Morgunblaðið - 12.03.1976, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1976
+
Móðir okkar,
EVLALÍ A JÓNSDÓTTIR,
Hofsvallagötu 1 7
andaðist að heímili sínu, þriðjudaginn 9 marz
Elfar Sigurðsson,
Einar Sigurðsson.
t
BOGI BOGASON, læknir
Stationsvej 1, Rungsted, Danmorku,
andaðist mánudaginn 8 marz.
Guðrún Bogason
og börn,
Lára Bogason
Maðurinn minn + JÓNAS GUÐMUNDSSÖN,
verzlunarstjóri, Háaleitisbraut 51,
andaðist 10 marz. Maria Friðleifsdóttir.
+
JÓNÍNA JÓNASDÓTTIR,
frá Kistu á Vatnsnesi
lézt 8 þessa mánaðar að Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund
Jarðsett verður frá Fossvogskirkju, mánudaginn 15 marz kl 10 30
Hólmfríður Jónasdóttir.
+
Maðurinn minn,
ÁSMUNDUR ÁSMUNDSSON.
bakarameistari,
Drápuhlíð 20,
lézt í Landspítalanum aðfaranótt 1 1 marz
Gróa Jafetsdóttir.
+
Móðir okkar
GUÐLAUG BRYNJÓLFSDÓTTIR,
sem lést 7 marz verður jarðsungin frá Eyrarbakkakirkju laugardaginn
1 3 marz kl 2 e.h
Sigurður Guðmundsson.
Baldur Guðmundsson.
+
FREYR Þ. GÍSLASON
bróðir okkar, andaðist 25. febrúar.
Útförin hefur farið fram
Baldur Þ. Gíslason,
Gylfi Þ. Gíslason,
Vilhjálmur Þ. Gíslason.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og þlýhug við andlát og útför
eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa
GUÐMUNDAR MARINO JÓNSSONAR,
rafmagnseftirlitsmanns,
Vatnsnesvegi 26, Keflavlk.
Sérstakar þakkir færum við laeknum og hjúkrunarliði Borgarspítalans
Malena Jónsson,
börn, tengdabörn
og barnaböm.
+
Alúðar þakkir til allra nær og fjær fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og útför eiginmanns mins, föður, tengdafoður og afa
ÁRNA GUÐLAUGSSONAR
prentara
Hagamel 16. Reykjavlk
Kristín Sigurðardóttir
Guðrún Árnadóttir Hannes Aðalbjörnsson
Bragi Árnason Rósa Jónsdóttir
og barnabörn
Guðbjörg S. Júlíus-
dóttir - Minningarorð
Fædd 11/5 1925.
Dáin 19/2 1976.
Kveðja frá börnum og barna-
börnum.
Móðir okkar Guöbjörg S. Júlíus-
dóttir Arnahrauni 21 Hafnarfirói
er látin, hún fæddist á Seyðisfirði
11. maí 1925.
Foreldrar hennar voru Júlíus
Einarsson og Olöf A. G. Sigurjóns-
dóttir. Hún ólst upp í góðum for-
eldrahúsum, uns hún var það
uppkomin að hún fór suður til að
leita sér atvinnu. Þar kynntist
hún föður okkar Einari Péturs-
syni og gengu þau i hjónaband 17.
júni 1948. Fyrst byrjuðu þau
búskap á Akranesi en fluttust svo
hingað til Hafnarfjarðar, því faðir
okkar var hér fæddur og uppal-
inn.
Við urðum fimm systkinin, fjór-
ar systur og einn bróðir. f’oreldr-
ar okkar létu einskis ófreistað,
sem gat orðið heimili þeirra og
börnum til blessunar. Þau byggðu
sér hús á Þórólfsgötu 1 hér í bæ,
að því vann mamma líka alveg
eins og karlmaður. Hún var með
afbrigðum dugleg og ósérhlífin að
hverju sem hún gekk. En svo bar
skugga fyrir hamingjusólina
okkar, pabbi missti heilsuna,
hann dó 2. nóvember 1967. Á
meðan hann var veikur, stundaði
mamma hann og vann fyrir
heimilinu. Allri hennar fórnfýsi
og kærleik verður best lýst með
orðum Einars Benediktssonar í
ljóði því, er hann yrkir til móður
sirinar.
