Morgunblaðið - 24.03.1976, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1976
— Tillögur
Zamhíu á morgun til art reyna art
finna nýjar leiðir til að birída
endi á minnihlutastjórn hvítra.
Forsetarnir eru Kenneth Kaunda
frá Zambíu, Samora Machel frá
Mozambique, Julius Nverere frá
Tanzanfu og Sir Seretse Khama
frá Botswana, en þess er vænzt að
Nkomo og Abel Muzorewa, bisk-
up, leiðtogi „utanlandsarms"
ANC komi einnig til fundarins.
Ef klofningur innan ANC helzt
áfram kann að reynast erfitt að
hefja allsherjar skæruhernað
gegn stjórn Smiths, en slfk styrj-
öld hefur verið yfirvofandi sfðan
viðræðurnar í Salisburv sigldu í
strand.
Ian Smith sagði í yfirlýsingu
sinni m.a: „Hr. Callaghan sakar
mig um óbilgirni vegna þess að ég
hafnaði kröfum ANC, en hann
minntist ekki á þá staðreynd að
ég lagði fram gagntillögur sem
fólu i sér viðtækar tilslakanir
varðandi stjórnarskrárréttindi og
valdaþátttöku. Þær byggðust á
þróun en ekki byltingarlegri
breytingu eins og ANC krafðist.
Tillögur myndu hafa tryggt
trausta stjórn og örvggi fyrir rétt-
indi og eignir allraRbódc siubúa."
Þá kvaðst hann harma að brezka
ríkisstjórnín skyldi hafa hafnað
tillögu sinni um að óhlutdræg
brezk sendínefnd kæmi til Thóde-
síu til að meta ástandið á staðnum
í stað tillögugerðar úr fjarska. Þá
visar hann á bug ásökunum Call-
aghans um að „undanbörgð" af
hálfu Smiths hafi bundið enda á
Salisbury-viðræðurnar. Orsökin
hafi verið „öfgafullar og óað-
gengilegar" kröfur Nkomos.
— Refskák
Framhald af bls. 19
beitt efnahagsþvingunum á sama
hátt og þessar „vinaþjóðir" hafa
gert frá striðslokum og allt fram á
þennan dag? Lágmarkskrafa
okkar er: Burt með ykkur úr land-
helginni strax, það verður aldrei
samið um eitt kíló af fiski við
ykkur. Afnám á öllum tollum í
þeim löndum sem njóta ómetan-
legs öryggis af hervarnarstöðinni
hér.
Við aftur á móti getum sett
hvers konar verndartolla, sem við
þurfum fyrir íslenskan iðnað,
vegna smæðar hans og auka-
kostnaðar, sem m.a. stafar aí
háum flutningsgjöldum.
Bandaríkin verji 300 mill.
dollara árlega til varanlegrai
vegagerðar þar til fullkomnir ak-
vegir eru yfir og kringum landið.
Bandaríkin og þessar svo-
kölluðu „vinaþjóðir" okkar hjálpi
til að koma atvinnu og efnahags-
málum okkar í traust horf, það er
ekki of mikið. —„Það eru þessir
sömu aðilar, sem hafa hjálpast að
við að rífa efnahag okkar niður.“
Bróðir minn og systir, þegar
þetta hefur gerst þá ef til vill
getum við spurt og svarað:
„Hverjir eru vinir okkar.“
Sigurður Arngrímsson,
frá fsafirði.
— Kissinger
Framhald af bls. I
áætlanir séu til fyrir kringum-
stæður af ýmsu tagi. Kissinger
sagði i ræðu sinni að ákvörðun
um aðgerðir yrði að sjálfsögðu
ekki tekin fyrr en eftir gaumgæfi-
lega athugun og umræður, auk
þess sem vilji yrði að vera fyrir
þeim meðal þings og þjóðar.
Hins vegar varaði Kissinger Ian
Smith, forsætisráðherra Rodesíu,
við því að hann skyldí ekki búast
við stuðningi Bandaríkjanna þótt
ógn stafi af sovézkum hergögnum
og kúbönskum hersveitum.
