Morgunblaðið - 24.03.1976, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1976
31
SLAMDSK VIKING
íþróttir og fjölmiðlar
— ráðstefna Samtaka íþróttafréttamanna á laugardag
Agúst Svavarsson vekur mikla athygli í Svíþjóð ekki sízt fyrir skiot-
hörku sfna, sem Svfar segja einstaka. Myndin er af blaðaummælum og
fregnum f sænskum blöðum um Agúst.
Samtök fþróttafréttamanna
gangast fyrir ráðstefnu um íþrótt-
ir og fjölmiðla n.k. laugardag, og
verður hún f veitingahúsinu Út-
garði í Glæsibæ og hefst kl. 13.30.
Ráðstefna þessi átti upphaflega
að vera í febrúar, er þá varð að
fresta henni af óviðráðanlegum
orsökum.
Á ráðstefnunni verður fjallað
um flest þau mál sem snúa að
samskiptum fjölmiðla og íþrótta-
hreyfingarinnar og hefur verið
boðið til hennar fulltrúum frá I
ISt, UMFÍ og sérsamböndum |
innan ISI.
Dagskrá ráðstefnunnar verður í '
stuttu máli þannig að eftir að Jón
Ásgeirsson, formaður Samtaka i
íþróttafréttamanna, hefur sett
ráðstefnuna, flyturGísli Halldórs- i
son, forseti ISI, ávarp. Að þvi
loknu verður fyrsta umræðuefni ,
ráðstefnunnar tekið á dagskrá og
er það Umfang íþróttafrétta i fjöl-
miðlum — dagblöðum og ríkis-
fjölmiðlum og hafa þeir Sigurdór
Sigurdórsson og Ömar Ragnars-
son framsögu um málið.
Þá verður fjallað um viðhorf
íþróttahreyfingarinnar gagnvart
fjölmiðlum og hefur Sigurður
Magnússon, skrifstofustjóri ISI,
framsögu um það mál. I annan
stað verður svo fjallað um viðhorf
fjölmiðla til íþróttahreyfingarinn-
ar og hefur Steinar J. Lúðvíksson
framsögu um það mál.
Þessu næst verður svo tekið til
umræðu: Fréttamat — fréttaöfl-
un og er Axel Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Handknattleiks-
sambands Islands, frummælandi.
Að lokum verður svo til umræðu
hvort íþróttahreyfingin njóti for-
réttinda hjá fjölmiðlum og hefur
Páll Heiðar Jónsson, dagskrár-
fulltrúi, framsögu um það mál.
Frjálsar umræður verða eftir
hvert framsöguerindi.
Mikill áhugi virðist vera ríkj-
andi á ráðstefnu þessari og hafa
flestir þeir, sem boðin var þátt-
taka, tilkynnt val fulltrúa sinna á
ráðstefnuna, en þeir sem enn eiga
eftir að tilkynna þátttöku sína eru
hvattir til þess að gera það sem
fyrst, ætli þeir á annað borð að
sitja ráðstefnuna, og hafa þá sam-
band við ráðstefnustjórann sem
verður Jón Ásgeirsson, fréttamað-
ur hjá rikisútvarpinu.
Sovétmenn sigrnðn
SOVÉTMENN sigruðu Austur-
Þjóðverja í landskeppni i fimleik-
um sem fram fór í Sessau i Aust-
ur-Þýzkalandi fyrir skömmu.
Hlutu þeir samtals 559,80 stig
gegn 557,85 stigum Austur-
Þjóðverja. Beztum einstaklings-
árangri náði Austur-Þjóðverjinn
Lutz Mack sem hlaut 113,30 stig,
en í öðru sæti varð Sovétmaður-
inn Anatoli Sedych með 112,50
stig og þriðji Vyacheslav Bioko
frá Sovétríkjunum með 112,10
stig.
