Morgunblaðið - 12.03.1976, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1976
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1976
23
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjórn og afgreiSsla
Auglýsingar
hf. Árvakur, Reykjavlk.
Haraldur Sveinsson.
Matthlas Johannessen,
Styrmir Gunnarsson
Þorbjörn Guðmundsson.
Björn Jóhannsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6. simi 10 100.
Aðalstræti 6. simi 22 4 80
Áskriftargjald 800.00 kr. á mánuði innanlands.
j lausasölu 40,00 kr. eintakið.
AJþýðusamband
íslands 60 ára
Idag eru 60 ár liðin
frá því að Alþýðusamband
íslands var stofnað og þá um
leið Alþýðuflokkurinn, en þessi
samtök voru frá árinu 1916 og
fram til ársins 1940 ein og
sama stofnunin en þá voru þau
aðskilin Stofnun Alþýðusam-
bandsins átti sér því í upphafi
pólitískar forsendur, sem vafa-
laust hafa mótað mjög starf-
semi þess framan af. Á því
tímabili, sem þessi heildarsam-
tök launþega hafa starfað, hafa
orðið grundvallarbreytingar á
islenzku þjóðfélagi og ekki sizt
á þann veg, að meira jafnrétti
ríkir nú í efnalegu tilliti sem á
öðrum sviðum en þegar verka-
lýðsfélögin voru að hefja starf-
semi sína.
Þegar verkalýðsfélögin voru
að myndast og heildarsamtök
þeirra hér á íslandi urðu til, rná
sjálfsagt með nokkrum sanni
segja, að atvinnurekandinn
hafi verið allsráðandi í atvinnu-
lifinu og hlutur launþegans hafi
verið mjög slæmur. Með nokkr-
um rökum er haegt að halda því
fram i dag, þegar launþega-
samtökin eru orðin einhver öfl-
ugustu félagasamtök í okkar
þjóðfélagi, að hlutverkaskipti
hafi orðið i þessum efnum og
að hlutskipti atvinnurekandans
sé á ýmsan hátt litt öfundsvert.
Verkalýðsbaráttan hér á ís-
landi sem annars staðar var
áreiðanlega mjög hörð framan
af, meðan verkalýðssamtökin
voru að hasla sér völl og hljóta
viðurkenningu sem samnings-
aðili fyrir hönd launþega. Þessi
barátta þeirra bar óhjákvæmi-
lega pólitískan svip, ekki sizt
þar sem Alþýðusambandið
starfaði í órofa tengslum við
einn stjórnmálaflokk fyrsta ald-
arfjórðunginn. Þetta hefur
smátt og smátt verið að breyt-
ast. Hinn pólitiski tónn i starfi
Alþýðusambandsins og ein-
stakra verkalýðsfélaga hefur
smátt og smátt dofnað, en fag-
leg sjónarmið, þ.e. hreinrækt-
uð hagsmunasjónarmið laun-
þega hafa í vaxandi mæli setl
svip sinn á starfsemi þeirra héi
sem annars staðar. Þetta hefur
gerzt enda þótt ekki hafi skort
viljann hjá þeim stjórnmála-
flokkum, sem gjarnan hafa litið
á sig sem hinn pólitíska arm
verkalýðshreyfingarinnar, til
þess að viðhalda pólitískum
sjónarmiðum I starfi þeirra.
Á síðustu 20 árum hafa ein
ungis tveir menn gegnt stört
um forseta Alþýðusambands-
ins, þeir Hannibal Valdimars-
son og Björn Jónsson. Hanni-
bal Valdimarsson var kjörinn
forseti Alþýðusambandsins við
mjög pólitískar aðstæður, en
samt sem áður fór það svo, að
undir forystu hans og síðar
Björns Jónssonar hafa þessi
heildarsamtök launþega í land-
inu i vaxandi mæli látið hags-
munasjónarmiðin njóta for-
gangs enda þótt óhjákvæmi-
legt sé, að starfsemi svo öfl-
ugra félagasamtaka blandist
oft á tíðum inn I pólitískar um-
ræður og deilur. Enginn vafi er
á því, að þessi þróun hefur
verið hagstæð fyrir íslenzkt
þjóðfélag og stuðlað að þvi að
milda hið pólitiska andrúmsloft
í landinu og festa Alþýðusam-
bandið og hin einstöku laun-
þegafélög í sessi, sem raun-
veruleg hagsmunasamtök al-
mennings.
