Morgunblaðið - 24.03.1976, Side 32
Al'GLÝSINGASÍMINN ER:
22480
|íl9tísxinbl«lii&
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1976
Tveir kröfuhafar bjóða:
120 millj. í vél-
ar Air Viking
Vélarnar metnar á 60 millj. kr. —
Lýstar kröfur Olíufélagsins 75 millj.
og Alþýðubankans 40 milljónir
SKIPTAFUNDUR var haldinn i
gærmorgun í þrotabúi Flugfé-
iagsins Air Viking. Að sögn
skiptaráóandans Unnsteins Beck
komu fram.tvö tilboð í flugvélar
félagsins. Olíufélagið hf. hauð 60
milljónir I þá einu vél, sem nú er
I flughæfu ástandi, og Samvinnu-
bankinn bauð 60 milljónir I hinar
vélarnar tvær, en bankinn átti
veð I báðum vélunum vegna
ábvrgða. Aðra vélina er ha‘gt að
gera flughæfa, en ekki er talið
svara kostnaði að gera hina upp.
Skiptafundi var frestað til klukk
an 16.30 I dag svo aðilar gætu
fhugað þessi tilboð. Dómkvaddir
flugvélaverkfræðingar sem mátu
vélarnar þrjár til verðmætis I
sölu, komust að þeirri niðurstöðu
að þær væru alls 60 millj. kr.
virði en matið á vélunum þremur
skiptist I 10,20 og 30 millj. kr.
Unnsteinn Beek tjáðí blaðinu,
að sífellt bærust fleiri kröfur i
þrotabú Air Viking. Oliufélagið
hf. hefur lýst sínum kröfum, að
upphæð 75 milljónir og 240 þús-
und. Auk þess hefur fulltrúi Olíu-
félagsins sagt að fyrir liggi fleiri
kröfur frá félaginu. Alþýðubank-
inn hefur lýst sínum kröfum og
eru þær um 40 milljónir króna.
Eru það bæði beinar kröfur og
ábyrgðir. Olíufyrirtækið Mobil
Oil hefur lýst kröfum að upphæð
42 milljónir vggna oliutöku Air
Viking fyrir jólin, þegar fyrirtæk-
ið var í pílagrimaflugi í Austur-
löndum. Þá hafa þrir aðilar i
Sierre Leone, þar sem Air Viking
hafði bækistöðvar i pílagríma-
fluginu komið fram með 6.2 millj-
ón króna kröfu samtals. Eru þetta
flugvallaryfirvöld og umboðsmað-
ur Air Viking. Loks hefur flugfé-
lag í Bandaríkjunum komið fram
með 26 milljón króna kröfu vegna
samninga, sem félagið telur sig
hafa gert við Air Viking um
kaup og leigu á fjórðu flugvél-
inni, sem aldrei hefur komið til
landsins. Air Viking hefur mót-
mælt þessari kröfu.
Ekkert heildaryfirlit liggur enn
fyrír um þær kröfur, sem borizt
hafa i þrotabú Air Viking. Mjög
margar þeirra eru í dollurum og
þurfa að umreiknast vegna geng-
isbreytinga.
Páll Pampichler Pálsson hljómsveitarstjóri er þarna að stjórna
æfingu hjá Sinfónfuhljómsveit tslands, en myndin tók Friðþjófur
Ijósmyndari Mbl. f Háskólabfói f gær. Sinfónfan heldur tónlcika f
Háskólabfói annað kvöld og þar verður m.a. frumflutt nýtt verk
eftir Pál hljómsveitarstjóra, samið fyrir karlakór og sinfónfuhljóm-
sveit. Verkið heitið Svarað f sumartungl eftir samnefndu ljóði
Þorsteins Valdimarssonar, en það er Karlakór Reykjavfkur sem f
fyrsta sinn syngur með Sinfónfunni á reglulegum tónleikum.
Missti
fjóra fing-
ur í haus-
ingavél
Þorlákshöfn, 23. marz.
UNGUR piltur um tvítugt
varö fyrir því slysi í dag aö
lenda með aöra höndina í
hausingavél hjá fisk-
verkunarstööinni Glettingi
og missti hann fjóra
fingur. véiin haföi stöðvast
og var pilturinn aö huga að
hverju það sætti þegar vél-
in fór skyndilega í gang og
skipti þaö engum togum aö
hún tók höndina og klippti
fjóra fingur af. Öryggis-
eftirlitið hafði fyrir
skömmu skoöaö vélina og
var hún þá í lagi.
Pilturinn var fluttur í
Borgarspítalann, en ekki
reyndist unnt aó græða
fingurna á hönd hans aft-
ur.
— Sigurður
skröpuð af. Einnig hafa
bílar verið illa leiknir á
þessu svæöi. Þá hafa
myndast þaö miklir sand-
skaflar sums staöar á aðal-
götu í Vík að ófært hefur
oröið fólksbílum og hefur
þurft að ryöja þeim braut.
