Morgunblaðið - 24.03.1976, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1976
LOFTLEIDIR
H- 2 1190 2 11 88
FERÐABÍLAR h.f.
Bílaleiga, sími 81260
Fólksbilar — stationbilar —
sendibílar — hópferðabilar.
DATSUN
7,5 I pr. 100 km
Bilaleigan Miðborg
Car Rental j qa qo
Sendum 1-94-92
FALLEGASTA
BÚK ÁRSINS
„Hagleiksverk Hiálmars
í Bólu"
komin aftur í fallegu og
níðsterku bandi.
Bezta vinargjöfin
Tilvalin fermingargjöf.
Bók dr. Kristjáns Eldjárns um
Hjálmar Jónsson, gefin út í
minningu aldarártíðar skáldsins.
Hjálmari Jónssyni var margt til
lista lagt. Hann var fræðimaður,
smiður á málm og tré, listaskrif-
ari, skurðhagur.
í inngangsorðum minnir Kristján
Eldjárn á samhengi íslenzkrar út-
skurðarlistar frá fornu fari og
sérkenni hennar. Þar á eftir fer
æviágrip Hjálmars og kafli um
almennar heimildir varðandi
hagleik hans. En siðar, í yfirliti,
bregður höfundur skýru Ijósi á
samastað Hjálmars Jónssonar í
íslenzkri myndlistarsögu:
„Segja má að þjóðleg islenzk
tréskurðarlist líði undir lok upp
úr miðri 19. öld og er þá merki-
legt skeið á enda runnið.
Hjálmar í Bólu var einn hinn
siðasti alþýðutréskeri sem var i
órofnum tengslum við list sina
sem fornan feðraarf og tókst að
gera ágæta hluti í anda hinnar
ævagömlu stílhefðar, ósnortinn
með öllu af nýjum erlendum
áhrifum '. Kristján Eldjárn hefir
reist hinu gamla stórskáldi
verðugt minnismerki um mynd-
list hans, sem var býsna ríkur
þáttur i æviferli hans og stendur
fyrir sínu einhvers staðar i
grennd við kvæðin.
Klassiskar bókmenntir til
tækifærisgjafa.
HELGAFELL,
UnutlUSÍ
Útvarp ReykjavIK
AtlÐNIKUDKGUR
24. mar/.
MORGUNNINN__________________
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10. Morgunleikfimi kl.
7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30,
8.15 (og forustugr. daghl.),
9.00 og 10.00. Morgunbæn kl.
7.55. Morgunstund barnanna
kl. 8.45: Evvindur Eiríksson
bvrjar að lesa þýðingu sína á
sögunni „Söfnurunum" eftir
Marv Norton. Tilkvnningar
kl. 9.30. Þingfrcttir kl. 9.45.
Létt lög milli atriða. Kross-
fari á 20. öld kl. 10.25: Bene-
dikt Arnkelsson cand. theol.
flvtur fjórða þátt sinn um
predikarann Billv Graham.
Passíusálmalög kl. 10.40:
Sigurveig Hjaltested og Guð-
mundur Jónsson syngja við
orgelleik dr. Páls Isólfs-
sonar. Morguntónleikar
11.00: Kenneth Gilbert
leikur Svítu í e-moll fvrir
sembal eftir Kameau /
Helmut Walcha leikur á
orgel Fantasíu og fúgu í c-
moll eftir Bach / Milan
Turkovic og Eugen Ysaye
strengjasveitin leika Fagott-
konsert 1 G-dúr eftir Múthel;
Bernhard Klee st jórnar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkvnningar. Tðnleikar.
SIÐDEGIÐ
13.15 Til umhugsunar
Þáttur um áfengismál I um-
sjá Arna Gunnarssonar.
13.30 Við vinnuna: Tónlcikar.
14.30 Miðdegissagan: „Þess
bera menn sár“ eftir Guð-
rúnu Lárusdóttur
Olga Sigurðardóttir les (2).
15.00 Miðdegistónleikar:
Frönsk tónlist
Suisse Romande hljómsveit-
in leikur „Gullastokkinn",
ballettsvitu eftir Glaude
Debussv; Ernest Ansermet
stjórnar.