Kannski þarf lengri tíma en
60 ár til að meta til fulls þann
þátt, sem verkalýðshreyfingin
hefur átt í mótun okkar þjóðfé-
lags á þessum tíma, en hann er
áreiðanlega mjög ríkur. Afstaða
manna til launþegasamtak-
anna hefur tvímælalaust ger-
breytzt frá því sem var í upp-
hafi. En einmitt vegna þess, að
verkalýðssamtökin eru orðin
svo áhrifamikil i okkar samfé-
lagi, eru gerðar meiri kröfur ti|
þeirra heldur en áður var. Eins
og umræður í kjölfar síðustu
kjarasamninga leiddu í Ijós,
liggja ýmsir starfsþættir ein-
stakra launþegasamtaka undir
gagnrýni og tvímælalaust er
þörf á umbótum i starfi verka-
lýðssamtakanna.
í viðtali við Morgunblaðið í
dag, í tilefni af 60 ára afmæli
Alþýðusambands íslands,
nefnir Björn Jónsson, forseti
Alþýðusambandsins, ýmsa
þætti í starfi þess, sem áherzla
verði lögð á á næstu árum. í
því sambandi nefnir Björn
Jónsson þann möguleika að
fólk á sama vinnustað verði í
einu launþegafélagi og segir:
„Ekki er vafi á þvi, enda höfum
við fyrir þvi reynslu, að betra er
að ná samkomulagi um launa-
hlutföll á slíkum stöðum, Slikt
skipulag mundi treysta sam-
heldnina i sambandinu og
breyta verulega til bóta í samn-
ingum. Hægt er að nefna dæmi
um vinnustaði, sem styðja
þetta. Á slíkum grundvelli voru
gerðir samningarnir við Álfé-
lagið og við rikisverksmiðjurnar
og þeir hafa gefið góða raun.
Reynslan af þeim samningum
bendir örugglega til þess, að
þessi stefnumótun sé rétt frá
hagsmunalegu sjónarmiði."
Stórt framfaraspor yrði stigið,
ef slík skipan kæmist á, enda er
það einn versti galli núverandi
fyrirkomulags, að stór atvinhu-
fyrirtæki geta stöðvazt vegna
vinnustöðvana, hvað eftir ann-
að, þar sem samið er við starfs-
fólk, i mörgum verkalýðsfélög-
um á mismunandi tímum.
Alþýðusamband íslands hef-
ur vaxið og dafnað á 60 árum
Ábyrgð þess er mikil Enginn
getur sagt fyrir um þróun
verkalýðssamtakanna á næstu
60 árum. Það eitt er víst að
þáttur þeirra í framtíðarþróun
þjóðfélags okkar verður mikill.
Um skipan og stjórn á
fiskveiðum Islendinga
Um leiðir til að draga úr áhrifum samdráttar
VEIÐAR ÁN
SKÖMMTUNAR
Hér fer á eftir álitsgerð tillögunefnd-
ar um stjórnun fiskveiða, sem nefndin
skilaði til sjávarútvegsráðuneytis 5
þ m Tekið skal fram, að meirihluta
nefndarinnar mynduðu þeir Már Elís-
son, fiskimálastjóri, Tryggvi Helgason,
sjómaður, Vilhelm Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri, Björn Guðmundsson,
útgerðarmáður, og Ásgeir Sölvason,
skipstjóri. Þó samþykkti Már Elísson
ekki síðustu málsgrein c-liðar 2
greinar í tillögum meirihluta nefndar-
innar um samdráttarleiðir fyrir árið
1976 Minnihlutann mynduðu þeir
Eggert Jónsson, hagfræðingur, Jakob
Magnússon, deildarstjóri við Hafrann-
sóknastofnunina, og Einar B Ingvars-
son, aðstoðarmaður sjávarútvegsráð-
herra, sem jafnframt var formaður
nefndarinnar Jakob Magnússon lét
bóka að afstaða hans byggðist fyrst og
fremst á því að hann teldi mat minni
hlutans á aflasamdrætti raunhæfara en
mat meirihlutans
1 Ræddar hafa verið fjölmargar
leiðir til þess að hafa hemil á sókn
þorsk á íslandsmiðum, þar á meða
allar þær leiðir, sem minnst er á
skýrslu Rannsóknaráðs ríkisins un
þróun sjávarútvegs Miðað við þanr
tíma, sem nú virðist til stefnu, að áliti
fslenzkra fiskifræðinga, verður ekkt
undan því vikizt að setja ákvæði um
hámarksafla, þar sem aðrar hugsanleg-
ar aðgerðir tryggja ekki svo skjótan
árangur, sem gert er ráð fyrir f tillögum
fiskifræðinganna, þótt vænta megi
mikils af ýmsum fyrirhuguðum
aðgerðum, svo sem fækkun veiðiskipa,
friðun veiðisvæða, stækkun möskva í
togveiðarfærum og auknu eftirliti með
veiðum, einkum þegar fram l sækir. í
Ijósi framangreindra aðstæðna hefur
„Tillögunefnd um stjórnun fiskveiða''
þegar lagt til við sjávarútvegsráðherra,
að miðað skuli við það, að heildar-
þorskafli á íslandsmiðum verði
280.000 lestir hvort áranna 1976 og
1977, með fyrirvara um einhverjar
Alitsgerð tillögunefndar
um stjórnun fiskveiða
tilfærslur til frádráttar eða viðbótar eftir
þvi sem þörf krefur, og áframhaldandi
rannsóknir gefa tilefni til.
