Morgunblaðið - 12.03.1976, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1976
11
Lokuðu götunni
við Hvíta húsið
Washington, 10. marz. AP.
GÖTUNNl framan við Hvita
'húsið var lokað í 20 mínútur í dag
meðan sprengjusérfræðingar
rannsökuðu svarta skjalatösku
sem hafði verið skilin eftir við
aðalhliðið að Hvíta húsinu. Task-
an var tóm.
Maður nokkur skildi hana eftir
við hliðið og hvarf síðan.
Fréttabréf frá Djúpi eftir Jens í Kaldalóni:
Kgr og kindur maula gjöf-
ina í Ijósskrúði ngrrar aldar
ast nokkuð, en mikið er þó eftir.
Það bar til tíðinda nú í góubyrj-
Nýlega hélt Djúpmannafélagið
á Isafirði veglegt og fjölmennt
un að Jón bóndi Guðjónsson á þorrablót í félagsheimili Hnífs-
Þegar nú skammdegið er að
baki og sólin hækkar á lofti um
hænufet hvern dag, þá birtir yfir
hugum Djúpverja og þeir hlakka
til komu vors og hlýrra vinda. Á
þeim bæjum sem nýtendruð raf-
ljósin glitra frá nýbyggðu orku-
veri fráBlæfardalsá, hvarf jafnvel
skammdegið í þeirri mynd, sem
það áður hefir verið, þar sem nú
er ljósadýrðin f öllum kytrum og
kompum, og jafnvel uppljómað
bæjarhlaðið svo sem á sólskins-
björtum sumardegi væri. Kýr og
kindur maula nú í sig gjöfina í
ljósskrúði nýrrar aldar í þeirra
huga, og sjá nú fyrst með eigin
augum hve rausnarlega á borð
þeirra er borið, en jafnan áður
varð að duga þeim lyktarskynið
og meðsköpuð tilfinningin ein.
1 hinum snörpu átökum um
skiptingu þjóðararðsins, sem nú
er nýlokið, kom ekki til neinna
sviptinga hjá okkur hér í Djúpi.
Djúpbáturinn hélt uppi áætlunar-
ferðum svo sem venjulega, og
flutningur vöru til bænda og
mjólkur frá þeim var með eðlileg-
um hætti, og mega þeir, sem þar
réðu málum eiga góðar þakkir
fyrir þann skilning og viðsýni, að
fólk þurfi að eta og drekka, og
blessuð börnin að fá mjólkina
sína, þótt að þeir þurfi að bítast
um krónuna og kökuna stóru, sem
allir vilja fá af sem stærstan bit-
ann. Bændur hér við Djúp hafa
skömm á og fordæma harðlega
þá svívirðu að komið skyldi í veg
fyrir flutning mjólkur frá bænd-
um vitt og breitt um landið, þar
sem í huga þeirra vakir ennþá sú
dyggð, að enga málnytu megi svo
fordjarfa, að til skaða verði, og að
eyðileggja matvæli að yfirlögðu
ráði sé sá ófyrirgefanlegasti glæp-
ur, sem allir góðir menn hafa á
forsmán og megnustu fyrirlitn-
ingu, og sem aldrei getur komið
kjarabaráttu neinna stétta að
gagni.
Nýlega hélt Orkunefnd Vest-
Leikfélagið Grímnir
frumsýnir „Pétur og
Rúnu” um næstu helgi
LEIKFÉLAGIÐ Grímnir i
Stykkishólmi frumsýnir verð-
launaleikrit Birgis Sigurðssonar,
„Pétur og Rúnu“, laugardaginn
13. marz klukkan 21 í samkomu
húsinu. Önnur sýning á verkinu
verður á sunnudag fyrir skóla-
nemendur kl. 17 og þriðja sýning
verður að kvöidi sama dags
klukkan 21. Ennfremur er
ætlunin að sýna verkið síðar meir
1 nágrannabyggðum.
Leikstjóri er Arnhildur Jóns-
dóttir en með aðalhlutverk fara
Guðjón Brjánsson, sem leikur
Pétur, og Guðfinna Diego, sem
leikur Rúnu. Aðrir leikendur eru
Þórhildur Pálsdóttir, Skúli Ing-
varsson, Þorvaldur Ölafsson,
Andrés Kristjánsson, Bergur
Hjaltaiín og Dagbjört Hrafnkels-
dóttir.