Þaö mun óhætt að fullyrða
að tjón af völdum þessara
sandveðra skiptir VíKur-
búa milljónum króna. Er
þörf einhverra bóta fyrir
það tjón sem orðið er og þá
ekki síður að gert yrði eitt-
hvað raunhæft er kæmi í
veg fyrir þennan mikla
sandágang er alltaf hefur
herjað á Víkurkauptún
öðru hvoru. — Sigþór
Stefnt að hítaveitu fyrir
70—80% Vestfjarðabyggða
Ljósmynd Mbl. ÓI.K.M.
TOGARINN Hrönn RE 10 kom I togi til hafnar í
Reykjavfk í gær og hafði orðið alvarleg bilun í vél
skipsins. Verið er að kanna málið.
Tugir tonna af foksandi við hús Víkurbúa
Vik í Mýrdal, 23. marz.
Tíðarfar hefur verið óvenju
óstöðugt hér undanfarið og
hafa oftast fylgt því
nokkuð sterk veður, sem
hafa orsakað mikið sandfok
hér í Víkurkauptúni hvaó
eftir annað. Skeður þetta
er rok hefur verið hér af
suðvestri. Hefur þá rifið
upp sand hér úr fjörunni
og einnig úr sandgræðslu-
girðingu sunnan við
þorpið. Verst hafa þessi
veður leikið húsin, sem eru
næst sjónum, en þau eru
öll mjög nýleg og sum
alveg ný. Þar er nú á lóóum
við húsin foksandur er
skiptir tugum tonna, gler í
húsum er gjörsamlega
ónýtt og málning mjög
Milljónatjón í Vík
vegna sandfoks
Tillaga um stofnun orkubús fyrir Vestfirði
ORKUNEFND Vestfjarða skipuð af Gunnari Thoroddsen iðnaðarráð-
herra, hefur nú skilað tillögum til ráðherra um orkubú fyrir Vestfirði,
sem hafi það verkefni að annast framleiðslu og dreifingu raforku og
hagnýtingu jarðvarma f þessum landshluta. Miðað er við að orkubúið
verði fyrirtæki sem sé sameign rfkisins og sveitarfélaga á Vestfjörð-
um. Til skamms tfma var ekki talinn nýtanlegur jarðvarmi fyrir
þéttbýlissvæði á Vestfjörðum, en á sfðustu mánuðum hafa rannsóknir
leitt f Ijós að allt útlit er fyrir að 70—80% byggðar á Vestfjörðum geti
notið jarðvarma f hitaveitum. Um 10 þús. fbúar búa á Vestf jörðum.
Tillögur nefndarinnar eru tví-
þættar. Annars vegar frumvarp
til laga um Orkubú Vestfjarða og
hins vegar tillögur um fram-
kvæmdir í orkumálum. Nefndin
kynnti tillögur sínar fyrir sveitar-
stjórnarmönnum á 8 fundum á
Vestfjörðum og hvarvetna kom
fram mikill áhugi fyrir framgangi
málsins, en nefndin naut aðstoðar
7 sérfræðinga við mótun tillagna
um framkvæmdir í orkumálum á
þessu svæði, en stanzlaust hefur
verið unnið að þessu máli sfðan
nefndin var skipuð 23. júlí sl.,
segir í fréttatilkynningu sem Mbl.
barst í gær. Fjórðungssamband
Vestfjarða hefur lýst yfir ein-
dregnum stuðningi við málið.
„Það er mikill áhugi á þessum
málum á Vestfjörðum," sagði Þor-
valdur Garðar Kristjánsson al-
þingismaður, formaður orkuráðs,
í samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi þegar Mbl.leitaði upplýs-
inga um framgang málsins, „olíu-
kostnaður er mikill á þessu svæði,
enda nánast öll upphitun með
olíu. Þar til fyrir fáum mánuðum
hefur verið litið á Vestfirði sem
landsvæði, þar sem ekki hefur
verið talið mögulegt að nýta jarð-
varma til orkugjafar í þéttbýli.
Þetta sjónarmið hefur breytzt á
undanförnum mánuðum, því síð-
an í sumar hefur stöðugt verið
unnið að rannsóknarborunum
með árangri í Tálknafirði, á Suð-
ureyri, tsafirði og Patreksfirði.
Þessum borunum er nú lokið og
nú er verið að bora í rannsóknar-
holur í Flókalundi í Vatnsfirði.
Astæðan fyrir þessum breyttu
viðhorfum er sú að skilyrði hafa
reynst hagstæð við nánari rann-
teóknir og að tekin hefur verið
upp ný tækni f jarðborun
með stórum borum, sem geta
borað allt niður á 4000 metra
Framhald á bls. 2.
íslandsþorsks sakn-
að í Hull og Grimsby
Hull, 23. marz. f’rá fréttarítara Mbl. Mike
Smartt:
KOMIÐ hefur fram að þorski að
verðmæti ein og háif milljón
sterlingspunda sem ella hefði
verið landað í Bretlandi, hefur
verið landað á tslandi þar sem
hann hefur verið frystur og flutt-
ur út til Rússlands og Bandarfkj-
anna. Jón Olgeirsson, ræðismaður
Islands 1 Grimsby, segir að ástæð-
an sé bann brezkra togaraeigenda
á landanir fslenzkra skipa í Hull
og Grimsby. Útkoman sé þannig
sú að þorskurinn gangi brezkum
húsmæðrum úr greipum.