Morgunblaðið - 24.03.1976, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1976
3
Nýtt búvöruverð tekur gildi í dag:
Mjólkurlftrinn í 55
krónur — Kjötið
hækkar um 20%
í DAG tekur gildi nýtt verð á landbúnaðarvörum. Eins
og skýrt var frá í blaðinu í gær er hér um að ræða
hækkanir af völdum hækkaðs verðlagsgrundvallar land-
búnaðarvara, hækkunar á vinnslu- og dreifingarkostn-
aði, auk þess, sem einnig er dregið úr niðurgreiðslum.
IVIest er hækkunin á mjðlkurvörum, en hver lítri af
mjólk kostar í dag 55 krónur en kostaði fyrir hækkunina
41 krónu, og hefur því hækkað um 34%. Verð á kjöti
hækkar nú að meðaltali um 20% og kostar hvert kíló af
dilkakjöti í heilum skrokkum eftir hækkunina 513 krón-
ur en kostaði áður 417 krónur.
Verðlagsgrundvöllur landbún-
aðarvara hækkar að þessu sinni
um 8.49% og verður samsvarandi
hækkun á afurðum nautgripa þ.e.
mjólk og kjöti. Fá bændur nú
61.09 krónur fyrir hvern lítra af
mjólk en fengu áður 56.31 krónu.
Hvað snertir sauðfjárafurðirnar á
sér nú stað tilfærsla, þannig að
hækkun er á verði ullar í grund-
vellinum, en hækkun á verði
dilkakjöts til bænda verður minni
en meðalhækkun á grundvellin-
um nemur. Fyrir hvert kiló af
dilkakjöti fá bændur nú 414.73
krónur en fengu fyrir hækkun
402.70 en ullarverðið hækkar hins
vegar úr 178,81 á hvert kíló í
424.60 kr. og er þá miðað við
fyrsta verðflokk. Uliarvinnslu-
stöðvarnar verða ekki að taka á
sig þessa miklu verðhækkun, því
ákveðið hefur verið að greiða nið-
ur ull. Engar breytingar hafa ver-
ið gerðar á verðlagsgrundvelli
landbúnaðarvara frá því 1. sept-
ember s.l. þrátt fyrirýmsar hækk-
anir, sem urðu á helstu rekstrar-
vörum landbúnaðarins á síðari
Aukning á
SAS-flugi
til Islands
í SUMAR mun SAS fljúga
þrjár ferðir vikulega frá
íslandi til Kaupmanna-
hafnar og einnig mun fé-
lagið fljúga þrisvar í viku
frá íslandi til
Narssarssuaq. í fyrra voru
SAS-ferðirnar á þessum
leiðum tvær í viku, en þá
leigði SAS Boeing vélar
Flugfélagsins.
Á s.l. ári keypti SAS sænska
flugfélagið Transair. Það flugfé-
lag á 3 Boeing-flugvélar af sömu
gerð og vélar Flugfélagsins eru. í
sumar notar SAS þessar flugvélar
til þess að annast Islands- og
Grænlandsflug sitt. Framkvæmd
flugsins er með svipuðu sniði og
áður.
Fyrir utan flug SAS tii Narss-
arssuaq frá Keflavík flýgur Flug-
félag íslands a.m.k. eina ferð í
viku á þeirri leið. Sú ferð er farin
f beinum tengslum við eina af
ferðum Flugfélagsins frá Höfn.
Þannig verða fjórar ferðir í viku
héðan til Narssarssuaq (á mánu-
dögum, miðvikudögum, fimmtu-
dögum og föstudögum), þegar
áætlunin kemst i hámark í sumar.
ísland er nú sjálfstætt markaðs-
svæði hjá SAS, en ekki í dilk með
Grænlandi og Færeyjum eins og
áður.
Samkvæmt upplýsingum Birgis
Þórhallssonar, forstjóra SAS-
skrifstofunnar í Reykjavík, mun
SAS á næstunni opna skrifstofu á
Keflavikurflugvelli og mun
danskur maður veita henni for-
stöðu.
hluta ársins. Að þessu sinni
hækkar launaliður grundvallar-
ins um 10.2% og fá bændur með
þeirri hækkun bættar hækkanir
frá því í október og desember á
s.l. ári, auk launahækkunar þeirr-
ar, sem samið var um i siðustu
kjarasamningum.