„Bandarikin hafa lýst eindregn-
um stuðningi sínum við meiri-
hlutastjórn (blökkumanna) og
réttindi minnihluta í suðurhluta
Afríku." Bandaríkjastjórn styðji
lausn á málinu eftir samninga-
leiðinni. í sambandi við úrslit
mála i Angóla sagði Kissinger:
„Við erum ekki lögregla alheims-
ins, — en við getum ekki heldur
leyft að Sovétríkin eða staðgengl-
ar þeirra verði lögregla heims-
ins.“ Hann harmaði enn ákvörðun
bandaríska þingsins að hætta
stuðningi við andkommúniskar
frelsishreyfingar í Angóla. „Það
er kominn tími til að það komi
skýrt fram að hvað okkur varðar
hefur Angóla ekki sett neitt for-
dæmi. Það er kominn tími til að
umheimurinn sé mínntur áþað að
Bandaríkin eru enn fær um skjót-
ar og afgerandi aðgerðir,“ sagði
Kissinger i ræðu sinni.
— Vestur-
Íslendíngur
Framhald af bls. 3
íslandi til Kanada, keypti fiðlu
þegar hann var 18 ára og lærði
á hana án nokkurrar verulegr-
ar tilsagna. Eric hefur hlotið
margvíslega viðurkenningu.
Þegar hann tók lokapróf frá
Juillard-skólanum vann hann
þar Moore-Loeb-verðlaun sem
veitt eru hljóðfæraleikurum,
sem leika á strengjhljóðfæri, og
árið 1971 hlaut hann bronsverð-
laun i Genf í tónlistarkeppni,
sem þar fór fram. Lék móðir
hans, frú Wilson, undir hjá
honum á pianó.
— Deilur
Framhald af bls. 1
strandlengju hlutdeild í auðlind-
um þeirra í hafi og á hafsbotni.
Ef 50-ríkja hópurinn og strand-
rikin komast ekki að málamiðlun
í þessu efni er hætta á að þau lönd
sem standa verst að vígi að þessu
leyti muni bregða fæti fyrir
gerð hafréttarsáttmálans, að því
er fréttaskýrendur í New York
telja. Ekki verður þó ljóst fyrr en
á síðustu tveimur vikum fundar-
ins í New York hversu alvarleg
þessi vandamál eru, en fundinum
á að Ijúka 7. maí Þá munu hin
u.þ.b. 150 þátttökulönd hafa farið
yfir og endurskoðað skjöiin frá
Genfarfundinum i fyrra.
— Karpov
Framhald af bls. 15
Belgrad í dag sagðist Karpoff því
sammála, að heimsmeitaratitilinn
hreppti sá keppandi, sem ynni sex
leiki, en hann vill að keppnisleik-
ir verði í mesta lagi 24. Þá kvaðst
hann andvigur því, að heims-
meistarinn yrði sviptur titlinum
við jafntefli í heimsmeistara-
keppni.
— Amin
Framhald af bls. 1
um að vara okkur á því að
giftast konum af háum stigum,
því að þær geta sparkað okkur
á dyr þegar þeim hentar,“
slendur i skeytinu, sem lesið
var upp í útvarp í Úganda. Þar
var einnig sagt, að skilnaðar-
málið hefði komið illa við for-
setann.
— Listaverka-
þjófnaður
Framhald af bls. 1
húsleit f einu af virðulegustu
hótelum Locarno. Verkin eru
„Húðstrýking Krists" og
Madonnan frá Senigallia" eftir
Piero della Francesca og „Mál-
leysinginn" eftir Raphael. Þeim
var stolið úr Greifahöllinni i
úrbino á Mið-ftalfu 6. febrúar f
fyrra.
Lögreglan sagði í dag, að bráð-
lega yrðu allmargar handtökur
gerðar í Urbino vegna málsins.
Þjófnaðurinn var á sínum tíma
kallaður „geðveikislegur, óskilj-
anlegur og ótrúlegur" því þjófun-
um tækist aldrei að selja verkin.
Dr. Rodolfo Siviero, forstöðumað-
ur stofnunar, sem annast lista-
verkaviðhald fyrir ríkið, líkti
stuldinum við stuldinn á Monu
Lisu úr Louvre-safninu í París
árið 1911. Siviero sagði að 3—4
menn væru viðriðnir málið, allir
úr Urbino-héraðinu og vissi lög-
reglan nöfn þeirra allra.