Grímnir hefur einnig annað
leikrit í æfingu um þessar mundir
og verður það frumsýnt bráðlega.
Er það barnaleikrit og heitir
„Drekinn hási“ eftir Benny
Anderson, þýtt af Nínu Björk
Árnadóttur. Leikstjóri þar er
Signý Pálsdóttir.
fjarða fund i Reykjanesi með
sveitarstjórnarmönnum Inn-
djúpshreppanna um hugmyndir
um stofnun svonefndrar Vest-
fjarðavirkjunar, þar sem öll virkj-
unarmannvirki á Vestfjarðakjálk-
anum yrðu sameinuð í eitt orkubú
og til samhæfðra átaka i virkari
framkvæmd en væru þau í
smærri einingum. Hefir þessi
hugmynd hlotið jákvæða afstöðu
flestra enda þótt nokkur uggur
leynist hjá sumum um einveldis-
aðstöðu slíks risamannvirkis, þeg-
ar undir einn hatt væri komið í
framkvæmd og forsjá allri.
Ekki verður svo frá mörgu sagt,
að ekki komi veðurfarið þar við
sögu, en þar er skemmst frá að
segja, að veðurfar þessa vetrar,
það sem af honum er, hefur verið
með eindæmum umhleypinga-
samt, snjólitið héfur verið og eng-
in stórviðri geisað en smáblotar
annað slagið og mikil svellalög
um allt. Nokkuð hefur þó tekið
upp nú uppá síðkastið, svo
grynnst hafa svellbunkarnir við-
Laugabóli, i Nauteyrarhreppi
heimti 2 veturgamlar gimbrar af
fjalli, og var önnur gimbrin með
hrútlambi, svo vel geta þær átt
snemma að bera. Voru kindur
þessar allar vel útlítandi, feitar
og fallegar, enda er mörg matar-
holan kjarnarik í Laugarbólslandi
og skjólsamt er þar víða um dali
og hálsa. En það þykir alltaf
ánægjulegt um hávetur að heimta i
útigöngufé af fjöllum og flestum
talið glatað, sem ekki skilar sér
nálægt byggðum er að hátíðum
líða tekur.
Þá má geta þess, að nú á góunni
er verið að setja þak á 600 kinda
fjárhús i Botni í Mjóafirði, hjá
hinum athafnasama og nýbyrjaða
bónda þar Ágústi Gislasyni. Mun
það fátítt hér við Djúp, að bygg-
ingarvinna sé stunduð hér um
slóðir um hávetur.
dæiinga, og mun þar hafa verið
samankomið um hálft þriðja
hundrað manns. Lét fólkið ein-
dæma vel af skemmtun þessari,
sem í alla staði fór fram á vegleg-
an og höfðinglegan hátt.
Nokkuð góð rækjuveiði hefur
verið hér i Djúpinu i vetur, enda
þótt alltaf verði eitthvað misjafnt
milli báta, fékk t.d. vélbáturinn
Engilráð frá Isafirði 2 tonn af
rækju part úr degi inn á Hamars-
bug nú á dögunum, og er það
mokveiði, fleiri hafa einnig feng-
ið þar ágætan rækjuafla.
Öllum þeim, sem sent hafa mér
línu og þakkir fyrir fréttir úr
Djúpi, sendi ég minar bestu
kveðjur og þakkir, og reyni ég að
lofa þeim að heyra frá okkur ef
eitthvað það gerist, sem maður
telur frásagnarvert.
Jens I Kaldalóni.
Fullt fargjald
fyrireinn,
hálft fyrir hina
1. nóvember til 31. mars er í gildi fjölskyldu-
afsláttur af fargjöldum okkar til Noröurland-
anna.Luxembourg og Bretlands.
Þegar fjölskyldan feröast saman, þá greiðir
einn fullt gjald, en allir hinir í fjölskyldunni
aöeins hálft.
Þannig geta þeir sem fara utan í viöskipta-
erindum tekiö meö, ef ekki alla fjölskylduna,
þá aö minnsta kosti maka sinn.
Þetta er rétt að hafa í huga.
^FiELAc loftleidir
/SLAJVDS
Félög sem greiða götu yóar erlendis