Morgunblaðið - 24.03.1976, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1976
t
AUÐUNN SÆMUNDSSON,
frá Minni Vatnsleysu
andaðist að Hrafmstu 23 þ m
Börn, tengdabörn
og aðrir aðstandendur
Konan mín
andaðist 22 marz
ELÍSABET INGVARSDÓTTIR.
Einarsnesi 27, Reykjavík
Hallgrímur Jónasson
+
Móðir okkar
MAGNÚSÍNA MAGNÚSDÓTTIR,
frá Skagaströnd,
Sigtúni 27, Reykjavík
verður jarðsunym frá Fossvogskirkju fimmtudagmn 25 marz kl 1 30
síðdegis
Guðríður U. Valdimarsdóttir,
Sveinn H. Valdimarsson,
Lárus Þ. Valdimarsson
+
Fósturfaðir og stjúpi
INGÓLFUR EINARSSON,
Hrafnistu.
verður jarðsungmn frá Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 25 þ m
kl 1 3 30 — Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim, sem vildu
minnast hms látna, er bent á Lfknarsjóð Oddfellowstúkunnar nr 5
Þórstems
Elías Guðmundsson
Ragnheiður Bjarnadóttir
(Aths Minningarkortin fást í Leðurverzlun Jóns Brynjólfssonar,
Austurstræti)
t
Jarðarför mannsms míns, föður okkar og sonar
KRISTINS V. HALLGRÍMSSONAR
hagfr.
Víðihvammi 12, Kópavogi.
fer fram frá Fossvogskapellu fimmtudagmn 25 marz 1976, kl 3 e h
Blóm og kransar vmsamlegast afbeðin en þeir, sem vildu minnast hins
látna láti Hjartavernd njóta þess _ _ , ...
Anna S. Lorange og born
Hallgrímur Pétursson.
t
Alúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
eiginmanns míns, föður og bróður
JÓNS SVEINSSONAR
Hraunteigi 1 0
Halldóra Hafliðadóttir, Kristjana Jónsdóttir
Elín Halldórsdóttir, Halldóra Halldórsdóttir,
Erla Sveinsdóttir.
t
Alúðarþakkir til allra. sem vottuðu okkur hlýhug og hluttekningu við
andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu
KRISTENSUJENSEN
Álfheimum 56, Reykjavík
Torfey Steinsdóttir Björn Eyþórsson
Kristján Steinsson Þórdls Valdimarsdóttir
og barnabörn
t Þökkum innilega öllum þeim, sem sýndu sonar okkar, bróður og sonarsonar okkur samúð vegna fráfalls
JÓNS GUÐNA PÉTURSSONAR
Sólvallagötu 42. Keflavik.
Þóranna Erlendsdóttir, Pétur Pétursson,
Sigrún Pétursdóttir, Jónatan Sigurjónsson,
Sævar Pétursson, Kristján Pétursson Signhild og Guðmundur Elíasson Pétur Þór Pétursson,
Klara Hjartardóll-
ir—Minningarorð
Fædd 10. janúar 1917.
Dáin 6. marz 1976.
Þann 12. þ.m. var útför Klöru
Hjartardóttur gerð frá Hafnar-
fjarðarkirkju, að viðstöddu miklu
fjölmenni.
Klara andaðist á Landspítalan-
um 6. marz s.l. eftir harða sjúk-
dómsbaráttu.
Hún var einkadóttir þeirra
merkishjóna Hjartar Þorleifs-
sonar vélstjóra, er lézt árið 1963
og Jónínu Guðmundsdóttur, er
dvelur nú á Hrafnistu, heimili
aldraðra í Reykjavík og er nær
hálfníræð.
Þau hjónin Hjörtur og Jónína
bjuggu lengst af á Suðurgötu 9
(Blöndalhshúsinu) í Hafnarfirði.
Reisulegu húsi í hjarta bæjarins,
svo sem öllum eldri Hafnfirð-
ingum er kunnugt.
Þar man ég fyrst eftir Klöru og
bræðrum hennar Jóhanni og
Guðmundi, ásamt fóstursystur
þeirra, Vigdísi Guðbrandsdóttur,
er á unga aldri kom á heimilið.
