Morgunblaðið - 12.03.1976, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 12.03.1976, Blaðsíða 12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1976 12 Villiönd Ibsens í Iðnó: um leikritum og svo til þess að anda að sér rótgrónu leikhús- lofti f húsi með sterka og svip- mikla sál. Ibsen skrifaði Villiöndina 1884 og er hún hvarvetna talin með tilþrifamestu leikritum hans. Leikurinn gerist meðal fjölskyldu Hjalmars Ekdal, Ginu konu hans og Heiðveigu litlu og svo gamla Ekdal. Villi- öndin er nú sett á svið á íslandi í þriðja sinn, fyrst 1928 hjá Leikfélagi Reykjavíkur í Iðnó, siðan 1954 í Þjóðleikhúsinu í þýðingu Halldórs Laxness og nú er það einnig flutt í þýðingu Halldórs lítillega endurskoðað. Leikstjóri á þessari sýningu í Iðnó nú er Þorsteinn Gunnars- son, leiktjöld gerði Jón Þóris- son og lýsingu sér Daníel Vil- hjálmsson um. Villiöndin fjallar um lífs- blekkinguna annars vegar og sannleikann hins vegar, en þegar líða tekur á verkið fer að skýrast að sannleikurinn er oft nokkuð afstæður. Það er spurt um lífsafstöðu fólks í verkinu og Ibsen teflir þarna fram lit- rikum persónum, sem hver um sig á sitt eigið lff, sina eigin veröld. Það speglast hvernig menn lifa með því að klóra í bakkann og blekkja sjálfa sig og fulltrúi þess lífsstils er Hjalmar Ekdal, en andstæðan, sá sem gengur með hugsjóna- kröfuna upp á vasann er hinn gamli skólabróðir hans, Gregars Werle. I verkinu eru þeir pólarnir en Hjalmar er leikinn af Steindóri Hjörleifs- syni og Gregars af Pétri Einars- syni. Ef gluggað er í önnur verk Ibsen, eiga báðar þessar per- sónur sér skyldmenni í öðrum eldri verkum hans. Hjálmar er skyldur Pétri Gaut og Gregars er skyldur Brandi, en báðir eru kunnir úr Ijóðaleikjum Ibsens fyrr á öldinni leið. Eiginleikar beggja þessara persóna voru sterkir i höfundinum sjálfum, Framhald á bls. 25 Karl Guðmundsson Sigurður Karlsson Helgi Skúlason. Margrét Ólafsdóttir VILLIÖNDIN var á sviðinu, einvalalið leikara og stemmn- ingin eins og vera ber á sfðustu æfingum, hlaðin viðkvæmum augnablikum og hlustun eftir réttum tónum á réttum stað, skoðuð hver lýsing og leitað eftir eðlilegustum leikhraða, en allt í einu opnast dyrnar fram í ganginn við miðasöluna. Eldri kona í kápu og með gráan hatt gaukar sér inn og það lekur Valgerður Dan Að lifa lífinu í friði fyrir liugsj ónakröfurukkurum” svolítið út af stemmningunni um leið og hurðin er opnuð út í heiminn. Leikstjórinn sussar með dálitlu trukki, konan stíg- ur skref til baka yfir þröskuld- inn, en gefur svo i aftur, kemur inn og lokar á eftir sér. Allt fellur í Ijúfa löð, stemmningin þéttist á ný og gesturinn tekur á móti. Slík heimsókn í hvers- dagslifinu hjá gamla Iðnó er ekkert óeðlileg, því það er margt fólk sem er beinlínis hluti af því starfi sem á sér stað þar og það kíkir gjarnan inn til að fylgjast með æfingum á nýj- Valdimar Helgason Pétur Einarsson Sigrfður Hagalfn Steindór Iljörleifsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.