Morgunblaðið - 12.03.1976, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1976
17
Samtök stjórnarandstæðinga á Spáni:
Óttast nýtt
kúgunarskeið
Madrid, 11. marz. Reuter.
SPÁNSKA stjórnarandstaðan
hvatti til þess í dag að endurbðt-
um á stjórnarfarinu á Spáni yrði
hraðað vegna götuátakanna að
undanförnu milli lögregiu og
mótmælenda sem á hálfum mán-
uði hafa kostað sjö mannslíf. t
sameinginlegri yfirlýsingu
Madrid-nefnda tveggja stærstu
stjórnarandstöðusamtaka lands-
ins. — „Lýðræðisst jórnarinnar“
sem er undir forystu kommúnista
og „Lýðræðisvettvangsins" sem
er undir forystu sósíalista, segir
að mannfail þetta sé „alvarleg-
asta skrefið 1 hnignun gagn-
kvæms umburðarlvndis á slðustu
þremur mánuðum". „Hin varan-
lega rót hinna alvarlegu vanda-
mála i landi okkar er skortur á
lýðræðislegum farvegum,“ segir
þar ennfremur og er hvatt til þess
að lýðræisleg réttindi verði veitt
og tryggð nú þegar af rfkisstjórn-
inni. Stjórnarandstaðan er ugg-
andi um að átökin muni leiða til
endurreisnar kúgunarst jórnar
Francotímans.
Manuel Fraga innanríkisráð-
herra og Jose Maria de Areilza
utanrikisráðherra, sem eru helztu
umbótasinnarnir innan ríkis
stjórnarinnar, sátu á fundi með
Juan Carlos konungi i gærkvöldi,
og mættu vegna hans ekki á fund
18 manna stjórnarskrárnefndar-
ínnar, sem vinnur að endurbótun-
um. Þykir það benda til mikilvægi
fundar konungs og er talið víst að
þeir hafi fjallað um ofbeldisöld-
una.
1 gær voru niu yfirmenn í hern-
um dæmdir í allt að 8 ára fangelsi
fyrir að hafa ráðgert herforingja-
byltingu á borð vió byltinguna í
Portúgal. Mennirnir eiga að vera
félagar í leynilegum liðsforingja-
samtökum sem nefnast „Lýð
ræðissamtök hersins". I Baska-
héruðunum var í dag rólegra eftir
verkföll og mótmæli, en enn voru
þó verkföll á stöku stað.
Kristsmynd
Thorsens
fær ekki
styrkinn
Kaupmannahöfn, 11. marz. Reuter.
DANSKA rikisstjórnin hef-
ur bannað að greiddur verði
verðlaunastyrkur að upphæð
900 þúsund danskra krónur
vegna hinnar umdeildu kvik-
myndar Jens Jörgen Thorsen
um kynlff Jesú Krists.
Menntamálaráðherra Dana,
Nfels Mathiesen, sagði að
ástæðan væri sú að myndin
brjóti f bága við dönsku höf-
undalögin.
Lögfræðilegur ráðgjafi
dönsku ríkisstjórnarinnar,
Poul Schmith, hefur lagt til að
myndin verði ekki tekin til
sýninga f Danmörku. Schmith
sagði einnig að viðbætur
Thorsens f myndinni sem ger-
ast á hóruhúsum væru skaðleg-
ar eðli fagnaðrerindisins og
ekki væri unnt að lfta á verkið
sem frjálsa túlkun á efninu.
1 myndinni er mjög svo fjall
að um kvnlíf Jesú og er hann
myndinni bæði í Ifkamlegum
samböndum við karla og kon-
ur.
Páll páfi héfur fordæmt
Kvikmyndasjóðinn vegna
verðlaunastyrksins sem fyrir-
hugaður var að gerður hefur
verið aðsúgur að danska sendi-
ráðinu f Rómaborg.
RÓDEStSKIR ÖRYGGISVERÐIR, hvitir og svartir, sitja á tali við afríska ættar-
höfðingja í þorpi skammt frá landamærum Ródesíu og Mósambik. Átök voru tíð á
þessum svæðum, en nú hafa Mosambikmenn ákveðið að loka landamærunum við
Ródesíu og Ródesíumenn hafa ákveðið gagnaðgerðir sem greint er frá í fréttinni.