2 Rétt er að gera ráð fyrir breytileg-
um forsendum fyrir áðurnefndum
heildarþorskafla í ályktun nefndar-
innar felst, að þorskafli íslendinga yrði
rétt um 180.000 lestir i ár, þar sem
hæpið þykir að gera ráð fyrir þvi, að
þorskafli útlendinga á íslandsmiðum
verði með óbreyttri sókn undir 80 000
— 100 000lestum
Flest bendir til þess að 280 000
lestir sé i efri mörkum þess magns,
sem óhætt muni að taka úr islenzka
þorskstofninum hvort áranna 1976 og
1977, og raunar er nauðsynlegt að
gera nákvæma grein fyrir áætluðum
hluta hvers árgangs i þvi aflamagni
með hliðsjón af fjölda og þyngd
3 Hér er um að ræða 80 000 —
90 000 lesta skerðingu á þorskafla
islendinga frá fyrra ári Lauslega áætl-
að útflutningsverðmæti afurða úr
þessu þorskmagni nemur um 8.500
milljónum króna á gildandi verðlagi
Þessum verðmætismissi mætti að
hluta mæta með því að draga úr kostn-
aði við veiðar íslendinga, aukinni vöru-
vöndun i fiskiðnaði og með þvi að auka
veiðar og vinnslu á öðrum fisktegund-
um en þorski
4 Ljóst er að beita verður afar
ströngum aðgerðum við stjórn á
þorskveiðum (slendinga. ef takast á
að halda þorskafla landsmanna við
180 000 lestir á þessu ári, ekki sízt
þegar haft er i huga, að gera má ráð
fyrir 150—160 000 lesta þorskafla
(slendinga á fyrstu fimm mánuðum
ársins, ef sami háttur verður hafður á
veiðum og vinnslu á þessu tlmabili og
raun varð á i fyrra
5. Ýmsir annmarkar eru á skipu-
lagningu og framkvæmd skömmtunar
með svo stuttum fyrirvara, sem nú
virðist um að ræða, auk þess sem
nokkurn aðdraganda þarf til þess að
beina sókn frá þorski f aðra fiskistofna
Virðist þvi eini kosturinn til þess að ná
framangreindu markmiði vera sá að
banna eða takmarka, svo sem frekast
er unnt, þorskveiðar á tilteknum
svæðum eða einhverjum hlutum árs og
þá helzt þegar hráefni þykir lakast til
vinnslu, þannig að þorskafla verði
haldið innan þess hámarksafla sem að
er stefnt
6. Ljóst er að nota yrði þann tima
sem fengist til ráðrúms með framan-
greindum ráðstöfunum til þess að
finna réttlátari og sveigjanlegri leiðir
við stjórnun veiðanna, auk þess sem
gera þarf ráð fyrir tiðu endurmati
þessarar stöðu
7. Ekki skal dregið úr mikilvægi
annarra aðgerða, þótt nú sé höfuð-
áherzla lögð á, að þorskafli lands-
manna fari ekki yfir tiltekið hámark
Flýta þarf ákvörðunum um friðun
svæða og stækkun möskva í togveiðar-
færum og jafnframt þarf að koma á
öflugu eftirliti með þvi að farið sé eftir
gildandi reglum og fylgjast þarf gaum-
gæfilega með þvi hvern árangur þessar
aðgerðir bera Fyrirhugað er að fyrir-
skipa stækkun möskva togveiðarfæra
innan skamms og er mikilvægt að
útlendingar verði þar látnir hllta sömu
skilyrðum og landsmenn sjálfir
8 Útilokað er að íslendingar geti
bætt sér yfirvofandi samdrátt i þorsk-
afla á þessu ári með því að auka að
sama skapi annan fiskafla sinn, þótt
unnt sé að benda á ýmsar leiðir, sem
hugsanlega gætu dregið nokkuð úr
þessu áfalli, en i þvi sambandi má oftar
en ekki gera ráð fyrir auknum kostnaði
í byrjun við tilraunir til veiða, vinnslu
og sölu á fisktegundum, sem enn
hafa ekki verið fullnýttar, eða eru lítið
sem ekkert nýttar
1. Allt kapp verði lagt á að halda
loðnuveiðum áfram lengur fram eftir
vetri en verið hefur undanfarin ár.