— Flaug
Framhald af bls. 15
mannsins, sem hrópaði: „Lengi
lifi keisarinn." Talið er að flug-
maðurinn hafi haft sjálfsmorð í
huga.
Kodama var rúmliggjandi á
heimili sínu er atburður þessi átti
sér stað, en hann sakaði ekki.
Mitsuyasu Maeno er fremur
óþekktur kvikmyndaleikari, en
nýlega kom hann fram í hinni
japönsku gerð kvikmyndarinnar
Emanuelle.
— Argentína
Framhald af bls. 1
pólitiskra ofbeldisverka, en um
160 pólitfsk morð hafa þegar ver-
ið framin á þessu ári. I gærkvöldi
voru a.m.k. 10 vinstri sinnaðir
skæruliðar skotnir til bana í bar-
dögum við lögreglu og hermenn
fyrir utan borgina La Plata, 60
km suður af Buenos Aires. I kvöld
ætluðu leiðtogar Perónista-
hreyfingarinnar og fimm
stjórnarandstöðuflokka að ræða
leiðir til lausnar á hinni pólitisku
og efnahagslegu kreppu í land-
inu.
— Líbanon
Framhald af bls. 1
ast nú leggja allt kapp á að
stækka áhrifasvæði sitt, en
skotbardagar voru viða háðir
og eldar geisuðu m.a. í tveim-
ur hótelum eftir sveitir
múhameðstrúarmanna.
Þá börðust stríðsaðilar einn-
ig m.a. í sumarleyfisborgunum
Beimeri og Broumanna í
hæðunum austur af höfuð-
borginni. Enn var allt á huldu
hvort Suleiman Franjieh, for-
seti myndi fallast á að segja af
sér. Þingið getur ekki komið
saman til að fjalia um tillögur
til lausnar vegna bardaganna í
miðborg Beirut, en sýrlenzkir
herforingjar eru að reyna að
koma á vopnahléi sem myndi
gera aðilum kleift að ræðast
við.
— Rhódesía
Munyua Waiyaki, utanrikisráð-
herra Kenya, útilokaði í dag
samningaviðræður og slökun
spennu í sambúð hvítra og
blakkra i suður hluta Afríku og
sagði að þjóðernissinnar ættu að
taka við sovézkum vopnum til að
koma minnihlutastjórnum hvítra
frá völdum. Muzorewa biskup
sagði í samtali við fréttamann
sænska sjónvarpsins í Mozam-
bique að ANC-fylkingin sem hann
er fyrir kynni í nánustu framtíð
að óska eftir kúbönskum hersveit-
um til hjálpar í viðureigninni við
stjórn Smiths og einnig myndu
þjóðernissinnar bráólega hafa yf-
ir að ráða fullkomnum vopnum
gegn herflugvélum Rhódesíu-
stjórnar. 1 gær varaði Henry
Kissinger, utanríkisráðherra
Bandarikjanna, Kúbumenn við
frekari hernaðaríhlutun í suður-
hluta Afríku, eins og fram kemur
í frétt annars staðar á síðunni.
Talsmenn hvitra Rhódesíu-
manna höfðu vísað tillögum Calla-
ghans á bug áður en Smith birti
yfirlýsingu sina í kvöld. Tim
Gibbs, leiðtogi Rhódesíuflokks-
ins, sagði að Bretar „viti fullvel
að valdaafsal í hendur blökku-
mönnum á 18 mánuðum til tveim-
ur árum myndi leiða til öng-
þveitis". Joshua Nkomo sagði
hins vegar að tvö ár væru of lang-
ur tími að sínu áliti: „Ég hafði
búizt við jákvæðari tillögu frá
brezku ríkisstjórninni."
— Hvers konar
útrás
Framhald af bls.7
fullnæging, basta. Loks getur
hún hugsað sér að hverfa heim
aftur, gengur enda með barni
elskhugans — eiturmangarans.
Tilþrif og hraði eru í sögu
þessari — að vissu marki. Að
kalla það spennu væri of djúpt í
árinni tekið. Sviðsskipti eru tíð.
Og alltaf er eitthvað nýtt að
bera við. Samt er þetta einhæf
saga og í rauninni furðulítið
skemmtileg miðað við þá mörgu
æsilegu atburði sem sagt er frá
og eins hitt hversu lipur frá-
sögnin hlýtur að teljast. Hvers
er þá vant? Fyrst og fremst lífs.