Salómonsdómur
konu
sérlega vandmeðfarið og við-
kvæmt. Konan sem ekki hefur
verið nefngreind varð ástfangin
af hinum islenzka fiskifræðingi
og áfrýjaði málinu en í undirrétti
var niðurstaðan sú að hún fengi
hvorugt barnið með sér ef hún
flytti úr landi. Dómarinn nú sagði
að alls ekki mætti aðskilja móður
og dóttur, og ef hún væri til Is-
lands með móður sinni myndi hún
læra tungumálið fljótt. Aftur á
móti væri rangt að flytja dreng-
inn til annars lands, þ ar sem hann
kynni ekki málið og gæti slíkt
haft áhrif á skólagöngu hans.
yfir enskri
MBL. HAFA borizt úrklippur úr
brezku blöðunum Daily Mail og
Sun þar sem segir frá þvl, að
brezk kona standi nú andspænis
erfiðum kostum sem henni hafi
verið settir sakir ástarhugs sem
hún hafi fellt til islenzks fiski-
fræðings. I Daily Mail segir:
„Tveggja barna móðir, sem vill
fara til ástmagar síns á Islandi
voru settir erfiðir kostir af áfrýj-
unardómstól á dögunum. Konan,
sem er 33ja ára, er skilin við
eiginmann sinn. Eftirfarandi var
niðurstaða dómara: Ef hún fer og
giftist vini sínum er henni veitt
— fær ekki að
taka bæði börn
sín með til
Islands
leyfi til að taka með sér þriggja
ára gamla dóttur sína, en tíu ára
sonur hennar verður eftir í Eng-
landi hjá föður sínum. En ef hún
verður um kyrrt í Bretlandi fær
um umráð beggja barnanna. Dóm-
arinn i málinu sagði að málið væri
Richard Nixon
Máls-
höfðun
Stokkhólmi, 11. marz. NTB.
GJALDKERI sænska Jafnaðar-
mannaflokksins Nils Gösta Dam-
berg hefur verið ákærður fyrir að
afhenda peninga fulltrúum
sy sturflokksins í Finnlandi.
Einnig verður birt ákæra á hend-
ur þeim f jórum Finnum, sem áttu
að fara með féð út úr Svíþjóð.
Damberg verður ákærður fyrir
brot á gjaldeyrislögunum og
Finninn Lauri Metamæki sem var
sá eini fjórmenninganna sem
tókst að hafa peninga með sér úr
landi verður einnig ákærður fyrir
ólöglegan gjaldeyrisflutning og
hinir fyrir tilraun til þess sama.
Saksóknarinn í málinu krefst
þess að peningarnir sem námu
194.800 sænskum krónum eða
tæplega 7.8 millj. isl. króna renni
til rikisins, en sænski ríkisbank-
inn hefur ekki sett fram slíka
kröfu. Þá er búizt við að farið
verði fram á að sakborningar
verði látnir greiða sektir fyrir
vikið.
Það var 5. október i fyrra að
starfsmenn finnska Jafnaðar-
mannaflokksins voru teknir með
féð, allt í sænskri mynt, i fórum
sínum er þeir ætluðu að fara frá
Arlandaflugvelli. Þeim hinum
fjórða tókst eins og áður segir að
Romast með peningana úr landi.
Málið þróaðist siðan i að verða
pólitiskt mál sem jókst að um-
fangi eftir því sem fleiri útgáfur j
voru settar fram um hvernig |
mennirnir hefðu komið höndum :
yfir peningana, sem sagðir voru
gjöf til finnska flokksins.
Nixon neitar
að hafa reynt
að steypa Aflende
Washington, 11. marz. AP.
RICHARD Nixon fyrrverandi for-
seti Bandarikjanna, segir í eið-.
svörnum vitnisburði sem birtur |
hefur verið að hann hafi ekki
vitað um neinar tilraunir sem j
gerðar hafi verið af hálfu CIA til
að steypa Salvador Allende, for-|
Ræningjar Herr-
ema dæmdir
Dublin, 11. marz
— Reuter.