Jafnframt verði gert ráð fyrir loðnu-
veiðum síðsumars og næsta haust, sé
þess nokkur kostur, og verði Hafrann-
sóknastofnuninni falið að hefja loðnu-
leit í tæka tlð til undirbúnings þessum
veiðum
2. Allt verði gert, sem unnt er, til
þess að takast megi að frysta sem mest
(a.m.k 10 000 lestir) af loðnu á yfir-
standandi loðnuvertlð, og áherzla lögð
á að Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins
haldi áfram athugunum á enn frekari
hagnýtingu loðnuhrogna.
3. Togveiðiskipum verði eftir þvl,
sem föng eru á, beint I auknum mæli
til ufsa- og karfaveiða, á skýrt af-
mörkuðum svæðum (samanber tillögur
um bönn og takmarkanir á þorskveið-
um), þrátt fyrir hæpið ástand þessara
fiskstofna, þar sem ástand þorskstofns-
ins er til muna verra
4 Stefnt verði að auknum kolaveið-
um I dragnót á bátum allt að 20
metrum að lengd, enda verði fylgt
tillögum Hafrannsóknastofnunarinnar
um vlkkun veiðisvæða, veiðitlmabil og
tilhögun veiðarfæra, þar með um 1 70
millimetra möskvastærð, svo tryggt
verði að dragnótin sé gerð til kola-
veiða
5 Stefnt verði að auknum grálúðu-
veiðum og I þvi skyni sent fiskiskip eitt
eða fleiri til leitar og veiða, jafnskjótt
og fært þykir að hefja þær veiðar
6. Samkvæmt upplýsingum fiski-
fræðinga er talið, að grásleppustofninn
sé mjög sterkur og þess vegna ástæða
til að hvetja menn til þeirra veiða, enda
söluhorfur góðar
7. Að eigendur fiskafla verði hvattir
til að hagnýta eftir föngum það sem nú
fer forgörðum úr aflanum Rannsókna-
stofnun fiskiðnaðarins verði gert kleift
að halda áfram rannsóknum á vinnslu
fiskúrgangs
8 Ráðizt verði I umfangsmiklar
veiði-, vinnslu- og sölutilraunir á kol-
munna og spærlingi. Höfuðáherzla
verði lögð á tækifæri til manneldis-
framleiðslu, en jafnframt verði kannað
hvort vinnsla mjöls úr þessum fisk-
tegundum komi til greina með hliðsjón
af veiðanlegu magni og markaðsverði
afurða
9. Könnuð verði tækifæri til aukinn-
ar selveiði og smáhvalaveiði Ástæð;
er talin til að kanna, hvaða áhri
aukning selastofnsins og bjargfugla
hefur á viðkomu fiskstofna
SKAMMTAÐAR
VEIOAR
Afli 1975 Áætlað 1976 Áætluð aukning
Slld 12.500 15 000 + 2 500
Rækja 5.000 5.000 —
Humar 2 350 3.000 + 650
Hörpudiskur 2.800 6.500 + 3.700
Greinargerð
Erfitt er að gera grein fyrir hinum
alvarlegu og víðtæku áhrifum, sem
samdráttur I þorskafla landsmanna
kann að hafa á islenzkt atvinnu- og
efnahagslif. Kosta verður kapps um að
auka verðmætasköpun I sjávarútvegi,
sem og I öðrum atvinnugreinum, til
þess að draga úr samdráttaráhrifum,
auk þess sem gera verður ráð fyrir
bótum til þeirra, sem harðast verða úti.