Mjög kært var með þeim systk-
inum alla tið og var þar ekki
fóstursystirin undanskilin.
Klara Hjartar, eins og hún var
alltaf nefnd af kunnugum, var
sérlega elskuleg, vinsæl og vin-
föst.
Hún var óvenju bráðger og táp-
mikil. Aðeins 13 ára gömul varð
hún sunddrottning Hafnarfjarð-
ar, lang yngst allra keppendanna.
Þegar hún hafði aldur til fór
hún á Húsmæðraskólann á Isa-
firði, sem var þá mjög eftirsóttur
skóli og talinn fyrirmyndarskóli
fyrir ungar stúlkur. Naut hún
mikils góðs af þeirri menntun
sinni siðar á lífsleiðinni.
Tvitug þ.e.as. þann 10. nóvem-
ber árið 1937, giftist hún Kristj-
áni Jónssyni (f. 20/6 1915 d.
11/12 1964), ættuðum frá Isafirði.
Hann var ungur dugmikill sjó-
maður, er byrjaði að vinna á sjón-
um laust eftir fermingu.
Þau bjuggu lengst af i Hafnar-
firði, Klara bjó þeim vinalegt og
smekklegt heimili af sínum
þekkta dugnaði og myndarskap.
Þangað var gott að koma og þar
rikti jafnan góður heimilisandi.
Þau eignuðust þrjá syni, Sig-
urð, Guðmund og Sigurjón, sem
allir eru kvæntir. Þeir eru og allir
sérlega góðir iðnaðarmenn. Tveir
þeirra eru búsettir úti á landi, en
einn í Reykjavík. Barnabörnin
eru orðin 11. Þau sakna nú sárt
t
Tengdafaðir minn og afi okkar,
KRISTMUNDUR ÓLAFSSON,
fyrrv. verkstjóri,
Reykjavfkurhöfn.
lézt að heimili sínu Ásvallagötu
23, 22 3 1976
Gróa Valdimarsdóttir og börn.
t
LILJA SIGURJÓNSDÓTTIR,
Hjaltabakka 16,
lést að morgni 23 marz að
Vlfilsstöðum Fyrir okkar hönd
og fjarstaddra systra
Jóhann Jónsson,
Anna Jónsdóttir,
Þorbjörn Jónsson.
öll sinnar góðu ömmu, sem aldrei
gleymdi þeim, en gladdi þau svo
oft með góðum gjöfum.
A miðjum aldri varð Kristján
fyrir áfalli og varð að hætta á
sjónum. Sneri hann sér þá að
leigubílaakstri, sem hann stund-
aði meðan heilsan leyfði. I
veikindum Kristjáns stóð Klara
sem hetja við hlið maka síns, og í
löngu sjúkdómsstríði hans, síð-
ustu árin sem hann lifði, sýndi
hún fádæma kjark og þolinmæði.
Sonunum ungu var hún hlif og
skjól, eftir að Kristján féll frá.
Klara var mikil móðir, sem lagði
allt á sig fyrir drengina sina.
Starfsorka hennar og dugnaður
var með fádæmum, enda átti hún
ekki langt að sækja það. Vinnu-
afköstin, hvort sem um var að
ræða almenna vinnu eða fínni
hannyrðir voru með ólíkindum.
Því var hún mjög eftirsótt til
vinnu.
Klara var að eðlisfari hrein-
lynd, ákveðin, en réttsýn og sér-
lega hjálpfús og rausnarleg, oft
um efni fram. Skyldurækin var
hún alla tíð, en hún lærði aldrei
þá list að fá mikið kaup fyrir litla
vinnu og því varð vinnudagurinn
oft langur.
Klara hafði alla ævi verið
óvenju heilsuhraust, þvi komu
veikindi hennar öllum svo óvænt,
er hún fyrir rúmu ári veiktist og
varð að ganga undir stóra skurð-
aðgerð. Eftir skurðaðgerðina virt-
ist hún hafa fengið nokkra heilsu-
bót. Hún fór aftur að vinna seinni
hluta sumars, en varð að hætta
því í desembermánuði síöast-
liðnum. Þá vissu allir kunnugir að
alvara var á ferð, fyrst hún var
hætt að vinna, svo hörð og ósér-
hlífin, sem hún var alla tíð við
sjálfa sig.