Söguþulan er tæpast að veita
innibyrgðum tilfinningum út-
rás, heldur leiðindum. Og þau
leiðindi eru smitandi. Lifsmark
hennar — fyrir nú utan það
hve henni tekst að teygja úr
frásögninni — er helst fólgið í
því að hún þolir áfengi lygilega
vel.
Ef til vill ber þá svo að skilja
að það sé vegna þess að hún
syndir í deyfð og sljóleika gegn-
um mestalla söguna Beri hins
vegar svo að skilja að hún sé að
leita að markmiði — lífsham-
ingju eða hvað á að kalla það —
finnur hún hana að lokum í
furðulegustu mynd sinni — í
soradreggjum þeirra heim-
kynna sem hún hefur flúið til.
Var það þá útrásin?
Nei, þessi saga skilur því mið-
ur hvorki eftir ævintýr né lífs-
sannindi í hugskotinu og veitir
sálarorku venjulegs lesanda
afartakmarkaða útrás.
— Tjaldanes
Framhald af bls. 2
myndu gleymast gleði og öðlings-
lund þess manns, er hann gat
eitthvað gert fyrir félagið. Hann
kvað heimilið aldrei hafa komizt á
laggirnar, hefði ekki notið við vel-
viljaðra manna, sem styrkt hefðu
það með ráðum og dáð. Að lokum
sagðist hann vonast til þess að
heimilið fengi enn að njóta for-
stöðumanns og yfirkennara,
þeirra Birgjs Finnssonar og
Hildar Knútsdóttur, en þau hefðu
að mati stjórnarinnar staðið sig
með mikilli prýði.
I stjórn Styrktarfélags
Tjaldanessheimílisins voru auk
Friðfinns Ölafssonar, Hafsteinn
Sigurðsson lögfræðingur, Oddgeir
Bárðarson framkvæmdastjóri,
Björgvin Vilmundarson banka-
stjóri og Hjörtur Hjartarson stór-
kaupmaður. Félagið mun halda
áfram starfi sínu og veita heimil-
inu lið, ems og það til þessa hefur
gert, þó að það nú að forminu til
skipti um eigendur.
Styrktarfélag Tjaldaness-
heimilisins afhenti síðan ríkinu
heimilið með þeim skilyrðum, að
þar yrði áfram starfrækt heimili
með heimavist fyrir vangefin
börn og unglinga. Lagði stjórn
styrktarfélagsins til að í framtíð-
inni yrði forstöðumaður heimilis-
ins skipaður af heilbrigðisráð-
herra, en yfirkennari af mennta-
málaráðherra.
Matthias Bjarnason heil-
birgiðisráðherra kvað, er hann
þakkaði þessa gjöf, sér verða
hugsað til allra þeirra er lagt
hefðu hönd á plóginn við
byggingu heimilisins, sem orðið
hefði að þeim griðastað sem
þroskaheftir hefðu fundið að
Tjaldanesi. Kvaðst hann votta
þeim virðingu sína af alhug.
Bjartsýni væri að sínu mati ein-
hver albezti eiginleiki hvers
manns og þegar þeim eiginleika
fylgdi hugrekki, birtist mönnum
réttilega sá árangur, sem kallaður
væri framtak.
Heilbrigðisráðherra kvað dag-
inn heppilegan til þess að leiða
hugann að öllu því góða, sem
framtaksamir menn gætu látið af
sér leiða á sviði heilbrigðismála.
Slíkt bæri allt að þakka. Hann
sagði, að nú reyndi á okkur hin,
sem ættum að taka við — að ekki
liggi eftir skuturinn, fyrst svo vel
var róðið framá. Ráðherra sagði:
„Mér er ljóst, að mikið starf er
framundan bæði I uppbyggingu
Tjaldanessheimilisins og i
málefnum þroskaskertra al-
mennt.“
Ráðherra sagði að ekki hefði
skort lagasetningu til aðstoðar
þroskaheftum börnum, en hins
vegar hefði skort fjármagn til
þess að framfylgja lögunum.