Mestur hluti hækkunar á
vinnslu- og dreifingarkostnaði bú-
vöru er af völdum almennra
launahækkana en einnig kemur
þar til samdráttur i mjólkurfram-
leiðslunni, því fastur kostnaður
mjólkursamlaganna hækkar um
27%, en það er 4.81 króna á hvern
litra innveginnar mjólkur. Full-
trúar framleiðenda í sexmanna-
nefnd fóru fram á bætur vegna
þess tjóns, sem mjólkurframleið-
endur urðu fyrir í verkfallinu á
dögunum, en það fékkst ekki sam-
þykkt. Heildsölukostnaður á
dilkakjöt hækkar nú um 8 krónur
í öllum verðflokkum og er þessi
hækkun af völdum launahækk-
ana. Smásöluálagning hækkar um
16!4% og miðað við krónutölu er
hún 28.65 krónur á hvert kiló,
þegar dilkakjöt er selt i heilum
skrokkum.
Við þessa verðákvörðun er
verulega dregið úr niðurgreiðsl-
um, en í fjárlögum ársins í ár er
fjárveiting til niðurgreiðslna 11%
lægri en i fyrra. Samdrátturinn í
niðurgreiðslunum verður þó
nokkru meiri þar sem þegar eru
liðnir þrir mánuðir af árinu án
þess að niðurgreiðslur hafi verið
skertar. Niðurgreiðslur á dilka-
kjöti lækka um 53.70 krónur og
verða 122 krónur á hvert kíló en
niðurgreiðslur á hvern lítra
mjólkur verða eftir lækkunina
krónur 37.30 en voru 39.10 auk
þess, sem felldar eru niður niður-
greiðslur á umbúðum utan um
mjólk. Þá falla einnig niður nið-
urgreiðslur á rjóma og osti en
smjör verður áfram niðurgreitt.
Hér fer á eftir yfirlit yfir smá-
söluverð búvöru fyrir og eftir þá
hækkun sem tekur gildi í dag:
ERIC Wilson heitir ung-
ur sellóleikari, sem leika
mun einleik með Sin-
fóníuhljómsveit íslands
annað kvöld. Mun hann
leika Hebreskirapsodí-
una eftir Ernst Bloch, en
þetta er í fyrsta sinn sem
hún er flutt hér á landi.
Eric Wilson er af ís-
lenzku bergi brotinn, en
móðir hans, sem hér er
með honum nú, er ættuð
frá Vopnafirði, föður-
Eric Wilson ásamt móður sinni.
Ljósmynd Fridþjófur
m
Vestur- Islendingur leikur
með sinfóníunni á morgun
bróðir hennar var séra
Guttormur Guttormsson
í Minnesota, en móðir
hennar var Kjærnested,
dóttir Jóns Kjærnested.
Eric Wilson, sem nú býr í
New York, útskrifaðist úr
Juollard skólanum og lauk það-
an doktorsgráðu. Hann hefur
komið fram sem sellóleikari í
Genf, Kaupmannahöfn,
Moskvu, í Kanada og Banda-
ríkjunum og þá m.a. á Hawaii.
Þetta er fyrsta heimsókn hans
til íslands.
Í viðtali við Mbl. sagði Eric
Wilson að Hebreska rapsódían,
sem hann leikur hér með Sin-
fóníunni hafi verið samin 1918
og heitir hún Schalmo — sálm-
ur og er skyld sálmum gamla
testamentisins, eins konar tóna-
ljóð. Hún er ekki kaflaskipt.
Eric Wilson sagði að hann
hefði mjög gaman af að koma
til tslands, hanri hefði alizt upp
í Winnipeg, þar sem móðir hans
býr nú, verið þar i Lúthersku
islenzku kirkjunni og allt upp-
eldi sitt hefði verið með sterk-
um íslenzkum áhrifum. Hér
býst hann við að vera í um það
bil viku, en heldur síðan aftur
til New York. Hann mun siðar
sameinast tónlistarflokki frá
Toronto, sem fer í 6 vikna tón-
leikaferðlag um Evrópu og lýk-
ur ferð sinni hér á landi í
júnímánuði og mun þá leika á
norrænu tónlistarhátiðinni hér
í Reykjavík.
Fjölskylda Erics Wilson hef-
ur verið mjög tónlistarsinnuð,
faðir hans söngvari og móð-
ir hans pianóleikari. Afi hans,
sem fluttist 9 ára gamall frá
Framhald á bls. 18
Bróðir minn Húni
— ný skáldsaga eftir Guðmund Daníelsson — Hóf ritun hennar 1942
ALMENNA Bókafélagið hefur
gefið út nýja skáldsögu eftir Guð-
mund Daníelsson. Nefnist hún
„Bróðir minn Húni“og er tileink-
uð dr. Erik Sönderholm.
