Morgunblaðið - 12.03.1976, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1976
Glæsileg 3300 m íþróttahöll þýtur upp
I. STEFÁN Runólfsson austan megin við íþróttahöllina I Brimhólalaut. Byggingin til vinstri er
sundhöllin með 25 metra langri laug grunnri og allt að 6 metra dýpri þar sem stökkbrettin
eru, en utan við gafl hússins verða heitu kerin. Lága byggingin I miðjunni er stór
veitingastofa, en stóra byggingin lengst til hægri er íþróttasalurinn.
2. íþróttahöllin séð frá vestri. Til hægri er sundlaugarbyggingin með búningsklefum,
böðum og tveimur saunabaðstofum fyrir konur og karla, til vinstri er íþróttasalurinn með
búningsherbergjum og böðum, og í millibyggingunni eru fundaherbergi, æfingaherbergi og
veitingasala auk inngangs fyrir gesti.
Það þarf að gæta að mörgu. Þarna er Vignir Guðnason eftirlitsmaður
bæjarins t.v. og yfirverkstjóri alls verksins, Daninn Mejer sem vinnur
hjá Klemmensen og Nielsen A/S.
ágústmánuði s.l., en nú þegar er
byrjað að flísaleggja sundlaugina,
búningsklefa og böð Byggingar-
hraðinn er ævintýri líkastur miðað
við það sem þekkist hér á landi í
byggingu iþróttahúsa, en i flestum
tilvikum hefur bygging slíkra mann-
virkja tekið a m k mörg ár og
margir aðilar sem hafa í áratugi
jafnvel verið að berjast við að,koma
upp iþróttamannvirkjum halda
ennþá aðeins á teikningunum í
hendinni
íþróttamannvirkin i Eyjum eru
bæði glæsileg og rúmgóð og hvað
það snertir valda þau algjörri bylt-
ingu hér á landi, en um árabil hafa
forsvarsmenn ríkisins í gerð iþrótta-
mannvirkja barizt á móti öllum vilja
hinna ýmsu bæjarfélaga til að gera
eitthvað til frambúðar i þessum
málum Nýju íþróttamannvirkin í
Eyjum munu hafa fullkomna
keppnislaug og íþróttavöll, stór veit-
ingastofa er i byggingunni, 2 sauna-
böð, mörg rúmgóð búningsher-
bergi, æfingaherbergi og fundar-
salir. í engu iþróttahúsi á landinu er
eins fullkomin aðstaða og verður í
iþróttahúsinu i Brimhólalaut I Eyj-
um, en margir eru nú farnir að kalla
bygginguna Brimhóla
Við röbbuðum við Stefán Runólfs-
son framkvæmdastjóra Vinnslu-
stöðvarinnar og formann húsbygg-
ingarnefndar íþróttahallarinnar en
hann hefur m a verið formaður
íþróttabandalags Vestmannaeyja á
annan áratug
Stefán sagði að aðdragandinn að
þessari byggingu hefði hafizt með
hugmyndum manna í þessa átt fyrir
gos, en eftir gos er sundlaugm var
horfin á 40 metra dýpi í hraun, kaus
bæjarstjórn Vestmannaeyja nefnd
manna til að kynna sér á hvern hátt
mætti á sem skemmstum tíma
byggja upp aðstöðu fyrir sund og
inniiþróttir í framhaldi af því fór
nefndin til Norðurlanda til þess að
kynna sér iþróttamannvirki Niður-
staðan varð sú bygging sem nú er
risin i Eyjum og var þá miðað við
skemmstan byggingartima og verð,
en miðað við samsvarandi islenzkar
byggingar verður þessi bygging
ódýrari og kemst um leið í gagnið,
því lokið verður við sundhöllina til
fulls á 9 mánuðum og íþróttasalinn
og önnur mannvirki á einu ári, eða
n.k. haust
Þegar hafist var handa um fram-
kvæmd þessa máls var til síðan fyrir
gos teikning eftir Jes Einar
Þorsteinsson arkitekt að sundhöll
við Löngulág I Eyjum, en Eyjamenn
voru sammála um að hraða þyrfti
framkvæmdum I þessum efnum og
því væri hyggilegast að kanna
möguleika á innfluttum íþrótta-
mannvirkjum. Höfðu nefndarmenn
samband við Jes Einar og Þorstein
Einarsson íþróttafulltrúa og neitaði
arkitektmn að verða ráðgjafi
nefndarinnar i hinum nýju athug-
unum og Þorsteinn Einarsson
íþróttafulltrúi tók mjög neikvæða
afstöðu gegn hinum nýju hugmynd-
um.
Eyjamenn settust þá á rökstóla og
mótuðu sina stefnu Fóru þeir tvi-
vegis til funda i menntamálaráðu-
neytið og fengu þar að sögn Stefáns
bæði velvilja og mótvilja, „en,” hélt
Stefán áfram,” það er fyrir velvilja
Vilhjálms Hjálmarssonar mennta-
málaráðherra að þetta hús er komið
hingað Þessi mannvirki væru ekki
hér nú ef hann hefði ekki tekið svo
jákvæða afstöðu til hugmynda okkar
sem raun ber vitni.”
í aprfl s.l ár fóru nefndarmenn
siðan til Norðurlanda þar sem
gengið var frá samningum, en þá
hafði verið ákveðið að taka tilboði
frá Klemmensen og Nielsen í Dan-
mörku. Bæði leizt nefndarmönnum
bezt á vinnuna frá því fyrirtæki og
einnig voru þeir með hagstæðast
Við smelltum þessari mynd af nokkrum peyjum sem voru að leika sér I vinnuvirkinu utan á
sundhöllinni, en þeir bíða I óþreyju eftir að geta sprangað að list innan dyra.
Stefán Runólfsson.
Guðmundur og Þórir gáfu sér að-
eins tíma til að Ifta upp þótt þeir
væru mikið uppteknir við fllsalögn
f kvennabaðinu.
3. Um þessar mundir er verið að hefjast handa um flfsalagningu
sundlaugarinnar, sem sést á meðfylgjandi mynd, en sundhöllin er mjög
björt og rúmgóð.
Segja má að íþrótta- og sund-
höllin i Vestmannaeyjum þjóti upp,
þvi byrjað var á mannvirkjunum i
tilboð, en alls er húsið 3300
fermetrar. Það var hannað af dönsku
arkitektafyrirtæki, Poul Kjærgaard,
samkvæmt óskum Eyjaskeggja
Kostnaðaráætlun er um 260
milljónir króna, en sundlaugin er
1 1 V2 metri sinnum 2 5 metrar og
salurinn er 27 metrar sinnum 44
eða um 1 600 fm alls en síðan eru
liðlega 1600 fermetrar fyrir aðra
aðstöðu í húsinu
Reiknað er með að 10—12
manna fast starfslið verði við allt
húsið og að sögn Stefáns er reiknað
með að á ársgrundvelli verði ekki
meira en 1—2 milljóna króna tap á
rekstri hússins.
Framhald á bls. 31.
Gamalreynda knattspyrnukempan
TÝSSI, við útismfðar á sundhöll-
inni, en hann hefur gilda ástæðu
til að brosa breitt þvf hann getur
næstum velt sér úr rúminu beint f
laugina, svo stutt er þangað frá
heimili hans.
Sundlaug og íþróttasalur fullbúin á einu ári