Morgunblaðið - 12.03.1976, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1976
7
r
Jarðstöð og
sjónvarps-
þjónusta
Tveir þingmenn, Ellert
B. Schram og Þórarinn
Þórarinsson, flytja tillögu
til þingsályktunar, er felur
rlkisstjórninni, ef sam-
þykkt verður, að láta reisa
jarðstöð með það fyrir
augum að bæta fjarskipta-
sambönd við útlönd og
gera sjónvarpinu kleyft a8
komast I beint samband
vi8 sjónarvarpsstöSvar I
Evrópu um gervihnetti.
j greinargerS er a8 þvl
vikiS, a8 Landsslmi ís-
lands standi nú frammi
fyrir þvl vandamáli, hvern
veg mæta skuli vaxandi
eftirspurn á slmrásum
milli íslands og annarra
landa. Þar komi tvær Iei8-
ir til greina: annars vegar
sæstrengur milli íslands
og Færeyja, hins vegar
jarðstoð. sem kæmi okkur
I samband vi8 gervihnetti
I
og flest lönd heims.
StofnkostnaSur sé hliS-
stæSur, hvor leiðin sem
verSi farin, en jarSstöSin
sé rekstrarlega arSbærari
og gæti stuðlað að um-
talsverðri lækkun á af-
notagjöldum slma og tel-
exsambands við útlönd.
Nú eru afnotagjöld af sæ-
slma til Evrópu vegna tal-
sambands við útlönd nær
fimmfalt hærri en alþjóða-
gjöld, miðað við sömu
vegalengd og telexgjöld
nlföld. Jarðstöð sé þvl
augljóst hagsmunamál
viðskiptavina Landsslm-
ans, auk þess sem sú leið
sé frambúðarlausn en sæ-
strengur skammtlma-
lausn.
Hitt sé svo ekki slður
mikilvægt, að jarðstöð
mæti þörfum sjónvarps
um samband við sjón-
varpsstöðvar I Evrópu
(Evrovision-kerfið), sem
væri verðugur áfangi á 10
ára starfsafmæli sjón-
varpsins og undanfari lita-
sjónvarps I landinu. Gagn-
kvæm efnismiðlun, sem
sllkt samband gerði
mögulega, skapaði sjón-
varpsnotendum nýtt úrval
sjónvarpsefnis og stór-
bætta þjónustu um frétta,
fræðslu og skemmtiefni.
Sjónvarp nái
til landsins alls
j dag munu vera um
472 sveitabæir, sem búa
við ófullnægjandi eða
engin sjónvarpsskilyrði.
Þar af eru 3 á Reykjanesi.
39 á Vesturlandi, 109 á
Vestfjörðum, 113 á Norð-
urlandi vestra, 66 á Norð-
urlandi eystra, 115 á
Austfjörðum og 25 á Suð-
urlandi. Talið er að til
þurfi að koma 150 nýjar
endurvarpsstöðvar til að
koma bæjum þessum I
sjónvarpssamband.
Kostnaður við gerð þeirra
mun naumast vera undir
200 m.kr. Sýnt er að Rlk-
isútvarpið mun ekki geta
risið undir kostnaði við
sllkar framkvæmdir af
eigin tekjum, en tolltekjur
af sjónvarpstækjum munu
eiga að mæta stofnkostn-
aði við dreifikerfi þess.
Naumast heldur risið und-
ir nauðsynlegum lánum,
sem til þessara fram-
kvæmda þyrfti. Varla er
þvl um aðra leið að ræða,
en þá, að stofnuninni
verði útvegað óafturkræft
fjármagn til þessara sjálf-
sögðu framkvæmda til að-
stöðujöfnunar.
Af þessu tilefni hafa
átta þingmenn Sjálfstæð-
isflokksins flutt tillögu til
þingsályktunar. þess efn-
is, að rlkisstjórnin hlutist
til um, að Rlkisútvarpið
komi upp endurvarps-
stöðvum fyrir þá sveita-
bæi, sem nú njóta slæmr-
ar eða engra sjónvarps-
skilyrða, og skuli I þvl
skyni leitað óafturkræfs
framlags úr Byggðasjóði.
Fjárhagsstaða
hafnarsjóða )
Ör uppbygging fiski- '
skipastóls landsmanna |
hefur kallað á um- ■
talsverðar framkvæmdir '
í fiskihöfnum umhverf-
is land allt. Verulegur ■
hluti tekjustofna fjöl- '
margra sveitarfélaga I
(sjávarplássa) hefur runn- ■
ið til J>essara fram- I
kvæmda. Engu að síður I
eru flestar fiskihafnir
reknar með mjög veruleg-
um halla, sem komið hef- .
ur fram I skuldasöfnun I
sveitarfélaga þessara og I
niður á framkvæmdagetu .
þeirra og þjónustu á öðr- I
um sviðum. Fiskihafnir I
þessar gegna verulegu .
hlutverki fyrir útgerð,
fiskvinnslu og verðmæta- I
sköpun f þjóðarbúinu og
þjóna sem vöruhafnir mun I
fleiri sveitarfélögum en I
þeim, sem þurfa að
standa undir stofn- og I
rekstrarkostnaði þeirra.
Það er þvf tfmabær til-
laga sem þingmenn úr öll- |
um stjórnmálaflokkum I
hafa nú flutt á Alþingi, að
gerð verði tafarlaus og ft- |
arleg athugun á fjárhags- i
stöðu hafnarsjóða I land- '
inu, m.a. með hliðsjón af I
hlutdeild rfkisins f stofn-
kostnaði hafnarmann- I
virkja, einkum f fiskihöfn-
um. Hér er um vaxandi |
vandamál að ræða, sem er
að sliga fjölmörg sveitar- |
félög í landinu. .
_______________________J
f Camembert í ábæti með t.d. peru eða vínberjum
gerir vel heppnaða máltíð fullkomna.
Athugið að flestir vilja ostinn fullþroskaðan,
en sumum þykir það hins vegar of mikið af því góða.
Þroska Camemberts má stjórna með réttri geymslu.
Lesið leiðbeiningarnar á umbúðunum.
ostor er veizlukostur
TÍZKUVERZLUN unga fólksins
fe) KARNABÆR
Útsölumarkciöurinn,
Laugavegi 66, sími 28155