Sú skoðun nýtur umtalsverðs fylgis,
þvert ofan I álit fiskifræðinga, að
óþarft sé að setja landsmönnum regl-
ur um hámarksþorskafla á þessu ári,
enda sé þjóðin óviðbúin slikum að-
gerðum með svo skömmum fyrirvara,
sem hér um ræðir. Þessari skoðun
fylgja jafnan efasemdir um áreiðan-
leika útreikninga og upplýsinga Is-
lenzkra fiskifræðinga, sem raunar hafa
aldrei dregið dul á það, að útreikningar
þeirra séu I ýmsum atriðum bundnir
umtalsverðri óvissu
Tillögur um samdráttarleiðir
1 Að miðað skuli við það að heildar-
þorskafli á íslandsmiðum verði
280 000 lestir hvort áranna 1976
og 197 7, með fyrirvara um einhverjar
tilfærslur til frádráttar, eða viðbótar,
eftir því sem þörf krefur og áframhald-
andi rannsóknir gefa tilefni til.
2 Takmörkun veiða
Tillögur meirihluta
nefndarinnar;
fyrir árið 1976
sjó á
Netafjöldi
60
75
90
105
120
a Hámarksfjöldi neta I
vetrarvertið verði sem hér segir:
Fjöldi skipverja
Færri en 8
8—9
10
1 1
12
Um möskvastærð vlsast til tillagna
Fiskveiðilaganefndar
b Þorskanet verði tekin upp á sklr-
dag og ekki lögð aftur fyrr en á annan
dag páska Jafnframt verði togveiðar
bannaðar sömu daga á svæðinu rétt-
vlsandi austur frá Stokksnesi vestur
um að llnu réttvlsandi vestur frá Látra-
bjargi og út 25 milur frá grunnllnum.
c Á tlmabilinu 16 mal til 15.
október verði skipum og bátum, sem
veiðar stunda I botn- og flotvörpu gert
að stöðva þorskveiðar á (slandsmiðum
I tvo mánuði innan tlmabilsins og
minnst mánuð I senn
Afmörkuð verði þau svæði, þar sem
leyfðar verði veiðar undir eftirliti á
öðrum fisktegundum, enda verði settar
reglur, sem tryggi að þorskafli skipa á
umræddum svæðum verði I lágmarki
og svæðum breytt eftir því sem nauð-
syn krefur.
Ofangreindar tillögur byggjast á þvi
að ekki verði samið um frekari veiði-
heimildir við útlendinga og að þeim
ólöglegu veiðum, sem nú eru stund-
aðar verði hætt Til þess að svo megi
verða þarf að stórefla 'andhelgis-
gæsluna
Tillögur minnihluta
nefndarinnar
a Að þorskveiðar I net verði
bannaðar á íslandsmiðum frá og með
laugardeginum fyrir pálmasunnudag til
þriðjudags eftir páska 1976, og á
þessum tlma verði togveiðar bannaðar
á svæðinu réttvisandi austur frá
Stokksnesi vestur um og að linu rétt-
vlsandi vestur frá Látrabjargi og út 25
mílur frá grunnllnum
Ennfremur er lagt til að stefnt verði
að þvl að hámarksfjöldi neta I sjó á
vetrarvertlð verði sem hér segir:
Fjöldi skipverja
Fæddi en
8
8 — 9
10
1 1
12
Netafjöldi
60
75
90
105
120
Jafnframt leggur nefndin áherzlu á
að farið verði að tillögum Fiskveiðilaga-
nefndar um möskvastærð þorska- og
ýsuneta
b Að þorskveiðar verði bannaðar á
(slandsmiðum á tlmabilinu frá 1 5. mal
til 15 september 1976, nema hvað
leyfðar verði þorskveiðar Islenzkra
fiskiskipa með llnu og handfærum Að
afmörkuð verði þau svæði þar, sem
leyfðar verði veiðar undir eftirliti á
öðrum fisktegundum, enda verði settar
reglur sem tryggi að þorskafli skipa á
umræddum svæðum verði i lágmarki,
og svæðum breytt eftir þvi sem nauð-
syn krefur
c. Að þorskveiðar I flotvörpu verði
bannaðar á íslandsmiðum frá 15
september til ársloka 1976.
3 Að möskvastærð I pokum flot- og
botnvörpu verði hið fyrsta aukin 1155
millimetra. Á karfaveiðum á afmörk-
uðum svæðum verði möskvastærð I
poka 135 millimetrar. Að lágmarks
möskvastærð I dragnót verði 1 70 milli-
metrar Vísað er I bréf Hafrannsókna-
stofnunarinnar til sjávarútvegsráðu-
neytisins dags. 22 janúar 1976, I
þessu sambandi
4 Að eftirlit með veiðum islenzkra
og erlendra fiskiskipa verði stóraukið
til þess að sjá um að fylgt sé settum
reglum, og brugðizt verði sem skjótast
við þegar nauðsynlegt reynist að
banna veiðar á tilteknum svæðum,
enda getur ekkert annað en öflugt
eftirlit tryggt marktækt gildi mælinga á
árangri aðgerða til friðunar.