Erlendur Jónsson ritar um
skáldsöguna og höfundinn i
Fréttabréf AB. Segir þar í upp-
hafi:
„Guðmundur Daníelsson er i
hópi þróttmestu og svipmestu nú-
lifandi skáldsagnahöfunda,
íslenskra; hugkvæmur, afkasta-
mikill, listfengur. Tuttugu og
fimm ára sendi hann frá sér
fyrstu skáldsöguna Sjö árum síð-
ar, eða 1942 hóf hann að rita
skáldsöguna Bróðir minn Húni.
Að henni vann hann siðan smátt
og smátt þar til er hann lauk við
hana i fyrra, 1975, fjörutiu árum
eftir að fyrsta skáldsagan kom
fyrir almenningssjónir.
Bróðir minn ilúni er mikið
Eftir
Mjólkurvörur hækkun kr. ha'kkun kr.
Mjólk í 2 ltr. fernum 82.00 109.00
Mjólk f lftra pökkum 41.00 55.00
Rjómi f lfters fernum 436.00 560.00
Rjómi f 1/10 líters iiyrnum 45.00 57.00
Skyr, kg 118.00 133.00
1. fl. smjör, kg 612.00 815.00
Ostur 45%, kg 601.00 779.00
Qstur 30%, kg 484.00 598.00
Kindakjöt, kg: 1. verðfl.: Súpukjöt, frampartar og sfður 451.00 553.00
Heil læri eða niðursöguð 502.00 612.00
Kótelettur 561.00 680.00
Heilir skrokkar, skipt eftir ósk kaup. 424.00 520.00
Framhryggir 615.00 744.00
2. verðfl.: Súpukjöt 412.00 505.00
Nautakjöt, 2. verðfl., UN I og AK I: Heilir og hálfir skrokkar 348.00 422.00
Miðlæri 579.00 703.00
Buff 1.561.00 1.861.00
Hakk, 1. fl. 768.00 915.00
Kartöflur: 5 kg. poki 1. flokkur (kr. 83.52 á kg) 376.00 418.00
5. kg poki 2. flokkur (kr. 70,84 á kg) 320.00 354.00
Guðmundur Danielsson
.skáldverk með víðfeðmu sögu-
sviði og mörgum persónum. En
fyrst og fremst er þetta saga
tveggja bræðra, Húna og Sigurð-
ar. Segir þar frá uppruna þeirra,
bernskuheimili, foreldrum og
öðru heimafólki, gestum og ná-
grönnum, uppvexti og þroska
þeirra sjálfra; bróðerni þeirra —
eða að hinu 'eytinu baráttu og
samkeppni; sem og lífsbaráttu
þeirri sem þeir heyja hvor í sínu
lagi og hvor með sínum hætti;
glímu þeirra við umhverfið.
Frá foreldrum hafa þeir þegið i
arf blandaða eiginleika: faðirinn
draumlyndur stemmingamaður
sem. lætur hverjum degi nægja
sina þjáning; móðirin staðföst,
viljasterk. Og metnaðargjörn fyr-
ir hönd sona sinna; vill að þeir
læri, framist. Varanleg áhrif á þá
hefur og stúlka sem dvelst sumar-
langt þar á heimilinu. Hún er rík
og menntuð og er þangað komin
til að róa spenntar taugar; sinnir
því ekki daglegum störfum nema
hvað hún segir þeim, bræðrunum,
til i skólanámsgreinum þeirra.
Það er út af fyrir sig ærinn við-
burður. En meira fylgir: i návist
þessarar þokkagyðju gefst þeim
övænt svipsýn inn f launhelgar
ástarlífsins. Þessi lifandi imynd
hins eilífa kvenlega pírir í þá
svolítilli reynslu en gefur þeim
um leið sýnu meiri draum, gerir
þá háða sér; freisting holdsins
hefur vitjað þeirra; framar verða
þeir aldrei samir.“
Bókin er 228 blaðsíður.
Setningu annaðist Prentstofa B.
Benediktssonar, Prentsmiðjan
Viðey prentaði og Bókbindarinn
h.f. batt bókina.
Kartöflur:
Ekki hægt að lesta
í Póllandi í gær
vegna frosta
1 GÆR átti skip að lesta kartöflur
í Póllandi en af þvf gat ekki orðið
vegna frosta þar úti, dregst því
enn að kartöflur komi aftur til
dreifingar hjá Grænmetisverslun
landbúnaðarins á Höfuðborgar-
svæðinu. Þetta skip er lesta átti í
gær verður enn í nokkra daga í
Póllandi auk þess sem næsta skip
á að lesta þar um helgi, þannig að
ef fer að draga úr frosthörkunum
f Póllandi ættu kartöflurnar að
koma á markað hér fvrri hluta
næsta mánaðar. En vart ætti að
þurfa að minna tslendinga á þá
Framhald á bls. 18