Morgunblaðið - 12.03.1976, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 12.03.1976, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1976 33 félk í fréttum Muhammad Ali er meinilla við að fljúga. En hér lætur hann nú engu að slður fara vel um sig I flugvélinni á leið heim frá Puerto Rico. Við hlið hans situr boxarinn Jimmy Ellis. + BAY CITY ROLLERS, brezku poppmilljónerarnir, gáfu nýlega blindrafélaginu I Bretlandi tvo litla ferðabfla og sex leiðsöguhunda, að verð- mæti rúmlega 3 milljónir Isl. króna. Endar Ali á karate? + MUHAMMAD ALI, heims- meistari I boxi ætlar að hætta keppni I hnefaleikum í árslok. Á blaðamannafundi nýlega lýsti hann áætlunum sfnum varðandi þær keppnir sem I vændum eru áður en hann dregur sig I hlé, „ósigraður", bætti hann við. Hinn 4. aprfl mætir hann Jimmv Poung frá Fíladelffu I U.S.A. Þeir munu eigast við á Costa Rica. Og 4. júlf er það Ken Norton og loks George Foreman, en óákveðið er hve- nær þeir leiða saman hesta slna. Allt er á huldu um það, hver fjórði keppinauturinn er. Meistarinn gefur aðeins þessar uppiýsingar: „Minn sfðasti mótherji er ekki boxari. Við munum berjast hvor upp á sinn máta.“ Um það hefur verið rætt, að e.t.v. muni þessi dularfulli keppinautur Alis vera karate- snillingur eða glfmukappi. Ali hefur áður látið eftir sér hafa, að hann gæti vel hugsað sér að reyna krafta sfna við þann fremsta f karate-íþróttinni. Ali stendur fastar á þvf en fótunum, að hann ætli að hætta keppni i iok ársins. „Ég veit að ég tapa, ef ég verð of lengi I hringnum," bætir hann við. Og AIi hatar ekkert eins míkið og að tapa. Hann er og vill alltaf verða „sá rnest i“. Sfðasti leikur Alis, við belgfska boxarann Jean Pierre Coopman, var svo sem engin gullnáma fyrir hann. Uppruna- legar tekjur hans af leiknum voru 1,2 millj. dollara, en það er rækilega klipið af kökunni áður en sagan er öll. „Þegar ég er búinn að borga æfingakostnað, skatta, trygg- ingar o.fl., eru aðeins eftir 200.000 dollarar,*1 upplýsti Ali á blaðamannafundinum, „og til að vinna mér inn 1 milljón dollara þarf ég þvf fimm leiki á borð við þennan.“ BO BB & BO vo'/-//- STGmQaJD + Moskvu, 5. mars — AP. Sovéska hokkístjarnan Vladis- lav Tretyak sýnir kúbanska leiðtoganum Fidel Castro hvernig beita skuli kylfunni. Mvndin er tekin eftir leik sovéskra liða I Moskvu I sfðustu viku. + Hér hampar sigurvegarinn í snjóralli, Lárus Eirfksson, verðlaunagrip sínum. Við dyrnar á björgunarsveitarbiln- um stendur einn I.ionsmanna, Hans Indriðason, en það voru Lionsklúbbarnir Njörður og Freyr, sem stóðu fyrir Mosfells- heiðarrallinu. Ágóði af mótinu rann til tækjakaupa fyrir björgunarsveitir. Rýmingarsala kvengötuskóm Verd frá kr. 1800.— Komið strax og gerið góð skókaup fyrir vorið. Karlmannamokkasiur Verd kr. 2500.— Svartar — Brúnar SKÓVERZLUNIN FRAMNESVEGI 2, sími 17345. ★ 850 w mótor — «fY99il' nægan sogkraft. ic Snúruvinda — dregur snúruna inn I hjóliS á augabragSi. ★ Sjálflokandi pokar — hreinlegt aS skipta um þá. ic Rykstillir — Isatur vita þagar pokinn er fullur. ic Sjálfvirkur rykhaus rykhaus — lagar sig að fletinum sem ryksuga á. Léttbyggö - Upur - Stöðug Verð kr. 47.300.- Sértilboð — Kynningarkjör V. Eignist slíka vél með aðeins 15.000 kr. útborgun og kr. 5.900 á mánuði í sex skipti. Vörumarkaðurinn hf. Ármúla 1A. Húsgagna- og heimilisd. S-86-112 Matvörudeild S-86-111, Vefnaðarv.d. S-86-113 7

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.