Nefndin telur mikilvægt að útlendingar
hverfi af islandsmiðum, og komið verði
I veg fyrir ólöglegar veiðar þeirra. Til
þess að svo megi verða, telur hún
nauðsynlegt að Landhelgisgæzlan
verði stórefld
Nefndin hefur fjallað itarlega um
eftirlit með veiðum og komizt að þeirri
niðurstöðu að eftirliti yrði að svo
stöddu helzt komið við með þvi að
senda trúnaðarmenn (um 10 I byrjun)
á vegum sjávarútvegsráðuneytisins og
Hafrannsóknastofnunarinnar sitt á
hvað I veiðiferðir með fiskiskipum
Hlutverk þeirra yrði að fylgjast með að
veiðarfærabúnaður væri samkvæmt
settum reglum, annast sýnishorna-
tökur, mælingar og aðrar rannsóknir á
afla fyrir Hafrannsóknastofnunina og
loka veiðisvæðum ef of mikill smá-
fiskur væri I aflanum
Lokun svæðis gæti átt sér stað með
þeim hætti að viðkomandi trúnaðar-
maður tilkynnti nærstöddum skipum,
svo og sjávarútvegsráðuneytinu og
Landhelgisgæzlunni um þessa ákvörð-
un, og kallaði jafnframt til næsta rann-
sóknaskip eða eftirlitsskip sem til þess
væri búið að rannsaka svæðið og opna
þegar fært væri talið, I samráði við
sjávarútvegsráðuneytið.
Áherzla er lögð á að fylgt verði
tillögum um Itrustu friðun smáfisks allt
árið og hrygningarfisks á þeim tlma,
sem hrygning fer fram.
5. Að framleiðendum þorskafurða
verði hið fyrsta tilkynnt um áætlaðan
þorskafla (slendinga 1976 til þess að
samtökum þeirra og einstökum út-
flytjendum gefist nokkur tlmi til þess
að búa sig undir breytingar þar, sem
þeirra verður að vænta.
6. Að fylgzt verði vel með framan-
greindum samdráttaraðgerðum, og ef
sýnt þykir, að þær dugi ekki til þess að
halda heildarþorskafla á (slandsmiðum
I 280.000 lestum (með fyrirvara um
tilfærslu sbr. 1. lið), verði reynt að
gripa til frekari samdráttaraðgerða.
Ágreiningur varð um tillögur um
takmörkun veiða, samanber lið 2 I
tillögum um samdráttarleiðir og gerðu
meiri- og minnihluta nefndarinnar svo-
fellda grein fyrir afstöðu sinni.
AFSTAÐA
MEIRIHLUTA
NEFNDARINNAR
Við lltum svo að, að leggja beri
höfuðáherzlu á ráðstafanir til þess að
draga úr þorskafla útlendinga á ís-
landsmiðum, og teljum að ná megi
beztum og skjótustum árangri með
eflingu Landhelgisgæzlunnar Okkur er
hins vegar Ijóst, að þessar ráðstafanir
duga að óbreyttu ekki til þess að bægja
frá þeirri hættu, sem Islenzki þorsk-
stofninn er I um þessar mundir, og
þess vegna verði nauðsynlegt að draga
mjög úr sókn landsmanna sjálfra I
stofninn á þessu ári í þvi sambandi
bindum við mestar vonir við friðun og
tlmabundna lokun svæða, stækkun
möskva I veiðarfærum og almennt fisk-
veiðieftirlit.
Engu að siður teljum við, að ekki
verði hjá þvl komizt að draga nokkuð
úr sókn á vetrarvertið og takmarka
sókn togveiðiskipa á sumri komanda,
svo sem fram kemur I tillögum okkar
Að lokum skal hér gerð grein fyrir mati
okkar á aflaminnkun vegna framan-
greindra tillagna, sem að sjálfsögðu
eru háðar stöðugu endurmati:
1. Samdráttur vegna efldrar
landhelgisgæzlu
2. Samdráttur
veiðitakmarkana
3. Samdráttur
vetrarvertið
4 Samdráttur
togveiðibanns
30 000 sml.
vegna almennra
20.000 sml.
vegna aðgerða á
10.000 sml
sumarafla vegna
20 000 sml
Alls 80.000 sml.
