Morgunblaðið - 24.03.1976, Blaðsíða 1
32 SIÐUR
65. tbl. 63. árg.
MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1976
PrentsmiAja Morgunblaðsins.
Listaverka-
þjófnaður aldar-
innar upplýstur
Como23. marz—Reuter.
Líbanon:
Sveitir
múhameðs-
trúarmanna
enn í sókn
Lfbanon, 23. marz. AP.
HERSVEITIR Múhamcds-
trúarmanna sóttu inn I gisti-
húsahverfið við ströndina í
Beirut í dag, — að hinu ófull-
gerða Hilton hóteli, sem verið
hefur helzta vígstöð kristinna
falangista undanfarna 11
mánuði ( borgarastyrjöldinni í
Líbanon. Atök héldu áfram á
svipaðan hátt og verið hefur i
dag þrátt fyrir stöðugar
pólitfskar sáttatilraunir. Sveit-
ir múhameðstrúarmanna virð-
Framhald á bls. 18
„Tillögur Callaghans engu
öfgaminni en kröfur ANC”
— sagði Ian Smith, forsætisráðherra Rhódesíu, er hann hafnaði málamiðlunartill. Breta
ÞRJLI meistaraverk frá endur-
reisnarskeiðinu eftir Piero della
Francesca og Raphael, sem stolið
var fyrir 13 mánuðum og sérfræð-
ingar kölluðu margir hverjir
„listaverkaþ jófnað aldarinnar",
komu í leitirnar í dag ( Locarno í
Sviss, að því er lögreglan í Como
sagði. Fundust málverkin, sem
sumir sérfræðingar hafa metið á
meir en 5 milljónir sterlings-
punda, er svissneska lögreglan og
ítalskar lögreglusveitir gerðu
Framhald á bls. 18
London, Salisbury og
vlðar, 23. marz. Reuter.
• IAN Smith, forsætisráðherra
Rhódesiu, vísaði í kvöld á bug
tillögum James Callaghans, utan-
ríkisráðherra Bretlands, um lög-
mætt sjálfstæði Rhódesíu bvggðu
á meirihlutastjóm blökkumanna.
Smith sagði í yfirlýsingu sem gef-
in var út eftir ríkisstjórnarfund
þar sem fjallað var um tillögur
Callaghans, að brezki utanríkis-
Argentína:
Þrálátur orðrómur
um byltingu hersins
Buenos Aires,
23. marz. Reuter.
ARGENTlNSKIR þingmenn tóku
saman föggur slnar ( þinghúsinu f
dag er sögusagnir voru enn á
kreiki um að yfirvofandi væri
sjötta herforingjabyltingin f
Argentfnu frá árinu 1930. En
spádómar um að herforingjarnir
myndu hefja aðgerðir sfnar ( dög-
un I morgun til að steypa Isabel
Peron forseta, stóðust ekki, og er
Mbl. fór ( prentun f kvöld höfðu
engar fréttir borizt af byltingu.
Fregnir af herflutningum ( sveit-
um Argentfnu ýttu hins vegar
undir sögusagnirnar og fjölgað
var f varðliðinu umhverfis for-
setahöllina (Buenos Aires.
Einn þingmanna reyndi að fá
kaup sitt fyrir marzmánuð greitt
fyrirfram og sagði: „Eg verð að fá
það núna, því enginn veit hvenær
maður fær kaupið sitt eftir
byltinguna." Sögusagnirnar um
valdarán hersins hafa verið æ
háværari að undanförnu vegna
óstjórnar og getuleysis stjórnar
frú Peron, efnahagsöngþveitis og
Framhald á bls. 18
Deilur í uppsiglingu
á hafréttarráðstefnu
New York23. marz. NTB
ALVARLEG vandamál hafa risið
á hafréttarráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna I New York, þar eð 50
þátttökurfkjanna telja að strand-
ríki muni svo til eingöngu bera
eitthvað úr býtum í nýjum haf-
réttarsáttmála á kostnað þeirra
landa sem ekki eiga land að sjó.