Þar segir m.a.:
En bæri ég heim mln brol og minn harm,
þú hrostir af djúpum sefa
Ini vósl upp björg á þinn veika arm:
þú vissir ei hík eóa efa.
I alheim ég þekkti einn einasta barm,
sem allt kunni að f>rirgefa
Svona finnst okkur henni best
lýst öllum kærleika hennar og
umhyggju, baráttunni allri okkur
til bjargar, skilningi og umburða-
lyndi þegar eitthvað bjátaði á hjá
okkur. Hún vakti hjá rúmunum
okkar á næturnar, þegar við vor-
um lítil og veik og vann fyrir
okkur á daginn.
Þau börn, sem hafa átt jafn
góða og sanna móður og hana
Sigríður G. Friðriks-
dóttir — Minningarorð
Fædd 10. október 1879.
Dáin 24. febrúar 1976.
Blessuð gamla tengdamamma
er nú farin yfir landamærin.
Þetta var orðinn langur lífsferill:
96 ár og nokkrum mánuðum
betur.
Þrátt fyrir erfið kjör var
heilsan lengstaf góð þar til allra
síðustu árin. Hún var óvenju hæg-
lát og hlédræg, þessi elskulega
kona, og vildi ekki vera fyrir
neinum. Lítillætið var svo tak-
markalaust, að hún krafðist
einskis fyrir sig en gaf allt, sem
hún gat. Stundum kom þó í ljós,
að hún átti vilja og metnað.
Ævisaga Sigríðar Guðrúnar
Friðriksdóttur er á margan hátt
merkileg og vel þess verð, að hér
sé drepið á helztu atriðin.
Hún fæddist í Drangavik á
Ströndum. Sá bær er nú löngu
kominn í eyði. Foreldrar hennar
voru Friðrik Jóhannesson og Guð-
björg Björnsdóttir. Þau eignuðust
11 börn. Fimm ára gömul var Sig-
ríður látin i fóstur til Hallvarðs
Jóhannessonar, föðurbróður síns
í Skjaldbjarnarvík, og konu hans.
Þarna á nyrzta bæ á Ströndum
inn við Geirólfsgnúp, ólst Sigrið-
ur upp og dvaldi þar til hún var
22 ára. Mikil vinnuharka var
þarna, eins og víðast í þá daga.
Hún smalaði og sat hjá, bar vatn
langar leiðir í tréfötum í hvaða
veðri sem var að vetrinum, var
lánuð í fiskiróðra eða á selveiðar.
Ef tveir kópar veiddust, bar hún
annan heim. Þegar hart var I búi
á vorin, borðaði fólkið stundum
eingöngu rúgkökur, sem það
dýfði ofan í hákarlslýsi. í þessu
fæði mun að vísu hafa verið
nokkur hollusta, en slíkt mundi
ekki talið mönnum bjóðandi nú.
Þegar Sigríður var tuttugu og
tveggja ára, fór hún sem vinnu-
kona að Berjadalsá á Snæfjalla-
strönd. Árskaupið var 60 kr. og
varð hún að fata sig af því, nema
hvað hún fékk sokka og skó.
A þessum árum kynntist
Sigríður Bergsveini Sveinssyni
frá Sunndal, og giftust þau
skömmu síðar.
Fyrstu hjúskaparárin voru þau
1 húsmennsku á Kirkjubóli 1
Staðardal, en fluttust svo að Ara-
tungu þar í sveit. Á þessari kosta-
rýru jörð bjuggu þau í 22 ár og
eignuðust 15 börn. Af þeim dóu 3
ung en 12 komust til fullorðinsára
og lifa enn. Guðbjörg er elzt, gift
Marinó L. Stefánssyni kennara í
Reykjavík, Bergsveinn vélstjóri I
Reykjavík, giftur Valgerði Jóns-
dóttur, dr. Sveinn prófessor í
Berlín, var tvígiftur, Jóhannes
verkstjóri 1 Reykjavík, giftur
Kristinu Jónsdóttur, Hjálmfríður
+
Hjartkærar þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall
SÉRA ÓSKARS H. FINNBOGASONAR
fyrrverandi sóknarprests.