V
Se upp, skátukn vikingan för en
ACIIST SA SkOTHAIIBtSTI
— ÁGÚST Svavarsson er
tvímælalaust einn skothárðasti
handknattleiksmaður sem við
höfum nokkru sinni séð til, segir
formaður sænska handknattleiks-
félagsins Malmberget í viðtali við
sænska dagblaðið NSD, þar sem
LIÐ Bayern Munchen er i glfurlegum ham um þessar mundir og á enn góða
möguleika á þýzka meistaratitlinum. þótt önnur liS standi betur i keppninni
eins og er. Mynd þessi er úr leik Bayern Munchen viS Benfica i Evrópukeppn-
inni á dögunum og sýnir Durnbergen (dókkum búningi) berjast við Benfica-
leikmanninn Martin.
Fræp liðin víðast í forystu
1. DEILDAR keppni er nú vel á
veg komin f flestum Evrópu-
ríkjum. Reyndar er mjög mis-
munandi hvenær keppnistfma-
bilið hefst og hvenær því lýkur,
en hjá allmörgum þjóðum mun
keppninni Ijúka í næsta mánuði.
Hérlendis beinist athyglin mest
að keppninni i Englandi og Skot-
landi, en sem kunnugt er þá er
staðan í Englandi enn mjög óljós
og eiga fjögur lið nokkurn veginn
jafna möguleika á meistaratitlin-
um, Queens Park Rangers, Man-
chester United, Liverpool og
Derby County. Eitt lið til viðbót-
ar, Leeds United, á einnig mögu-
leika, þótt hann sé raunar litill.
I Skotlandi munu Celtic og
Glasgow Rangers berjast um
meistaratitilinn og er sú barátta
mjög tvísýn. Bæði liðin unnu leiki
sina á laugardaginn og hefur
Celtic 40 stig að loknum 27
leikjum, en Rangers er með einu
stigi minna, 39 stig, eftir 27 leiki.
I þriðja sæti er svo Hibernian
með 34 stig, Motherwell er i
fimmta sæti með 33 stig, en siðan
koma Aberdeen með 27 stig,
Dundee með 25 stig, Hearts með
24 stig, Dundee Utd. með 22 stig,
Ayr United með 22 stig, og St.
Johnstone er langneðst i deild-
inni með 6 stig og er liðið þegar
fallið í 1. deild.
V-Þýzkaland
Flest liðin i Vestur-Þýzkalandi
hafa nú leikið 25 leiki. Borussia
Mönchengladbach heldur enn for-
ystunni, þrátt fyrir hinn mikla
skell er liðið hlaut í leik sinum við
Bayern Múnchen á laugardaginn.
Er Borussia með 34 stig. I öðru
sæti er Hamburger SV með 32
stig, en siðan koma Eintracht
Braunswick með 30 stig, Bayern
Múnchen með 29 stig, Kaisers-
lautern með 29 stig og Frankfurt
með 28 stig. Þrjú neðstu liðin i
deildinni eru Honnover 96 með 18
stig, Kickers Offenbach með 18
stig og Bayern Uerdingen með 17
stig. Eitt þessara liða, Kickers
Offenbach var í fyrrahaust á hött-
um eftir Marteini Geirssyni en
samningar tókust ekki, svo sem
kunnugt er.
Austurríki
Austurrfkismenn hafa aðeins
10 lið i sinni 1. deild og hefur það
þótt gefa góða raun — aðsókn að
leikjum hefur aukizt töluvert að
undanförnu. Að 22 umferðum
loknum hefur Austria forystu
með 32 stig. Innsbruck er I öðru
sæti með 32 stig, en markahlutfall
liðsins er aðeins lakara en
Austria-liðsins. I þriðja sæti er
svo Rapid með 27 stig, en röó
annarra liða er þessi: Salzburg 22
stig, Admira 21 stig, Vöest Linz 21
stig, Sturm Graz 19 stig, Grazer
AK 17 stig, Klagenfurt 15 stig og
á botninum er Linzer ASK með 14
stig.