Meirihluti þessara 50 rfkja eru
fandlukt, en einnig lönd sem eiga
land að sjó hafa undirritað bréf
rfkjanna sem sent hefur verið
forsætisnefnd ráðstefnunnar, þ. á
m. Svfþjóð og Finnland. I bréfinu
er þess krafizt að f samkomulags-
textanum verði ákvæði um að
strandríkin veiti þeim löndum
sem eru landlukt eða hafa stutta
Framhald á bls. 18
ráðherrann hefði „kosið að virða
raunveruleikann að vettugi og
lagt fram tillögur sem í engu væri
öfgaminni en
tillögur Afrfska
þjóðarráðsins
(ANC). „Hann
kvað tillögur
Callaghans ekki
veita neina von
um jákvæða þró-
un. Þriggja
mánaða viðræð-
ur Smiths og
Joshua Nkomo,
leiðtoga „innanlandsarms
l*N SMITK
ANC,
sigldu í strand s.l. föstudag vegna
deilnaum lengd aðlögunartimans
fyrir valdatöku blökkumanna,
sem eru sex milljónir i landinu.
Smith vildi ekki ljá máls á
blökkumannastjórn fyrr en eftir
10—15 ár, en þjóðernissinnarnir
vildu að hún kæmist á innan eins
árs. I tillögum Callaghans er gert
ráð fyrir 2 árum f lengsta lagi.
% Stuttu áður en yfirlýsing
Smiths var birt var skýrt frá því í
Zambfu að fjórir afrfskir þjóðar-
leiðtogar sem allir eiga land að
Rhódesfu muni koma saman f
Ættum að
vara okkur
— segir Idi Amin
í skeyti til Snowdon
Lundúnum 23. marz NTB.
IDI Amin forseti Cganda
hefur sent Snowdon lávarði
samúðarskeyti vegna skilnað-
ar hins sfðarnefnda og
Margrétar prinsessu.
„Þetta ætti að vera góð lexía
fyrir alla karlmenn. Við ætt-
Framhald á bls. 18
Henry Kissinger í hinni harðorðu ræðu í Dallas:
„Munum ekki líða frekari
hernaðaríhlutun Kúbu”
Dallas, Washington,
23. marz. Reuter —- NTB.
HIN harðorða viðvörun Henry
Kissingers, utanrfkisráðherra
Bandarfkjanna, til Kúbumanna f
gærkvöldi hefur vakið mikla
athvgli og er talin ótvfrætt merki
þéss að Bandaríkjast jórn og Ford
forseti séu staðráðnir í að koma f
veg fyrir nýja hernaðarfhlutun
Kúbumanna f Afríku eða annars
staðar. I meiriháttar stefnuræðu
sinni f gærkvöldi sagði Kissinger:
„Við höfum gefið út þessar við-
varanir áður. Eg endurtek þær í
dag. Bandarfkin munu ekki líða
frekari hernaðarfhlutun Kúbu
erlendis." Hann nefndi ekki
Ródesfu með nafni en gaf greini-
lega til kynna að hann átti við
ástandið þar, þegar hann fór lof-
samlegum orðum um tillögur
James Cailaghans, utanrfkisráð-
herra Bretlands, til lausnar
Ródesfudeilunni. Hins vegar
hefur ekki fengizt staðfest með
hvaða hætti Bandarfkin myndu
beita sér gegn slfkri fhlutun, en
blaðið Washington Star heldur
því fram í forsfðufrétt að að-
gerðunum yrði beint gegn Kúbu
sjálfri, t.d. með nýrri einangrun
eyjunnar af hálfu Bandarfkjanna
eða jafnvel loftárásum á hana.
Talsmaður stjórnarinnar kallaði
frétt þessa vangaveltur einar.
Heimildir innan bandariska
utanríkisráðuneytisins herma
hins vegar að þó að ekki sé rétt að
slíkar gagnaðgerðir gegn Kúbu
hafi verið ákveðnar þá liggi engu
að síður fyrir undirbúnings-
áætlanir fyrir mótaðgerðir, en
undirstrika jafnframt að slíkar
Framhald á bls. 18