AFSTAÐA
MINNIHLUTA
NEFNDARINNAR
Við erum sammála meirhluta nefnd-
arinnar um það að leggja beri höfuð-
áherzlu á að draga úr afla útlendinga á
(slandsmiðum, og teljum að vænta
megi mikils af almennum friðunarað-
gerðum á komandi árum ( Ijósi rikj-
andi aðstæðna gerum við okkur ekki
jafngóðar vonir og meirihlutinn um
árangur af framangreindum ráðstöfun-
um á þessu ári. Þess vegna teljum við
nauðsynlegt að draga úr þorskaflanum
eins og nauðsynlegt er talið
Mat okkar á vægi þeirra ráðstafana,
sem við leggjum til að gerðar verði, er
sem hér segir
1. Samdráttur
landhelgisgæzlu
2. Samdráttur
veiðitakmarkana
vegna efldrar
20 000 sml.
vegna almennra
1 4.000 sml
SAMANBURDUR A samdrAttarleidum
| Skiptur kvóti: Suður1. Reykjan. Vesturl. Vestf. Norður1.V. Norðurl. E. Aust f. Samtals f
I Kvóti þús. lesta 16 46 25 32 13 29 19 180 1
I Samdr.áhrif M.kr. 327.2 812.2 195.6 567.1 237.6 425.1 275.4 2.840.3 I
I % heildarverðm. 16.6 19.0 12.8 26.6 .29.2 23.5' 14.5 18.4 I
| öskiptur kvóti:
I Afli þorsk3 (Þ.l.) 20.3 56.8 27.4 • 27.0 9.3 23.1 16.1 180.0 1
I Samdr.áhrif M.kr. 111.3 531.2 122.7 695.2 292.4 649.1 375.9 2.777.9 |
- % heildarv. 5.6 12.2 4.9 32.6 35.9 35.9 19.8 18.3 I
| TillöRur nefndar:
Mi 11j. kr. 185.2 521.3 262.4 361.4 223.0 423.9 273.7 2.250.9 1
% 9.4 12.3 16.3 17.0 27.4 23.5 14.4 14.8 1
Hlutfallslega jöfn skipti miðað við verðmæti (18.65%)
Heildarafli 23.0 67.0 35.6 46.2 18.3 42.3 27.0 259.4
Samdráttur 10.8 23.3 8.8 11.7 4.5 9.9 10.4 79.4
Leyft magn 12.2 43.7 26.8 34.5 13.8 32.4 16.6 180.0
Verðmætissamdráttur Millj. kr. 366.3 793.5 299.9 397.3 151.7 336.9 354.2 2.700.0
1. Að slldveiðar verði auknar I
15.000 lestir með hliðsjón af áliti
fiskifræðinga, enda verði veiðum hag-
að I samræmi við ábendingar þeirra og
I samvinnu við aðra hlutaðeigendur.
2. Að hefja með vori leit að úthafs-
rækju I Kolluál, fyrir Vestfjörðum Norð-
ur- og Austurlandi
3. Að leyfð verði veiði á 3.000
lestum af humri i sumar Við útgáfu
humarveiðileyfa verði reynt að taka
tillit til breyttra aðstæðna vegna sam-
dráttar I þorskveiðum t d með
skömmtun. Lögð er áherzla á eftirlit
með veiðum og svæðum lokað þegar
ástæða þykir til
4 Að veiðar hörpudisks verði aukn-
ar I samræmi við hugmyndir fiski-
fræðinga um það, hve mikið megi taka
án þess að stofninum sé hætt Jafn-
framt verði kannaðar leiðir til vinnslu
hörpudiskshrogna
5 Að haldið verði áfram vinnslu- og
sölutilraunum á kúfiski, og könnuð
tækifæri til vinnslu á kræklingi
3 Samdráttur vegna aðgerða á
vetrarvertið 7.000 sml.
4 Samdráttur sumarafla vegna tog-
veiðibanns o fl. 39 000sml
Alls 80.000 sml.
Nefndarmönnum er Ijóst, að tillög-
urnar bera öll merki þess að starfstlm-
inn var naumur, en þeir líta svo á, að
niðurstöður nefndarinnar séu aðeins
upphaf eða hluti itarlegra starfs á sviði
stjórnunar fiskveiða á (slandsmiðum,
sem háð eru stöðugu endurmati Leita
verður réttlátari og sveigjanlegri leiða
við stjórnun veiðanna, hvort heldur
farið verður eftir tillögum nefndarinn-
ar, einstakra nefndarmanna eða ábend-
ingum annarra, en til þess gæfist ef til
vill meiri timi en ella, ef unnt væri að
llta á tillögur nefndarinnar sem bráða-
birgðalausn Stjórnunaraðgerðir af
þessu tagi eru neyðarráðstafanir, sem
gripið er til i von um að I skjóli þeirra
komist á, fyrr eða slðar, aukið jafnvægi
milli stærðar veiðiflotans og fiskstofn-
anna á miðunum. Lokatakmarkið hlýt-
ur að vera, að flotinn geti stundað
veiðar hömlulitið, án þess að fiskstofn-
unum sé stefnt I voða.