Nú var augljóst að hverju dró.
Synir hennar og fjölskyldur
þeirra komu að norðan til þess að
eiga með henni síðustu jólin, á
hinu fallega heimili móður sinnar
að Selvogsgötu 5. Þar höfðu þeir,
allir synirnir lagt gjörva hönd að
verki. Breytt, prýtt og lagfært alla
íbúðina, svo hún var sem ný.
Jólaljósin voru tendruð og
brunnu svo skært. Megi þau ljós
lýsa þeim um öll ókomin ár. En
svo —.
Klara var alla tíð augasteinn
móður sinnar og alltaf sama
elskulega „barnið" gagnvart
móður sinni til hinstu stundar.
Svo elskuleg og skilningsrík
dóttir var Klara, að lengraverður
naumast komist.
Því er missir og söknuður hálf-
níræðrar móður svo stör og svo
sár, en elskulegar minningar ylja
og vara um alla eilífð. Umhyggja
barnanna sem eftir lifa og ástúð
þeirra, tengdabarna og barna-
barna mun varpa ylgeislum á ævi-
kvöldið.
Klökkum huga kveðjum við
hjónin Klöru Hj artardóttur.
Þökkum langa og tryggja vináttu
og hjálpsemi hennar þegar á móti
blés; Við biðjum öllum þeim, sem
henni voru kærir og sýndu henni
líknsemd síðasta spölin guðsbless-
unar. „Drottinn gefi dánum ró, en
hinum líkn sem lifa“.
Blessuð sé minning mætrar
konu.
Helgi Jónsson.
Evlalía Jónsdóttir
Minningarorð
Fædd 28. október 1914.
Dáin 9. marz 1976.
Hún var fædd í Reykjavík 28.
október 1914, dóttir hjónanna
Guðrúnar Guðmundsdóttur frá
Bolholti á Rangárvöllum og Jóns
Halldórssonar frá Norðurkoti á
Vatnsleysuströnd, þeirra börn
voru 7 ög eru 4 þeirra enn á lífi.
Evlalía eða Ella, eins og hún
var jafnan kölluð ólst upp hér i
bæ. Arið 1935 gekk hún að eiga
Sigurð Einarsson bifreiðastjóra
frá Ivarsseli og eignuðust þau 3
syni; Elvar, Einar og Hörð.
Ella átti við mikla vanheilsu að
striða, einkum síðustu tvö árin og
lá þá oft á sjúkrahúsum. Bar hún
veikindi sin með þolinmæði, enda
oftast létt í lund og nægjusöm,
leit líka tilveruna björtum
augum, þrátt fyrir allt mótlæti.
Hún var hjálpsöm og gjafmild,
enda samviskusöm í starfi. Unni
mjög sonarbörnum og tök miklu
ástfóstri við þau.
Er hún fyrir nokkru virtist vera
að hressast i veikindum sinum,
hafði hún hug á því að ferðast
vestur á Hellissand og heimsækja
syni sína, tengdadætur og sona-
börn. En áður en af því yrði, kom
kallið öllum að óvörum og hönd
dauðans sneri leiðinni til eilífðar-
stranda.
Við tengdadæturnar eigum
henni mikið að þakka fyrir hjálp-
semi og umhyggju. Og i harmi
okkar biðjum við Alföður, að
blessa minningu hennar og að
styrkja ástvinina á saknaðar
stundu.
Tengdadætur.
t
Þökkum innileg auðsýnda samúð og vínarhug við andlát og útför
eiginmanns mins, föður okkar, tengdaföður og afa
ARNÓRS ÞORVARÐARSONAR
frá Jófrlðarstöðum
Hringbraut 55 Hafnarfirði
Sólveig Sigurðardóttir
börn, tengdabórn og barnabörn
Afmælis- og
minningar-
greinar
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig verð-
Ur grein, sem birtast á I mið-
vikudagsblaði, að berast f síð-
asta lagi fyrir hádegi á mánu-
dag og hliðstætt með greinar
aðra daga. Greinar mega ekki
vera I sendibréfsformi eða
bundnu máli. Þær þurfa að
vera vélritaðar og með góðu
línubili.