Hann kvaðst hafa fullan hug á að
beita sér fyrir úrbótum á þessu
sviði. Síðan sagði ráðherra:
„Varðandi Tjaldanessheimilið
sjálft er mér ljóst, að ýmissa úr-
bóta er þörf. Með gjafabréfi því,
sem ég hef í dag tekið f móti,
fylgir ítarleg greinargerð Birgis
Finnssonar, for^töðumanns
Tjaldanessheimilsisins. Þessi
greinargerð er hvort teggja í senn
lýsing á stöðu heimilisins i dag og
hugleiðing um næátu verkefni;
þau sem mest kallq á. Það hefur
ætíð verið ósk þéirra sem að
þessu heimili hafa staðið, að það
mætti verða til fyrirmyndar um
aðbúnað og kennslu þroska-
skertra. —Um leið og ép tek við og
þakka þá gjöf sem 'tofnendur
Tjaldanessheimilisins færa þjóð-
inni í dag vil ég heita þeim því að
leggja mitt lóð á vogarskálina
þessu málefni til liðsinnis. Hafið
heila þökk fyrir," sagði Matthias
Bjarnason heilbrigðisráðherra að
lokum.
— Hörð átök
Framhald af bls. 2
verkefnum stjórnarinnar, að
móta og semja reglur um póst-
kosningar en á aðalfundinum var
samþykkt að stjórnarkjör yrði á
þann hátt framvegis.
Með því móti skal tryggt, að
kosning til stjórnar félagsins
verði fullkomlega lýðræðisleg. Ég
vil að lokum lýsa furðu minni á
„frétt“ ríkisútvarpsins af málinu
' gærkvöldi, þar sem sagt var, að
afi léki á um lögmæti fundarins,
ín þess að ríkisútvarpið leitaði
ruggra heimilda. Eg fullyrði, að
jnginn vafi er á því, að kosning-
arnar voru löglegar."
— Þjóðar-
bókhlaða
Framhald af bls. 14
millj. 1980 og 266 millj. 1981 eða
samtals 1268 milljónir króna.
Ef byggingarframkvæmdir
hefjast 1977 og gert verður ráð
fyrir svipuðum hraða, ætti smíði
bókhlöðunnar að verða lokið
1982.
Auðvitað væri æskilegt: ef
hægt yrði að hraða framkvæmd-
um enn meir, því að húsnæðis-
vandi Landsbókasafns og
Háskólabókasafns vex gífurlega
með hverju árinu sem líður.
Rfkisstjórnin hefir hins vegar
ekki tekið afstöðu til framvindu
þessa máls, né heldur Alþingi
sem vitanlega fær það til með-
ferðar við gerð næstu fjárlaga.
Þriðja lið fsp. er því ekki auðið að
svara beinum orðum.
— Hið ótrúlega
er veruleikinn
Framhald af bls.7
keppikefli og hann nái oft
góðum árangri í henni, saman-
ber Nykurlilju og fleiri kvæði i
Yrkjum, er skáldskapur hans
fullur af mannlegum boðskap
og honum tekst stundum að
opna sjónir okkar fyrir óvæntri
fegurð. Hann ætlar sér ef til
vill ekki jafn mikinn hlut með
Yrkjum og með öðrum bókum
sinum, en tekst það sem máli
skiptir innan sinna vissu
takmarka.
— Kartöflur
Framhald af bls. 3
staðreynd að erfitt getur reynst
að segja fyrir um veður fram í
tfmann.
Það er víðar en á íslandi sem
skortur er á kartöflum. Svíar
keyptu t.d. fyrir skömmu kartöfl-
ur frá Bandaríkjunum. Tegund
sú sem þpir fengu er það stórgerð
að aðeins þrjár kartöflur þarf i
kíló, en kílóið kostar um 250
krónur ísl. Kostar því hver
kartafla 84 krónur. I Danmörku
kostar nú hvert kíló af kartöflum
94 krónur ísl. en samkvæmt nýju
verði á landbúnaðarvörum hér á
landi kostar nú hvert kíló af
kartöflum i fyrsta flokki 83,52
krónur. Þó mönnum sé tíðrætt um
kartöfluskort á höfuðborgar-
svæðinu skal það tekið fram að
enn eru til íslenskar kartöflur frá
síðasta sumri í Eyjafirði og fara
þær til dreifingar á Akureyri og
nágrenni.