Sérstaklega þökkum við Bilddælingum og prestafélagi íslands fyrir
vináttu og hlýhug i okkar garð
Vandamenn.
+
Þökkum innilega kveðjur og auðsýnda samúð við andlát oq útför
eiginkonu minnar, móður, tengdamóður. ömmu og langömmu x
INGIBJARGAR GEIRMUNDSDÓTTUR
Sandbrekku
Þorsteinn Sigfússon
Guðný Þorsteinsdóttir jakob Þórhallsson
Sigfús Þorsteinsson Auðbjörg Ámundadóttir
Jóhanna Þorsteinsdóttir Ásgeir Guðmundsson
Ragnheiður Þorsteinsdóttir Steinþór Erlendsson
Þorst. Þráinn Þorsteinsson Ólafia Jónsdóttir
Geirmundur Þorsteinsson
Hjördls Þorsteinsdóttir
barnabórn og barnabarnabörn
hafa eignast ódapðlegan sjóð
minninga, sem verður dýrmætari
en allur veraldarinnar auður. Slík
móðir gengur á Guðs vegum, því
ást hennar til pabba og okkar er
ein af stærstu kærleiks gjöfum
hans til mannanna barna. Við
vitum að pabbi hefur beðið
hennar á strönd eilífðarinnar og
þau tekist hönd í hönd og leiðst
með vordrauminn í augunum eins
og forðum, en við börnin þeirra
og barnabörnin kveðjum og bless-
um minningu þeirra og þökkum
Guði fyrir þau.
Börn og barnabörn.
ljósmóðir, gift Lárusi Guðmunds-
syni 1 Reykjavík, Pétur iðnverka-
maður í Reykjavík, giftur Björgu
Aradóttur, Kristján símstjóri a
Hólmavlk, giftur Önnu Jóns-
dóttur, Ölafur framkvæmdastjóri
í Reykjavík, ókvæntur, Anna hús-
freyja á Blesastöðum, gift
Magnúsi Guðmundssyni bónda,
Ananías vélamaður á Akureyri,
giftur Brynhildi Þorleifsdóttur,
Ragnar lögregluvarðstjóri í
Reykjavík giftur Gyðu Jóns-
dóttur. Og yngst er Guðný hús-
freyja í Ólafsfirði, gift Arngrími
Guðbjörnssyni verzlunarmanni.
Þetta er allt vel gefið fólk og
hefur skilað miklum störfum í
þágu samfélagsins. Niðjar Sig-
ríðar G. Friðriksdóttur eru nú
samtals um 114— börn, barna-
börn og barnabarnabörn —.
Það er raunar kraftaverk, að
þessi mikla ættmóðir, eða þau
hjón, skyldu geta komið upp
barnahópnum slnum í Aratungu,
og lítt skiljanlegt nútfmafólki.
Fátækt, erfiðleikar, mikil vinna
og þrengsli, þegar fólkinu fjölg-
aði. Allt lagðist þetta á eitt. En 2
börnin, Sveinn og Anna, voru
tekin 1 fóstur af frændfólki Berg-
sveins á Kirkjubóli. Jón Finnsson
á Hólmavík tók Kristján. Eftir
voru þá 9 börn heima. Og ekki
voru fjölskyldubætur eða barna-
styrkir frá því opinbera eins og
nú. Hvernig ætli nútimabændum
gengi að framfleyta 11 manns á
Framhald fi bls. 5.
+
SOFFfA
FREYGERÐUR
ÞORVALDSDÓTTIR
fv. IjósmóSir. Hrafnistu,
er andaðist i Borgarsjúkrahúsinu
6 marz, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju mánudaginn 15.
marz kl 3.
Aðstandendur.