-
stjórn hans, og Suleiman
Franjieh forseta að segja af sér
innan sólarhrings. Hershöfðing-
inn las upp ávarp sem hann kall-
aði „yfirlýsingu númer eitt“, þar
sem hernum er m.a. skipað að
hefja tafarlaust skothrfð á undir-
róðursmenn. Hann lýsti
stuðningi við sakaruppgjöf
múhameðsku liðhlaupanna sem
tilkynnt var i gærkvöldi, en upp-
reisn hermanna þessara hafði
fært landið enn nær nýrri borg-
arastyrjöld og höfðu þeir náð
a.m.k. átta herbúðum og herstöðv-
um á sitt vald i vikunni. Seint f
kvöld var talið að ástæðan fvrir
íhlutun hersins hefi verið sú að
Franjieh hafi neitað að undirrita
sakaruppgjöfina. Þá sagðist
Ahdab hershöfðingi, sem er
múhameðstrúar, styðja málamiðl-
unartilraunir Sýrlendinga. Hann
sæktist persónulega ekki eftir
völdum og væri ekki fylgjandi
herstjórn. Hann hvatti þingið til
að koma saman innan viku og
kjósa nýjan forseta sem síðan
myndi velja nýja ríkisst jórn.
Framhald á hls. 24
Ljosm. Mbl: Friðþjófur
RAFMAGNSLEYSIÐ — Þetta 63 metra háa mastur í Búrfellslínu I féll niður á bökkum Þjórsár í óveðrinu í
fyrrakvöld. Mastrið er algjörlega ónýtt og verður að reisa annað í staðinn, sem tekur 2 vikur.
W ilsons hélt velli
Stjórn
London, 11. marz — Reuter.
0RIKISSTJÓRN brezka Verkamannaflokksins fékk f kvöld naumlega
samþykkta traustsyfirlýsingu f neðri málstofu þingsins stjórninni og
stefnu hennar til handa. Harold Wilson forsætisráðherra og flokks-
menn hans höfðu allar klær úti til að smala saman öllum þingmönnum
sfnum til atkvæðagreiðslunnar og voru m.a. sjúkir menn fluttir af
spftölum til að greiða atkvæði. Wilson hafði eftir mikil fundahöld fyrr
um daginn óskað eftir atkvæðagreiðslunni til að mæta áköfum kröfum
um að hann segði af sér eftir auðmýkjandi ósigur stjórnarinnar f
atkvæðagreiðslu um sparnaðarráðstafanir hennar f gærkvöldi, þar sem
37 vinstri-sinnar úr Verkamannaflokknum sátu hjá. Vinstri menn
veittu stjórninni hins vegar stuðning sinn á ný f kvöld og hún hélt velli
með 17 atkvæða mun, — eða 297 gegn 280. Ef stjórnin hefði orðið
undir hefði þurft að boða til nýrra kosninga. Við lok atkvæðagreiðsl-
unnar f kvöld sungu Verkamannaflokksþingmenn „Happy birthday,
dear Ilarold!" en Wilson varð sextugur f dag og varð að aflýsa
afmælismáltfðinni vegna ástandsins.
Þegar Wilson óskaði eftir at-
kvæðagreiðslunni fyrr í dag
snupraði hann vinstri mennina37
úr þingliði Verkamannaflokksins
sem ollu ósigrinum í gærkvöldi
með því að sitja hjá við atkvæða-
greiðsluna um frumvarpið. Frum-
varpið, sem gerði ráð fyrir 3000
milljón sterlingspunda niður-
skurði á eyðslu rikisins á árunum
1977 til 1980, var þannig fellt með
28 atkvæða mun. Verkamanna-
flokkurinn hefur aðeins eins at-
kvæðis meirihluta á þinginu.
Vinstri mennirnir sögðust sitja
hjá vegna þess sem þeir kölluðu
svik ríkisstjórnar Wilsons við
grundvallarstefnu sósialista. Wil-
son sagði hins vegar á þinginu í
dag, að þessir flokksmenn sínir
hefðu gengið í „vanheilagt banda-
lag“ með íhaldsflokknum. Wilson
var brosandi, en kafrjóður í fram-
an er hann flutti mál sitt.
Þessi mótmæli vinstra arms
Verkamannaflokksins eru talin
niðurlægjandi fyrir Wilson og
stjórn hans, sem stendur frammi
fyrir ýmsum erfiðleikum af öðru
tagi. Wilson lagði áherzlu á að ef
vinstri menn greiddu atkvæði til
stuðnings stjórn sinni þá fæli það
um leið í sér stuðning við efna-
hagsstefnu hennar og sparnaðar-
ráðstafanir. Þeim væri ætlað að
setja hemil á verðbólguna, en
það væri verðbólgan sem hefði
orsakað fall á verðgildi sterlings-
pundsins að undanförnu. Staða
pundsins styrktist engu að síður í
dag með sérstökum aðgerðum
Englandsbanka, og var loka-
skráning þess 1,9340 dollarar.
Wilson sagði að hann teldi sig
hafa rétt til að biðja neðri mál-
stofuna um stuðningsyfirlýsingu
vegna þess að meirihluti brezku
þjóðarinnar væri fylgjandi efna-
hagsstefnu hans. Stjórnarand-
stæðingar kölluðu í sífellu
frammí fyrir Wilson og skoruðu á
hann að segja af sér, en hann
hvatti vinstri menn til að koma í
veg fyrir að Ihaldsflokkutinn
undir forystu Margaret Thatcher
kæmist til valda sem hann sagði
vera „mesta íhalds- og afturhalds-
afl sem komið hefði fram i þessu
landi í heilan mannsaldur."
Frú Thatcher sagði við mikinn
Framhald á bls. 24
Bóluefni
fundið
Sydney 11. marz Reuter
ASTRALSKIR læknar hafa
ræktað bóluefni til að berjast
gegn nýjum inflúensuvfrus sem
hefur kostað þúsundir mannslffa
á Vesturlöndum nú í vetur. Segir
f skýrslu læknanna að fólk sé
sérstaklega viðkvæmt fyrir flensu
vegna þess að virusinn sé stöðugt
að breyta sér og komi fram ný
einkenni i honum sem Ifkaminn
hafi ekki varnir við. Þessi breyt-
ingarás geri að verkum að bólu-
efni við inflúensu séu gagnlaus
og læknar geri sér grein fyrir að
endurnýja þurfi sffellt bóluefnis-
gerðir á rannsóknastofum.
Inflúensa sem hefur verið
kölluð „Victoria“ vegna þess að
Framhald á bls. 24