Arthur Grumiaux og I.amou-
reux hljómsveitin í París
leika Fiðlukonsert nr. 3 í h-
moll op. 61 eftir Gamille
Saint-Saéns; Jean Fournet
stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkvnningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn
17.10 Útvarpssaga barnanna:
Spjall um Indlána
Brvndís Víglundsdóttir
heldur áfram frásögn
sinni (9).
17.30 Framburðarkennsla í
dönsku og frönsku
17.50 Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kvnningar.
KVÖLDIÐ
19.35 Úr atvinnulífinu
Rekstrarhagfræðingarnir
Bergþór Konráðsson og
Brvnjólfur Bjarnason sjá um
þáttinn.
20.00 Kvöldvaka
a. Samleikur á selló og píanó
Pétur Þorvaldsson og Ölafur
Vignir Albertsson leika ís-
lenzk lög.
b. Máttlausir vinir
Einar Kristjánsson skóla-
stjóri flytur frásöguþátt.
c. Vísnaþáttur
Sigurður Jónsson frá Hauka-
gili flvtur.
d. Þegar ég var 17 ára
Snæbjörn Einarsson segir
frá.
e. úm islenzka þjóðhætti
Arni Björnsson cand. mag.
flytur þáttinn.
f. Kórsöngur
Alþvðukórinn svngur. Söng-
stjóri: Dr. Hallgrímur
Helgason.
21.30 Útvarpssagan: „Síðasta
freistingin" eftir Nikos
Kazantzakis
Kristinn Björnsson íslenzk-
aði. Sigurður A. Magnússon
les (7).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir
Lestur Passíusálma (32)
22.25 „Styrjöld Guðmundar á
Sandi" ritgerð eftir Kristin
E. Andrésson
Gunnar Stefánsson les mið-
hlutann.
22.50 Nútímatónlist
Þorkell Sigurbjörnsson
kvnnir.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.
WKEMKm
/MDVIKUDKGUR
24. mars 1976
18.00 Mjásiog Pjási
Tékknesk teiknimynd.
Þýðandi Oskar Ingimarsson
18.15 Robinson-f jölskyldan
Breskur myndaflokkur
byggður á sögu cftir Johann
Wyss.
7. þáttur. Merki skipstjór-
ans. Þýðandi Jóhanna
Jóhannsdóttir.
18.40 Ante
Norskur myndaflokkur J sex
þáttum um samadrenginn
Ante.
2. þáttur. Hjörðin min.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Nýjasta tækni og vis-
indí
úmsjónarmaður Sigurður
H. Richter.
21.05 Bilaleigan
Þýskur myndaflokkur.
Byrjandinn
Þvðandi Briet Héðinsdóttir.
21.30 DeValera
Irsk heimildamynd um vis-
inda- og stjórnmálamanninn
Eamon de Valera
(1882—1975) og þróun
stjórnmála á Irlandi á fyrri
hluta aldarinnar.
Þýðandi og þulur Gylfi Páls-
son.
22.30 Dagskrárlok '
Irsk heimildamvnd um vís-
inda- og stjórnmálamanninn
EAMON DE VALERA er í
sjónvarpinu kl. 21.30 f kvöld.
Fjailar mvndin um ævi de
Valera en hann fæddist í
Bandaríkjunum en fluttist
þriggja ára til lrlands. Snemma
komst hann í snertingu við frsk
stjórnmál sem hann helgaði
síðan allt sitt líf. Hann varð
síðan forsætisráðherra þegar
lýðveldið var stofnað og sfðar
forseti. De Valera andaðist í
fyrra háaldraður.
Inn í mvndina fléttast að
sjálfsögðu barátta Ira fvrir
sjálfstæði og samskiptin við
Englendinga. Er myndin
þannig um samskipti stórveldis
og smáríkis og hvernig hags-
munir stórveldisins eru alltaf
sjálfsagðir á kostnað smáríkis-
ins.
Þýðandi og þulur er Gylfi
Pálsson.
De Valera, frelsishetja Ira og
forseti Irska lýðveldisins um
áratuga skeið.