Tillögur nefndarinnar eru þess eðlis,
að halda verður opnum leiðum til þess
að bæta sérstaklega skaða þeirra
byggðarlaga, sem kunna að verða
harðar úti en önnur vegna samdráttar-
aðgerða í þvl sambandi þarf meðal
annars að kanna leiðir til aflamiðlunar,
verði atvinnuástand og aðrar aðstæður
með þeim hætti að nauðsyn beri til, en
jafnframt þyrfti að fylgjast með at-
vinnutækifærum utan sjávarútvegs
með hliðsjón af hugsanlegum sam-
drætti I afla
Nauðsynlegt er talið að kanna til hllt
ar, hvort unnt reynist að koma á verð-
jöfnun eða verðuppbótum með það
fyrir augum að draga úr sókn I þorsk,
en örva að sama skapi sókn I aðrar
fisktegundir
Vonir eru bundnar við loðnuveiðar
fyrir Norðurlandi slðsumars og næsta
haust Um nokkurt skeið hafa staðið
yfir veiði-, vinnslu- og sölutilraunir I
smáum stil á spærlingi og kolmunna
og hafa kolmunnatilraunirnar gefið til-
efni til nokkurrar bjartsýni. í þessu
sambandi hljóta að vakna spurningar
um það. hversu langt mætti ganga I
veiði og vinnslu þessara tegunda með
því hugarfari, að rekstrartekjur stæðu
undir breytilegum kostnaði og ein-
hverjum hluta fasts kostnaðar.
Brýn þörf er á náinni samvinnu við
sölusamtök sjávarútvegsins við að
koma á framfæri nýjum afurðum og
hafa þau þegar sýnt áhuga og vilja á
þvi, en I Ijósi rlkjandi aðstæðna verður
óhjákvæmilegt að ætlast til sérstaks
átaks af þeirra hálfu I sölumálum
í tillögum nefndarinnar kemur
glöggt fram, að gengið er út frá náinni
samvinnu við Hafrannsóknastofnunina
og Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins
Nefndinni er Ijóst að þar rikir fullur
skilningur á nauðsyn þess, að beina
rannsóknum fyrst og fremst að þeim
verkefnum, sem nefnd hafa verið hér
að framan og kynni þvi að reynast
nauðsynlegt að endurskoða starfsáætl-
anir stofnananna með hliðsjón af þeim
Fiskveiðilaganefnd hefur lagt mikla
vinnu I að semja frumvarp um veiðar
innan fiskveiðilandhelginnar og liggja
tillögur nefndarinnar nú fyrir Ekki var
hjá þvi komist að ræða nokkur atriði,
sem Fiskveiðilaganefnd hefur gert til-
lögur um og ber þar sérstaklega að
nefna friðun svæða, veiðitakmarkanir,
möskvastærð I togveiðafærum og eftir-
lit með veiðum Nefndirnar virðast I
meginatriðum sammála um þessi atr-
iði, ef undan er skilið eftirlit með
veiðum Að öðru leyti bera tillögur
nefndanna það með sér að þeim var
ætlað óllkt hlutverk
Nefndinni er það fyllilega Ijóst, að I
þjóðhagsspám og öðrum áætlunum
um afkomu þjóðarbúsins á þessu ári
var á engan hátt gert ráð fyrir þvi áfalli,
sem felst I þvl að draga saman þorsk-
veiðar I þeim mæli, sem hér er lagt til, I
þvi skyni að komast hjá verri áföllum
slðar. Takist ekki samningar um afla
útlendinga á (slandsmiðum fer það
saman, að samdráttur I þorskafla
landsmanna verður á þessu ári og /
eða næstu árum tilfinnanlegri en ella,
auk þess sem mun erfiðara verður að
finna markaði fyrir þá vöru, sem til
verður úr fisktegundum, sem lands-
menn hyggjast auka sókn slna i eða
hefja veiðar á.
Ekki er annað sjáanlegt en að þjóðin
verði að taka á sig auknar byrðar meðal
annars með erlendum lántökum, til
þess að bæta sér upp þann tekjumissi.
sem I tillögunum felst, en þær eru
byggðar á þeirri skoðun að aðvarahir
Islenzkra fiskifræðinga séu á rökum
reistar