IRSKI hermdarverkamaðurinn
Eddie Gallagher var I dag dæmd-
ur í 20 ára fangelsi fyrir ránið á
hollenzka viðskiptajöfrinum dr.
Tiede Herrema. Fylgikona hans, |
Marion Coyle, var dæmd til 15 ára
fangelsisvistar. Tveir félagar
þeirra I ráninu sem gert var i
október s.l. John Walsh og Brian
McGowan fengu átta ára dóma.
Þau Gallagher og Coyle æptu
bæði hótanir að dómaranum er
hann las upp dómana I Dublin 1
dag.
seta Chile, af stóli. Stangast yfir-
lýsingar Nixons á við framburð
rannsóknarnefndar Öldunga-
deildarinnar sem vann að rann-
sókn málsins.
Nixon segir að hann hafi að
vísu reynt að koma i veg fyrir að
Allende yrði forseti i Chile, „en
ég minnist ekki að hafa fengið
upplýsingar, meðan ég var for-
seti, um áform um herbyltingu í
Chile.“ Nixon kveðst hafa rætt,
við þáverandi yfirmann CIA,
Richard Helms, um að komáá fót
einhvers konar fjárhags-
aðstoð við andstæðinga dr.
Allendes í ýmissi mynd og
stuðning við frambjóðanda
sem gæti borið sigurorð af
Allende. Rannsóknarnefndin
komst aftur á móti að þeirri
niðurstöðu að engin vafi léki á því j
að CIA hefði fengið fyrirmæli
beinustu leið frá Nixon, um að
gera tilraun til valdaráns til að
steypa Allende úr valdástóli.
Nixon segir i skýrslunni sem er
löng og itarleg og vikið þar m.a.
að símhlerunum o.fl., að aðgerðir
hans gegn AUendestjórninni hafi
meóal annars verið grundvallaðar
á þvi og i framhaldi af því að
Kennedy- og Johnsonstjórnirnar
hafi eytt að minnsta kosti fjórum
milljónum dollara til að reyna að
koma i veg fyrir að Allende yrði
kjörinn forseti árið 1964.
Sambúð Egypta og Líbýumanna fer versnandi:
Gaddafi rekur
3000 Egypta
Kairó 11. marz — Reuter
SAMSKIPTI Egyptalands og Líbýu versnuðu enn til
muna í dag er egypzkir embættismenn lýstu því yfir, að
Muammar al Gaddafi, ofursti og leiðtogi Lfbýumanna,
hefði fyrirskipað að 3000 Egyptar yrðu reknir úr landi í
hefndarskyni fyrir handtöku 27 Lfbýumanna f Kairð
Hefðu líbýsk stjórnvöld gert eignir Egyptanna upptæk-
ar, en þeir hefðu fengið skipun um að fara úr landi
sfðustu tvo daga. Um 350 þeirra eru, að sögn hálfopin-
bers málgagns stjðrnar Egyptalands, þegar komnir til
Sollum á landamærum Egyptalands og Líbýu, og hefðu
átta þeirra verið fluttir á sjúkrahús með alvarieg
meiðsli eftir „dýrslegar og villimannlegar árásir“.
Þetta nýjasta rifrildi Egypta og
Líbýumanna varð háværara um
síðustu helgi er tilkynnt var að
sjö Líbýumenn hefðu verið hand-
teknir í Kairó vegna gruns um að
hafa ætlað að ræna löndum sinum
þar. Segja egypzkir embættis-
menn, að sjömenningarnir hefðu
átt að ræna eða myrða Abdel
Moneim Al-honi, utanrikisráð-
herra Líbýu, og Omar Meheishi,
major, sem sæti á i byltingarráði
landsins en flúði til Kairó eftir
misheppnaða byltingartilraun
gegn Gaddafi i ágúst s.l. Þrír
félagar þeirra voru síðar hand-
teknir i Róm. Egypzk dagblöð
sögðu í dag, að 20 Libýumenn til
viðbótar hefðu verið handteknir i
Kairó, grunaðir um undirróðurs-
starfsemi, og áætlanir um að
myrða framámenn. Enginn nöfn
voru nefnd.