I GLEFS
Öku
œfingar
Artnar þáttur BÍLA-
LEIGUNNAR verður í
sjónvarpi í kvöld kl.
21.05.
Þættirnir eru allir
sjálfstæðir og eru í frek-
ar léttum dúr. í fyrsta
þætti fléttaðist þó inn í
svolítið sakamál. Þáttur-
inn i kvöld er um unga
stúlku sem kemur beint
frá prófborðinu og leigir
bíl frá bílaleigunni til að
æfa sig.
El' að líkum læt-
ur kann þaö varla góðri
lukku aö stýra fyrir fjöl-
skylduna sem hefur bíla-
leiguna.
íslenzkir sjónvarps-
áhorfendur hafa fengið
ágætis sýnishorn af
smekk ítalskra örlaga-
bræðra sinna að undan-
förnu. Fyrst kom langur
og ítarlegur framhalds-
myndaflokkur þar sem
fjallað var um rótlaus
ungmenni. Efnið sjálft
kann að vera áhugavert,
en þeir, sem ekki voru
búnir að fá sig fullsadda
af því þegar eftir fyrsta
þáttinn, hljóta að vera
gæddir einstæðum hæfi-
leikum. Þegar þessari
þraut lauk svo eftir langa
mæðu, og maður hélt að
Ítalía væri afgreidd í
sjónvarpinu að sinni, tók
Á sunnudag las Jón
Óskar rithöfundur þýð-
ingu sína á bréfi sem
barst samtökum Amn-
esty International.
Nefndi hann það Ákall
um réttlæti. Bréfið var
opið bréf til forseta Uru-
guay og skýrir frá því að
sonur bréfritara var
tekinn fastur af lögreglu
landsins og pyntaður til
dauöa. Bréfritari sem er
kennari á efri árum,
varpar í bréfi sínu fram
ýmsum spurningum.
Hann veit t.d. ekki hvers
vegna sonur hans var
tekinn fastur eða hverjar
ákærur voru á hendur
honum. Velti faöirinn
fyrir sér þeirri
ekki betra við. Nú á að
uppfræða íslenzka sjón-
varpsáhorfendur um
ítalskan sjóbissness.
Þarna er boðiö upp á
alþjóólega slagara, sem
búið er að staðfæra, og
þeir síðan sungnir með
einhverjum þeim ótrú-
legustu óperutilþrifum,
sem sézt hafa.
Þeir sjónvarpsneytend-
ur, sem enn hafa ekki
látið ginnast, eru hér
með eindregið varaðir
við, en þeim, sem orðið
hafa fyrir því að skoða
þessi ósköp, er ráðlagt að
láta fara vel um sig og
reyna að gleyma sem
fyrst. —Á. R.
spurningu hvort ástæðan
gæti verið sú að hann
sjálfur var eitt sinn for-
maður kennarasamtaka í
landinu.
í bréfinu eru engin
stóryrói notuó, það er
upptalning á staðreynd-
um og rökum. Bréfið er
ákall um réttlæti.
Þetta bréf lýsti hörmu-
legum staðreyndum um
ofbeldi og pyntingar.
Uruguay er þó ekki
einsdæmi í slíkum
málum — því miður. Er
þess skemmst aö minnast
að farið var á leit við
rikisstjórnir íslands og
Svíþjóóar fyrir skömmu
að þær tækju upp mál-
efni Kúrda á vettvangi
Sameinuðu þjóðanna. I
írak fer fram þjóðar-
morð á Kúrdum að sögn
Kúrdanefndanna er báru
fram þessa ósk við ríkis-
stjórnirnar. Er mál
þeirra einkum hryggilegt
fyrir þær sakir að þeim
hefur ekki tekizt aö fá
neina þjóð til að taka upp
málefni sín hjá S.Þ. Vilja
þjóðir heims ekki styggja
Araba vegna sterkrar
stöðu þeirra á alþjóða-
vettvangi í krafti
olíunnar. Er vonandi aö
ekki verði daufheyrzt við
þessari stuðningsbeiðni.
Þáttur Jóns Óskars var
þörf ábending um brot á
mannréttindum sem eiga
sér stað víða um heim.
ÁH.
I GLUGG