Italía
Lokið er 22 umferðum i ítölsku
1. deildar keppninni. Juventus
hefur tekið forystuna og hefur
hlotið 35 stig fyrir leiki sina.
Torino er í öðru sæti með 32 stig,
en siðan koma Milan með 30 stig
Inter með 28 stig og Cesena með
26 stig. Á botninum eru Como
með 12 stig og Cagliari með 10
stig.
Holland
Eins og oft áður eru það PSV
Eindhoven, Ajax og Feyenoord
sem berjast um hollenzka
meistaratitilinn í ár, og er keppni
þessara liða mjög tvísýn og jöfn.
Leiknar hafa verið 24 umferðir og
er staðan sú að PSV Eindhoven er
í forystu með 37 stig og marka-
skorunina 67—22, en Feyenoord
er í öðru sæti, einnig með 37 stig,
en markaskorunina 54—28, Ajax
er í þriðja sæti með 36 stig,
Twente í fjórða sæti með 35 stig,
en siðan koma Nijmegen með 31
stig og Den Haag meó 27 stig.
Belgía
Club Brúgge virðist nú svo gott
sem búið að tryggja sér belgíska
meistaratitilinn í knattspyrnu í
ár, en liðið er komið með 40 stig
eftir 28 leiki. Lokeren er i öðru
sæti með 35 stig, en síðan koma
Racing White með 34 stig, Ander-
lecht með 34 stig, Beveren með 34
stig, Lierse með 32 stig, Waregem
með 32 stig, Standard Liege með
31 stig, Beerschot með 30 stig,
Antwerpen með 30 stig, Liege FC
með 27 stig, Cercle Brúgge með 26
stig, Oostend með 25 stig,
Mechelen með 24 stig, La
Louvriere með 20 stig, Beringen
með 20 stig, Charleroi með 19 stig,
Berchem með 16 stig og Rac.
Mechelen með 13 stig. Af þessari
upptalningu má sjá að Standard
Liege, lið Asgeirs Sigurvinssonar,
er nánast úr leik í baráttunni um
meistaratitilinn, en Charleroi, lið
Guðgeirs Leifssonar, er ekki enn
úr allri fallhættu i deildinni.
Spánn
Real Madrid er nú í forystunni í
spænsku 1. deildar keppninni i
knattspyrnu og hefur liðið hlotið
39 stig eftir 27 leiki. Atletico
Madrid er í öðru sæti með 36 stig
eftir 27 leiki en síðan koma
Barcelona með 35 stig, Atletico
Bilbao með 31 stig og Hercules
með 30 stig. Þykja þessi lið hafa
borið nokkuð af i keppninni það
sem af er og unnið marga leiki
sína með umtalsverðum yfirburð-
um. Sérstaklega mun lið Real
Madrid vera framúrskarandi um
þessar mundir, svo sem árangur
þess í Evrópubikarkeppninni er
reyndar talandi dæmi um.
hann og blaðið Ijúka miklu lofs-
orði á hæfni Ágústs. Lið Agústs
sem kom upp úr 2. deild í Svíþjóð
f fyrra vegnaði ekki vel f vetur og
hafði ekkert stig hlotið f deild-
inni er Agúst kom til liðs við það.
Eftir það tók að ganga heldur
betur hjá liðinu, en samt sem
áður hafnaði það á botninum í
deildinni og verður að leika til
úrslita við það lið sem varð I öðru
sæti í 2. deild um rétt til þess að
leika áfram I sænsku 1. deildar
keppninni, en Sviar ætla að fjölga
liðum þar á næsta keppnistíma-
bili.
— Við erum mjög ánægðir með
frammistöðu Agústs hingað til,
en erum vissir um að hann verður
maðurinn sem verður okkur
mikilvægastur í þeim leikjum
sem framundan eru, segir Olofs-
son ( fyrrnefndu viðtali. Þá er
cinnig rætt við Ágúst og segist
hann ekki vera búinn að ná sér
fyllilega á strik með hinu nýja
félagi sínu, en hins vegar kunni
hann vel við að leika með því.
Blöðin fjalla einnig um hversu
gffurlega kostnaðarsamt þetta
fyrsta ár Malmberget í sænsku 1.
deildinni hafi verið. Segja að það
hafi verið mikil gleði er félagið
komst upp í deildina, árangurinn
í vetur hafi verið 4 stig í keppn-
inni og reikningurinn fyrir þau
hljóði upp á 213.700 sænskar
krónur. Af kostnaðinum er ferða-
kostnaður lang stærsti liðurinn
eða 87.000 krónur, en þar á eftir
uppihald leikmanna vegna
æfinga og leikja sem nemur alls
um 50.000 krónum.
JórunnogGuð-
ión meistarar
REYKJAVf KURMÓT i stórsvigi fór
fram í Bláfjöllum s.l. laugardag og
var þá keppt bæSi i karla- og kvenna-
flokki. Var um allskemmtilega
keppni að ræða I karlaflokknum, en i
kvennaflokki hafSi hins vegar
Ólympíufarinn Jórunn Viggósdóttir
umtalsverða yfirburði. NáSi hún
beztum brautartima i báðum ferSum,
47,27 sek. í fyrri ferS og 51,94 sek.
i seinni ferS. Samanlagður timi
hennar var þvi 99,21 sek. Önnur
varð Anna Dia Erlingsdóttir úr KR.
sem fékk samanlagaðan tima
108.17 sekúndur. Þriðja varð Ás-
laug Sigurðardóttir úr Ármanni á
113, 76 sek. og fjórða varð Áslaug
Sigurðardóttir úr Ármanni á 113,76
sek. og fjórða varð Guðbjörg Árna-
dóttir, Ármanni, á 118.71 sek. Alls
luku sjö konur keppni.
I karlaflokki sigraði Guðjón Ingi
Sverrisson, Ármanni, á samanlögð-
um tlma 92,32 sek. Fór hann fyrri
ferðina á 43,72 sek. og seinni ferð-
ina á 48,60 sek. f óðru sæti varð
Kristján Kristjánsson, Ármanni, á
95,17 sek. — fékk hann timann
45,88 sek. i fyrri ferð og 49,29 sek.
i seinni ferðinni. f þriðja sæti varð
Arnór Guðbjartsson. Ármanni, á
95,21 sek., fjórði varð Árni Sigurðs-
son, Ármanni, á 96,20 sek., fimmti
varð Steindór Skúlason, ÍR, á 97,61
sek. og sjötti varð Þorsteinn Geir-
harðsson, Ármanni, á 98,29 sek.
Keppt var i tveimur brautum. Fall-
hæð var 230 m og brautarlengd 700
metrar. Hlið i fyrri brautinni voru 30
og 25 í seinni brautinni.
Grótta vann Víði
í FYRRAKVOLD fór fram einn leikur
I Bikarkeppni Handknattleikssam-
bands íslands. Léku þá lið Gróttu og
Víðis í Garði, en sem kunnugt er þá
er Viðisliðið í 3. deild en Grótta í 1.
deild. Urslit leiksins urðu öruggur
sigur Gróttu 27—13, eftir að staðan
hafði verið 10—7 í hálfleik og kom
það verulega á óvart hversu Viðis-
menn veittu Gróttu mikla keppni til
að byrja með.
Framkvæmd bikarkeppni HSÍ
þessu sinni virðist vera í mikli
molum og áhugi bæði leikmanna
áhorfenda í lágmarki. Félögin sj
eiga að hafa umsjón með leikjunu
og m.a. láta vita um þá, en á |
hefur verið mikill misbrestur og r
segja að það sem af er hafi bik
keppnin að mestu farið fram i ky
þey